Vignir Egill Vigfússon
Popparasögur
Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: Popparasogur.podbean.com
Autor
Vignir Egill Vigfússon
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
17 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið 16.06.2026 40:49
Árið 2026 voru 40 ár síðan hljómsveitin Greifarnir sigraði Músíktilraunir og varð á skömmum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins. Stuttu síðar kom lagið Útihátíð út og varð allra vinsælasta lagið á Íslandi það sumar. Greifarnir ferðast nú um landið á tónleikaferðalagi eða sveitaballaferðalagi sem þeir kalla Síðasta sveitaballið. Í þessum þætti tala þeir um hvernig sveitaballa- og tónlistarbrans...
#15 | Sigurður Guðmundsson og maðurinn með marga hatta 09.06.2026 1:06:08
Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson er svo sannarlega maður margra hatta. Hann er söngvari, píanóleikari, gítarleikari, bassaleikari, upptökumaður, laga- og textahöfundur og eflaust margt fleira. Hér á eftir talar hann um hljómsveitirnar sínar, Hjálma, Góss, Mefismafíuna, Senuþjófana og fleiri. Hann segir frá samstarfinu með Megasi, Sigríði Thorlacious, Braga Valdimar og fleirum. Hann segir lík...
#14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu 02.06.2026 44:58
Haraldur Ari Stefánsson sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem leikari og mun gefa út sína fyrstu sólóplötu í haust. Í þessum þætti talar hann um tímann sinn með Retro Stefson, tímabilið sem þau bjuggu í Berlín, lokatónleikana, come-back, sviðsframkomu, ferðalögin um Evrópu, leikhúsið, söngleikina, áhrifavaldana, áskoranirnar, sólóplötuna, framtíðina o...
#13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila 27.05.2026 1:04:14
Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakk...
#12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting 12.05.2026 48:20
Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland, Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurn...
#11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi 05.05.2026 59:25
Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár. Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt. Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist...
#10 | Skálmöld og Börn Loka 28.04.2026 48:40
Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira. Viðtölin voru tekin up...
#9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun 28.04.2026 40:26
Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græn...
#8 | Jónas Sig og Hafið er svart 21.04.2026 45:06
Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig. Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn 21.04.2026 55:49
Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig. Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna 14.04.2026 44:26
Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi. En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar. Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#5 | Guðrún Árný Karlsdóttir 07.04.2026 1:03:01
Guðrún Árný Karlsdóttir hefur verið ein vinsælasta söngkona landsins undanfarna áratugi. Hérna ræðir hún um Sing-Along, Söngkeppni framhaldsskólanna, Eurovision, Brekkusönginn, jarðarfarir, plöturnar sínar, tónmenntakennslu, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#4 | Hreimur Örn og endurkoma Lands og sona 02.04.2026 59:12
Seinni hluti viðtalsins við Hreim í Landi og sonum. Hérna ræðir hann um það fer að hægjast um hjá Landi og sonum, hvernig hann þurfti að enduruppgötva sig sem tónlistarmann, Þjóðhátíðarlögin og fyrstu viðtökunum á laginu Lífið er yndislegt, vinamissi og endurkomu Lands og sona í sumar. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
#3 | Hreimur Örn og ævintýri í Bandaríkjunum 02.04.2026 59:32
Hreimur Örn Heimisson, Hreimur í Landi og sonum, hefur farið víða á sínum tónlistarferli. Í þessum fyrri hluta ræðir hann um það þegar Land og synir slógu í gegn á einni nóttu með laginu Vöðvastæltur, hvernig hljómsveitin fékk fimm plötu samning við útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum og misstu fljótt eftir árásina 11. september, hvernig honum bauðst að svíkja aðra meðlimi hljómsveitarinnar og hvernig...
#2 | Aldrei fór ég suður 2026 | Seinni hluti 29.03.2026 46:43
Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004. Í þættinum er rætt við Skítamóral (Adda Fannar), Amabadama (Sölku Sól), Úlfur Úlfur (Arnar Freyr) og Spacestation (Björgvin). Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#1 | Aldrei fór ég suður 2026 | Fyrri hluti 29.03.2026 44:00
Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004. Í þættinum er rætt við Friðrik Dór, Pál Óskar, Kristján Frey, rokkstjóra Aldrei fór ég suður, og Kusk og Óvita, Kolbrúnu og Hrannar. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice