Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Autor
Sölvi Tryggvason
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
5 iul. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#225 Snorri Másson með Sölva Tryggva 29.10.2023 1:31:07
Snorri Másson er ungur fjölmiðlamaður sem þegar hefur látið mikið að sér kveða. Eftir að hafa unnið á Morgunblaðinu og Stöð2 ákvað hann að stofna sinn eigin fjölmiðil ritstjori.is. Í þættinum ræða Sölvi og Snorri um fjölmiðla fyrr og nú, nýjar leiðir í miðlun upplýsinga, samfélagið, skoðanamyndun og margt margt fleira.
#224 Jens læknir með Sölva Tryggva 25.10.2023 59:33
Jens K. Guðmundsson er einn fyrsti læknirinn á Íslandi sem stundar svokallað ,,functional medicine" eða heildrænar lækningar. Í þættinum ræða Sölvi og Jens um heilsu, lækningar, forvarnir og margt fleira.
#223 Chris Burkard með Sölva Tryggva 22.10.2023 1:28:39
Chris Burkard er ljósmyndari og ævintýramaður sem á ótrúlegt lífshlaup þrátt fyrir ungan aldur. Hann er með nærri fjórar milljónir fylgjenda á Instagram, enda ljósmyndir hans í algjörum heimsklassa. Í þættinum ræða Sölvi og Chris um ástríðu hans fyrir Íslandi, svaðilfarir um allan heim, leitina að bestu ljósmyndinni og margt fleira.
#222 Ari Jónsson með Sölva Tryggva 15.10.2023 1:01:43
Ari Jónsson er ungur maður sem aðstoðar nú annað fólk við þjálfun á hugarfari eftir að hafa sjálfur gengið í gegnum margt á stuttri ævi. Í þættinum ræða Sölvi og Ari um vana, hvatningu, andlega vakningu, hugarfar og margt fleira.
#221 Sara Odds með Sölva Tryggva 12.10.2023 1:50:07
Margrét Sara Oddsdóttir er ráðgjafi og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um heiðarleika, samanburð, skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig og margt margt fleira.
#220 Bogi Jónsson með Sölva Tryggva 08.10.2023 1:22:52
Bogi Jónsson er frumkvöðull og þúsundþjalasmiður sem á ótrúlegt líshlaup. Sem unglingur sniffaði hann lím daglega í tvö ár sem og segist stálheppinn að hafa komist lífs af. Hann hefur í gegnum tíðina framkvæmt ólíklegustu hluti eins og að opna fyrsta tælenska veitingastað landsins, byrja með kínarúllustað á Lækjatorgi læra nudd í Tælandi og fleira og fleira.
#219 Siggi Jóhannesson með Sölva Tryggva 01.10.2023 1:05:50
Siggi Jóhannesson er flugumferðarstjóri og fyrirtækjaeigandi. Í þættinum ræða Sölvi og Siggi um áskoranir þess að eiga langveikt barn, baráttuna við kerfið, CBD og kannabis, að halda í gleði og hamingju í gegnum erfiða tíma og margt fleira.
#218 Ingólfur Davíð með Sölva Tryggva 24.09.2023 1:20:29
Ingólfur Davíð Sigurðsson þurfti að fara í gegnum þá lífsreynslu að jarða son sinn eftir of stóran skammt af lyfjum. Ingólfur endaði sjálfur oft í fangaklefum sem ungur maður eftir að hafa verið hafnað af skólakerfinu, þar sem hann var ýmist kallaður heimskur eða óþekkur. Í þættinum ræða Sölvi og Ingólfur um stöðu ungra unga karlmanna sem enda annað hvort látnir eða festast í fangelsum, reynslu In...
#216 Sólveig Anna með Sölva Tryggva 17.09.2023 1:17:15
Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður Eflingar og hefur undanfarin ár staðið í ströngu. Í þættinum ræða Sölvi og Sólveig um baráttuna fyrir jöfnuði, sögu Sólveigar, fjölmiðla, stjórnmál og fleira.
#215 Gunnar Wiium með Sölva Tryggvai 13.09.2023 1:41:51
Gunnar Wiium er kennari og hlaðvarpsstjórnand semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, geimverur, samsæriskenningar og margt fleira.
#214 Gísli Gíslason með Sölva Tryggva 10.09.2023 1:07:17
Gísli Gíslason athafnamaður hefur átt ótrúlega viðburðaríkt líf. Maðurinn sem kom með Teslu til Íslands, hefur ferðast til 70 landa og er á leiðinni upp í geim. Í þættinum ræða Sölvi og Gísli um magnað lífshlaup Gísla, frumkvöðladrifkraftinn, hamingjuríkt líf og margt margt fleira.
#213 Páll Magnússon með Sölva Tryggva 03.09.2023 1:20:00
Páll Magnússon er einn reyndasti fjölmðlamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræða Sölvi og Páll um magnaðan feril Páls, sögur í gegnum tíðina, stöðu fjölmiðla, baráttuna við Bakkus og margt fleira.
#212 Þór Guðnason með Sölva Tryggva 29.08.2023 1:26:00
Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, stöðuna í samfélaginu, rétttrúnaðinn, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.
#211 Birkir Vagn með Sölva Tryggva 27.08.2023 57:31
Birkir Vagn Ómarsson er einkaþjálfari og íþróttafræðingur. Í þættinum ræða Sölvi og Birkir um heilsu, samfélagsmál, Covid-tímabilið, feril Birkis og margt fleira.
#210 Arnar Þór með Sölva Tryggva 20.08.2023 1:10:14
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir hugrekki og að hiksta ekki við að tala um mál sem aðrir snerta ekki á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um fasisma, frelsi, hlutverk ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.
#209 Magnús Skjöld með Sölva Tryggva 13.08.2023 55:44
Magnús Árni Skjöld Magnússon er stjórnmálafræðingur og háskólakennari. Í þættinum ræða Magnús og Sölvi um það hvernig Magnús endaði sem yogakennari í Kabúl í Afghanistan, nýja bók Magnúsar, samfélagsmál og margt fleira.
#208 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva 07.08.2023 1:10:14
Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Sigursteinn um feril Sigursteins, Sönn íslensk sakamál, íslenskt samfélag og margt fleira.
#206 Sebastian Prentice með Sölva Tryggva 25.07.2023 54:03
Sebastian Prentice er 25 ára gamall íþróttamaður sem varð að þroskast mjög hratt vegna fjölskylduaðstæðna. Hann á og rekur líkamsræktarstöð í Cape Town í Suður Afríku. Nýlega hljóp hann 100km utanvegahlaup og tók 180 kílógrömm í bekkpressu á sama tíma, sem er afrek sem aðeins örfáir jarðarbúar gætu leikið eftir. Í þættinum ræða Sölvi og Sebastian um heilsu, hugarfar, samfélagsmál og margt fleira.
#205 Óskar Hallgrímsson með Sölva Tryggva 23.07.2023 1:18:15
Óskar Hallgrímsson er ljósmyndari og listamaður sem á einum degi varð stríðsfréttaritari Íslands í Úkraínu. Hann og konan hans búa í höfuðborg Úkraínu og ákváðu að vera áfram í borginni þegar stríðið byrjaði. Í þættinum ræða Sölvi og Óskar um ótrulega hluti sem Óskar hefur upplifað eftir að hafa farið á verstu svæðin í stríðinu og í gegnum tímann síðan stríðið byrjaði, sögu Óskars og margt fleira.
#204 Bogi Ágústsson með Sölva Tryggva 19.07.2023 1:46:59
Bogi Ágústsson er líklega þekktasti fjölmiðlamaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Bogi um magnaðan feril Boga, stöðuna á fjölmiðlum nútímans, samfélagsmál og margt fleira
#203 Sorelle Amore með Sölva Tryggva 16.07.2023 1:27:29
Sorelle Amore er ung ævintýrakona sem hefur með mikilli elju og dugnaði náð milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Hún fæddist í Ástralíu en ákvað að kaupa sér flugmiða aðra leið til Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sorelle um ótrúlega vegferð Sorelle, ævintýrin í gegnum tíðina, leiðir til að elta draumana og fylgja ástríðunni og margt margt fleira.
#202 Gummi Kíró með Sölva Tryggva 09.07.2023 1:03:03
Guðmundur Birkir Pálmason eða Gummi Kíró hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og byrjaði snemma að nota óhefðbundnar leiðir til að auglýsa störf sín. Í þættinum ræða Sölvi og Gummi um heilsu, álit annarra, samfélagsmiðla og margt margt fleira.
#201 Aron Can með Sölva Tryggva 05.07.2023 52:34
Aron Can varð stjarna í íslensku tónlistarlífi sem unglingur og eftir það var ekki aftur snúið. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Aron um feril Arons, tónlistarlífið, mikilvægi þess að fylgja ástríðunni og margt fleira.
#200 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva 02.07.2023 1:08:47
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands og hefur ritstýrt fjölda miðla á áratugalöngum ferli. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um fjölmiðlun nútímans, helstu samfélagsmál, þöggun, framtíð fjölmiðlunar og margt fleira.
#199 Sölvi og Sigurjón Ernir 27.06.2023 1:20:58
Sigurjón Ernir er ofuhlaupari og sérfræðingur í heilsu. Hann settist niður með Sölva og þeir skiptu um hlutverk, þar sem Sigurjón spyr Sölva út í heilsu, bókina ,,Á Eigin Skinni", daglega rútínu og margt fleira.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice