Söguskoðun hlaðvarp

Söguskoðun

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.soguskodun.com

Autor

Söguskoðun hlaðvarp

Categorie

History

Site-ul podcastului

www.soguskodun.com

Cel mai nou episod

12 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

79 - Íslömsku "púðurveldin": Safavídar, Mógúlar og Ottómanar 12.01.2024

Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires .  Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega...

78 - Krímstríðið 1853-1856 05.01.2024

Andri og Ólafur ræða í þessum þætti gang og afleiðingar Krímstríðsins 1853-1856 milli Rússa annars vegar og Frakka, Breta, Tyrkja og Sardiníumanna hins vegar.  Krímstríðið var fyrsta styrjöldin sem háð var á milli evrópsku stórveldanna eftir Vínarfundinn 1815. Hún var einnig fyrsta stórveldastríðið í Evrópu eftir að iðnbyltingin hóf innreið sína með tilheyrandi tækninýjungum. Þetta var svo að segj...

77 - Evrópski konsertinn og aðdragandi Krímstríðsins 29.12.2023

Þátturinn byrjar á 18 mínútu. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður.  Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið...

76 - Jólaþáttur 2023 - Hinn sögulegi Jesús 25.12.2023

Í tilefni jólanna komu Söguskoðunarmenn saman til að ræða Jesú Jósefsson frá Nasaret, en hann fæddist (samkvæmt vestrænni hefð) á þessum degi fyrir 2727 árum, nánar tiltekið árið u.þ.b. 4 fyrir okkar tímatal. Ólafur setti upp guðfræðingagleraugun og fór yfir helstu atriði um hinn sögulega Jesú í tilefni dagsins. Eins eins og flestir vita var Jesús krossfestur árið c.a. 30, og eftir hans dag varð t...

75 - Fasismi og nasismi í Austurríki 14.12.2023

 Þátturinn byrjar á 24 mínútu.  Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika. Árið 1934 var ko...

74 - Keltar á Íslandi 23.10.2023

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Kelta á Íslandi og keltnesk áhrif á íslenska menningu, tungumál og sögu.  Norrænir menn komust í mikil tengsl við Kelta á Bretlandseyjum um það leyti er Ísland var að byggjast á árunum 800 til 1000. Enginn vafi leikur á því að hluti landnámsmanna voru frá Bretlandseyjum og af keltneskum uppruna og hefur þetta verið óumdeilt. Ekki allir eru þó  sammála um þa...

73 - Galdrar, brennur og galdrafár 26.09.2023

Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn galdrafárið í Evrópu og galdramálin á Íslandi á 17. öld. Í Evrópu voru tugir þúsunda meintra norna og galdramanna brennd á báli, eða tekin af lífi með öðrum hætti fyrir það að stunda svartagaldur og hvítagaldur. Langstærstur fjöldi þeirra voru konur.  Á Íslandi voru 22 brennd á báli fyrir ástundun galdurs, þar af ein kona. Galdrafárið á Íslandi, ef svo mætti...

72 - Silkivegurinn 31.08.2023

Andri og Ólafur koma saman í þættinum í dag til að ræða silkiveginn í víðu og þröngu samhengi. Silkivegurinn er nafið sem loðað hefur við leiðina frá Miðjarðarhafinu (Evrópu og Rómarveldi), í gegnum Mið-Austurlönd og Mið-Asíu og til Kína á fornöld og á miðöldum fram til ca. 1500. Á þessu svæði fór fram verslun, m.a. með silki, en einnig fór þar um straumur hugmynda, trúarbragða, menninga, tungumál...

71 - Býsanska lýðveldið 22.08.2023

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri kenningu sagnfræðingsins Anthony Kaldellis um "býsanska lýðveldið" sem hann birti í bók sinni The Byzantine Republic sem kom út árið 2015. Kaldellis er góðvinur hlaðvarpins enda hefur hann oft borið á góma þegar rætt er um málefni Austrómverska ríkisins. Segja má að bækur hans The Byzantine Republic og Romanland  séu uppistöðurit í hans leiðangri að...

70 - Sumargleði Söguskoðunarbræðra 17.06.2023

Söguskoðunarmenn komu saman í eigin persónu, í annað sinn síðan hlaðvarpið hóf göngu sína, og ræddu heima og geima áður en haldið var í sumarfrí.  Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube: https://youtu.be/NADuRUF6xn0 Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .

69 - Konungsríkið Kongó 30.05.2023

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur miðaldakonungsríkið Kongó í Mið-Afríku sem stofnað var undir lok 14. aldar og leið ekki formlega undir lok fyrr en á 20. öld. Fá miðstýrð ríki voru til staðar í Afríku sunnan Sahara fyrir nýlenduvæðinguna, en konungsríkið Kongó varð til við samruna ættbálka og samþjöppun valds í kringum höfuðstaðinn Mbanza-Kongo sem nú er í norðanverðri Angóla.  Kongó varð flj...

67 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu I. hluti 16.05.2023

Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega.  Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruni...

68 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu II. hluti 16.05.2023

Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega.  Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruni...

66 - Heródótos og Persastríðin 27.04.2023

Heródótos frá Kalikarnassos er kallaður faðir sagnfræðinnar (og faðir lyganna). Í þættinum í dag hverfum við aftur til fornaldar og skoðum það sem kallað hefur verið fyrsta eiginlega sagnfræðiverkið í vestrænni sagnaritunarhefð, en það er saga Heródótosar af Persastríðinum milli Grikkja og Persa árin 499 til 449 f. kr. Persaveldi var mesta heimsveldi sem sést hafði á þessum tíma, en Grikkland var...

65 - Ancien Régime: Frakkland á barmi byltingar 07.04.2023

Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á  síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af bylt...

64 - Um söguskoðun og sögustaði 21.03.2023

Fyrir jólin kom út ný bók eftir Helga Þorláksson, Á sögustöðum , þar sem fjallað er um sex fræga sögustaði á Íslandi, sögu þeirra og framsetningu sögunnar. Bókin vakti mikla athygli enda er beint sjónum að mikilvægu stefi í íslenskri sagnfræði sem er söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar og samspil akademískrar sagnfræði og almennrar söguvitundar.  Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri  bók Helga, og...

63 - Hvað var þetta svokallaða Heilaga rómverska ríki? 22.02.2023

Heilaga rómverska ríki hinnar þýsku þjóðar hefur oft borið á góma hér í hlaðvarpinu, enda spannar saga þess 1000 ár í hjarta Evrópu. Saga þessa ríkis hófst með krýningu Karlamagnúsar sem nýs Rómarkeisara í vestrinu árið 800, og það leið undir lok þegar nýr keisari frönsku byltingarinnar réðist inn í Þýskaland 1806 og nýr keisari Austurríkis lagði frá sér krúnu Karlamagnúsar í hinsta sinn.  Ólafur...

62 - Brúðukeisarinn 09.02.2023

Í þættinum í dag segir Ólafur frá Aisin Gioro Puyi sem var síðasti keisari Kína. Puyi fæddist á miklum umrótartímum og ber ævi hans þann vott. Hann var settur af sem keisari þegar Kína varð lýðveldi árið 1912 og bundinn var endir á yfir 2000 ára sögu kínverska keisaradæmisins. Puyi varð á stríðsárunum leppur Japana í Mansjúríu fram til 1945, og eftir 15 ára fangavist og endurmenntun endaði hann æv...

61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hluti 30.01.2023

 Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum.  Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni h...

60 - Deus vult! Fyrsta krossferðin I. hluti 28.01.2023

Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum.  Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni he...

59 - Bastarðurinn 1066 11.01.2023

Á jóladag 1066 var Vilhjálmur bastarður hertogi af Normandí, krýndur konungur Englands. Rúðujarlinn hafði þá leitt innrás franskra og normanskra riddara til Englands, sem yfirbuguðu húskarla síðasta engilsaxneska konungsins, Haralds Guðnasonar í hinni víðfrægu orrustu við Hastings.  Englendingar hafa síðustu aldir þakkað Ermasundinu sérstöðu sinni sem eyju,  varin árásum frá meginlandinu, en innrá...

58 - Síðasti einvaldurinn 06.12.2022

Fyrr á þessu ári ræddum við sögu rússneska keisaradæmisins frá fæðingu þess á miðöldum og fram að þeim tíma er Rússland varð evrópskt stórveldi á 18. og 19. öld. Í þessum þætti ljúkum við þríleiknum með því að ræða fall keisaradæmisins og líf og störf síðasta keisarans.  Nikulás II Rússakeisari er stundum talinn síðasti konungborni einvaldurinn í Evrópu, þótt um þetta megi deila. Hann barðist gegn...

57 - Stutt greinargerð um Ísland 1593 17.11.2022

Arngrímur Jónsson lærði er gamalkunnur góðvinur þáttarins. Arngrímur var höfundur fyrsta Íslandssöguritsins, Crymogæa , sem kom út á latínu árið 1609. Sem ungur og upprennandi fræðimaður árið 1592 var Arngrímur í Kaupmannahöfn þar sem hann hafði kynnst sagnfræðingum sem höfðu mikinn áhuga á íslenskum fornsögum. Hann hafði með í fórum handrit að bók sem var svo gefin út árið eftir, einnig á latínu....

56 - Af varúlfum og morðingjum 31.10.2022

Í anda hrekkjavökunnar koma Söguskoðunarmenn saman í dag til þess að ræða varúlfa, raðmorðingja og annað skelfilegt. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .

55 - Tyrkjaránið 02.10.2022

Tyrkjaránið er vafalaust einn óhuggulegasti atburður Íslandssögunar. Sumarið 1627, á tímum gríðarlegra hallæra og fátæktar á Íslandi, og á hápunkti hins harða lúterska réttrúnaðar, gerðu sjóræningjar (eða víkingar) frá Norður-Afríku, sem þá tilheyrði veldi Tyrkjasoldáns, strandhögg á nokkrum stöðum á Íslandi. Þeir fóru um rænandi hendi, myrtu fólk, brenndu hús og numu á brott hátt í 400 Íslendinga...

Ascultă podcastul Söguskoðun în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice