RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Lífeyrissjóðirnir svara spurningum um Kviku og Ortus 03.11.2025 14:59
Þrír af lífeyrissjóðunum sem eru stærstu hluthafar almenningshlutafélagsins Kviku banka svara spurningum um viðskipti bankans með breska veðlánafyrirtækið Ortus Secured Finance. Kvika gekk fyrr á árinu frá kaupum á restinni af hlutafé félagsins og á það allt í dag. Heildarkaupverð er 6.5 milljarðar króna. Bankastjóri Kviku, Ármann Þorvaldsson, stofnaði lánafyrirtækið ásamt viðskiptafélögum sínum á...
Verðhrun í Counter Strike 31.10.2025 16:18
Margir Counter-Strike-spilarar urðu fyrir fjárhagslegu tjóni þegar framleiðendur tölvuleikjarins gerðu breytingar á úthlutun stafrænna muna í leiknum. Þessir stafrænu munir ganga kaupum og sölum utan leiksins fyrir himin háar fjárhæðir. Sem dæmi getur hnífur sem notaður er í leiknum kostað um 120 milljónir íslenskra króna. Eftir því sem við komumst næst stundar stór hluti íslenskra spilara viðskip...
Leirfinnur á Hrekkjavöku 30.10.2025 17:15
Á Hrekkjavöku verður myndlistarverk eftir Ólöfu Nordal til sýnis í gamla sóttvarnarhúsinu við Ánanaust í Reykjavík. Verkið er hennar útgáfa af Leirfinni, einum umdeildasta skúlptúr Íslandssögunnar. Verk Ólafar á sér langa og forvitnilega sögu sem teygir sig anga sína á Kristnihátið á Þingvöllum, til Ríkislögreglustjóra og ofan í lítinn skókassa. Ólöf segir okkur frá fyrirhöfninni við að skapa verk...
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á sorphirðufyrirtækjum 28.10.2025 14:30
Samkeppniseftirlitið rannsakar tvö fyrirtæki á sorphirðumarkaði. Þetta eru Terra og Kubbur. Forstjóri helsta samkeppnisaðilans, Íslenska gámafélagsins, segir að ýmsar einkennilegar tilviljanir hafi komið upp í tilboðum í sorpþjónustu hjá sveitarfélögum síðastliðin ár. Íslenska gámafélagið er ekki hluti af þessari rannsókn. Forstjórinn lýsir þessum sorhirðumarkaði og hvernig rusl hefur orðið að gul...
Tiktok-færsla íslenskrar stúlku vakti athygli FBI 27.10.2025 16:40
Fyrir rúmu ári birti 16 ára íslensk stúlka færslu á Tiktok þar sem hún lýsti kynnum sínum af hópi á netinu sem kallaður er 764. Færslan vakti athygli bandarísku alríkislögreglunnar FBI. Hópurinn 764 hringir nefninlega háværum viðvörunarbjöllunum þar, hjá alþjóðalögreglunni Interpol og evrópsku lögreglunni, Europol. Hjá þessum löggæsluyfirvöldum starfar fjölmennt lið rannsakenda við að afhjúpa bakm...
Síðasta Íslandstengda hrunmálið í heiminum 24.10.2025 14:59
Í vikunni kom niðurstaða í síðasta Íslandstengda hrunmálið í heiminum. Þetta er Lindsor-málið svokallaða í Lúxemborg. Rætt er við Ólaf Hauksson héraðssaksóknara um þetta. Síðasta hrunmálið á Íslandi var klárað árið 2021. En hvað er með annars konar uppgjör við efnahagshrunið 2008? Steinþór Gunnarsson verðbréfamiðlari var dæmdur fyrir lögbrot í Landsbanka Íslands en fékk mál sitt endurupptekið og v...
Varaseðlabankastjóri segir að fjármálaeftirlit á Íslandi sé sterkt 23.10.2025 16:38
Björk Sigurgísladóttur, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits í Seðlabanka Íslands, segir að fjármálaeftirlitið sé sterk stofnun á Íslandi. Starf Bjarkar í Seðlabanka Islands er ígildi þess sem áður kallaðist forstjóri fjármálaeftirlitsins. Eftir sameiningu FME við Seðlabanka Íslands árið 2020 varð þessi nýi starfstitill til. Þetta helst settist niður með Björk á skrifstofu hennar í Seðlabanka Ís...
Stuðningsheimilið Blönduhlíð 22.10.2025 15:26
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, tók á vormánuðum við forstöðumannastarfi stuðningsheimilisins Blönduhlíðar í Mosfellsbæ. Heimilið hafði verið mikið í fréttum mánuðina á undan vegna umdeildra kosningaloforða og vandræðagangs við opnun þess. Nú hefur heimilið verið starfandi í hálft ár og við spyrjum Birgi Örn um starfsemina, gagnið sem slíkt úrræði getur gert og áskoranir í me...
Hringborð Norðurslóða og staðan á byggingu höfuðstöðvanna 21.10.2025 15:30
Hringborð Norðurslóða fór fram í Hörpu í síðustu viku og um helgina. Ráðstefnan hefur verið haldin á hverju hausti frá árinu 2013. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er stjórnarformaður Hringborðsins. Hann ræðir um ráðstefnuna í ár og stöðuna á fyrirhugaðri byggingu höfuðstöðva Hringborðsins í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Yfirvöld í Reykjavík hafa úthlutað stofnun Ólafs Ragnars lóð...
Dýrkeypt lexía um að draga úr streitu 20.10.2025 17:06
Við ætlum að ræða um orkustjórnun og hvað er mikilvægt að halda hæfilegu jafnvægi milli hvíldar og áreynslu bæði í íþróttum og í hversdeginum. Við ætlum að ræða við mann sem kynntist því óvænt hve mikilvægt er að lifa ekki í of mikilli streitu. Hinrik Pálsson hefur leitt lyftingadeild Stjörnunnar, Kraftlyftingasamband Ísland og þjálfað unga sem aldna í kraftlyftingum. Hann segir frá því sem hann h...
Kaup Kviku á bresku lánafyrirtæki sem bankastjórinn stofnaði 17.10.2025 15:16
Kvika lauk fyrr á þessu ári kaupum á öllu hlutafé í bresku lánafyrirtæki sem bankastjórinn Ármann Þorvaldsson stofnaði árið 2013. Seljendur hlutabréfanna eru meðal annars meðstofnendur Ármanns í Ortus Secured Finance. Þetta er veðlánafyrirtæki sem sérhæfir sig í að veita svokölluð brúarlán með veði í fasteignum. Brúarlán eru lán sem eru veitt til skamms tíma. Kvika er almenningshlutafélag sem er a...
Morgunleikfimin að eilífu! 16.10.2025 15:15
Morgunleikfimi hefur verið fastur liður á virkum dögum á Rás 1 frá árinu 1957. Undanfarin 40 ár hefur þátturinn verið í umsjón Halldóru Björnsdóttur en þar á undan voru þau Jónína Benediktsdóttir og Valdimar Örnólfsson umsjónarmenn. Við ræðum um hefðina sem hefur skapast fyrir því að mörg þúsund Íslendingar geri morgunleikfimi á sama tíma í áratugi. Viðmælendur: Halldóra Björnsdóttir og Fanney Bir...
Heimsókn Höllu forseta til Kína og tilvitnunin í Mao formann 15.10.2025 15:07
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, vitnaði í Mao Zedong, formann Kommúnistaflokks Kína á árunum 1949 til 1976, á kvennaráðstefnu í Peking á mánudaginn. Forsetinn er í opinberri heimsókn í Kína og vísað í ræðu sinni till þekktrar tilvitnunar í Mao formann þar sem hann fjallar um jafnrétti kynjanna. ,,Konur halda uppi hálfum himninum.” Mao í er í vestrænum sagnfræðiritum talinn vera einn mesti harð...
Fjölfatlaðar fjögurra ára drengur fær ekki vernd á Íslandi 14.10.2025 15:57
Fjölfatlaður fjögurra ára drengur frá Venesúela fær ekki vernd eða mannúðarleyfi til að setjast að á Íslandi. Þetta er niðurstaða Útlendingastofnunar frá því í byrjun október. Drengurinn heitir Elían og er með klofinn hrygg, vatnshöfuð og er bundinn við hjólastól og næringarinntöku í gegnum sondu. Móðir Elíans, Leidy Díaz, ætlar að áfrýja synjuninni til kærunefndar útlendingamála. Rætt er við Leid...
Barátta friðarverðlaunahafans við einræðið í Venesúela 13.10.2025 14:59
Helsti stjórnarandstæðingur einræðisherrans í Venesúela, Nicholas Maduro, fékk Friðarverðlaun Nóbels fyrir helgi. Hún heitir María Corina Machado og er 56 ára gömul. Maria Corina hefur í mörg ár barist gegn einræðisstjórnum Hugo Chavez og Nicolas Maduro. 26 ár eru nú liðin frá því að Hugo Chavez var kjörinn forseti í Venesúela og hefur landið gjörbreyst á þessum tíma og gildi lýðræðisins eru fótum...
Samruni Íslandsbanka og Skaga 10.10.2025 14:59
Greint var frá viðræðum um samruna Íslandsbanka og Skaga fyrr í vikunni. Hugmyndin er sú að hluthafar Skaga fái 15 prósent af hlutafénu í sameinuðu fyrirtæki. Samlegðaráhrifin af samrunanum eru fyrst og fremst kostnaðarhagræði og arðsamari rekstur. Skagi samanstendur af þremur fyrirtækjum: tryggingafélaginu VÍS, fjárfestingarbankanum Fossum og verðbréfafyrirtækinu Íslenskum verðbréfum. Þrír stærst...
Aðgerðarsinnarnir í fjölskyldu Möggu Stínu 09.10.2025 16:16
Tónlistarkonan og aðgerðarsinninn Margrét Kristín Blöndal er enn í haldi Ísraelshers. Ekkert hefur heyrst frá henni síðan herinn stöðvaði skip úr Frelsisflotanum við Miðjarðarhaf í fyrrinótt. Magga Stína var um borð í skipinu Conscience sem reyndi að sigla hjálpargögnum til Gaza. Magga Stína hefur undanfarin tvö ár verið áberandi í skipulögðum mótmælum á Íslandi gegn stríðsrekstri Ísraelshers. Hún...
Launalækkanir sorphirðumanna hjá Terra 08.10.2025 15:05
Umhverfisfyrirtækið Terra ætlar að lækka laun rúmlega 30 sorphirðumanna um 20 prósent. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akranes, ætlar að berjast gegn þessari launalækkun. Fyrirtækið Terra safnar úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum og leigir út ruslagáma og rekur flokkunarstöðvar fyrir úrgang. Terra var með 9,6 milljarða tekjur í fyrra og hagnaðist um ríflega 500 milljónir. Fyrirtæki...
Gleymdar milljónir finnast á bankareikningi 07.10.2025 17:53
Ellefu og hálf milljón króna fundust nýlega á reikningi í umsjá Reykjavíkurborgar. Ellefu milljónir sem voru nýlega auglýstar sem einstakt viðbótar framlag í Tónlistarsjóð. Peningarnir koma upprunalega úr Músíksjóði Guðjóns Sigurðssonar. Í þessum þætti ætlum við að rekja uppruna peninganna og heyra óvenjulega sögu af því hvers vegna þessi væna summa hefur ratað inn Tónlistarsjóð í ár. VIðmælendur:...
Hlutabréfaviðskipti sjóðsstjóra og hættan á hagsmunaárekstrum 06.10.2025 14:59
Sjóðsstjóri hjá Stefni átti sjálfur hlutabréf í flugfélaginu Icelandair á sama tíma og sjóðir fyrirtækisins voru stórir hluthafar í því. Nánir fjölskyldumeðlimir sjóðsstjórans áttu líka hlutabréf í Icelandair á sama tíma. Þetta var á árunum 2010 til 2017. Sjóðsstjórinn heitir Jóhann Möller og er í dag framkvæmdastjóri Stefnis sem er dótturfélag Arion banka. Jóhann hefur starfað hjá Stefni frá árin...
Átökin um kvennabolta ÍR 03.10.2025 16:58
26 konur úr meistaraflokki ÍR í fótbolta hafa ákveðið að hætta í félaginu. Þær saka félagið um mismunun og metnaðarleysi fyrir kvennabolta. Nú leita þær leiða til að spila saman áfram en hjá öðru félagi. Framkvæmdastjóri KSÍ hefur boðið ÍR aðstoð við að greiða úr vandanum. Forseti hagsmunasamtaka kvenna segir stöðuna einstaka og grafalvarlega. Svo margir leikmenn yfirgefi ekki félagið að ástæðulau...
Fall Play og ásakanir um óheiðarleika 02.10.2025 14:30
Fall flugfélagsins Play hefur verið stóra frétt vikunnar. Ásakanir hafa verið settar fram um að stjórnendur Play séu að stunda kennitöluflakk og ætli sér að hefja flugrekstur á ný með hreint borð á Möltu. Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Play, segir að rangfærslur og samsæriskenningar muni leiðréttast í fyllingu tímans. Viðskipti Play við nýstofnað dótturfélag sitt, Fly Play Europe Holdco...
Tap lífeyrissjóðanna á flugfélaginu Play 01.10.2025 15:08
Frétt vikunnar á Íslandi er gjaldþrot flugfélagsins Play. Fáir bjuggust við því að félagið yrði gjaldþrota svona fljótt eftir nýlega 2,8 milljarða króna fjármögnun þess í skuldabréfaútboði í lok ágúst. Stærsti einstaki hluthafi Play var íslenski lífeyrissjóðurinn Birta með rúmlega 10 prósenta eignarhlut. Framkvæmdastjóri Birtu Ólafur Sigurðsson segir að gjaldþrot Play hafi komið honum í opna skjöl...
Arftakaskiptin hjá Samherja 30.09.2025 14:02
Katla Þorsteinsdóttir, dóttir Þorsteins Más Baldvinssonar og Helgu S. Guðmundsdóttur, er orðin stór eigandi í félagi sem þau hjónin áttu saman áður. Félagið á eignir upp á rúmlega 30 milljarða króna og skuldar nær ekkert. Það heitir Eignarhaldsfélagið Steinn og hélt áður utan um hlutabréf þeirra Þorsteins Más og Helgu, sem er fyrrverandi eiginkona hans, í Samherja. Þetta kemur fram í ársreikningi...
Ber ábyrgð á Tene-æði Íslendinga 29.09.2025 16:38
Meðal þeirra sem hafa laðað ferðamenn frá Íslandi til Tenerife eru hjónin Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir. Þau hafa búið á eyjunni í tólf ár og markaðsett hana sem góðan áfangastað fyrir sólarsvelta Íslendinga. Trausti segir okkur frá því sem ferðamenn hvorki sjá né heyra á þessari vinsælu eyju.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice