RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.ruv.is
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Hálf-íslenskur maður grunaður um aftöku í Svíþjóð 26.09.2025 13:55
Á mánudag hófst aðalmeðferð við héraðsdóm í Stokkhólmi í óhugnalegu morðmáli. Þar er Guðmundur Mogensen, hálfíslenskur karlmaður, ákærður er fyrir að hafa banað hinni rúmlega sextugu Kristínu, á heimili hennar í Stokkhólmi í október í fyrra. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð enda enn eitt dauðsfallið í gengjastríði sem þar hefur geisað undanfarin ár. Sænskir fjölmiðlar segja að málið hefnd...
Bjargráð við einmanaleika 25.09.2025 16:29
Við ræðum um einmanaleika við hjúkrunarfræðinginn Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur. Hún hefur stúderað hvers vegna fólk verður einmana og veit eitt og annað um það sem getur hjálpað til við að mynda tengsl við annað fólk. Við ræðum um einföld bjargráð við einsemdinni.
Sjónvarpsstöð aðeins fyrir fólkið í blokkinni 24.09.2025 17:24
Hamraborgarrásin var sjónvarpsstöð aðeins fyrir íbúa í stóru blokkinni í Hamraborg í Kópavogi. Rásin var starfrækt frá 1993 til aldamóta og sendi út úr dekkjageymslu í bílakjallara blokkarinnar. Stöðin var hugsuð til að efla samstöðu nágrannanna og styrkja rödd þeirra í harðri baráttu við Kópavogsbæ. Þóra Tómasdóttir ræðir við sjónvarpsstjórann Þóri Steingrímsson og listakonuna Berglindi Jónu Hlyn...
Sjónvarpsstöð aðeins fyrir fólkið í blokkinni 24.09.2025 17:24
Hamraborgarrásin var sjónvarpsstöð aðeins fyrir íbúa í stóru blokkinni í Hamraborg í Kópavogi. Rásin var starfrækt frá 1993 til aldamóta og sendi út úr dekkjageymslu í bílakjallara blokkarinnar. Stöðin var hugsuð til að efla samstöðu nágrannanna og styrkja rödd þeirra í harðri baráttu við Kópavogsbæ. Þóra Tómasdóttir ræðir við sjónvarpsstjórann Þóri Steingrímsson og listakonuna Berglindi Jónu Hlyn...
Deilan um Konukot í Ármúla 23.09.2025 14:12
Í þættinum í dag er fjallað um mál sem hefur verið til umfjöllunar í fréttamiðlum síðustu vikurnar: Flutning Konukots í fasteign í Ármúla og andstöðu heilbrigðisfyrirtækisins Sameindar við hann. Konukot á að vera í næsta húsi við Sameind. Heilbrigðisfyrirtækið vill meina að vegna brunavarna gangi ekki að hafa Konukot í húsinu. Sameind hefur kært flutning Konukots í húsið. Rætt er við Kristínu Páls...
Er góð hugmynd að stytta sumarfrí skólabarna? 22.09.2025 15:21
Íslensk grunnskólabörn eru mun lengur í sumarfríi en grunnskólabörn á Norðurlöndum. Við ræðum um tillögu nýs varaborgarfulltrúa Viðreisnar, Erlings Sigvaldasonar, um að færa nokkra sumarfrísdaga grunnskólabarna yfir á haustönn. Viðmælendur: Margrét Pála Ólafsdóttir, Magnús Þór Jónsson og Erlingur Sigvaldason. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Bátastríðið: Hlölli vs. Nonni 19.09.2025 15:49
Fjallað er um bátastríðið í Reykjavík á milli Hlöllabáta og Nonnabita á tíunda áratug síðustu aldar. Rætt er við Jón Guðnason, eða Nonna á Nonnabitum, sem segir frá því hvernig hann stofnaði sinn eigin bátastað eftir að hafa unnið á Hlölla í sjö ár. Hlöllabátar voru stofnaðir árið 1986 og kenndir við Hlöðver Sigurðsson. Nonni segir frá kergjunni og keppninni á milli staðanna tveggja í miðbæ Reykja...
Nýtt lyf við fæðingarþunglyndi 18.09.2025 17:16
Við ætlum að ræða um fæðingarþunglyndi í þessum þætti og heyra hvað raunverulega getur hjálpað þegar foreldrar upplifa þessa sérstöku tegund af þunglyndi. Miklar vonir eru bundnar við nýtt lyf sem sérstaklega er þróað við fæðingarþunglyndi. Er það lausnin við vandanum? Anna María Jónsdóttir geðlæknir í Grænuhlíð svarar því. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Gagnrýnin úttekt KPMG um RIFF 17.09.2025 14:59
Fjölmargar ábendingar eru settar fram um starfsemi og rekstur kvikmyndahátíðarinnar RIFF í úttekt sem KPMG vann fyrir ráðuneyti menningarmála. Samtals setur KPMG fram 22 ábendingar sem ráðuneytið flokkar sem alvarlegar. Bæði er um að ræða ábendingar og umfjöllun sem snýst um rekstur og peninga og eins stjórnun og starfsmannamál kvikmyndahátíðarinnar. Framkvæmdastjóri og eigandi RIFF er Hrönn Marin...
Vandræðagangur í borginni 16.09.2025 15:18
Við ræðumum stöðuna í borgarstjórn Reykjavíkur við fréttamanninn Alexander Kristjánsson. Allir flokkar eru að búa sig undir sveitarstjórnarkosningar í vor og ýmis tíðindi hafa borist úr ráðhúsinu að undanförnu. Samkvæmt vinsældarmælingum virðast borgarbúar frekar óhressir með sína kjörnu fulltrúa í Reykjavík.
Dularfullt dauðsfall Heklínu 4.þáttur 15.09.2025 17:28
Síðasti þáttur í seríunni um Heklínu. Í þessum þætti fáum við að heyra meira um uppruna Stevens Grygelko og hvaða áhrif andlát hans hefur haft á fólkið hans hér á Íslandi.
Dularfullt dauðsfall Heklínu 3.þáttur 12.09.2025 15:48
Íslensk bandaríska dragdrottningin Heklína fannst látin við dularfullar aðstæður í London fyrir tveimur árum. Heklína var ein af áhrifamestu dragdrottningum Bandaríkjanna. Hún átti líka sterkar rætur á Íslandi. Í þessum þriðja þætti um dularfullt dauðsfall hennar fáum við að heyra hvers vegna vinir hennar óttast að eitthvað saknæmt gæti hafa komið fyrir hana. Viðmælendur: Hrafnhildur Gunnarsdóttir...
Áralöng saurmengun í Varmá 11.09.2025 14:59
Hrafnkell Karlsson bóndi í Ölfussi segir Hveragerðisbæ hafa sýnt af sér tómlæti í skólphreinsimálum bæjarins. Skólp frá Hveragerðisbæ hefur runnið út í bæjaránna Varmá síðastliðin ár og valdið saurgerlamengun í henni. Pétur Markan bæjarstjóri í Hveragerði segir að bærinn sé að byggja nýja og betri skólphreinisstöð sem vonandi muni koma í veg fyrir þessa mengun. Hann segir að þessi skólphreinisstöð...
Dularfullt dauðsfall Heklínu 2.þáttur 10.09.2025 17:07
Heklína var hálfíslensk og heimsfræg dragdrottning sem fannst látin í London fyrir tveimur árum. Heklína var listamannanafn Steven Grygelko. Hann hafði lifað skrautlegu lífi og alist að hluta til upp á Íslandi. Í þessum þætti heyrum við af vináttu hans við kvikmyndagerðarkonuna Hrafnhildi Gunnarsdóttur og poppstörnuna Pál Óskar Hjálmtýsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Hagsmunaárekstrarnir í Íslandsbankaútboðinu 09.09.2025 14:39
Síðdegis á föstudag var sagt frá því að þrjú verðbréfafyrirtæki hafi borgað samtals 60 milljóna króna sektir fyrir brot á lögum út af þátttöku sinni í þessu útboð ríkisins á hlutabréfum í Íslandsbanka árið 2022. Sektirnar eru vegna hagsmunaárekstra þeirra í vinnu við útboðið. Fyrirtækin sem eiga í hluta eru Íslensk verðbréf, Fossar og ACRO verðbréf. Sektirnar er enn ein afleiðingun af þessu umdeil...
Dularfullt dauðsfall Heklínu 1.þáttur 08.09.2025 16:13
Íslensk-bandaríska dragdrottningin Heklína fannst látin við dularfullar aðstæður í Sohó í London fyrir rúmum tveimur árum. Enn er óvitað hvernig hún dó. Mál hennar hefur vakið heimsathygli. Heklína var meðal áhrifamestu dragdrottningum Bandaríkjanna. Aðdáendur hennar og vinir hafa sótt hart að bresku lögreglunni og sakað hana um sinnuleysi og fordóma í garð hinsegin fólks. Gagrnýnin er ekki alveg...
Gagnrýni fyrrverandi aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs á umræðuna um trans 05.09.2025 17:59
Jóhannes Skúlason er stjórnarmaður í Samtökunum 78 og fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, núverandi formanns Miðflokksins. Hann blandaði sér í umræðuna um mál málanna í vikunni, umræður Snorra Mássonar þingmanns Miðflokksins, og Þorbjargar Þorvaldsdóttur verkefnastýru hjá Samtökunum 78 í Kastljósi á mánudaginn. Snorri hefur verið harðlega gagnrýndur af mörgum fyrir ummæli sí...
Íslandstengingar Vitaly Orlovs 04.09.2025 14:59
Síðastliðna tvo mánuði hafa verið sagðar margar fréttir í fjölmiðlum um viðskiptaþvinganir gegn fyrirtækinu Vélfagi á Akureyri. Viðskiptaþvinganirnar byggja á því að fyrrverandi eigandi Vélfags er rússneska útgerðarfélagið Norebo. Útgerðin er einn stærsti kvótahafi í Evrópu, meðal annars í Noregi. Þetta fyrirtæki er talið vinna með ríkisstjórn Vladimírs Pútíns og stunda njósnir fyrir hann . Viðski...
Björn á Bessastöðum 03.09.2025 19:51
Í dag ætlum við að banka uppá hjá manni sem fyrir rúmu ári þurfti að stokka spilin sín alveg uppá nýtt. Líf hans umturnaðist þegar eiginkona hans, Halla Tómasdóttir, var kjörinn forseti Íslands. Síðan hefur hann smám saman verið að læra hvað felst í hlutverki maka á Bessastöðum. Við erum komin til að fara yfir stóru málin með honum, spyrja hann út í hlutverkið, lífið undir smásjá almennings, kónga...
Baksagan um uppsagnir Vinnslustöðvarinnar 02.09.2025 16:59
Fiskvinnslan Leo Seafood í Vestmannaeyjum var rekin með 214 milljóna króna tapi í fyrra og 132 milljóna króna mínus árið 2023. Leo Seafood er í eigu Vinnslustöðvarinnar í Vestmanneyjum. Fiskvinnslan og hefur verið til umræðu síðustu daga eftir að greint var frá því á föstudaginn að útgerðin þyrfti að segja upp öllum 50 starfsmönnum vinnslunnar upp og loka henni. Þessar uppsagnir Vinnslustöðvarinna...
Þetta liggur fyrir um harmleikinn á Edition-hótelinu 01.09.2025 18:26
Fréttir um andlát feðgina á Edition-hótelinu í Reykjavik í sumar hafa vakið mikla athygli síðustu mánuði. Eiginkona mannsins sem lést og móðir konunnar situr í gæsluvarðhaldi grunuð um að hafa banað þeim. Málsvörn konunnar snýst meðal annars um það að fjölskyldan hafi komið til Íslands til þess að deyja. Sjálf var konan með stungusár þegar lögreglan kom á vettvang. Freyr Gígja Gunnarsson, blaðamað...
Barátta hrossabóndans gegn álverinu í Hvalfirði 29.08.2025 18:55
Hrossabóndinn Ragnheiður Þorgrímsdóttir segir að þöggun ríki í samfélaginu um skaðlega mengun frá álverinu í Hvalfirði. Hún hefur skrifað bók um baráttu sína gegn mengun álverins. Bókin heitir Barist fyrir veik hross: Frásögn úr grasrótinni. Ragnheiður býr á bænum Kúludalsá í Hvalfirði. Ragnheiður hefur síðastliðin 16 ár gagnrýnt álver Norðuráls á Grundartanga vegna meintrar mengunar frá því. Hún...
Aðstæður kvenna sem þurfa örorku 28.08.2025 16:11
Konur yfir fimmtugu fara í auknum mæli á örorku. Við umfangsmikar breytingar á öroku- og endurhæfingakerfinu á Íslandi var gerð sérstök rannsókn á aðstæðum þessara kvenna. Við ræðum um umönnunarstrit, vaktavinnu, fjárhagsáhyggjur og húsnæðisvanda sem á endanum kostar sitt. Viðmælendur: Huld Magnúsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Ari Klængur Jónsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Refsingar dómstóls götunnar 27.08.2025 19:35
Heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson hefur skrifað grein um dómstól götunnar sem vakið hefur nokkra athygli. Lúkasarmálið, KSÍ-málið, Atla Rafns-málið, mál Ingós veðurguðs, Klausturmálið, Sigurðar Inga-málið og fleiri og fleiri eru meðal annars viðfangsefni Róberts í greininni sem birtist í tímaritinu Skírni nú í vor. Í greininni fjallar hann um útilokunar- og slaufunarmenningu út frá sjónarhóli...
„Þvælan“ í Laxárdal - deilur í fjölskyldu Ásmundar Einars 26.08.2025 16:23
Í áratugi hefur stór fjölskylda Laxárdal í Dölunum tekist á um land og yfirráð, arf og skiptingu hans. Við sögu koma skemmdarverk, hefndaraðgerðir, skítahaugar og rotnandi hræ svo eitthvað sé nefnt. Ástæðan fyrir því að málið hefur reglulega ratað í fréttir er ekki síst að í fjölskyldunni sem deilir er fyrrum þingmaðurinn og ráðherrann Ásmundur Einar Daðason. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í...
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden