RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Springa kjarasamningar í haust? 20.01.2026 15:24
Stöðugleikasamningarnir - og verðhækkanir í ljósi þeirra - eru til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði í kvöldfréttum sjónvarps um helgina að verðbólga gæti sprengt kjarasamninga í haust. Viðmælendur: Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra Róbert Farestveit, aðalhagfræðingur ASÍ
Öryggisógnin af kínverskum strætisvögnum 19.01.2026 14:56
Öryggisógnir eru taldar geta fylgt kínverskum strætisvögnum. Í haust var talsverð umræða um það á hinum Norðurlöndunum og hér á landi að kínverskir framleiðendur strætisvagna sem keyptir hafa verið í stórum stíl til þessara landa gætu fjarstýrt vögnunum frá Kína í gegnum tölvukerfi. Í þessari umræðu var meðal annars rætt um mögulegar njósnir og þjóðaröryggi en áhyggjur af slíkum pólitískum afskipt...
Fámennasta sveitarfélagið neyðist til að þiggja 248 milljónir 16.01.2026 14:29
Í dag beinum við sjónum okkar að fámennasta sveitarfélagi landsins, Tjörneshreppi í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem íbúar eru á sjötta tug, og óvæntu 248 milljón króna fólksfækkunarframlagi sem barst hreppnum nýlega frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hreppsnefndin vildi afþakka framlagið, en nú hefur komið í ljós að hún má það ekki - og því stendur til að boða til íbúafundar í næsta mánuði til að ákveð...
Höfða mál svo ástvinir fái að deyja í friði 15.01.2026 16:01
Hópur aðstandenda á Sóltúni ætlar að stefna íslenska ríkinu út af byggingarframkvæmdum við hjúkrunarheimilið. Einar Stefánsson augnlæknir segir að heimilisfólk á Sóltúni eigi rétt á því að fá að verja síðustu mánuðum sínum og árum í friði frá hávaða undan byggingaframkvæmdum. Aðstandendurnir telja að með framkvæmdunum sé verið að brjóta gegn mannréttindum heimilisfólksins. Framkvæmdirnar eiga að s...
Seinni hálfleikur hefst á 157. þingi 14.01.2026 16:20
Seinni hálfleikur er að hefjast á þingi. Nefndir þingsins komu saman núna á mánudaginn og klukkan þrjú í dag er fyrsti þingfundur á nýju ári. Við ræðum stóru málin og stöðuna. Viðmælendur: Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þetta hefur gerst í Venesúela eftir handtöku Maduros 13.01.2026 16:45
Eftir að bandaríski herinn gerði loftárás á höfuðborg Venesúela og handtók einræðisherrann Nicolas Maduro hefur skapast ákveðin óvissa um hver það er sem fer með völdin í landinu. Stýrir eftirmaður Maduros, Delcy Rodriguez, Venesúela eða Donald Trump Bandaríkjaforseti? Yfirvöld í Caracas handtóku blaðamenn í kjölfar árásarinnar og stöðvuðu fólk á götum úti til að skoða símana þeirra og athuga hvor...
Framtíð Írans í ljósi fjölmennra mótmæla 12.01.2026 15:28
Í dag beinum við sjónum okkar að mótmælunum í Íran sem ekkert lát virðist vera á. Rætt er við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Reykjalundur á krossgötum út af tapi og myglu 09.01.2026 16:53
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar í Mosfellsbæ, segir að staða Reykjalundar sé erfið. Hallarekstur var upp á 280 milljónir í fyrra. Svana tók við forstjórastarfinu á endurhæfingarstofnuninni í nóvember. Mygla er í húsnæði stofnunarinnar sem í og nærliggjandi íbúðarhúsi fyrir sjúklinga og starfsmenn. Þessi mygla hefur haft slæm áhrif á bæði starfsmenn og eins sjúklinga á Reykjalundi....
Er raunhæft að lögfesta rétt barna til leikskólavistar? 08.01.2026 16:30
Í dag beinum við sjónum okkar að leikskólamálum - og sérstaklega að þeirri hugmynd að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur hér á landi, en umræða um slíka nálgun hefur orðið fyrirferðameiri undanfarið. Viðmælendur: Arnaldur Sölvi Kristjánsson Haraldur Freyr Gíslason Jón Björn Hákonarson Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Bóndi segir Ratcliffe vera eins og lénsherra í Vopnafirði 07.01.2026 17:06
Enski milljarðarmæringurinn Jim Ratcliffe er einn stærsti jarðaeigandi á Íslandi. Hann keypti upp jarðir á norðausturhorninu í stórum stíl fyrir nokkrum árum og er með sex laxveiðiár á leigu, meðal annars Selá og Hofsá. Í sumar ætlar hann að dvelja lengur á Íslandi en hann hefur gert og veiða í Selá. Rýma þurfti Selá á besta tíma í sumar fyrir Ratcliffe og geta veiðimenn sem hafa veitt þar á þessu...
Olían í Venesúela 06.01.2026 17:15
Við höldum áfram umræðu um Venesúela í þætti dagsins og beinum nú sjónum að olíunni þar, en Venesúela hefur yfir að ráða stærstu olíulindum heims. Rætt er við Brynjólf Stefánsson, sjóðstjóra og sérfræðing í hrávörum, og Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Árásin á Caracas og útþensla Donald Trumps 05.01.2026 17:15
Árás Bandaríkjahers á borgina Caracas í Venesúela og handtaka Nicolas Maduro forseta landsins hefur verið á allra vörum síðustu daga. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur greinir árásina og er sagt frá mögulegum afleiðingum handtöku Maduros fyrir óbreytta borgara sem hafa flúið landið. Einn þeirra er er hin 71 árs gamla Blanca Pirela sem býr á Flórída. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Sögulegt samhengi deilna Taívan og Kína 02.01.2026 15:27
Í áramótaávarpi sagði Xi Jinping, forseti Kína, enn á ný að til stæði að sameina Kína og Taívan aftur undir einni stjórn. Þá var umfangsmiklum heræfingum Kínverja í kringum Taívan nýlokið. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að stöðunni á Taívan og setjum samskipti Kínverja og Taívana í sögulegt samhengi um leið og við veltum fyrir okkur hvernig mál gætu þróast þar á næstu misserum, og möguleg...
Gagnrýni á frelsissviptingu barna í frumvarpi um brottfararstöð 30.12.2025 14:23
Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um brottfararstöð er umdeilt. Sérstaklega áhrif þessa úrræðis á börn. Frumvarpið hefur verið í umsagnarferli hjá Alþingi og hafa borist 30 umsagnir frá ýmsum einstaklingum og stofnunum. Ein af þessum umsögnum er frá Barna-og fjölskyldustofu sem Guðrún Þorleifsdóttir starfar hjá. Fjallað er um frumvarpið og gagnrýni Barna- og fjöl...
Skrautlegt ár að baki á markaði 29.12.2025 16:15
Í þætti dagsins er sjónum beint að árinu á hlutabréfamarkaði, þátttöku almennings og stöðu efnahagsmála á næsta ári. Rætt er við Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar, og Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Bláa lónið með tvö nýja baðstaði á teikniborðinu 22.12.2025 14:48
Á síðustu vikum hefur verið nokkur umræða um uppbyggingu í ferðaþjónustu í náttúru Íslands. Smáhýsin í Skaftafelli hafa vakið hörð viðbrögð hjá sumum og fyrirhugað baðlón og hótel Bláa lónsins við Hoffellsjökul og Vatnajökulsþjóðgarð sömuleiðis. Magnús Orri Schram, er yfirmaður þróunarmála hjá Bláa lóninu, segir að mikil eftirspurn sé eftir baðstöðum hjá erlendum ferðamönnum. Hann segir að lykilat...
Fyrri hálfleik lokið á 157. þingi 19.12.2025 13:23
Fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar voru samþykkt á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Í gær var einnig samþykkt umdeilt frumvarp um kílómetragjald á ökutæki, frumvarp um hækkun frítekjumarks eldri borgara og frumvarp um hlutdeildarlán, sem á að gera þau aðgengilegri fleirum. Og þingmenn halda nú í jólafrí. Í þættinum er farið yfir þau mál sem hafa verið samþykkt í haust og stöðuna eftir áramót. Viðmæland...
Baðlón og hótel Bláa lónsins við Hoffellsjökul 18.12.2025 14:58
Bláa Lónið hf. vill byggja hótel og gera baðlón við rætur Hoffellssjökuls við Hoffell í Nesjum. Framkvæmdirnar eru utan Vatnajökulsþjóðgarðs en eru rétt við mörk hans. 99 umsagnir hafa borist til Skipulagsstofnunar út af þessum fyrirhuguðu framkvæmdum. Umsagnir eru enn að berast um verkefnið þrátt fyrir að umsagnarfrestur hafi runnið út 1. desember. Síðasta umsögnin er dagsett 17. desember. Sigrún...
Pólitíkusar ekki lengur menn ársins 17.12.2025 14:09
Í dag beinum við sjónum okkar að þeirri hefð að útnefna manneskju ársins. Hlustendur Rásar 2 - og síðar lesendur RÚV.is - hafa valið manneskju ársins á hverju ári frá 1989. Athygli vekur að kjörnir fulltrúar hafa verið valdir 10 sinnum, eða í rúmlega fjórðungi tilfella, en aldrei frá 2007. Viðmælandi: Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þorpið á Grænlandi þar sem næsti bar er á Íslandi 16.12.2025 15:37
Ragnar Axelsson birti ljósmyndir frá þorpi á Grænlandi í byrjun desember í bandaríska tímaritinu the The New Yorker. Greinin fjallar öðrum þræði um grænlenskan ísbjarnarveiðimann, Hjelmer Hammeken, sem býr í þorpinu, Ittoqortoormiit, á austurströnd Grænlands. Ragnar segir frá Hammeken, þorpinu og vinnslu greinarinnar í bandaríska blaðinu sem fagnar 100 ára afmæli sínu í ár. Ittoqortoormiit er svo...
Verður af sameiginlegu framboði á vinstri vængnum? 15.12.2025 15:29
Sanna Magdalena Mörtudóttir tilkynnti á föstudag að hún ætli ekki að bjóða sig fram undir merkjum Sósíalistaflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún boðaði nýtt framboð sem hún vonar að verði öflugt samstarf á vinstri vængnum. Samstarf á vinstri vængnum - þar sem helst er horft til Sósíalistaflokksins - eða Sönnu allavega - , Pírata og Vinstri grænna, hefur verið til umræðu í nokkurn tíma...
Sagan um jörðina og smáhýsin í Skaftafelli 12.12.2025 13:52
Umræða um smáhýsin í Skaftafelli hefur verið talsverð síðustu daga. Bygging húsanna er umdeild hjá sumum, meðal annars Andra Snæ Magnasyni rithöfundi. Húsin er í eigu fyrirtækis sem heitir Arctic Circle Hotels. Hótelfyrirtækið er í eigu ferðaþjónusturisans Arctic Adventures og verktakafyrirtækisins Þingvangs. Artic Adventures á 60 prósenta hlut í hótelfyrirtækinu og Þingvangur á 40 prósent. Í húsu...
Vitni í Samherjamálinu segist hafa fengið tilboð fyrir að þegja 11.12.2025 15:22
Namibísk kona sem er vitni í rannsókn Samherjamálsins segist hafa verið boðin greiðsla upp á 85 milljónir íslenskra króna, fyrir að hætta að spyrja spurninga um rekstur íslenska útgerðarfélagsins í Namibíu árið 2016. Konan heitir Sharon Neumbo og var stjórnarformaður namibísks félags sem vann með Samherja í útgerð í landinu. Sharon segir að sá sem hafi boðið henni þessa upphæð hafi verið Egill Árn...
Tímamót í vaxtamálinu 10.12.2025 14:16
Tímamót verða í vaxtamálinu svokallaða eftir rúma klukkustund þegar hæstiréttur kveður upp dóm sinn í máli tveggja lántakenda vegna skilmála í lánasamningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum. Þetta er annað málið af fjórum sem lántakendur höfðuðu með fulltingi Neytendasamtakanna árið 2021. Um fátt hefur verið rætt meira en fyrsta málið sem leitt var til lykta um miðjan október - enda hafði það...
Aldrei fleiri íslensk skáldverk en fræðiritum fækkar 09.12.2025 16:16
Rúmar tvær vikur eru til jóla og í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að jólabókaflóðinu þetta árið, umfangi þess og hvernig þróun bókaútgáfu hefur verið að undanförnu. Rýnt er í tölur Félags íslenskra bókaútgefenda um fjölda bóka núna, á síðustu árum og áratugum. Viðmælendur: Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda Starri Reynisson, bóksali Umsjón: Ingvar Þór Björ...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice