uk

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ Епізодів: 2954

Podcastþættir Fótbolta.net

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: fotbolti.net

Автор

Fotbolti.net

Категорія

Sports

Сайт подкасту

fotbolti.net

Останній епізод

25 лис 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android 10 млн+ завантажень · рейтинг 4,7+ iOS незабаром

Епізоди

Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt 16.03.2026

Alfons Sampsted færði sig um set í upphafi árs þegar hann gekk til liðs við Go Ahead Eagles í Hollandi frá Birmingham. Hann ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna til Hollands, landsliðið, ævintýri gamla liðs síns Bodö Glimt í Meistaradeildinni og fleira.

Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska 14.03.2026

Farið er yfir fréttir vikunnar úr íslenska boltanum og Valur Gunnarsson er á línunni beint úr Garðabænum þar sem Stjarnan og KR mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins. Það voru stór tíðindi frá Akureyri þar sem KA kynnti tvo nýja leikmenn. Rætt er við Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins. Þá er spáð í spilin fyrir seinni leikina í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeir...

Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík 09.03.2026

Áttundi og loka þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Oddur Hafliðason fyrir Dómarastéttina og Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk? 09.03.2026

Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi. Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega. Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið. Guðmundu...

Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin 08.03.2026

Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Leon Péturs fóru ofan í saumana á Bestu deildinni nú þegar það er mánuður í mót.

Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina 07.03.2026

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 2026 á dagskrá. Rætt er um öll liðin, farið yfir helstu fréttir og frammistöðuna á undirbúningstímabilinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í fiskabúrinu og sérstakur gestur er fótboltaþjálfarinn Haraldur Árni Hróðmarsson sem hefur verið að lýsa leikjum undirbúningstímabilsins á Livey.

Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan. 06.03.2026

Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.

Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki 06.03.2026

Enski boltinn eftir 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Kári Snorra í Pepsi Max stúdíóinu. Arsenal styrkti stöðu sína með naumum 1-0 sigri gegn Brighton. Á meðan gerði Manchester City aðeins jafntefli gegn Nottingham Forest. Liverpool tapaði óvænt gegn Úlfunum, Manchester United tapaði loks undir stjórn Michael Carrick og vont verður verra hjá Tottenham sem nálgast...

Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall 02.03.2026

Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Goggarinn fóru yfir helgina.

Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd. 02.03.2026

Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.

Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít 02.03.2026

Það er spenna á öllum vígstöðum í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina. Arsenal og Manchester City eru að berjast á toppnum, Meistaradeildarbaráttan er hörð og á hinum enda töflunnar eru nokkur lið í fallbaráttu. Er Tottenham versta lið deildarinnar þessa stundina? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta eftir umferðina.

Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður 28.02.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net kemur tvíefldur til leiks. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem hefur verið í gangi í íslenska boltanum og rætt um landsleik Mexíkó og Íslands. Hanna Símonardóttir er á línunni. Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis. Víða er komið við í spjalli við hann.

Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh 26.02.2026

Baldvin Borgars, Tonson og Halli Hróðmars fóru yfir vikuna.

Hugarburðarbolti GW 27 Tvö met slegin í Enska! 24.02.2026

Arsenal eru með montréttinn í Norður London eftir helgina. Liverpool fóru eins og Hrói Höttur um Nottingham borg og stálu 0-1 sigri gegn Forest. Man City sigraði Newcastle 2-1. Man Utd gerðu góða ferð til Liverpool borgar og unnu Everton 0-1. Fulham og Brighton með flotta útisigra um helgina og James Milner er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn 654. leik.

Kjaftæðið - Liverpool rændi stigum í Nottingham 23.02.2026

Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Tonson settust niður og ræddu helgina í boltanum.

Enski boltinn - Verða þau í mismunandi deildum á næsta tímabili? 23.02.2026

Arsenal vann þægilegan sigur gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær en það er spurning þessir erkifjendur verði í mismunandi deildum á næsta tímabii. Arsenal er fimm stigum á undan Manchester City, sem á þó leik til góða. Það er möguleiki á mjög spennandi titilbaráttu næstu vikurnar. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Vigni Má Ei...

Kjaftæðið - Slátrun í Boganum og allt sauð uppúr á Molineux 18.02.2026

Baldvin Borgars, Steinke og Tonson fóru yfir vikuna í boltanum.

Fótbolta nördinn - Dr. Football vs Stjarnan 17.02.2026

Sjöundi þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Hrafnkell Freyr Ágústsson fyrir Dr. Football og Alex Þór Hauksson fyrir Stjörnuna. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Enski boltinn í fyrsta sinn í mynd - Tudor tekur við Tottenham 16.02.2026

Enski boltinn var í fyrsta skiptið í mynd, en Guðmundur Aðalsteinn fékk til sín Magnús Hauk Harðarsson, Hörð Ágústsson og Einar Guðnason til að ræða allt það helsta sem hefur gengið á undanfarið í enska boltanum.

Útvarpsþátturinn - Farið yfir sviðið með Eysteini 14.02.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 14. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ er gestur þáttarins og farið um víðan völl í spjalli við hann þegar tvær vikur eru í ársþing.

Hugarburðarbolti GW 26 Stærsta klúður tímabilsins ? 13.02.2026

Man City saxar á forskot Arsenal. Var þetta stærsta klúður tímabilsins? Liverpool fyrstir til að sigra Sunderland á Leikvangi Ljóssins. Thomas Frank og Sean Dyche eru orðnir atvinnulausir í bili. Sesko bjargaði Man Utd í London gegn West Ham. Mávarnir í frjálsu falli og Jörgen Strand Larsen byrjar vel í fyrsta heimaleik sínum en ævintýrið endaði ekki vel.

Kjaftæðið - Arsenal missteig sig og menn reknir 12.02.2026

Baldvin Borgars, Nonni Kri og Leon Péturs fóru yfir vikuna í boltanum.

Kjaftæðið - Carrick kláraði Tottenham og Jökull Andrésson segir sögur 10.02.2026

Baldvin Borgars, Tonson og Jökull Andrésson fóru yfir allt sviðið.

Hugarburðarbolti GW 25 Sló met í Fantasy leiknum ! 09.02.2026

Man City sigraði Liverpool á Anfield og loksins skoraði Erling Braut Haaland. Arsenal vann Sunderland fagmannlega á Emirates. Man Utd með þægilegan 2-0 sigur á Tottenham á Old Trafford. West Ham náðu í 3 stig á Turf Moor. Brentford gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Newcastle 2-3 í norðrinu. Cole Palmer þakkaði fyrirliða traustið með því að henda í þrennu á 38 mínútum!

Enski boltinn - Titilbaráttan á lífi, fjórir í röð og hátt fall Liverpool 09.02.2026

Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson settust niður í Pepsi Max stúdíóinu með Jóhanni Fjalari, lýsanda á Sýn Sport, og fóru yfir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar. Það voru tveir stórleikir en Manchester City hélt lífi í titilbaráttunni með dramatískum sigri á Liverpool í gær. Hátt fall Liverpool frá síðustu leiktíð er mjög athyglisvert. Manchester United vann þá sinn fjórða l...

Слухайте подкаст Fotbolti.net у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали