RÚV

Segðu mér

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

18 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Anna Bergljót Thorarensen og Jakob Hákonarson 14.12.2022

Anna Bergljót handritshöfundur og Jakob leikstjóri segja frá kvikmyndinni Jólamóðir sem er fjölskyldu og ævintýramynd um Grýlu og jólasveinana. Myndin var tekin upp í raunverulegum hellum á Suðurlandi.

Arnrún María Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Lausnarhringsins 13.12.2022

Arnrún María Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri, segir frá Lausnahringnum sem varð til í lýðræðislegu samstarfi kennara og barna í leikskólanum Brákarborg. Aðferðirnar byggjast meðal annars á að leitað sé að lausnum sem börn og fullorðnir geta notað saman til að leysa vandamál. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Hildur Hermóðsdóttir 12.12.2022

Hildur Hermóðsdóttir rifjar upp þegar í ágúst 1970 Þingeyingar tóku til sinna ráða eftir áralanga baráttu gegn fyrirhuguðri stórvirkjun í Laxá og sprengdu upp stíflu sem virkjunaraðilar höfðu reist í Miðkvísl og notuðu til þess dýnamít í eigu virkjunnarinnar. Hildur skrifar bók um föður sinn Hermóð í Árnesi og hans baráttu fyrir verndun Laxár og Mývatns. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir 08.12.2022

Vinkonurnar og samstarfskonurnar Júlíana Sara og Vala Kristín áttuðu sig á því þegar þær byrjuðu að hlaupa saman að þær væru bestu vinkonur. Síðan hafa þær unnið saman um árabil og sjónvarpsþættir þeirra, Venjulegt fólk , hafa slegið í gegn.

Lilja Eggertsdóttir tónlistarkona 07.12.2022

Lilja missti drenginn sinn þegar hann var einungis tíu daga gamall. Hún stofnaði ásamt fjölskyldu sinni Hlynssjóð. Sjóðnum er ætlað að styðja við foreldra sem missa barn sitt í eða skömmu eftir fæðingu.

Gunnar Helgason og Felix Bergsson 01.12.2022

Gunnar og Felix ræða vináttuna, barnamenningu og sköpunarkraftinn sem þeir geta ekki og vilja ekki losna við.

Guðrún Árný tónlistarkona 29.11.2022

Guðrún Árný talar um hið geysivinsæla lagi Andvaka og segir brosandi að hún skemmti sér konunglega þegar fólk öskursyngur þetta dásamlega lag.

Sigrún Hjálmtýsdóttir óperusöngkona 28.11.2022

Diddú rifjar upp þegar hún gerði jólaplötuna Jólastjarna fyerir 25 árum.

Ólafur Ragnar Grímsson 21.11.2022

Ólafur segir frá gömlu bláu töskunni sem hefur fylgt fjölskyldu Ólafs Ragnars allt frá æskuárum hans á Ísafirði. Í töskunni voru geymd bréf móður hans Svanhildar Hjartars sem hún skrifaði eiginmanni sínum Grími, árum saman á berklahælum. Ólafur segir frá þeirri tilfinningu að lesa bre?fin í fyrsta sinn.

Álfrún Helga Örnólfsdóttir 17.11.2022

Álfrún Helga segir frá heimildamynd sinni Band sem segir sögu þriggja kvenna í hljómsveitinni The Post Performance Blues Band. Í sameiningu ákveða þær að gefa sér eitt ár til að verða poppsjtörnur eða hætta að spila að eilífu.

Jón Atli Jónasson rithöfundur 16.11.2022

Jón Atli handritshöfundur og leikskáld segir frá nýjustu bók sinni Brotin sem er glæpasaga úr Reykjavík samtímans. Jón Atli hefur skrifað lengi og verk hans hafa veriðs ett upp víða um Evrópu.

Andri Björn Róbertsson söngvari 15.11.2022

Andr Björn bass- barítón segir frá lífi sínu í Englandi, hann býr við lítinn strandbæ með fjölskyldu sinni, og ferðast svo á milli óperuhúsa og tekur þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum. Andri ætlar að syngja í Salnum í vikunni með píanóleikaranum Ástríði Öldu Sigurðarsdóttur

Ástbjörg Rut Jónsdóttir sviðslistakona og táknmálstúlkur 14.11.2022

Ástbjörg segir frá ON sviðslitahópnum sem samanstendur af heyrnarlausu og heyrandi listafólki. Ástbjörg Rut hefur sérhæft sig í að táknmálstúlka leiksýningar og tónlsitarviðburði og tengja táknmál og leiklist með ýmsum öðrum hætti. Ástbjörg segir frá nýju verki Eyja sem hún samdi ásamt Sóleyju Ómarsdóttur, en þetta er fyrsta leiksýning sinnar tengundar sem sýnd er í ÞJóðleikhúsinu.

Kristján Jóhannsson óperusöngvari 31.10.2022

Kristján á að baki glæstan alþjóðlegan feril sem óperusöngvari og hefur komið fram í flestum virtustu óperuhúsum heims. Hann hefur t.d. sungið hlutverk Cavaradossi 400 sinnum og söng það hjá Íslensku óperunni árið 2017.

Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld 19.10.2022

Elín er tónskáld og kennir í LHÍ, hún rekur einnig með eiginmanni sínum Bókakaffið á Selfossi og rifjar upp líf sitt í Laugarási þegar hún fór á mjólkurbílnum í þverflaututíma.

Elmar Gilbertsson og Oddur Arnþór Jónsson 18.10.2022

Óperusöngvararnir Elmar og Oddur tala um ferðatöskur, fallega tóna , íslensku óperuna og Brothers eftir Daníel Bjarnrason sem flutt verður í Hörpu um helgina.

Ólafur Egilsson leikstjóri og leikari 17.10.2022

?Ég sagði bara: Þú sérð hvernig ég lít út, þetta er ekkert að fara að ganga,? rifjar Ólafur Egill Egilsson leikstjóri og leikari upp um samtal sem hann átti við skólastjóra Leiklistarskólans. Frá því hann sótti um og þar til hann fékk inngöngu hafði hann misst allt hár og þótti víst að hann ætti ekki erindi í skólann vegna þess. Ólafur Egill Egilsson leikstjóri og leikari smitaðist snemma og nokku...

Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi 13.10.2022
Gunnhildur Einarsdóttir og Tinna Þorsteinsdóttir 12.10.2022
Jón Kalman Stefánsson og Elfar Aðalsteinsson 10.10.2022

Jón Kalman og Elfar segja frá kvikmyndinni Sumarljósi og svo kemur nóttinn,

Sigríður Víðis Jónsdóttir og Kristin Steinsdóttir 06.10.2022

Mæðgurnar Sigríður Víðis og Kristín ræða vináttuna, ritlistina og ferðalög

Kolbrún Þ Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs HÍ 05.10.2022

Kolbrún segir frá lífi sínui ,en hún var einungis 15 ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn. Hún ræðir leiðina sem hún fór í lífinu og talar um það þegar hún var send á unglingaheimili svona til að ná áttum. Hún vissi snemma hvað hún vildi gera og fór í heimspeki og síðan lá leiðin lengra og í dag er hún forseti Menntavísindasviðs HÍ.

Anna Rósa grasalæknir 07.09.2022

Anna Rósa lítur á það sem hugleiðslu að tína grös, og vill helst fara ein á fjöll til að safna grösum.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson söngvari og skemmtikraftur 06.09.2022

Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, var greindur með athyglisbrest í öðrum bekk. Mamma hans vildi ekki að hann yrði settur á lyf en ákvað að fara með honum í skólann. Skemmtikrafturinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson hefur alla tíð notið athyglinnar og byrjaði ungur að setja upp sýningar fyrir vini og vandamenn. ?Það má kannski segja að ég hafi verið athyglissjúkur, ég veit það ekki,? segir hann við Sigurl...

Hinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður 01.09.2022

Hinrik segist alltaf vera að segja sögur, bæði sem leikari og leiðsögumaður. Hann er að fara að standa á svið ÞJóðleikhússin í vetur í söngleiknum Sem á himni.

Ascultă podcastul Segðu mér în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice