Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Autor
Sölvi Tryggvason
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
5 iul. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#250 Davíð Bergmann með Sölva Tryggva 11.02.2024 1:07:31
Davíð Bergmann hefur í áratugi starfað með börnum og unglingum í vanda og brennur fyrir málaflokkinn. Honum var sjálfum hafnað af skólakerfinu og segist sjá sjálfan sig í krökkunum sem hann vinnur með. Í þættinum ræða Sölvi og Davíð um sögu Davíðs, afbrot, undirheima, leiðir til úrbóta og margt fleira.
#249 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva 06.02.2024 1:03:01
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki, skrifa fjölda bóka og margt fleira. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, samfélagsmál, fjölmiðla, samsæriskenningar og margt fleira.
#248 Gunnlaugur Guðmundsson með Sölva Tryggva 04.02.2024 1:36:47
Gunnlaugur Guðmundsson er reyndasti stjörnuspekingur Íslands og á magnaða sögu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stjörnuspeki, hvað er að gerast í heiminum, árin þar sem Gunnlaugur flakkaði um og leitaði að tilgangnum og margt fleira.
#247 Gunnar Wiium - Frelsandi að vera berrassaður 31.01.2024 1:39:51
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur víða komið við. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, neyslu, græðgi, hugvíkkandi efni, naktar gufuferðir og margt margt fleira.
#246 Kristján Gíslason - Ég klökkna enn þegar ég hugsa um þau 28.01.2024 1:29:58
Eftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað Kristján Gíslason að tími ævintýranna væri runninn upp. Árið 2014 fór hann hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og margt fleira. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að s...
#245 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 23.01.2024 1:15:31
Brynjar Níelsson er lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt margt fleira.
#244 Sveinn Kjartansson með Sölva Tryggva 22.01.2024 1:06:36
Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari greindist með HIV veiruna á fyrri hluta níunda áratugarins. Hann lýsir því í þættinum hvernig var að ganga með þessa handsprengju innanklæða á tíma þar sem útskúfunin var algjör. Neyslunni sem kom í kjölfarið og endaði á að fara með hann alla leið á botninn og svo upprisunni og fegurðinni í lífi hans í dag.
#243 Heimir Hannesson með Sölva Tryggva 16.01.2024 1:20:49
Heimir Hannesson er blaðamaður og frumkvöðull sem talar tæpitungulaust. Í þættinum ræða Sölvi og Heimir um fjölmiðla, stjórnmál, stöðuna í samfélaginu, ferðalög og margt fleira.
#242 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 15.01.2024 1:24:48
Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, hugvíkkandi efni, lífsstílssjúkdóma, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.
#241 Sölvi hjá götustrákum 10.01.2024 1:20:54
Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir í viðtal hjá Götustrákum og fer yfir ferilinn, slaufunina og margt fleira.
#240 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva 07.01.2024 1:13:56
Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, karlmennsku, sannleikann, lífið...
#239 Sigurjón Ernir með Sölva Tryggva 03.01.2024 1:18:30
Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður sem lætur ekkert stoppa sig og hefur framkvæmt ótrúlega hluti í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, magnaða vegferð Sigurjóns, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
#238 Eva Katrín með Sölva Tryggva 01.01.2024 1:23:43
Eva Katrín Sigurðardóttir er læknir sem keyrði sig gjörsamlega í þrot eftir að hafa haldið of mörgum boltum á lofti of lengi. Eftir langa þrautagöngu endaði hún á að finna lausnina í kuldaþjálfun og öndun. Í þættinum ræða Sölvi og Eva um magnaða sögu Evu, heilsu, kulda, öndun og margt margt fleira.
#237 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva 26.12.2023 1:31:27
Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt, aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Í þættinum ræða Sölvi og Kjartan um þetta magnaða lífshlaup, leiðirnar til að finna sátt og hamingju, ný ver...
#236 Simmi Vill með Sölva Tryggva 17.12.2023 1:49:41
Sigmar Vilhjálmsson var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, bæði á árunum í 70 mínútum og síðar sem aðalkynnir í ,,Idol Stjörnuleit". Síðar stofnaði hann Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um h...
#235 Sigga Kling með Sölva Tryggva 10.12.2023 59:18
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segir sjálf að ferill hennar sé ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt fleira...
#234 Arnar Þór Jónsson með Sölva Tryggva 05.12.2023 58:46
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir að hika ekki við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, stöðu ríkisins, sögu ógnarstjórna, mikilvægi hugrekkis í nútímanum og margt fleira.
#233 Bergþór Másson með Sölva Tryggva 04.12.2023 1:27:59
Bergþór Másson er hlaðvarpsstjórnandi, umboðsmaður og meistaranemi. Í þættinum ræða Sölvi og Bergþór um samfélagsmál, heimspeki, listir og margt fleira.
#232 Valdimar Flygenring með Sölva Tryggva 27.11.2023 1:14:27
Valdimar Örn Flygenring er leikari og tónlistarmaður sem hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum fara Sölvi og Valdimar yfir magnað lífshlaup Valdimars, hollywood, neysluna, ábyrgð, ástríðu og margt fleira.
#230 Þórarinn Hjartarson með Sölva Tryggva 19.11.2023 1:32:12
Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur sem vakið hefur athygli á undanförnum misserum. Í þættinum fara Sölvi og Þórarinn yfir rétttrúnað, ritskoðun, fórnarlambavæðingu og margt margt fleira.
#229 Axel Pétur með Sölva Tryggva 14.11.2023 1:05:29
Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru mjög langt fyrir utan boxið. Í seinni tíð hefur margt af því sem Axel hefur talað um raungerst. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta og nýjasta í samsæriskennigum og stöðuna í heiminum.
#228 Frosti Logason með Sölva Tryggva 12.11.2023 1:15:24
Frosti Logason er þrautreyndur fjölmiðlamaður sem nýverið stofnaði fjölmiðilinn Brotkast. Frosti er þekktur fyrir að ræða málin tæpitungulaust og hefur í gegnum tíðina hleypt öllum röddum að í viðtöl. Í þættinum ræða Frosti og Sölvi um útskúfunarmenningu, mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, stöðuna í íslensku samfélagi og margt fleira.
#227 Rannveig Borg með Sölva Tryggva 05.11.2023 1:17:15
Rannveig Borg er lögfræðingur og rithöfundur sem er búsett og starfar í Sviss. Í þættinum ræða Sölvi og Rannveig um sögu Rannveigar, ástríðu, fíknir, ADHD, samfélagsmál og margt fleira.
#226 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva 31.10.2023 1:42:35
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, karlmennsku, upplýsingaflæði, vakningu í heiminum og margt fleira.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice