RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.ruv.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Umdeild útlendingalög 25.05.2022 19:12
Til stendur að vísa 300 flóttamönnum og hælisleitendum af landi brott. Sú ákvörðun stjórnvalda hefur verið harðlega gagnrýnd, sem og nýtt frumvarp dómsmálaráðherra til útlendingalaga. Við ræðum um málið við Albert Björn Lúðvígsson, lögfræðing, sem þekkir lögin út og inn, en hann telur að breytingatillögurnar séu til þess fallnar að skerða réttindi umsækjenda. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þa...
Biden lofar að koma Taívan til varnar 24.05.2022 16:05
Spennan á milli Kína og Taívan hefur ekki verið meiri í fjörutíu ár. Kínverjar hafa að undanförnu aukið vígbúnað sinn nærri Taívan og varnarmálaráðherra landsins telur líklegt að Kínverjar ráðist inn í landið á næstu árum. Í gær sagði svo Joe Biden Bandaríkjaforseti að Bandaríkin væru reiðubúin til að skerast í leikinn og koma Taívan til varnar - til dæmis með herstyrk sínum, gerði Kína innrás í l...
Breytt heimsmynd eftir heimsfaraldur 23.05.2022 16:33
Magnús Geir Eyjólfsson fjallar um breytta heimsmynd eftir Covid-19 faraldurinn í Þetta helst í dag. Í upphafi árs glitti í endalokin á Covid-19 faraldrinum og sáu fjármálaráðherrar heimsins í hillingum að varpa fram háum hagvaxtartölum eftir botn síðustu ára. En svo hófst innrás Rússa í Úkraínu og má segja að Pútín hafi ekki eingöngu varpað sprengju á úkraínskar borgir heldur einnig sprengjum á he...
Bikarinn á loft á Hlíðarenda í fyrsta sinn í fjóra áratugi 19.05.2022 17:49
Í dag er það helst að Valsmenn eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla, eftir sigur á Tindastólsmönnum í oddaleik úrslitaeinvígisins á Hlíðarenda í gær. Þetta er í fyrsta sinn í tæp fjörutíu ár sem Valsmenn hampa bikarnum eftirsótta. Já, Valsmenn hafa ekki riðið feitum hesti í körfuboltanum, undanfarna áratugi, en undanfarin ár hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrsti Íslandsmeistaratitill kvenn...
Ahmadreza Djalali og pólitískur þrýstingur stjórnvalda í Íran 18.05.2022 18:32
Læknirinn og fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali, sem hefur verið í haldi í Íran frá árinu 2016, getur á hverri stundu búist við því að vera tekinn af lífi fyrir sakir sem mannréttindasamtök telja að eigi ekki við rök að styðjast. Djalali, sem er með íranskt og sænskt ríkisfang, er einn af fjölmörgum í haldi íranskra stjórnvalda sem eru með tvöfalt ríkisfang, annað þeirra íranskt. Þessir fangar virðas...
Mariupol öll á valdi Rússa og nýjustu vendingar í stríðinu 17.05.2022 18:05
Innrás Rússa í Úkraínu hófst 24. febrúar og hefur því staðið yfir 82 daga, eða um tólf vikur. Strax á fyrsta degi innrásarinnar hófust sprengjuárásir rússneska hersins á hafnarborgina Mariupol í suðurhluta landsins, og daginn eftir hélt fótgöngulið í átt að borginni. Borgin var svo umkringd 1. mars og síðan þá hafa staðið yfir linnulaus átök í borginni. Rússneski herinn sprengdi meðal annars leikh...
Hvaða máli skiptir sigur Kalush Orchestra fyrir Úkraínu? 16.05.2022 19:49
Í fyrsta þætti Þetta helst fjallar Guðmundur Björn Þorbjörnsson um sigur Úkraínu í Eurovision, hið pólitíska landslag keppninnar og hvaða þýðingu sigurinn hefur fyrir Úkraínumenn. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır