Einar Bárðarson
Einmitt / Menn eins og við
Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: einmitt.libsyn.com
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
96. „Litlar líkur en afleiðingar slæmar." 17.04.2025 1:10:49
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og fyrrv. starfsmaður SÞ og NATO í Afganistan hefur blandast mikið inn í almenna umræðu síðustu vikna í sambandi við breytta ásýnd í heimsmálnum. Ég fékk Erling til mín til að útskýra stöðuna fyrir okkur á mannamáli. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiska...
95. Tolli "En er hægt að fyrirgefa allt?" 23.03.2025 1:12:41
Gestur minn í þessum þætti er Tolli vinur minn Morthens. Hann hefur í áratugi beit sér í málefnum fanga bæði í afplánun og eftir. Hann hefur í áratugi farið inn í fangelsin okkar með 12 spora vinnu sem í árana rás hefur þróast í hugleiðslu, jóga og öndunarvinnu. Tolli segir kærleikann og fyrirgefninguna eina sem togar mannin úr myrkrinu í birtuna. En er hægt að fyrirgefa allt? Aðalbakhjarlar Einmi...
94. Brynja Dan "Alin upp við það að fólk horfir" 16.02.2025 54:42
Brynja Dan Gunnarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún eigandi Extraloppunnar í Smáralind, eigandi 1111.is , bæjarfulltrúi og fyrrum varaþingmaður. Hún er fædd á Sri Lanka, en ættleidd hingað til lands aðeins tveggja mánaða gömul. Hún missti bæði föður sinn og móður hér á Íslandi fyrir tvítugt og það hefur sannarlega mótað hana. Við ræðum fjölskyldur, áföll, liti, hringrásina og lífið í þessu...
93. Gunni Hilmars "Vona að gleymi ekki að þetta er fólk" 11.02.2025 1:30:44
Gunni Hilmars er gesturinn minn í þessum þætti. Hann hefur verið í sviðsljósinu í áratugi sem tískumógull í GK, Anderson & Lauth, Kormák og Skjöld og núna Thomsen. Þá stofnaði hann dúettinn Sycamore Tree ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur á síðasta áratug og náð aðdáunarverðum árangri og þá hefur hann líka látið til sín taka í málefnum jaðarsetra í borginni. Magnað samtal. Aðalbakhjarlar Einmitt eru:...
92. Elín Hall "Ég er búin að læra að hlusta á líkamann" 02.02.2025 1:15:22
Elín Hall er gestur Einars Bárðarsonar í þessum þætti. Hún var bara 16 ára þegar hún tók þátt í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins. Síðan tóku við hvert stórhlutverkið af öðru, Bubbi og Vigdís og Lof mér að falla og ofan í það tvær frábærar plötur. Nú eru 10 ár frá Söngvakeppninni og nú vita allir hver Elín Hall er, eða er það ? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumú...
91. Hannes Þór "Mamma grátbað mig að fara ekki" 28.01.2025 1:31:10
Hannes Þór Halldórsson er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum smá fótbolta en við ræðum þó mest hina hliðina á Hannesi sem er framleiðandi en nú er væntanleg í Sjónvarp Símans þriðja þáttaröðin af Iceguys en fyrsta myndbandið sem Hannes gerði var fyrir Nylon flokkinn árið 2024 fyrir rúmlega 20 árum.
90 Rakel Garðars: Það er Vigdísar æði 12.01.2025 59:54
Rakel Garðarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún er framleiðandi og frumkvöðull í umhverfismálum. Þessa daganna litur þjóðin límd fyrir framan sjónvarpið og fylgist með þáttaröðinni um Vígdísi forseta og þar áður var það Verbúðin. Við ræðum þessar þáttaraðir og allt milli himins og jarðar.
89. Linda P "Ég er landsbyggðartútta" 04.01.2025 1:08:27
Linda Pétursdóttir er gestur minn í þessum þætti við ræðum flest hennar ævintýri allt frá því að hún var valin ungfrú heimur 1988 til dagsins í dag. Hún leiðbeinir konum í dag í lífsþjálfun um leið og hún heldur áfram að mennta sig sjálfa og skoða heiminn Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaði...
88. Richard Scobie "80's tímabilinu var bara hent" 04.01.2025 1:13:37
Richard Scobie er gestur minn í þessum þætti. Hann sló í gegn með hljómsveitinni Rikshaw á níunda áratug 20. aldar og ég var bæði aðdáandi hans og síðar vinur. Við ræðum um tónlistina þessi næstum 40 ár og allt sem henni fylgdi og síðast en ekki síst nýjustu plötuna hans Carnival of Souls sem kom út í haust. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavo...
87. Bergrún Ólafs "Mig langaði að gera meira" 29.12.2024 1:20:50
Bergrún Ólafsdóttir er gestur minn í þessum þætti hún er verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum og við ræðum baráttuna við ræðum matarsóun í þessum þætti.
86. Patrik Atlason, Skýrður í höfuðið á ömmu 28.12.2024 1:18:08
Patrik Snær Atlason sem flestir þekkja undir listamanns nafninu Pretty Boi Tjokko er gestur minn í þessum þætti. Við Patrik ræðum allt milli himins og jarðar í þættinum og tilvalið tækifæri að kynnast þessum áhugaverða manni.
85. "Ég hef staðið við mína sýn" 02.11.2024 1:03:47
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra er gestur minni í þessum þætti. Við ræðum stöðu Sjálfstæðisflokksins, kosningarnar fram undan, stefnu flokksins, árangur ríkisstjórnarinnar og hvað samstarfið við VG kostaði flokkinn
84. "Andlát bræðranna má ekki vera til einskis" 02.11.2024 58:53
Sigmar Guðmundsson er gestur minn í þessum þætti og við ræðum um fíknisjúkdóminn og allar hans skelfilegu hliðar og hvað við erum máttvana andspænis honum. Sigmar vill að við gerum betur sem samfélag í málaflokknum og á sér skoðanabræður víða.
83. "Stöðnun er upptakur að falli" 04.10.2024 1:17:35
Magnús Geórir Þórðarson er gestur minn í þessum þætti. Hann er afreksmaður í rekstri menningarstofnanna. Margverðlaunaður fyrir fleira en eina vídd slíkra starfa og þess vegna mikill fengur að fá að hitta hann og ræða allar þær áskoranir sem fylgja því að stýra menningarstofnun og uppfylla í senn kröfur bókarans, gestsins og gagnrýnandans
82. "Þetta eru bara jólin mín" 04.10.2024 1:31:25
Elísabet Margeirsdóttir drottning utanvegahlaupana á Íslandi og brautryðjandi í svo mörgum þáttum þeirrar íþróttarar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum þessa íþrótt í sínum víðasta skilningi og þá sérstaklega þetta nýja afbrigði íþróttarinnar sem eru þessi svonefndu bakgarðshlaup
81. Lilja Alfreðs "Ég er mjög góður DJ" 23.09.2024 1:40:50
Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum allt milli himins og jarðar, Evruna, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Millet úlpurnar og diskóbúrið í Fellahelli. Stórkemmtilegt samtal sem ég mæli með að þið hlustið á.
80 Arna Magnea "Spurning um hjarta en ekki parta" 16.09.2024 1:47:31
Arna Magnea Danks trans kona og aðalleikkona í kvikmyndinni Ljósvíkingar er gestur minn í þessum þætti. Myndin er komin í bíó, hrífandi og falleg saga um vináttu sem ég hvet ykkur til að sjá. Við ræðum hennar líf og leiðina út úr skápnum og öllu því sem slíkt ferðalag útheimtir af einstaklingnum og þeim sem fara með viðkomandi í það.
79. Rjómaterturnar eru í frjálsu falli 08.09.2024 1:14:23
Friðrik Ómar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum verkefni hans sem tónleikahaldara í sínu víðasta samhengi og sameiginlegt áhugamál okkar beggja, Söngvakeppni Sjónvarpsins og Eurovision í framtíð, fortíð og nútíð.
78. Björn Jörundur "Má ekki vera einhver vaxmyndasýning" 27.08.2024 52:23
Björn Jörundur Friðbjörnsson er gestur minn í þessum þætti. Þessi frábæri tónlistarmaður og leikari stendur í stórræðum. Árlegir stórtónleikar með Ný Dönsk fram undan í Hörpu og nú er væntanleg í kvikmyndahús kvikmyndin Ljósvíkingar þar sem Björn fer einfaldlega á kostum sem leikari í fallegri sögu sem sögð er af mikilli næmni og fegurð í þeirri mynd
77. Birgir Steinn "Þetta er bara hluti af mér" 18.08.2024 1:15:54
Birgir Steinn Stefánsson tónlistarmaður er gestur minn í þessum þætti. Hann er einn besti lagahöfundur ungu kynslóðarinnar. Í þættinum ræðir hann í fyrsta sinn opinberlega andleg veikindi sem hann glímdi við undanfarin ár, hann ræðir tónlistina, ný stofnaða fjölskyldu og framtíðina í tónlistinni.
76 Jón Gunnar Þórðarson "Bara tala og bara hlusta" 11.08.2024 1:04:16
Gestur minn í þessum þætti er Jón Gunnar Þórðarson frumkvöðull og eigandi "Bara tala". Hann er lærður í listum og viðskiptum og var á tímabili farsæll leikstjóri en nú stýrir hann Bara tala sem unnið hefur til verðlauna fyrir gagnsemi sína í atvinnulífinu. Við tölum og "Bara tala" og margt fleira áhugavert.
75 Þórunn Reynis "Íslendingar gera kröfur" 04.08.2024 1:06:00
Gestur minn í þessum þætti er forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar. Þórunn er með reyndustu stjórnendum í íslenskri ferðaþjónustu og hefur starfað bæði hérna heima og erlendis í áratugi. Þegar hún rýnir til gagns og ræðir um ferðaþjónustu þá er gott að hlusta og læra.
74 Emilíana Torrini "Var hún njósnari?" 28.07.2024 1:21:24
Tónlistarkonan Emilíana Torrini er gestur minn í þessum þætti. Sem aðdáandi hennar til fjölda ára þótti mér afskaplega gaman að eiga þetta samtal. Emilíana er nýbúin að gefa út stórkostlega plötu sem er byggð á reyfarakenndri ævi Miss Flower vinkonu hennar sem nýlega féll frá. Við ræðum líka lífið í London, lífið hérna heima, lögin og ferilinn sem spannar tæp 30 farsæl ár.
73. Guðrún Hafsteins "Við þurfum að gera betur" 18.07.2024 1:30:01
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum um feril hennar fram að framboði, þau þrjú ár sem hún hefur setið á þingi og árið hennar í Dómsmálaráðuneytinu. Við ræðum líka gengi Sjálfstæðisflokksins, hvernig hún sér flokkinn vinna upp fylgið og hvort hún sækist eftir áframhaldandi veru í oddvitasæti flo...
72 Helga Þóris "Erindið á Bessastaði" 13.05.2024 56:30
Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi er gestur minn í þessum þætti. Hún er forstjóri Persónuverndar í leyfi og steig fram daginn fyrir páska og tilkynnti framboðið sitt. Í þessum þætti förum yfir erindi hennar til framboðs og stöðuna núna þegar seinni hálfleikur í framboðsvinnunni er að hefjast.
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır