Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

Health IS ↓ 113 avsnitt

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: podcasters.spotify.com

Skapare

Snorri Björns

Kategori

Health

Poddens webbplats

podcasters.spotify.com

Senaste avsnittet

22 sep 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

13. Langt leiddir - Egill og Hrólfur: gengið yfir Bandaríkin, 60m spretthlaup, Bakgarðurinn og carbon skór í UTMB 11.10.2024

Egill Trausti er Íslandsmeistari (30-34) í 60m spretthlaupi, fór 160km í Bakgarðinum og leiddi Hrólf yfir línuna í 100km Hengli fyrr í sumar. Hrólfur hefur allar fjörurnar sopið en hann hefur gengið Bandaríkin endilöng, þverað Ísland og Skotland, lokið CCC, UTMB og settist hér niður til að segja sögurnar af þessu öllu saman.

12. Guðlaug Edda Hannesdóttir 02.10.2024

Þegar Guðlaug lagði sundið til hliðar og hljóp 10 kílómetrana á næst besta tíma íslenskrar konu (34:57) var nokkuð ljóst að þarna var um framúrskarandi þríþrautarmann að ræða. Sem reyndist rétt því Guðlaug er fyrst Íslendinga til að keppa á Ólympíuleikum í þríþraut. Við ræðum leiðina á Leikana (10 tíma leigubíll í Nepal, Namibía, Filippseyjar, Kína...), heimsmeistaratitil í Aquathon, hennar bestu...

11. Úr áföllum í ultra - Elísa Kristinsdóttir 26.09.2024

Elísa Kristins er sannkallaður ultrahlaupari með 4 bakgarða undir beltinu, í síðustu tilraun fór hún 375 kílómetra og ætlar sér mikið meira núna í október. Elísa kemur frá brotnu heimili og átti erfiða æsku sem mótaði styrk og hæfileika sem hún nýtir sér til að fara einn hring í viðbót. Við ræðum ótrúlegt hlaupasumar sem hún kemur undan, hvernig svakalegar vegalengdir í keppnum byggja á svakalegu...

10. Þorbergur Ingi - sigur í Sviss: "Þú ert að fara að vinna þetta" 17.09.2024

Tobbi sigraði nýverið Wildstrubel 70K og bætti þar með ofan á heimsklassa frammistöður sínar fyrir árið 2024 - þrátt fyrir að hafa ætlað að blása ferðalagið af aðeins nokkrum dögum fyrir hlaup. Snjóskaflar, lágfjallaloft, kolvetnainntaka og hvatningarorð dóttur hans lögðu drögin að einni bestu frammistöðu hlaupara á árinu. 👀 www.instagram.com/langa_hladvarp/

9. UPPGJÖRIÐ STÓRA: Hlaupasumarið gert upp af Hliðarlínunni 13.09.2024

Magnús Már Leifsson, Thelma Björk Einarsdóttir (Greiningardeild LANGA) og þáttastjórnandi sátu öll á hliðarlínunni þetta sumarið og fylgdust náið með frammistöðu íslenskra og erlenda hlaupara. Gagnasöfnun og úrvinnslu er formlega lokið og búið er að sjóða saman topplista yfir bæði íslensk og erlend afrek ásamt skemmtilegum fréttum, myrkum hestum og heiðurstilnefningum. 👀 www.instagram.com/langa_h...

8. Hjólreiðar: Erfiðasta íþrótt í heimi? Ingvar Ómars og Ragnar Árnason 10.09.2024

Er hægt að leggja meira á íþróttamann heldur en 23 daga í röð af peloton-þvottavélinni í frönsku ölpunum? Á Kristian Blummenfelt séns í pelotonið? Jonas Vingegaard: úr fiskverksmiðju í Tour de France, yfirburðir Tadej Pogacar, hjólarar sem hlaupa, hvað geta aðrar úthaldsíþróttir lært af hjólreiðum? Kolvetnainntaka, ketónar, sodium bicarbonate, þyngdarstjórnun og margt margt fleira.

7. 100 kílómetrar hvor - Andrea Kolbeins & Halldóra Huld 06.09.2024

Landsliðskonurnar og 100km hlaupararnir Andrea Kolbeins og Halldóra Huld gera upp sín lengstu hlaup til þessa: 100km og CCC, viðhorfið til langra vegalengda, keppa vs. njóta, UTMB og fleira skemmtilegt. Í boði Sjóvá, Gifflar og COLLAB HYDRO.

6. Fyrsti maraþonhlaupari Íslands - Hafsteinn Sveinsson 22.08.2024

Hafsteinn Sveinsson hljóp, fyrstur Íslendinga, heilt maraþon árið 1957. Hann verður 95 ára gamall eftir fáeinar vikur og hló að mér þegar ég spurði hvort hann hafi keyrt sjálfur í stúdíóið. Aðstæður til að æfa hlaup á sjötta áratugnum voru vægast sagt lélegar svo Hafsteinn þurfti að láta sér nægja að klofa snjó í stígvélum til að komast uppá Ingólfsfjall í kolniðamyrkri eftir 17 tíma vinnudag. Í þ...

5. Lífeðlisfræðin á bakvið bætingar - Latsi/Einar Sigurjónsson 16.08.2024

Vo2max, zone 2, mjólkursýruþröskuldur, tempó... hvað þýða þessi hugtök og af hverju er mikilvægt að vita hvernig líkaminn bregst við mismunandi álagi sem við setjum á hann? Einar, betur þekktur sem Latsi, heldur hér fyrirlestur um þjálffræði og lífeðlisfræðina á bakvið æfingar ásamt því að útskýra hvernig úthaldsíþróttamaður getur fundið sína veikleika og bætt þá fyrir næstu áskorun.

4. Hundrað kílóa hybrid og maraþon róður - Björgvin Karl og Þröstur Ólason 08.08.2024

Björgvin Karl er fremsti karlkyns Crossfittari okkar Íslendinga og Þröstur er fyrrum heimsmeistari í kraftlyftingum. Báðir eiga það sameiginlegt að hafa verið til staðar fyrir hvorn annan í þeirra lengstu áskorunum: 106km ultrahlaupi og maraþon róðri. Við fáum keppnissögu þeirra beggja; hvernig Þröstur kom sér í gegnum 106 kílómetrana í 100 kílóa líkama og hjálpina sem hann fékk (ekki) frá Björgvi...

3. Þorbergur Ingi, besti utanvegahlaupari Íslendinga 05.08.2024

Þorbergur Ingi / Tobbi er besti utanvegahlaupari okkar Íslendinga. Enginn hefur skorað jafn mörg ITRA stig, hann er eini Íslendingurinn sem hefur farið Laugaveginn undir 4 klukkutímum (þunnur?), margfaldur landsliðsmaður, lenti í 6. sæti í einu stærsta utanvegahlaupi heims, hann hefur tvisvar sinnum farið UTMB og gerir þetta allt samhliða fullu starfi hjá Marel sem véla- og orkufræðingur - og tveg...

2. Noregur, hvað hefuru gert? Gunnar Birgisson og Aron Gauti Laxdal 01.08.2024

Hvernig fer snæviþakinn Noregur að því að sigra Ólympíuleikana í strandblaki? Hvernig komst Jakob Ingebrigtsen hlaupandi í mark á undan Kenýumanninum? Síðan hvenær var heimsmeistarinn í Ironman norskur? Í stúdíóið mæta Aron Gauti Laxdal, dósent við háskólann í Agder og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður, til að kryfja þessar spurningar og gera grein fyrir því hvernig Norðmenn ala af sér íþróttam...

1. Mæst á miðri leið - Andrea Kolbeins og Andri Guðmunds 26.07.2024

Andrea Kolbeins og Andri Guðmundsson fundu sér sameiginlegan vígvöll í Laugavegshlaupinu um miðjan júlí. Andrea kom undan þriggja Íslandsmeistaratitla keppnishelgi, 10km götuhlaupi, hálfmaraþoni og ultrahlaupi áður en hún mætti á startlínuna en Andri tók 350km í bakgarðinum og tók svo afleiðingunum. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Hversu stressandi er Laugavegurinn miðað við önnur hlaup á á...

Lyssna på podden LANGA - hlaðvarp i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden