uk

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ Епізодів: 2916

Podcastþættir Fótbolta.net

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: fotbolti.net

Автор

Fotbolti.net

Категорія

Sports

Сайт подкасту

fotbolti.net

Останній епізод

28 вер 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari 10.08.2026

Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestasérfræðingur er Gunnar Jarl Jónsson. KR vann stórskemmtilegan stórleik gegn Fram, Víkingar slökuðu á og töpuðu niður forystu, Akureyrarliðin sitja í fallsætum, Stjörnumenn unnu tíu Keflvíkinga og Valur vann Breiðablik.

Uppbótartíminn - Gleði í neðri hlutanum 10.08.2026

Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár? 10.08.2026

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að heyra hvað stuðningsmenn Manchester United hafa að segja. Grétar Óskarsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Coke stúdíóið. Michael Carrick er að fara inn í sitt fyrsta heila tí...

Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi 08.08.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag. Einnig er rætt um Luton og St. Pauli. Í seinni hluta þáttarins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur veri...

Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola 07.08.2026

Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn á b...

38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans 06.08.2026

38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því...

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri 05.08.2026

Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni niður? Það er nóg að gerast á skrifstofu Íslandsmeistara Víkings.

Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju 31.07.2026

Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.

Harkið - Great escape? 30.07.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum 29.07.2026

Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum í deildinni, það er svakalegur pakki að myndast í neðri hlutanum og á toppnum eru tvö lið jöfn. Hvað gerist áður en glugginn lokar. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum 27.07.2026

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.

Harkið - Þrennu VÖK 27.07.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur 24.07.2026

Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?

Harkið - Draugavíti í Mosfellsbæ 22.07.2026
Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val 21.07.2026

Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí. Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld. Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið u...

Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer? 21.07.2026

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi? 20.07.2026

Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli. Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli.

HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar? 20.07.2026

Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið. Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.

Útvarpsþátturinn - Glugginn galopinn og allir angar úti 17.07.2026

Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta. Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í Bestu og úrslitaleikur HM er framundan.

HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu 16.07.2026

HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka. Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga.

Harkið - Grenivíkur Grétar 15.07.2026
Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals 13.07.2026

Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars. Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar. Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu.

HM hringborðið: Þarf að minnka skjátímann hjá Alf Inge 13.07.2026

Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni. Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit.

Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“ 13.07.2026

Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu. Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku. Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum.

Útvarpsþátturinn - Áhugaverð umferð og leikar æsast á HM 10.07.2026

Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri. Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað.

Слухайте подкаст Fotbolti.net у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали