RÚV Hlaðvörp

Gettu hvar

Kids IS ↓ 15 avsnitt

Við erum að fara í ferðalag. En hvert erum við að fara? Þú þarft að komast að því með því að hlusta eftir vísbendingum í þættinum. Embla lýsir landinu sem við erum stödd í hverju sinni og þú mátt giska hvar við erum stödd. Komdu með! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: shows.acast.com

Skapare

RÚV Hlaðvörp

Kategori

Kids

Poddens webbplats

shows.acast.com

Senaste avsnittet

7 aug 2024

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,7+ iOS snart

Avsnitt

Landið sem heldur jólin í júlí 07.08.2024

Embla er komin óralangt í burtu frá Íslandi. Hún er stödd í landi með frægu óperuhúsi og kengúrum. Héðan kemur leikarinn Chris Hemsworth og söngkonan Sia. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem er næstum því stærsta land í heimi 01.08.2024

Nú er Embla stödd í landi með sex tímabelti og stærstu strandlengju heims. Hér er vinsælt að spila íshokkí og héðan koma söngvararnir Shawn Mendes og Justin Bieber. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem var stórveldi 01.08.2024

Embla er stödd í landi sem hefur vestasta punkt meginlands Evrópu. Landið hefur sigrað Eurovision einu sinni og héðan kemur einn frægasti knattspyrnumaður heims. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem drekkur te 29.07.2024

Nú er Embla stödd í landi sem er í Evrópu en ekki lengur í Evrópusambandinu. Héðan kemur tónlistarfólk eins og Ed Sheeran, Adele og Sam Smith. Héðan kemur líka knattspyrnufólkið Leah Williamson og Harry Kane. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem er það hamingjusamasta í heimi 29.07.2024

Landið sem Embla er stödd í núna er heimaland Múmínálfanna, gufubaðsins og Ittala vörumerkisins. Í landinu er staður sem er af mörgum talinn heimili jólasveinsins. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem hellir upp á espresso 24.07.2024

Nú er Embla stödd í landi þar sem má finna bæði Hringleikahús og skakkan turn. Frá landinu koma merki eins og Gucci, Prada og Versace. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem skíðar 18.07.2024

Nú er Embla stödd í landi sem hefur marga firði og eyjur. Sögur eins og Dýrin í Hálsaskógi og Kardemommubærinn koma frá landinu og líka fótboltamaðurinn Erling Haaland. En hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem býr til myndasögur 17.07.2024

Embla er lengra í burtu en í fyrri þáttum. Nú er hún komin til Asíu! Í landinu sem hún er stödd í eru mörg kirsuberjatré og mjög góður matur. Hér urðu til karaoke, emoji og persónurnar Hello Kitty og Pokémon. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem geymir Mónu Lísu 15.07.2024

Embla er stödd í vinsælasta landi heims meðal ferðamanna. Hér er borg ljósanna, frægur turn og dýr sem er ekki borðað hvar sem er í heiminum. Hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem á elsta fána í heimi 09.07.2024

Embla er aftur á ferðinni og er núna lent í landi LEGO kubbanna, ævintýranna og hamingjunnar. En hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem bakar sódabrauð 09.07.2024

Í þessum þætti er Embla stödd í landinu sem hrekkjavakan varð til í. Í landinu eru fallegir klettar og á Íslandi er útihátið sem dregur nafn sitt af landinu. En hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem heldur upp á nafnadaga 05.07.2024

Landið sem Embla er stödd í núna á sér langa og merka sögu. Þetta er land fornleifasafna, heimspekinga og Ólympíuleikanna. En hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem býr til bíla og hlaupbangsa 04.07.2024

Aftur er Embla stödd á spennandi stað. Hér fæddust Grimms bræðurnir og margir íslenskir handboltaleikmenn spila með liðum í landinu. En hvert er landið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem kann að taka kaffipásu 02.07.2024

Embla er komin í annað land. Í þessu landi eru Nóbelsverðlaunin veitt og haldið upp á kanilsnúðadaginn. Hvaða land heldur svona mikið upp á kanilsnúða? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Landið sem leggur sig 28.06.2024

Embla er lögð af stað í ferðalag. Hún er stödd í landi þar sem margir íbúar leggja sig seinni partinn og þjóðarrétturinn er hrísgrjónaréttur. Hvert ætli landið sé? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Lyssna på podden Gettu hvar i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden