Skátakortérið

Skátakortérið

Hlaðvarp um skátastarf í allri sinni mynd. Gleðina, áskoranirnar og það sem situr eftir langt eftir að búið er að taka niður tjöldin. Við segjum sögur, deilum reynslu og ræðum vináttu, gildi og hvað það þýðir að tilheyra stærri heild. Fyrir öll sem vilja skilja hvað skátastarf er í raun og hvers vegna það mótar fólk til framtíðar.

Autor

Skátakortérið

Categorie

Leisure

Cel mai nou episod

24 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Táknræn umgjörð 24.10.2026

Hvað er eiginlega táknræn umgjörð og af hverju er hún svona mikilvæg í skátastarfi?

Hvarf Jared Negrete 17.09.2026

Árið 1991 fór 12 ára skátinn Jared Negrete í sína fyrstu alvöru bakpokaferð á San Gorgonio-fjall í Kaliforníu. Hann dróst aftur úr hópnum, sást síðast einn á fjallinu og fannst aldrei aftur. Í þessum þætti segjum við frá hvarfi Jareds, leitinni sem fylgdi og kenningunum um hvað gæti hafa gerst. Þátturinn er í boði Grænna skáta

Skátasumarið 28.08.2026

Við erum mættar aftur og í þetta skiptið ætlum við að gera upp skátasumarið.  Elín fékk óvenju mikið svigrúm til að tuða í þessum þætti. Sjöfn fékk óvenju mikið svigrúm til að tala um Strók. Strókur er frábært skátafélag og það er einfaldlega mikilvægt að þjóðin viti það. 💅⚜️  Þess á milli náðum við einhvern veginn að komast að þeirri niðurstöðu að það sé galið að skátastarf fari í frí á sumrin....

Landsmót skáta 2026 25.06.2026

Í þessum þætti fáum við Ingibjörgu mótsstjóra í heimsókn í virkilega skemmtilegt spjall um landsmótið 🏕️ Við fáum líka loksins staðfestingu á því að Elín sé búin að samþykkja smá road trip á heimsóknardaginn 🚗 Og eins og það sé ekki nóg, þá heyrum við í lokin landsmótslagið sem Helgi og Högni sömdu, spiluðu og sungu 🎶 Þátturinn er í boði Grænna skáta og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðnin...

Drekaskátamót 10.06.2026

Drekaskátar eru algjörir naglar og geta margt sem annað fólk getur ekki! Grænir skátar eru aðal styrktaraðili þáttarins.

Skáti er náttúruvinur 27.05.2026

Kósý við varðeldinn í Ólafsbúð. Smá snark í eldinum, smá vindur, smá hlátur, smá viska... eða bara mikið af öllu. Þátturinn er í boði Grænna Skáta.

Amma dreki 14.05.2026

Dagga kom, sá og spjallaði... um Jamboree, Gilwell, Drekaskátamót og allskonar. Grænir skátar eru aðal styrktaraðili þáttarins. Takk fyrir það!

Skátakex 14.04.2026

Við fórum á skátaþing með það að markmiði að leysa stóra kex málið. Skátar svöruðu, sum rugluðust... en in the end vann VANILLUkexið ofc. Sumar eru enn í afneitun en það verður að hafa það... 

Skáti er traustur 07.04.2026

Við tókum fyrir þriðju grein skátalaganna og veltum fyrir okkur hvað það þýðir að vera traustur, á meðan við keyrðum heim eftir að plönin okkar fóru aðeins út af sporinu. Við treystum veðurspánni (sem var djörf ákvörðun), eigin skipulagshæfni (enn djarfari) og hvor annarri (dirfska fer eftir koffínmagni). Kannski er traust stundum þrjóska í sparibúningi?

Skáti er glaðvær 01.04.2026

Mjög kaótískur (semí) óklipptur þáttur. Tvær með athyglisspan á við gullfisk að reyna að halda fókus. Njótið. Eða bara gangi ykkur vel.

Skáti er hjálpsamur 25.03.2026

Farið yfir nóró partýið sem haldið var hátíðlegt árið 2017. 

Draugahjal 17.03.2026

Draugahjal um hábjartan dag. Sem betur fer segi ég! Athugið að efnið er ekki við hæfi barna. Ritgerð sem vitnað er í: https://skemman.is/handle/1946/16733 Lag: Nú suðar undiraldan - Varðeldakórinn https://www.youtube.com/watch?v=fwndyDAkWEA

Á bakvið tjöldin 10.03.2026

Atvinnuskátatuð við upphaf vortímabils.

Við varðeldinn 03.03.2026

Spjall, sögur, leikur og útilegugalsi.

Kjarni skátastarfs 25.02.2026

Hvað gerum við eiginlega í skátunum? Harpa Ósk, aka Frú höfðingi, kom og ræddi við okkur um kjarna skátastarfs.  Tw mjög mikil gleði, mjög mikill hlátur, dass af fíflaskap

Upphaf skátahreyfingarinnar 18.02.2026

Hvernig byrjaði þetta allt saman?

Alþjóðastarf 10.02.2026

Hvað er eiginlega Alþjóðaráð? Okkar fyrsti gestur, Daði Már, kom til okkar og fræddi okkur aðeins um það. 

Fullorðin í skátastarfi 04.02.2026

Er pláss fyrir fullorðin í æskulýðshreyfingu einsog Skátunum?

Skátamiðstöðvar 27.01.2026

Hvaðan koma töfrarnir?

Ættbálkurinn Skátarnir 21.01.2026

Eru skátarnir költ?

Setning 21.01.2026

Hvað er þetta skátakorter?

Ascultă podcastul Skátakortérið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice