RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Hvers vegna hækkuðu aðrir seðlabankar ekki vexti? 31.03.2026 16:02
Í þætti dagsins erum sjónum beint að því hvað aðrir seðlabankar eru að gera hvað varðar stýrivexti. Rætt er við Eirík Ragnarsson, hagfræðing í Þýskalandi, og Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðing við Columbia háskóla í Bandaríkjunum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Lögreglan rannsakaði fósturheimilið Gauksstaði 30.03.2026 15:00
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði eigendur fósturheimilisins Gauksstaða í Garði fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 og var tekin skýrsla af fjölda fólks sem hafði búið á heimilinu sem börn. Til rannsóknar var hvort eigendur fósturheimilisins, Jón Steinar Konráðsson og Linda Angelique Elizondo, hafi gerst brotleg gegn barnaverndarlögum og brot í opinberu starfi. Rannsó...
Saga móður sem tilkynnti Waltraud fyrir ofbeldi 27.03.2026 14:59
Marta Gunnardóttir var 25 ára einstæð móðir þegar hún sendi dóttur sína og son á fósturheimilið til Waltraud Paulsen í Mosfellssveit árið 1974. Þau bjuggu hjá Waltraud í tvö ár og upplifðu harðræði og ofbeldi sem hefur fylgt þeim æ síðan segir Marta. Börnin voru tveggja og fjögurra ára þegar þau fóru á heimilið. Stúlkan var beitt kynferðisofbeldi og drengurinn var bundinn og honum hótað með stórum...
Þráláta atvinnuleysið á Suðurnesjum 26.03.2026 16:35
Í þætti dagsins beinum höldum við áfram að ræða atvinnuhorfur hér á landi og beinum sjónum nú sérstaklega að atvinnuleysi á Suðurnesjum þar sem það er mest, 8,8 prósent. Rætt er við Guðbjörgu Kristmundsdóttur, formann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, forseta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Tvær systur segja frá fósturheimili Waltraud 25.03.2026 17:00
Tvær systur sem bjuggu á fósturheimili Waltraud Paulsen í Mosfellssveit segja sögu sína. Þær heita Hanna Hrefnudótitr og Ásdís Sveinjónsdóttir. Hanna var fjögurra til sex ára þegar hún bjó á heimilinu. en Ásdís var tveggja til fjögurra ára Minningar þeirra af dvölinni á heimilinu eru slæmar og hafa fylgt þeim í gegnum lífið. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Ofbeldið á fósturheimilinu í Mosfellssveit 24.03.2026 20:59
Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, leikkona og söngkona, varð fyrir ofbeldi þegar hún dvaldi á fósturheimili í Mosfellssveit á áttunda áratugnum. Eigandi heimilisins var þýsk kona, Waltraud Paulsen, og var það hún sem beitti þessu ofbeldi segir Guðrún Glódís. Fósturheimilið var í heimahúsi hjá Waltraud sem bjó þar ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Waltraud er fædd árið 1935 og er ennþá á lífi. G...
Aukið atvinnuleysi á óvissutímum 23.03.2026 14:17
Í dag beinum við sjónum okkar að atvinnuleysi hér á landi sem hefur verið nokkuð til umfjöllunar síðustu vikur og mánuði - enda ekki verið meira frá því í faraldrinum - og ef hann er undanskilinn hefur það ekki mælst meira frá 2013. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði, Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra S...
Frumskógur fósturheimilanna: „Eins og ég væri í fangelsi“ 20.03.2026 15:00
Kona sem dvaldi á fósturheimili í Garðinum á Reykanesi segir að það hafi verið eins og fangelsi að búa þar. Hún bjó á heimilinu á árunum 2017 og 2019. Heimilið hét Gauksstaðir og er ekki lengur starfandi. Konan ber vistinni á heimilinu samt frekar vel söguna almennt séð en segir aðra stúlku hafa átt erfiðari stundir þar. Ekki fást skýr svör frá Barna- og fjölskyldustofu, arftaka Barnaverndarstofu,...
Er rétt að lækka matarskattinn? 19.03.2026 16:30
Í þætti dagsins er sjónum beint að verðhækkunum á mat og hvort æskilegt sé að lækka virðisaukaskatt á matvöru – alla vega tímabundið – eins og nágrannaríki okkar ætla eða íhuga að gera. Rætt er við Þórólf Matthíasson, prófessor emeritus í hagfræði, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseta ASÍ. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þetta gerist næst í Bakkakotsmálinu 18.03.2026 17:00
Einn og hálfur mánuður er frá því að umfjöllun um Bakkakotsmálið var birt í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þátturinn vakti mikla athygli og umtal næstu daga og vikur þar á eftir. En hvað gerist svo? Hvað eru stjórnvöld að gera til að bregðast við þessu máli? Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði ferns konar aðgerðir til að bregðast við Bakkakotsmálinu í kjölfar þáttarins. Samhliða er verið...
Deilt um bardagakvöld og reglur um bardagaíþróttir 17.03.2026 17:59
Í Þetta helst í dag beinum við sjónum okkar að bardagaíþróttum - sem virðast vera í sókn hér á landi - og bardagakvöldum sem vakið hafa athygli að undanförnu. Viðmælendur: Ragnar Baldursson, lögmaður Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands Þórarinn Hjartarson, hnefaleikaþjálfari
Kaup risans Símans á vinsælum fjölmiðlum 16.03.2026 16:59
Fyrirhuguð kaup Símans á vinsælum fjölmiðlum eins og Vísi.is og Bylgjunni af Sýn hafa vakið athygli. Síminn hefur á síðustu tveimur árum keypt mörg fyrirtæki á auglýsinga- og fjártæknimarkaði og vaxið talsvert. Stærsti hluthafi Símans er fjárfestingarfélagið Stoðir sem á sér rúmlega 50 ára langa sögu í ólíkum myndum, meðal annars sem FL Group á árunum fyrir bankahrunið 2008. Meðal hluthafa Stoða e...
Áralangar deilur um tollflokkun á pítsaosti 13.03.2026 15:32
Í Þetta helst í dag eru það ostar sem eru til umfjöllunar - nánar tiltekið pitsaostur með viðbættri jurtaolíu, og áralangar deilur um tollflokkun á slíkum osti. Rætt er við Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Umsjón: Ingvar Þór
Sveitastjórnarmenn og bæjarstjórar skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína 12.03.2026 16:59
Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verður að lögum. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum. Þá eiga siðreglur sveitarstjórna líka að ná yfir framkvæmdastjóra og æðstu stjórnendur þeirra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar. Með la...
Saga þjóðaratkvæðagreiðslna á Íslandi 11.03.2026 16:50
Um fátt annað er rætt þessa dagana en fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í þætti dagsins ætlum við þó ekki að dvelja við atkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið 29. ágúst - þess í stað verður sjónum beint að fyrri þjóðaratkvæðagreiðslum hér á landi - en Íslendingar hafa átta sinnum mætt á kjörstað og greitt atkvæði í slíkum kosningum. Rætt er...
30 milljóna króna verktakagreiðslur til samlagsfélags eiginmanns heilbrigðisráðherra 10.03.2026 16:59
Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónasson hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í vertakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025. Miklar deilur hafa geisað við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði út af þessum vertakasamningum. Framkvæmdastjórn sjúkrahúsins sagð...
Ört vaxandi gagnaversiðnaður 09.03.2026 15:19
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi. Rætt er við Björn Brynjúlfsson, forstjóra Borealis Data Center og formann Samtaka gagnavera og Tinnu Traustadóttur, framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.
Stjórnendur atNorth hagnast ævintýralega á sölu gagnaverafyrirtækisins 06.03.2026 17:20
Íslenska gagnverafyrirtækið atNorth hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt. Þetta er langstærsta salan á íslensku gagnaverafyrirtæki hingað til. Fyrirtækið var í eigu svissneska sjóðsstýringafyrirtækisins Partners Group að 95 prósent leyti og hópur stjórnenda atNorth átti 5 prósenta hluta. Stjórnendurnir skipta með sér rúmlega 24 milljörðum króna af söluverðinu að frádregnum kostnaði þeir...
Fordæmalaus staða fyrir stórmót 05.03.2026 15:32
Flautað verður til leik á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 11. júní í sumar. Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, og nú liggur að mestu leyti fyrir hvaða þjóðir hafa tryggt sér þátttökurétt. Þeirra á meðal er Íran en vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum er eðli málsins samkvæmt ólíklegt að þeir mæti til leiks. Viðmælendur: Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur um málefni Írans Sigurlaugur...
Starfsfólk RIFF kvartar til Vinnumálastofnunar og borgarinnar 04.03.2026 16:04
Starfsmenn sem unnu á kvikmyndahátíðinni RIFF hafa kvartað til Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar vegna stjórnarhátta á hátíðinni. Gagnrýni þeirra beinist að eiganda og framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttir. Fyrrverandi starfsmannastjóri RIFF, Þorbjörg Jóhannsdóttir, segir frá reynslu sinni af því að starfa á hátíðinni sem annar starfsmaður, Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld. Gagnr...
Nýtt tímabil kjarnorkuvopna hefst 03.03.2026 18:16
Við ætlum að ræða kjarnorku í dag, þróun kjarnorkuvopna og breytingu á viðhorfi til slíkra vopna, bæði í ljósi stríðsins í Miðausturlöndum og ummæla Frakklandsforseta í ræðu í gær, þar sem hann sagði næstu 50 ár verða tímabil kjarnorkuvopna. Viðmælendur: Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur Gísli Jónsson, sérfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins
Efnahagslegar afleiðingar stríðs í Miðausturlöndum 02.03.2026 15:44
Í dag ætlum við að halda áfram að ræða stríðið í Miðausturlöndum sem hófst með loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna á Íran á laugardaginn - og beina sjónum sérstaklega að efnahagslegum áhrifum þess, olíunni og vöruflutningum, og hvort ástandið kunni að hafa áhrif á verðbólguhorfur hér á landi. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Fél...
Fegurðarforskot og „looksmaxxing“ hugmyndafræði 27.02.2026 15:16
Í dag beinum við sjónum okkar að hugmyndinni um fegurðarforskot í ljósi mikillar umræðu um aukna áherslu á útlit, sem hefur birst okkur í fréttum um peptíðanotkun og looksmaxxing hugmyndafræði, sem gengur út á að hámarka eigin fegurð. Rætt er við Andrés Jónsson, almannatengil, og Þóru H. Christiansen, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Íþróttafólk og auglýsingar 26.02.2026 15:23
Þótt alþjóða ólympíunefndin hafi ávallt verið ströng þegar kemur að auglýsingum urðu nokkrar breytingar á þessum leikum. Samningar íþróttafólks við fyrirtæki verða sífellt fleiri og stærri, líka á Íslandi. Rætt er við afreksstjóra ÍSÍ í þætti dagsins og framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Pipar\TBWA. Þau segja bæði að samningar íþróttafólks og fyrirtækja geti verið farsæl blanda. Annars vegar sé...
Latína: Mikilvæg undirstaða eða tilhaldstunga yfirstétta? 25.02.2026 15:47
Í dag beinum við sjónum okkar að latínu- og fornmálakennslu hér á landi, og áhyggjum af því að slíkt nám á framhaldsskólastigi sé að leggjast af. Nú stendur nefnilega til að draga úr latínukennslu við Menntaskólann í Reykjavík, eina skólanum sem enn kennir latínu, Viðmælendur: Böðvar Stefánsson, nemandi. Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, latínukennari. Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice