Oddný Eir Ævarsdóttir

Mótmæli í morgunmat

News IS ↓ Episoade: 18

Mótmæli í morgunmat; friðarviðræður á sunnudagsmorgnum klukkan níu á Samstöðinni. Oddný Eir tekur á móti góðum gestum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: motmaeli-i-morgunmat.simplecast.com

Autor

Oddný Eir Ævarsdóttir

Categorie

News

Cel mai nou episod

7 apr. 2024

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Mótmæli í morgunmat: Snæfellsjökul fyrir forseta!?! 07.04.2024

Í friðarviðræðum sunnudagsmorgunsins fáum við frammæli frekar en mótmæli og framboðsumræðu fulltrúa og fylgisfólks Snæfellsjökuls sem er í framboði fyrir forsetakosningar 2024. Er það séns? Hvernig? Af hverju svo bráð(n)-nauðsynlegt? Hvernig forseti yrði jökullinn? Sko í alvöru! Þau koma og segja okkur allt af létta, þau Aðalheiður Kristbjörg, fjölbreytileika-stefnumótunarsérfræðingur, Angela Snæf...

Hvað nú? 24.03.2024

Mótmæli í morgunmat, 24. mars Hvað nú? Listadúóið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hafa hafið tímabært ferli afbyggingar á óvirka stóriðjuverinu í Helguvík sem stendur eins og minnisvarði um úrelta byggða- og atvinnuþróunarstefnu, nýlenduhyggju og afstöðu til nýrra Íslendinga. Þau hafa gert Listasafn Reykjaness að eins konar safni fyrir niðurstöður óformlegrar rannsóknar á því sem fór úrskeiðis og...

Afneitun á orsök dauða 10.03.2024

Mótmæli í morgunmat 10. mars Afneitun á orsök dauða Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi, kennari og formaður umhverfisvaktarinnar er ekki af baki dottin í réttlætisbaráttu sinni; Hún hefur barist fyrir því um áraraðir að hross hennar fái að njóta vafans -og raunar við öll- gagnvart gríðarlegri mengun stóriðjunnar á Grundartanga Ágústa Oddsdóttir kennari og myndlstarkona er með Ragnheiði í stjórn Umhv...

Andófsafl Navalny og áskorun blaðamennskunnar 25.02.2024

Mótmæli í morgunmat 25. febrúar Andófsafl Navalny og áskorun blaðamennskunnar Auðunn Arnórsson blaðamaður og sjálfstætt starfandi stjórnmála- og sagnfræðingur og Valur Gunnarsson blaðamaður, sagnfræðingur og rithöfundur mæta í Friðarviðræður og velta fyrir sér framtíð blaðamennsku og rannsóknarblaðamennsku á tímum upplýsingaóreiðu og pólaríseringar. Við pælum í því hvað er óreiða og hvað pólaríser...

Réttlætisbarátta Kúrda 11.02.2024

Í Friðarviðræðum Mótmæla í morgunmat ræðum við um réttlætisbaráttu Kúrda við Ögmund Jónasson sem er nýkominn heim frá kúrdíska sjálfsstjórnarsvæðinu í Írak. Hann vitnar í leiðsögumann kúrdísku andspyrnunnar, Öcalan, sem hefur setið í fangelsi í um þrjátíu ár á Imrali-eyju á Marmarahafi og sagði að við kynnum vissulega að berjast í stríðum en nú yrðum við að láta reyna á samningahæfni okkar og berj...

Andóf rússneskra rithöfunda 14.01.2024

Mótmæli í morgunmat, ANDÓF RÚSSNESKRA RITHÖFUNDA. Í friðarviðræðum dagsins ræða Rebekka Þráinsdóttir, aðjúnkt í rússnesku við Háskóla Íslands, doktorsnemi og þýðandi og Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi rússneskra bókmennta og sjálfstætt starfandi fræðimaður um andóf rússneskra og sovéskra rithöfunda fyrr og nú. Þau ræða um róttækni þess að höndla orð og gera ástina að byltingu þegar grimmdin er nor...

Afstaða Íslands afhjúpuð 07.01.2024

Í Friðarviðræðum að þessu sinni er afstaða Íslands til umhverfismála afhjúpuð og rædd í allri sinni svörtustu og björtustu mynd. Í fyrri hluta þáttar koma saman Þorgerður María Þorbjarnardóttir, fomaður Landverndar, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Finnur Ricart Andrason, forseti Ungra Umhverfissinna og Guðmundur Steingrímsson, stjórnarmaður í Landvernd. Í seinni hluta þáttar...

Glimmerumræðan; „Ef ég verð að deyja“ 17.12.2023

Mótmæli í morgunmat; Friðarviðræður - Glimmerumræðan; „Ef ég verð að deyja“ Sunnudagur, 17. desember. Í friðarviðræður mæta að þessu sinni þau Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálafulltrúi Eflingar og ræða um glimmer-uppákomuna og allt henni tengt, segja frá reynslu sinni og ræða um mótmæli út frá mörgum sjónarhornum á meðan þau skreyta mandarínur með n...

Friður og ljóð 10.12.2023

Mótmæli í morgunmat; Friður og ljóð. Anton Helgi Jónsson og Eyrún Ósk Jónsdóttir ljóðskáld ræða um mátt ljóðsins, gildi samveru- og samstöðuviðburða á ofbeldisöld og lesa hugvekjandi ljóð fyrir okkur á aðventunni.

Uppljóstrarar 03.12.2023

Mótmæli í morgunmat: Uppljóstrarar. Í Friðarviðræðum rifjum við upp Klaustursmálið svokallaða og setjum það í samhengi borgaralegrar samviskusemi og uppljóstrana á tímum upplýsingaóreiðu, falsfrétta, þöggunartilburða og minnkandi valds fjölmiðla. Viðmælendur eru aðapersónurnar í málinu, Bára Halldórsdóttir, aðgerðarsinni og listakona, Halldór Auðar Svansson, hugmbúnaðarfræðingur og varaþingmaður P...

Mótmæli líkamans. 12.11.2023

Jósep Blöndal læknir og tónlistarmaður segir frá áralangri viðureign við verki og tilraunum til að hlusta á líkama og sál.

Skyndihjálp fyrir snubbóttar stjórnarskrársamræður 06.11.2023

Friðarviðræður eru að þessu sinni skyndihjálp fyrir snubbóttar stjórnarskrársamræður með inngripi blóðugra handa mótmælenda sem minntu á misvirðingu stjórnvalda á mannréttindasáttmálum okkar

Bænastund 05.11.2023

,,BÆNIN og borgaralega virknin’” Að þessu sinni er i Friðarviðræðum ætlunin að mætast i bæn og ræða þögnina og séra Arnaldur Máni Finnsson kallaður til með helga muni.

Kvennaverkfall; sigrar og sorgir 29.10.2023

Mótmæli í morgunmat; Friðarviðræður, 29. október 2023 Kvennaverkfall; sigrar og sorgir Í friðarviðræðum á sunnudagsmorgni koma saman margra barna mæður og einn faðir og ræða um mótmæla-andann og kvenfrelsið. Samhent hjón frá Líbíu, Rowida enskukennari og Hammsa verkfræðingur sem bíða dóms um dvöl á Íslandi og starfa á meðan sem sjálfboðaliðar í Rauða krossi og Gerðubergi bera saman stöðu kvenna í...

Mótmælaskólinn 22.10.2023

MÓTMÆLASKÓLINN. Í Friðarviðræðum þessa sunnudagsmorguns fáum við til okkar mæður og föður til að segja okkur frá mótmælareynslu sinni og ræða um mikilvægi friðarviðræðna milli kynslóða og mátt þess að koma saman og ræða saman, greina í sundur upplýsingaflækjur, lesa ljóð, syngja og svo framvegis í átt að réttlætinu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Sólveig Hauksdóttir, Ævar Kjartansson, Els...

Friðarþjóð? 15.10.2023

Í friðarviðræðum þáttarins Mótmæli í morgunmat fáum við að fylgjast með andspyrnuhreyfingunni sem María Pétursdóttir dokumenteraði á Austurvelli um árið undir ræðu Davíðs Oddssonar og förum svo aftur á Austurvöll á samtöðumótmæli vegna árásar á Palestínu og heyrum viðtal við hinn palestínska Anís. Rithöfundurinn Mazen Maarouf setur ástandið á Gaza í samhengi og við heyrum líka nöturlegan en falleg...

Friðarviðræður - Benedikt, Óskar Árni og Abdel 08.10.2023

Í FRIÐARVIÐRÆÐUM eru þrír herramenn og einn með hatt: Það eru þeir Benedikt Hjartarson bókmenntaprófessor, Óskar Árni Óskarsson skáld og Abdiel Santiago sjálfboðaliði í Hjálpræðishernum sem bjóða upp á MÓTMÆLI Í MORGUNMAT 8. OKT. Benedikt segir frá nær gleymdri stórmerkri en hræðilegri sögu af ofsóknum Nazista og Stalínista á hendur Esperantistum, en Esperantó er draumur um alþjóðamál; Óskar Árni...

Friðarviðræður - Magga Stína og Ásgeir Brynjar 01.10.2023

Mótmæli í morgunmat; friðarviðræður á sunnudagsmorgnum klukkan níu á Samstöðinni. Oddný Eir tekur á móti góðum gestum sem að þessu sinni eru þau Magga Stína og Ásgeir Brynjar.

Ascultă podcastul Mótmæli í morgunmat în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice