Menntavísindavarpið

Menntavísindavarpið

Hvað er að gerast í menntavísindum? Markmið Menntavísindavarpsins er að kynna rannsóknir fræðafólks Menntavísindasviðs, kynnast rannsakendum og fjölbreyttum hliðum menntarannsókna. Upphafsstef: Adam Switala Umsjón: Marta Goðadóttir, Áslaug Björk Eggertsdóttir og Íris Sigurðardóttir hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: rss.com

Autor

Menntavísindavarpið

Categorie

Education

Site-ul podcastului

rss.com

Cel mai nou episod

24 iun. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Reynsla mæðra með geðsjúkdóma af móðurhlutverkinu og áskoranir og bjargir leikskólastjóra sem starfa við ungbarnaleikskóla 12.02.2025

Meistaranemarnir Áróra Huld Bjarnadóttir úr Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA. og  Jóna Rún Gísladóttir úr Stjórnun menntastofnana M.Ed. kynntu meistaraverkefni sín á dögunum. Áróra segir frá verkefninu „Að berjast við dreka“: Reynsla mæðra með geðsjúkdóma af móðurhlutverkinu og Jóna Rún segir frá verkefni sínu: Áskoranir og bjargir leikskólastjóra sem starfa við ungbarnaleikskóla. 

„Hinsegin nemendum líður verr en öðrum nemendum“ 30.01.2025

Íris Ellenberger, dósent í Deild faggreinakennslu í kennslu samfélagsgreina er jafnframt öflugur rannsakandi og hefur skoðað jaðarhópa í íslensku samfélagi og hvernig jaðarsetning og innlimun virkar. Íris hefur einnig rannsakað hinseginleika; en um þessar mundir er hún til að mynda að skoða hinseginleika í skólastarfi með sérstaka áherslu á kennara, nemendur og hinseginleika foreldra út frá ólíkum...

„Leikurinn, er það sem drífur okkur áfram“ 14.01.2025

Jakob Frímann Þorsteinsson, nýdoktor í menntavísindum, aðjúnkt og kennari til margra ára í tómstunda og félagsmálafræði við Háskóla Íslands ræðir í Menntavísindavarpinu um doktorsverkefni sitt um útimenntun. Þar skoðar hann möguleika til útimenntunar á Íslandi m.a. með því að skoða reynslu og upplifanir fólks á aldrinum 20-40 ára sem hefur tekið þátt í útiferlum. Einnig ræðir hann um mikilvægi þes...

Leiðir verkefni sem styður við foreldra á flótta 02.01.2025

Margrét Sigmarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið hefur rannsakað og unnið mikið með foreldrafærni. Í þessu varpi ræðir hún verkefnið SPARE ( Strengthening Parenting among Refugees in Europe ) sem snýr að eflingu foreldrastarfs með flóttafólks í Evrópu þar sem stuðst er við PMTO – foreldrafærni aðferðina. Margrét tók nýtekið við sem formaður vísindanefndar Menntavísindasviðs og leiðtogi ranns...

„Aðeins 7% fótboltarannsókna hafa verið gerðar á stúlkum“ 18.12.2024

Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor við Menntavísindasvið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda leiðir rannsóknarverkefnið SKORA ( Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi) . Þar er líkamlegt atgervi knattspyrnustúlkna, andleg og félagsleg líðan, áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu á Íslandi skoðað. Rúna fer um víðan völl í Menntavísindavarpinu um stúlkur og...

Föruneyti barna og  hvað felst í góðri skólamenningu? 04.12.2024

Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor á Menntavísindasviði í leikskólafræðum er öflugur rannsakandi sem leiðir mörg verkefni og rannsóknir; t.d.  Föruneyti barna, nýja rannsókn á skólamenningu og raunfærnimat í leikskólakennarafræði. 

Hver eru tengsl lesturs á mið- og unglingastigi við snjallsímanotkun? 20.11.2024

Kristján Ketill Stefánsson, lektor í kennslufræði við Menntavísindasvið HÍ kíkti í Menntavísindavarpið og ræddi rannsókn sína Lestur á mið- og unglingastigi og tengsl við snjallsímanotkun á skólatíma, Skólapúlsinn sem hann setti á laggirnar, snjallsímanotkun ungmenna og rannsóknirnar á teikniborðinu. 

Hver eru áhrif styttingar námstíma til stúdentsprófs? – Sjónarhorn menntarannsókna 06.11.2024

Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor og María Jónasdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði eru hluti af rannsóknarhópi sem skoðað hafa áhrif styttri námstíma til stúdentsprófs í samhengi við aðrar stefnubreytingar sem gerðar hafa verið á framhaldsskólastiginu. Í þessu fimmta varpi Menntavísindavarpsins ræðum við um undirbúningstíma stúdentsprófa og hvernig framhaldsskólanemar í dag eru undi...

Upplifun ungra kvenna af krabbameini og vettvangsstarf sem lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðningskerfi varðandi börn – splunkuný meistaraverkefni krufin 23.10.2024

Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Andrea Marel úr tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed. og Ebba Áslaug Kristjánsdóttir úr uppeldis- og menntunarfræði, MA og ræða meistaraverkefni sín sem þær kynntu á dögunum á málþingi meistaranema á Menntavísindasviði. Andrea segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið: „Vettvangsstarf er lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðnin...

Jafnvægi starfs og einkalífs ungra kvenkyns kennara í íslenskum grunnskólum á Menntakviku 09.10.2024

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emeritus í kennslufræðum við Menntavísindasvið mætti í  Menntavísindavarpið og ræddi rannsóknina sem hann vann með Maríönnu Jónsdóttur Maríudóttur grunnskólakennara og Valgerði S. Bjarnadóttur lektor við Menntavísindasvið sem þau kynntu á Menntakviku og ber heitið: Jafnvægi starfs og einkalífs ungra kvenkyns kennara í íslenskum grunnskólum. Ingólfur ræddi ran...

Læsi, félagakennsla og lestrarfærni barna á Menntakviku 25.09.2024

Lesfimipróf hafa verið gagnrýnd og áhyggjur eru uppi um að læsi og lestrarkunnáttu barna og ungmenna fari dalandi. Greint var frá því nýverið að 40 prósent nemenda í 6. bekk næðu ekki grunnviðmiði í lesfimi til að mynda.   Auður Soffíu- og Björgvinsdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði og fyrrum grunnskólakennari til margra ára mætti í Menntavísindavarpið og sagði frá niðurstöðum ran...

Hnífaburður grunnskólabarna, algengi og ástæður til umræðu á Menntakviku 11.09.2024

Síðastliðið vor var í fyrsta sinn spurt um hnífaburð í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem Menntavísindastofnun Menntavísindasviðs Háskóla Íslands stýrir. Rannsóknin er framkvæmd á hverju ári í grunnskólum en annað hvert ár í framhaldsskólum. Þær Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið og er faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísi...

Ascultă podcastul Menntavísindavarpið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice