Hipsumhaps
Ást & praktík
Hlaðvarpssería um plötuna Ást & praktík með Hipsumhaps.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: hipsumhaps.is
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Þrjú orð (feat. Kiddi) 22.08.2024 57:01
Í þessum þætti spjalla Fannar & Orri við Kristin Þór Óskarsson. Til umræðu var tónlistargróska Garðabæjar, harmonikkuhljómsveitin Klaxons og auðvitað afurð blómlegs samstarfs þeirra Fannars og Kidda, platan Ást & praktík. Lokalag plötunnar, Þrjú orð, var svo auðvitað krufið. Takk fyrir að hlusta.
1, 31 (feat. Bragi Reynir) 24.04.2024 51:34
Í þessum þætti fengu Orri & Fannar frían sálfræðitíma þegar Bragi Reynir Sæmundsson velti með þeim steinum varðandi það hvernig maður getur verið besta útgáfan af sjálfum sér, ásamt því auðvitað að rýna í ellefta lag plötunnar: 1, 31. Takk fyrir að hlusta.
Ást & praktík (feat. Atli Bollason) 12.04.2024 1:11:02
Í þessum þætti spjalla Fannar & Orri við Atla Bollason. Hlustendur fá að kynnast lífssýn Atla og samfélagsrýni í hæsta gæðaflokki auk þess sem Atli & Fannar rifja upp tilurð titillags plötunnar Ást & praktík. Takk fyrir að hlusta.
Skattemus (feat. Mugison) 27.03.2024 1:12:37
Í þessum þætti spjalla Fannar & Orri við prins krúttkynslóðarinnar, sjálfan Mugison. Til umræðu var töffararembingur, frosinn kjúklingur og vitaskuld níunda lag plötunnar; Skattemus. Takk fyrir að hlusta.
Ástið (feat. Andrea Jónsdóttir) 21.03.2024 1:01:53
Í þessum þætti fræðir Andrea Jónsdóttir Fannar & Orra um Bítlana, bransavæðingu tónlistarinnar og auto-tune. Af hverju vill reynslumesti DJ landsins helst bara nota geisladiska? Takk fyrir að hlusta.
Annan heim (feat. Erla Björnsdóttir) 07.03.2024 41:56
Í þessum þætti ræða Fannar & Orri við Dr. Erlu Björnsdóttur um svefn frá ýmsum hliðum. Hvers vegna sækir kvíðinn að okkur rétt fyrir svefninn? Hvernig í ósköpunum svaf Fannar svona illa, svona lengi? Takk fyrir að hlusta.
Hugmyndin um þig (feat. Ragnhildur Steinunn) 22.02.2024 55:45
Í þessum þætti rætist bernskudraumur Fannars þegar Ragnhildur Steinunn tekur hann í viðtal. Hún reyndar rekur úr honum garnirnar. Við ræddum um dagskrárgerð, ofurkonuímyndina og Söngvakeppni Sjónvarpsins ásamt því auðvitað að rýna í sjötta lag plötunnar: Hugmyndin um þig. Takk fyrir að hlusta.
SMS (feat. Bergur Ebbi) 16.02.2024 1:29:56
Í þessum þætti líta Orri & Fannar ekki bara til framtíðar, heldur líka um öxl í spjalli við Berg Ebba um samfélagsmiðla, gervigreind og nostalgíu, ásamt því auðvitað að rýna í fimmta lag plötunnar: SMS Takk fyrir að hlusta.
Góðir hlutir gerast hææægt (feat. Dr. Gunni) 08.02.2024 1:03:40
Í þessum þætti þurftu Orri & Fannar kliníska nálgun. Dr. Gunni settist með þeim og ræddi um hvað Netflix er orðið leiðinlegt, Gylfa Ægis og mikilvægi tónlistarumfjöllunar, ásamt því auðvitað að rýna í fjórða lag plötunnar: Góðir hlutir gerast hææægt Takk fyrir að hlusta.
Á ég að hafa áhyggjur? (feat. Snorri Barón) 02.02.2024 31:04
Í þessum þætti tylla Orri & Fannar sér við fótskör meistarans, Snorra Baróns Jónssonar, og spjalla um óttann við að verða leiðinlegur, tónlist og fleiri mikilvæg mál ásamt því að rýna í þriðja lag plötunnar: Á ég að hafa áhyggjur? Takk fyrir að hlusta.
Hjarta (feat. Tómas Guðbjartsson) 25.01.2024 43:10
Í þessum þætti spjalla Orri & Fannar við Tómas Guðbjartsson um náttúruna, lýðheilsu og fleiri hjartans mál ásamt því að rýna í annað lag plötunnar: Hjarta. Takk fyrir að hlusta.
Gleðitíðindi (feat. Fannsi) 18.01.2024 48:27
Í þessum þætti spjallar Orri við Fannar um allt og eiginlega ekki neitt ásamt því að rýna í fyrsta lag plötunnar: Gleðitíðindi. Takk fyrir að hlusta.
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden