Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: fotbolti.net
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Halli Björns mætti í stórskemmtilegt spjall 11.02.2018
Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, er einn skemmtilegasti viðmælandinn í íslenskum fótbolta. Hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um boltann, Stjörnuna, gervigras og fleira. Þá var spjallað um hans gömlu félaga í Östersund í Svíþjóð sem eru að fara að mæta Arsenal í Evrópudeildinni næsta fimmtudag.
Fyrrum enskur landsliðsmaður ræðir um Guðjón og indverska boltann 11.02.2018
Russell Osman lék á sínum tíma ellefu landsleiki fyrir England en þessi fyrrum leikmaður Ipswich, Leicester og Southampton starfar nú sem sparkspekingur í indverska sjónvarpinu. Þar fjallar hann um indversku Ofurdeildina og allt sem að henni snýr. Rætt var við Osman í útvarpsþættinum F&o...
Frábær Fjölnisvika gerð upp 10.02.2018
Fjölnismenn urðu Reykjavíkurmeistarar í fótbolta í vikunni þegar þeir unnu sigur á Fylki í úrslitaleik. Þá endurheimti félagið Bergsvein Ólafsson og Guðmund Karl Guðmundsson sem eiga vafalítið eftir að styrkja hóp þeirra vel. Elvar Geir, Tómas Þ&oacu...
Boltaspjall - Hvar er peningunum best varið í íslenskum fótbolta? 10.02.2018
Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson spjölluðu um íslenskan fótbolta í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Rætt var um Lengjubikarinn, hvernig má bæta undirbúningstímabilið og hvernig er peningunum b...
Innkastið - Spurs gestur og Liverpool drama 05.02.2018
Enski boltinn er helsta umræðuefnið í Evrópu-Innkastinu. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir helstu tíðindin og leiki úrvalsdeildarinnar. Jóhann Ólafsson, fréttamaður mbl.is og stuðningsmaður Tottenham, er gestur vikunnar.
Ítalski boltinn - Napoli 05.02.2018
Eftir hlé er Björn Már Ólafsson mættur aftur með podcast þættina um ítalska boltann sem slógu í gegn á síðasta tímabili.
Rasmus ræddi um samkeppnina í Val og lífið á Íslandi 04.02.2018
Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þessi geðþekki leikmaður varð Íslandsmeistari með Val í fyrra. Hann ræddi við Elvar og Tómas um samkeppnina í Valsliðinu og lífið innan sem utan vallar.
Gunnar Jarl og bransasögur úr dómgæslunni 04.02.2018
Gunnar Jarl Jónsson kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og spjallaði við Elvar og Tómas. Gunnar hefur ákveðið að leggja flautuna á hilluna og telur líklegra en ekki að hún muni verða þar áfram. Hann hefur verið einn allra besti dómari Íslands um margra ára skeið.
Innkastið - Farsakenndur janúargluggi 31.01.2018
Evrópu-Innkastið þessa vikuna er með gluggaþema! Farið er yfir félagaskiptagluggann og helstu tíðindin. Einnig var nýliðin umferð í ensku úrvalsdeildinni til umræðu þar, bikarinn, myndbandsdómgæsla, vandræði Dortmund og fleira. Spennan magnast í slagnum um Meistaradeildars&ae...
Rúnar Kristins ræddi um KR, þjálfarabransann og Belgíu 27.01.2018
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Belgíska landsliðið, endurkoman til KR, tímabilið framundan á Íslandi og möguleikar íslenskra þjálfara var...
Fótboltafréttir vikunnar - Þjóðadeild, Indland og Alexis Sanchez 27.01.2018
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu helstu fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hjörvar Hafliðason var á línunni og skoðaði viðskipti Manchester United og Arsenal sem skiptu á Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan.
Innkastið - Magnaður skiptidíll og dæmigert Liverpool 22.01.2018
Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Benedikt Bóas Hinriksson eru ferskir í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Skiptidíllinn með Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan var að sjálfsögðu ræddur.
Ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina 20.01.2018
Er glórulaust að spá fyrir um deildina í janúar? Já vissulega en það er skemmtilegt og því var opinberuð janúarspá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Hvernig er spáin miðað við leikmannahópa liðanna í dag? Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu stöðu mála. Þá var haldið áfram að taka púlsinn á liðum Pepsi-deildarinnar. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var á línunni.
Landsliðshringborð - Kennsla í Þjóðadeildinni og leikmenn á faraldsfæti 20.01.2018
Landsliðshringborðið var dregið fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Á miðvikudaginn verður dregið í Þjóðadeildina en ljóst er að Ísland verður þar með stórþjóðum í riðli enda í efsta styrkleikaflokki eftir magnaðan árangur síðustu ár. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Gunnar Gylfason, starfsmann KSÍ, sem er helsti sérfræðingur Íslands um þetta nýja mót. Gunnar útskýrði...
Innkastið - Sturlaður stórleikur, Arsenal þunglyndi og illa vegið að Mourinho 15.01.2018
Það er komið að Innkasti vikunnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu sér kaffibolla og ræddu það helsta sem er í gangi í Evrópufótboltanum. Runólfur Trausti Þórhallsson, stuðningsmaður Manchester United, er gestur í Innkastinu að þessu vikuna. Rætt var um Liverpool - Manchester City, Manchester United - Stoke, helstu tíðindin í glugganum, erfiðleika Arsenal og ýmislegt fleira.
Guðlaugur Baldurs ræðir um Keflavík og Pepsi-deildina 15.01.2018
Guðlaugur Baldursson, þjálfari Keflavíkur, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Benedikt Bóas og Elvar Geir um Keflavík og baráttuna í Pepsi-deildinni. Keflvíkingar komust upp úr Inkasso-deildinni í fyrra og eru mættir aftur í deild þeirra bestu.
Hvað er í gangi hjá Real Madrid? 13.01.2018
Real Madrid er langt á eftir Barcelona í spænsku deildinni og ljóst að liðið á ekki möguleika á því að verja titil sinn. Lykilmenn hafa verið ósannfærandi og eftir blómlega byrjun þarf Zinedine Zidane að stýra Madrídingum út úr veseni. Það er þ&oa...
Enski boltinn - Helstu fréttir og stórleikir helgarinnar 13.01.2018
Helstu tíðindin úr enska boltanum og hitað upp fyrir Tottenham - Everton og Liverpool - Manchester City. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Magnús Már ræddu um enska boltann í útvarpsþættinum á X977.
Beint frá Indónesíu - Upphitun fyrir landsleikinn á morgun 13.01.2018
Ísland mætir landsliði Indónesíu í vináttulandsleik í Jakarta á morgun sunnudag. Á fimmtudag var leikið gegn úrvalsliði indónesísku deildarinnar og vannst þar 6-0 sigur. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari býst við erfiðari leik gegn öflugri leikmönnum á morgun en mikill áhugi er fyrir leiknum í Indónesíu. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Guðlaugur Baldursson ræddu um þetta land...
Innkastið - Ensku liðin sett í jólapróf 08.01.2018
Evrópu-Innkastið er mætt aftur á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz gerðu upp jólatörnina í þessum fyrsta þætti ársins 2018. Hvert lið í ensku úrvalsdeildinni fékk einkunn fyrir frammistöðu sína innan sem utan vallar í jólatörninni. Stjóraskipti, Coutinho, völvuspá, markarýrð Ronaldo og margt fleira kemur til tals í þættinum.
Oliver í mikilli óvissu vegna meiðsla sinna 07.01.2018
Miðjumaðurinn Oliver Sigurjónsson er enn að glíma við erfið meiðsli en hann gekk í raðir norska liðsins Bodö/Glimt frá Breiðabliki í júlí síðastliðnum. Hann gat ekki spilað mikið á sínu fyrsta tímabili með norska liðinu en það vann B-deildina með yfirburðum og leikur í úrvalsdeildinni í ár.
Sævar Péturs: Mögulegt að KA fái Gambíumenn 07.01.2018
„Ég er mjög ánægður með þessa viðbót við hópinn," segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, um þá tvo nýju leikmenn sem Akureyringar fengu um hátíðarnar. Spænski markvörðurinn Cristian Martínez kom frá Víkingi Ólafsvík og miðvörðurinn Hallgrímur Jónasson er kominn heim úr atvinnumennskunni og gekk í raðir KA.
Enska hringborðið - Allt að gerast í Liverpool og víðar 06.01.2018
Það var nóg að ræða við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðan gest. Magnús Þór Jónsson af kop.is kom í gasklefann. Umræða um Liv...
Elvar og Tómas fara yfir íslensku fréttir vikunnar - Landsliðin og Pepsi 06.01.2018
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net var á sínum stað á X977 en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hófu þáttinn á því að fara yfir helstu fréttirnar í upphafi árs úr íslenska boltanum. Indónesíuferðin, landsleikirnir í mars, kvennalandsliðið og Dagný Brynjarsdóttir, vetrarmótin, Björn Bergmann Sigurðarson og fleira koma við sögu í spjalli þeirra.
Áramótakæfan 2017 - Fótboltaárið gert upp 31.12.2017
Veglegur áramótaþáttur þar sem fótboltaárið 2017 var gert upp á X977. Umsjónarmenn: Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson. Meðal viðmælenda: Aron Einar Gunnarsson, Andri Rúnar Bjarnason, Einar Örn Jónsson, Davíð Snorri Jónasson og Tómas Meyer. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum og gleðin var við völd.
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали