Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.ru.is
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Verkfræðivarpið // 17. þáttur: Gísli Ásgeirsson og Einar Sverrir Sigurðarson 19.02.2024 41:37
Í verkfræðivarpi dagsins er fjallað um þróun á nýjum jeppa sem nefnist Grendadier og er hugarfóstur breska viðskiptajöfursins sir Jim Ratcliffe. Hann hefur sem kunnugt er töluverð umsvif hér á landi og tveir íslendingar hafa tekið virkan þátt í þróun jeppans. Þetta eru þeir Gísli Ásgeirsson og Einar Sverrir Sigurðarson. Þeir mættu í verkfræðivarpið og sögðu frá þróunarferlinu, sem er sérstakt á ma...
Verkfræðivarpið // 16. þáttur: Dagur Ingi Ólafsson 25.01.2024 47:25
Í verkfræðivarpinu að þessu sinni er fjallað um þrívíddarprentun málma. Viðmælandinn er Dagur Ingi Ólafsson vélaverkfræðingur sem starfar hjá Tæknisetri. Haustið 2022 kom til landsins tæki sem getur prentað hluti úr málmum, til dæmis áli eða ryðfríu stál. Dagur Ingi stýrir þessu verkefni og hann útskýrir hvernig hægt er að prenta málmhluti, hvers vegna þetta tæki var keypt til landsins og hvaða mö...
Verkfræðivarpið // 15. þáttur: Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóri GRID 22.01.2024 52:57
Í Verkfræðivarpinu að þessu sinni ræða Þórður Víkingur og Haukur Ingi við Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóra GRID. Hjálmar er frábær fyrirmynd fyrir unga metnaðarfulla verkfræðinga sem vilja finna kröftum sínum viðnám með því að stofna fyrirtæki. Hjálmar hefur yfir 20 ára reynslu sem frumkvöðull og þekkir manna best hvað þarf til svo að árangur náist. Þá segir hann frá nýjasta verkefninu sínu, fyri...
Verkfræðivarpið // 14. þáttur: Jón Ásgeirsson 16.01.2024 43:28
Í Verkfræðivarpinu að þessu sinni ræða Þórður Víkingur og Haukur Ingi við Jón Ásgeirsson verkfræðing. Jón er framkvæmdastjóri hjá HS Orku og Auðlindagarðsins á Reykjanesi. Í mjög áhugaverðu spjalli rekur Jón sögu Auðlindagarðsins sem spannar 40 ár þegar allt er með talið. Auðlindagarðurinn nýtir jarðvarma til margvíslegrar nýsköpunar sem að stórum hluta byggir á sjálfbærni og endurnýjanlegri orku....
Íþróttarabb HR // 9. þáttur: Aron Gauti Laxdal 19.12.2023 37:02
Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við Háskólann í Agder í Noregi. Aron Gauti er með doktorsgráðu í skólaíþróttum frá Háskólanum í Stavanger og höfundur greinarinnar Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta. Aron Gauti hefur sinnt viðamiklum rannsóknum á skólaíþróttum í Noregi og var við kennslu við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík nú í desember....
Verkfræðivarpið // 13. þáttur: Ketill Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Zephyr 11.12.2023 49:56
Endurnýjanleg orka, eða græn orka, er eitt áhugaverðasta viðfangsefni verkfræðinnar. Ísland á mikla möguleika á framleiðslu orku með vindafli því óvíða eru landkostir betri. Ketill Sigurjónsson er frumkvöðull á þessu sviði og kallar sjálfan sig “lögfræðinginn með verkfræðingsblætið”. Þórður Víkingur tók Ketil tali og úr því varð fróðlegt spjall um möguleika Íslands en einnig þær hindranir sem frum...
Verkfræðivarpið // 12. þáttur: Dr. Jón Guðnason 01.12.2023 43:17
Í þættinum ræðir Haukur Ingi Jónasson við Dr. Jón Guðnason dósent við verkfræðideild Háskólann í Reykjavík. Jón leggur stund á rannsóknir í talmerkjafræði og máltækni og það aðallega að því að þróa aðferðir við að greina heilbrigði og hugrænt álag í rödd. Jón hefur látið að sér kveða þróun máltækni fyrir íslensku og hefur skýrt þróun íslensks talgreinis sem hægt er að nota til að breyta íslensku t...
Fólkið í HR // 2. þáttur: Paola Cardenas 13.11.2023 27:32
Fólkið í HR er þáttasyrpa þar sem við spjöllum við starfsfólk Háskólans í Reykjavík, skyggnumst bak við tjöldin, kynnumst fagi þess, hinni hliðinni á viðkomandi og fáum að heyra skemmtilegar sögur tengdar lífi og starfi. Í þessum þætti er talað við Paolu Cardenas sem nú í sumar lauk doktorsprófi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Doktorsritgerð hennar ber heitið "Börn og ungir hælisleiten...
Verkfræðivarpið // 11. þáttur: Dr Marta Kristín Lárusdóttir 02.11.2023 46:24
Haukur Ingi og Þórður Víkingur ræddu við Dr. Mörtu K. Lárusdóttir prófessor við tölvunarfræðideild HR. Marta er einn helsti sérfræðingur landsins í Agile verkefnastjórnun sem hefur víða rutt sér rúms í atvinnulífinu á síðustu árum. Marta er brautryðjandi við að rannsaka samband manns og hugbúnaðar og segir á lifandi og skemmtilegan hátt frá því hvernig þetta áhugaverða samband hefur þróast innan h...
HR hlaðvarpið // Ronald Hanson og Sigurður Ingi Erlingsson ræða undirstöður og hagnýtingu skammtafræði 31.10.2023 39:03
Dr. Ronald Hanson , prófessor við QuTech-rannsóknastofnun Delft University of Technology í Hollandi, hélt fyrir skemmstu fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík á vegum verkfræðideildar í tilefni af 25 ára afmæli háskólans árið 2023. Af þessu tilefni ræðir dr. Sigurður I. Erlingsson , prófessor við verkfræðideild HR, við Ronald um rannsóknir hans á undirstöðum skammtafræðinnar og hagnýtingar á henn...
Gervigreind á mannamáli // 2. þáttur: Stefán Ólafsson, lektor í tölvunarfræði 27.10.2023 39:27
Gervigreind á mannamáli er hlaðvarpssyrpa þar sem við spjöllum við starfsfólk Háskólans í Reykjavík um gervigreind út frá ýmsum hliðum. Við veltum fyrir okkur kostum og mögulegum göllum gervigreindar og hagnýtingu hennar í daglegu lífi. Í þessum þætti ræðir María Ólafsdóttir hjá samskiptateymi HR við Stefán Ólafsson , lektor við tölvunarfræðideild og rannsakanda við gervigreindarsetur Háskólans í...
Verkfræðivarpið // 10. þáttur: Dr. Ármann Gylfason 25.10.2023 43:48
Dr. Ármann Gylfason , nýr deildarforseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, er viðmælandi Verkfræðivarpsins að þessu sinni. Sérsvið Ármanns er varma- og straumfræði og eftir hann liggur fjöldi alþjóðlegra vísindagreina. Nú hefur Ármann tekist á hendur nýtt hlutverk sem deildarforseti Verkfræðideildar HR. Í viðtalinu segir hann frá sjálfum sér, kennslunni og rannsóknunum við HR og hvernig allt...
Verkfræðivarpið // 9. þáttur: Kostnaðarframúrkeyrsla við opinberar framkvæmdir 18.10.2023 48:49
" Er virkilega nauðsynlegt að kostnaðarframúrkeyrsla líkist náttúrulögmáli við opinberar framkvæmdir? Hvernig snéru Norðmenn dæminu um kostnaðarframúrkeyrslu við? Hvað hefur Bent Flyvbjerg til málanna að leggja?" Þetta eru þrjú dæmi um spurningar, sem stjórnendur Verkfræðivarpsins leita svara við að þessu sinni. "Samkvæmt fréttum eru fyrirhuguð opinber fjárfestingaverkefni að andvir...
Íþróttarabb HR // 8. þáttur: Chris Harwood og 5C aðferðafræðin 11.10.2023 57:41
Chris Harwood er gestur íþróttarabbs HR að þessu sinni. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent háskólann í Bretlandi þar sem hann er jafnframt prófessor. Chris þróaði 5C aðferðafræðina sem er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræð...
HR hlaðvarpið // Nýtt þverfaglegt diplómanám í umhverfissálfræði og þrívíddartækni 09.10.2023 36:06
Gestir HR hlaðvarpsins að þessu sinni eru Hannes Högni Vilhjálmsson , doktor í tölvunarfræði og prófessor við tölvunarfræðideild HR, og Páll Jakob Líndal , doktor í umhverfissálfræði og verkefnastjóri Sjálfbærra borga framtíðar. Umræðuefnið er nýtt þverfaglegt diplómanám við HR í umhverfissálfræði og þrívíddartækni. Þeir félagar eru aðstandendur námsins, ásamt Kamillu Rún Jóhannsdóttur , deildarfo...
Sprotasólin // 3. þáttur: Gísli Ragnar Guðmundsson hjá Ríkiskaupum um samstarfið við HR og Gagnaþonið 04.10.2023 28:04
Gestur Sprotasólarinnar að þessu sinni er Gísli Ragnar Guðmundsson , sérfræðingur hjá Ríkiskaupum á sviði opinberrar nýsköpunar. Háskólinn í Reykjavík og Ríkiskaup gerðu nýverið með sér samstarfssamning sem miðar að því að tengja nemendur í HR við opinbera aðila gegnum ýmis verkefni á vegum Ríkiskaupa. Gísli segir ótal tækifæri leynast á þessu sviði fyrir frumkvöðla, en nú um miðjan október fer fr...
Verkfræðivarpið // 8. þáttur: Er heimurinn að verða VUCA? 21.09.2023 47:07
Er heimurinn að verða VUCA? Afhverju er áhættustjórnun að verða ein mikilvægasta greinin innan hugmyndafræði stjórnunar? VUCA er skammstöfun sem lýsir heimi sem er hverfull ( volatile ), óviss ( uncertain ), flókinn ( complex ) og margræður ( ambiguous ). Margt bendir til að heimurinn okkar verði meira “VUCA” með hverju árinu. Loftslagsbreytingar, óvissa í stjórnmálum, alþjóðavæðing viðskipta og...
Verkfræðivarpið // 7. þáttur: Gervigreind mun gjörbreyta kennslu í verkfræði 13.09.2023 42:40
Í 7. þætti Verkfræðivarpsins er sagt frá hvernig að kennsla í verkfræði og fleiri greinum mun taka stakkaskiptum með tilkomu gervigreindar. Vitvélar eins og ChatGPT hafa fært hugmyndaheimi kennslufræðinnar bæði ógnanir og tækifæri. Rætt er um hvernig verkfræðin getur brugðist við til að tryggja að verkfræðingar framtíðarinnar geti tileinkað sér nauðsynlega þekkingu og færni. Meðal þess sem verður...
Íþróttarabb HR // 7. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg 04.09.2023 52:43
Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg. Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræði og líklega er á engan hallað þegar haldið er fram að þeir félagar séu með virtustu íþróttasálfræðingum allra tíma. Báðir hafa þeir verið tilnefndir á topp 10 lista yfir áhrifamestu íþróttasálfræðinga Bandaríkjana. Þeir hafa þeir birt ó...
Íþróttarabb HR // 6. þáttur: Anton Sveinn Mckee 28.08.2023 51:30
Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Hann náði í sumar Ólympíulágmarkinu í 200 metra bringusundi fyrir Ólympíuleikana í París á næsta ári. Anton bætist þá í fámennan hóp íslenskra íþróttamanna sem keppt hafa á fjórum Ólympíuleikum. Í þættinum er farið vítt og breitt yfir feril Antons hingað til en það er Sunna Kristín Hilmarsdóttir, verkefnastjóri hjá samskipta...
HR Hlaðvarpið // Dr. Elizabeth Churchill 25.08.2023 50:55
Í tilefni af 25 ára afmæli Háskólans í Reykjavík ræðir Hannes Högni Vilhjálmsson, prófessor í tölvunarfræði við HR, við Dr. Elizabeth Churchill, yfirstjórnanda notendaupplifunar hjá Google. Churchill, sem er með bakgrunn í sálfræði, lauk doktorsgráðu í hugrænum vísindum frá Cambridge-háskóla árið 1993. Hún hefur síðustu áratugi rannsakað samskipti manns og tölvu og byggt upp notendaupplifunarteymi...
Hlaðvarp Opna háskólans // Anna K. Liebel: "Diversity, Equity and Inclusion" ("Fjölbreytni, jöfnuður og inngilding") 22.06.2023 52:41
Anna K. Liebel kom í heimsókn í hlaðvarp Opna háskólans í HR og þau Kristinn Hjálmarsson , þróunarstjóri við Opna háskólann, tóku tal saman. Umræðuefni dagsins var "Diversity, Equity and Inclusion", sem er hægt að útleggja sem "Fjölbreytni, jöfnuður og inngilding" (einnig hafa hugtökin þátttaka og samþætting án aðgreiningar verið notuð yfir inclusion), en Anna hefur verið að ke...
Gervigreind á mannamáli // Dr. María Óskarsdóttir: Dósent í tölvunarfræði 01.06.2023 29:52
Gervigreind á mannamáli er ný hlaðvarpssyrpa þar sem við spjöllum við starfsfólk Háskólans í Reykjavík um gervigreind út frá ýmsum hliðum. Við veltum fyrir okkur kostum og mögulegum göllum gervigreindar og hagnýtingu hennar í daglegu lífi. Í þessum fyrsta þætti ræðir María Ólafsdóttir við dr. Maríu Óskarsdóttur , dósent við tölvunarfræðideild og doktor í tölvunarfræði, um tengslanet, prjónaskap og...
Íþróttarabb HR // 5. þáttur: Þórir Hergeirsson 26.05.2023 51:43
Í þessum þætti af Íþróttarabbinu er rætt við Þóri Hergeirsson, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta. Gestaspyrill í þessum þætti er íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir. Þórir hefur þjálfað norska kvennalandsliðið sem aðalþjálfari frá árinu 2009. Árangur hans með liðið hefur verið afar eftirtektarverður; níu sigrar á stórmótum og samtals fjórtán skipti á palli á þessum fjórtán árum. Í...
Íþróttarabb HR // Hreyfivistkerfi: Sveinn Þorgeirsson, Snorri Örn Arnaldsson og Hafþór Aron Ragnarsson 25.05.2023 1:07:00
Sveinn Þorgeirsson , kennari við íþróttafræðideild HR, fær til sín tvo góða gesti í Íþróttarabbið til að spjalla um nýja nálgun við þjálfun hreyfinga sem byggir á hugmyndum um hreyfivistkerfi, sem áður hafa verið teknar fyrir í Íþróttarabbinu (þætti 3). Þessar kenningar eru meðal kennsluefnis sem tekið er fyrir í námskeiðinu Hreyfiþróun og -nám í grunnnámi íþróttafræðinnar. Til upprifjunar, þá eru...
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden