Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
Flekaskil
Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþing...
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: rss.com
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Flekaskil - 27. þáttur - Erlingur Erlingsson - Þarf Ísland leyniþjónustu? 12.10.2026 1:13:45
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur hefur mikla þekkingu á stöðu og þróun alþjóða- og öryggismála. Við komum víða við í tæpitungulausu spjalli: Grænlandssamningurinn, íslensk varnarmál, staðan í Úkraínu, hernaður Rússa í Evrópu sem við köllum orðinu sem enginn skilur: fjölþáttaógnir, Íran og ný bandalög í kjölfar þess og ögrandi spurningar á borð við þá hvort Ísland þurfi leyniþjónustu.
Flekaskil - 26. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Gaza og Vesturbakkinn 05.10.2026 1:07:31
Hver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um þjóðarmorð, alþjóðalög og stríðsglæpi máli? Eru líkur á að tveggja ríkja lausn verði að veruleika og getum við bundið vonir við að varnalegur friður komist á.
Flekaskil - 25. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Íran 28.09.2026 1:08:38
Íran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um sögu og stjórnmál Mið-Austurlanda er gestur Dags B. Eggertssonar í Flekaskilum.
Flekaskil - 24. þáttur - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Grænland, ástarsamband ESB og Kanada og framtíð EES 21.09.2026 1:07:52
Flekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22. september. Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingu og sérfræðingur í málefnum Grænlands ræðir stöðuna. Við fjöllum um tímamótaræður Ursulu von der Leyen og Mark Carney um nánara samband ESB og Kanada, stöðu EES-samningsins...
Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum 14.09.2026 1:20:21
Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi.
Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon 07.09.2026 1:13:29
Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin.
Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge 31.08.2026 1:06:31
Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytase...
Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa 25.08.2026 1:19:59
Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum.
Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan 18.08.2026 1:28:12
Þegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já og nei og óvissu um framtíð EES-samningsins.
Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta 10.08.2026 57:15
Bandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds að ströndum spænska hluta Marókkó, Ceuta, sem olli pólitískum skjálfta í Evrópu og var kallað innrás í Evrópu. Afleiðingar og staða Íran-stríðsins, Gaza, yfirgripsmiklar árásir sem við köllum...
Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn 03.08.2026 1:25:24
Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í...
Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti 28.07.2026 1:00:37
Í sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í uppáhalds hlaðvarpinu okkar Rest is Politics. Dagur nýtir sé aðstöðuna til að ræða við Þórdísi um hátíðarræðu hennar á Skálholtshátíð þar sem alþjóðamálin, Evrópuumræðan og staða Íslands var í brennidepli. Hin ótrúlega og...
Flekaskil - 15. þáttur 20.07.2026 50:31
Við rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu að síður skýr. Við tölum um sögu íslensku krónunnar, gjaldmiðlasamstarf Íslands í gengum tíðina - og veltum vöngum yfir Evrópuumræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald viðræðna við Evrópusambandið.
Flekaskil - 14. þáttur 14.07.2026 1:05:13
Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda. Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð...
Flekaskil - 13. þáttur 08.07.2026 54:31
Við förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast. Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka. Brothætt...
Flekaskil - 12. þáttur 29.06.2026 1:11:24
NATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandaríkin...
Flekaskil - 11. þáttur 22.06.2026 58:56
Í ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til...
Flekaskil - 10. þáttur 15.06.2026 52:53
Afleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi? Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn
Flekaskil - 9. þáttur 08.06.2026 1:04:36
Opið bréf Zelenskís til Pútin. Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Flekaskil - 8. þáttur 01.06.2026 56:48
Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila. Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn
Flekaskil - 7. þáttur 25.05.2026 44:28
Það hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira.
Flekaskil - 6. þáttur 18.05.2026 54:09
Dagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu.
Flekaskil - 5. þáttur 11.05.2026 49:41
Varnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO? Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórvelda...
Flekaskil - 4. þáttur 04.05.2026 48:25
Leiðir Íran-stríðið til heimskreppu? Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á stríðið og hefur lýst því yfir að 5.000 hermenn verði fluttir frá Þýskalandi. Gengið hefur á vopnabúr og hátækni loftvarnir bæði Bandaríkjamanna og samstarfsríkja þeirra við botn Miðjarðarhafs....
Flekaskil - 3. þáttur 27.04.2026 41:56
Flekaskil innan NATO. Spenna milli Bandaríkjanna og Evrópu og staða Íslands. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árá...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали