Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

Tv IS ↓ Episoade: 156

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“  - Morgunblaðið 1987 - tveiratoppnumpodcast@gmail.com. 

Autor

Tveir á toppnum

Categorie

Tv

Site-ul podcastului

www.buzzsprout.com

Cel mai nou episod

6 iul. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 5 mil.+ descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

#156 - Stallone 80 ára 06.07.2026

Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem...

#155 - Citizen Vigilante 01.07.2026

Eldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir. Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri.

#154 - Disclosure Day 18.06.2026

Undarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt:  Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt.

#153 - Obsession 11.06.2026

Öll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH. 

#152 - Backrooms 05.06.2026

Öll eru að tala um Backrooms þannig að Oddur og Tóti verða að gera það líka. Verst bara að þeir skilja ekki neitt.

#151 - 2EXTRA - Euphoria 3 03.06.2026

Dóra Júlía er dregin inn í neyðarpodd, sérstakan aukaþátt, þann fyrsta í langan tíma, um Euphoria 3 í fjarveru Tóta. 

#150 - The Mandalorian and Grogu 28.05.2026

Þegar ný Star Wars-mynd kemur í bíó dugir ekkert annað en að draga fram stóru geislabyssurnar og það er gert í þessum þætti sem fjallar bara um Stjörnustríð og ekkert nema Stjörnustríð með okkar helsta Star Wars-manni, sjálfum Geir Finssyni.

#149 - The Boys vertíð 5 - Lokauppgjör 21.05.2026

Lokahnykkur The Boys er í brennidepli og maðurinn sem uppgötvaði þættina á Íslandi, sjálfur Arnar Tómas Valgeirsson, er ekki langt undan og kveður upp sinn endanlega dóm símleiðis.

#148 - Daredevil: Born Again vertíð 2 - The Punisher: One Last Kill 14.05.2026

Arnar Tómas Valgeirsson kemur aftur eftir ársfjarveru en er enn með heitu take-in. Marvel trogið krufið í þaula.

#147 - The Devil Wears Prada 2 08.05.2026

Hátískuþáttur með súperstjörnunni DJ Dóru Júlíu sem leiðir leppalúðana Odd og Tóta meðfram sýningarpöllunum inn í allan sannleikann um menningarfyrirbærið sem kennt er við Andskotann dressaðan upp í Prada.

#146 - Apex og bestu myndir síðustu 25 ára 30.04.2026

Síðasti þáttur aprílmánaðar byrjar á spjalli við Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við HÍ, um býsna áhugaverðan lista yfir 25 bestu kvikmyndir síðasta aldarfjórðungs. Apex hans Balta er síðan rædd út og suður en aðalega norður áður en hefðbundnu stöðutjékki er troðið sem rúsínu í þennan mánaðarenda.

#145 - Invincible og The Drama 23.04.2026

Heilsufarsskoðun Tóta hjá hjartalækninum á sumardeginum fyrsta. Fjórða sería af The Invincible öll komin út, endurnýjun Law and Order og The Drama. Michael Jackson myndin sem er víst að falla í grýttan jarðveg meðal gagnrýnenda. Skoðanir Tóta á MJ koma ekki á óvart, eða hvað?

#144 Malcolm & Melania í miðjunni 16.04.2026

Þreyttir, slæptir og tættir en óbugaðir barma Oddur og Tóti sér yfir ómannúðlegu glápálagi. Oddur finnur þó huggun í því að hann er að byrja aftur að éta vængi í sjónvarpi og hefur hrifist af Malcolm in the Middle: Life's Still Unfair. Tóti hins vegar deilir hlutskipti með Malcolm og hefur tekið út talsverða þjáningu til þess að efna loks loforið um Melaniu umfjöllun. 

#143 - Project Hail Mary og sjónvarpsvorfenið 08.04.2026

We are so back! Ferðasaga Odds, ótrúlegar hrakfarir Tóta í gestagangi, Project Hail Mary, The Boys, Invincible, Daredevil: Born Again, Euphoria, Harry Hole og vorbylgjan ógurlega. 

#142 - Óskarinn 2026 19.03.2026

Óskarinn gerður upp. Tóti er Nostradamus! Eða svona því sem næst. Hvenær kemur að Timothée Chalamet? Hvar var Sean Penn? Leonardo DiCaprio bölvunin. Manosphere, Spiderman trailer og að sjálfsögðu Law and Order. Og margt fleira.

#141 - ESB dómsdagurinn, Rachel Weisz og Vladimir plús allt reglulega bullið 10.03.2026

Þáttur í flýtimeðferð þar sem Oddur er á leið í óbyggðaferð í vetrarfríinu.  Farið er ofan í skuggalega kvikmyndatengingu sem boðar ekkert gott fyrir ESB-þjóðaratkvæðaflippið. Rachel Weiz rokkar Netflix með Vladimir á meðan Jack Reacher púllar Arnold og slæst við hönnungargallaðan Transformer frekar en alvöru Predator. Að ógleymdri fullkomlega ómarktækri og ábyrgðarlausri Óskarsspá. ----- Tveir á...

#140 - Meint siðblinda Tyru Banks og mikilvægt stöðutékk 05.03.2026

Vistaskipti Tóta, myrk saga America's Next Top Model, ótrúlegar breytingar á Jim Carrey, síðvetrardepurð og fleira og fleira og fleira. ----- Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#139 - A Knight of the Seven Kingdoms 25.02.2026

Industry, America's Next Top Model, fannfergið úti og svo alvöru nördayfirferð yfir A Knight of the Seven Kingdoms með Stefáni Pettersson. Óvænt bestu þættir ársins?  ----- Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#138 - Heated Rivalry 19.02.2026

Dóra Júlía Agnarsdóttir fjölmiðlakona og plötusnúður mætir og greinir Heated Rivalry í þaula. Innskot frá gesti þáttarins. Að 25 mínútum liðnum kveður Dóra og tveir á toppnum fara yfir vettling dagsins. RIP Robert Duvall og fleira. ----- Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#137 - Fallout 2 05.02.2026

Aðeins um Melaniu Trump heimildarmyndina. Hvað er verið að glápa á? Allar helstu kenningar upp úr vertíð 2 af Fallout. Stefán Pettersson er maðurinn sem allt  veit um Fallout.  ----- Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#136 - Óskarsverðlaunatilnefningar 2026 og Marty Supreme 29.01.2026

Hvernig fer Ísland-Danmörk? Tóti spáir í spilin, með sínum hætti. Sjónvarpsglápið, Bíóhöllin, Óskarinn og Marty Supreme. 

#135 - 28 Years Later: The Bone Temple 22.01.2026

Uppvakningadramað 28 Years Later: The Bone Temple og í raun allur 28 bálkurinn eru krufin inn að beini og brotin til mergjar með mæðgunum Kareni Kjartansdóttur og Unu Kristjönu. Alveg hreint sprellfjörgur panell og þáttur með tæknilegum mistökum og grímulausum Duran Duran áróðri.

#134 - Sjónvarpsárið er hafið og Sydney Sweeney fækkar fötum 15.01.2026

Fyrsti þátturinn gestalausir í háa herrans tíð. Förum yfir það helsta sem er á döfinni í sjónvarps-og bíóheimum. Golden Globe og svo kvikmyndin The Housemaid. Og miklu meira!

#133 - Stranger Things 5 08.01.2026

Stranger Things er nú á enda. Birgir Olgeirsson mætir og greinir nýjustu seríuna og hinar í þaula.

#132 - Áramótaskaupið 2025 og árið gert upp 03.01.2026

Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Arnar Eggert Thoroddssen doktor í tónlistarfræðum og aðjúnkt í fjölmiðlafræði ræða Áramótaskaupið 2025 og gera upp árið 2025 í sjónvarps -og kvikmyndaheimum og líta til þess hvað er framundan 2026. 

Ascultă podcastul Tveir á toppnum în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice