Myndugleikinn
Myndugleikinn
Myndugleikinn er hugarfóstur Önnu Margrétar og Hjördísar Evu, sem báðar deila brennandi ástríðu fyrir því að læra, ræða og miðla þekkingu og reynslu til kvenna sem styður þær í að lifa lífi sínu á eigin forsendum. Í þáttunum taka Anna og Hjördís fyrir mikilvæg og oft vanrækt málefni sem tengjast konum í nútíma samfélagi, með áherslu á sjálfshjálp og persónulegan vöxt. Umræðurnar snúast meðal annars um þær kröfur og væntingar sem eru gerðar til kvenna í ólíkum hlutverkum, hvort sem það er í starfi, heimili, í foreldrahlutverkinu eða sem sjálfstæðir einstaklingar. Þátturinn er ekki aðeins vettva...
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.buzzsprout.com
Autor
Myndugleikinn
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
19 dec. 2024
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
JólaMyndugleikinn 19.12.2024 56:05
Í þessum síðasta þætti ársins ræðum við jólahavaríið sem við týnum stundum sjálfum okkur í, lélegar (stundum hrikalegar) jólagjafir frá vinnustöðum og hvernig við getum haldið í jólagleðina. Takk fyrir samfylgdina á árinu kæra Myndugleika samfélag. Hlökkum til fleiri samtala á nýja árinu!
Life hacks í uppeldi 22.11.2024 1:12:22
💥Í þessum þætti tókum við djúpt trúnó og life hack spjall um það allra mikilvægasta, erfiðasta og skemmtilegasta ❤ Uppeldi og góð ráð til að hakka foreldrahlutverkið með ást, kærleika og sjálfsást 🤌🥰
5 tips til að láta í þér heyra á fundum! 15.11.2024 57:02
Erum við ekki öll sammála um að illa skipulagðir fundir séu samfélagsmein? Þrátt fyrir það er vinnudagurinn oft vel pakkaður af alls konar fundum. Í þætti dagsins ræðum við um 5 hagnýt ráð til þess að mæta full af sjálfsöryggi á fundi og til þess að láta í þér heyra.
LIFE HACKS 07.11.2024 57:06
Hver elskar ekki góð life hacks? Í þessum þætti deilum við okkar uppáhalds life hacks sem við höfum viðað að okkur í gegnum tíðina. Allt frá sparnaðarráðum, skipulagstipsum og morgunrútínu yfir í búkonuhárin bansettu sem ásækja okkur!
Kamala Harris og kosningarnar um réttindi kvenna 30.10.2024 57:57
Myndugleikinn heldur áfram að lína upp brat-listanum með næsta stórkostlega viðmælanda - Dr. Maríu Rún Bjarnadóttur. Við erum í skýjunum með að fá þessa NEGLU í þáttinn til að kafa ofan í kosningarnar í Bandaríkjunum, þar sem Kamala Harris og mannréttindi kvenna eru eitt helsta kosningamálið. Kosningarnar eiga sér stað eftir aðeins 7 daga. María Rún er með doktorsgráðu í lögfræði frá University o...
Mannlegir vinnustaðir sem styðja við konur 23.10.2024 57:40
Eins og þið getið rétt ímyndað ykkur er fyrsti viðmælandinn sem fær boð í Myndugleikann algjör negla! Við bjóðum the brat Ásdísi Eir Símonardóttur, vinnusálfræðing með meiru, innilega velkomna! Ásdís er sjálfstætt starfandi stjórenda- og mannauðsráðgjafi með yfir 13 ára reynslu, og hefur unnið bæði hjá sprotafyrirtækjum, í orkugeiranum og hjá hinu opinbera. Hún er líka fyrrum formaður Mannauðs og...
Græn flögg í vináttu <3 16.10.2024 48:13
Þáttur vikunnar er tileinkaður einu því allra allra mikilvægasta sem við eigum, VINKONUM OG VINUM! Stuðningskerfinu sem er til staðar í gegnum súrt og sætt.. einmitt eins og samfélagið sem okkur dreymir um að byggja upp með Myndugleikanum. Við ræðum um græn flögg í vináttum, hvað það er við djúp og djúsí vináttusambönd sem gerir þau svo dýrmætu, með örlitlu tea um Diddy on the side (hvað er nú í g...
Stelpun og 5 ráð sem engin kona þarf að heyra 10.10.2024 53:46
Í þessum ofurfeminíska fæstý þætti fjöllum við um hugtakið "stelpun" og 5 "bráðsnjallar" ráðleggingar sem eru jafn óþarfar og vinnufundur eftir kl. 15 á föstudegi. Lofum húmor, sannleika og helling af túdi!
Myndugleikinn is back! 01.10.2024 42:03
Sería tvö af Myndugleikanum er komin í loftið eftir óteljandi fyrirspurnir og vangaveltur hlustenda um hvað sé næst! Við erum mættar aftur tvíefldar eftir sumarfrí…þakklátari fyrir rútínu haustsins en nokkru sinni fyrr 👏 Í þessum þætti förum við yfir: -Hvað er næst hjá Myndugleikanum -Sjálfsmildi og f@^% fullkomnunaráráttuna -Kaflaskil og kaflalok, hversu einmannaleg og stórkostleg þau geta veri...
Við elskum mistök! 20.05.2024 41:31
Nýjasti þáttur Myndugleikans er óður til mistaka, vandræðalegra uppákoma og fólksins sem stigur inn í slíkar stundir með okkur án þess að dæma (það á við okkur sjálfar líka!). Hann heitir þess vegna "Við elskum mistök.” Í góðum samböndum, vináttu og teymum brettir fólk upp ermar þegar mistök eiga ser stað, án þess að dreifa skömm og gagnrýni - ein fyrir allar og allar fyrir eina! Í þættinum d...
Hugrekki og þægindahringurinn 13.05.2024 44:06
Í þessum þætti ræðum við um ást okkar á raunveruleikasjónvarpi í bland við að velta þægindahringnum fyrir okkur. Hvað er þægindahringurinn, af hverju eru til svo margar skilgreiningar á því hvað hann er og af hverju er self help kúlturinn svona oft að hvetja fólk til að fleygja sér út úr honum. Oft þurfum við eða viljum víkka þægindahringinnút, en það kallar gjarnan á smá spagettílappir og dash af...
4 hlutir sem við hefðum viljað vita fyrir 25 ára 04.05.2024 51:38
Eftir smá Tene pásu er Myndugleikinn kominn aftur. Í þessum þætti deilum við 4 hlutum sem við hefðum viljað heyra fyrir 25 ára aldur. Sársaukinn við að vaxa, samviskubitið sem lætur stöðugt á sér kræla, meðvirkni ásamt smá Taylor Swift og Leonardo DaVinci er meðal þess sem við snertum á í þættinum. Endilega fylgið Myndugleikanum á Instagram og deilið með okkur ykkar reynslu og lærdómi. Takk fyrir...
Myndugleikinn 1. þáttur 14.04.2024 40:12
Myndugleikinn er hugarfóstur Önnu Margrétar og Hjördísar Evu, sem báðar deila brennandi ástríðu fyrir því að læra, ræða og miðla þekkingu og reynslu til kvenna sem styður þær í að lifa lífi sínu á eigin forsendum. Í þessum upphafsþætti Myndugleikans fjalla Anna og Hjördís um mikilvægi þess að skapa rými fyrir opnar og heiðarlegar umræður um fjölbreytt málefni sem tengjast konum, ekki síst þær marg...
Konur og meðvirkni á vinnustað 14.04.2024 58:19
Þakklátar og nánast orðlausar yfir viðtökum fyrsta þáttar Myndugleikans kynnum við með gleði næsta þátt. Við fjöllum um meðvirkni á vinnustað, tökum dæmi um fáránlegar aðstæður sem við höfum gripið okkur í á hápunkti meðvirkninnar, ræðum spennuna og togstreituna sem getur skapast milli frama og móðurhlutverksins og “half-össum” þetta eins okkur einum er lagið 👊💛
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice