Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi
Konur í tækni
Konur í tækni er hlaðvarp Vertonet, samtaka kvenna í upplýsingatækni á Íslandi. Í þáttunum deilum við sögum af konum í tækni, ræðum starfsferilinn sem þær hafa byggt upp, áskoranir sem þær hafa staðið frammi fyrir og af hverju þær elska að vinna í kringum tækni. Þátturinn er ýmist á íslensku eða ensku eftir því hvaða tungumál gestur þáttarins talar. Umsjón hefur Hildur Óskarsdóttir. Konur í tækni (Women in Tech) is a podcast by Vertonet, a non-profit organization of women in IT in Iceland. The show is either in Icelandic or English, depending on the language the guest of the show prefers.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.vertonet.is
Autor
Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
5 dec. 2024
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra 05.12.2024 1:05:04
Gestur okkar í þessum þætti er Auður Ösp Ólafsdóttir. Auður miðlar af miklum krafti óteljandi ráðum og reynslusögum til fylgjenda sinna á LinkedIn á sama tíma og hún byggir upp eigið fyrirtæki og stundar MBA nám í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur áralanga reynslu að vefstjórnun og efnissköpun og byggði m.a. upp ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavik. Hún starfar nú sem ráðgjafi þar sem hún hjá...
30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi 07.11.2024 38:14
Gestur okkar í þessum þætti er Ásdís Eir Símonardóttir , driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi stjórnenda- og mannauðsráðgjafi. Ásamt því að kynnast Ásdísi, fræðumst við um átaksverkefnið og Playbook Vertonet, leiðarvísi að fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu á vinnustað sem nú er í undirbúningi og er hluti af stærra átaksverkefni um að auka nýliðun kvenna og kvára í uppl...
29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans 13.10.2024 1:11:48
Gestur okkar í þessum fyrsta þætti vetrarins er Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans. Valeria er reynslumikill stjórnandi í upplýsingatæknigeiranum með víðtæka starfsreynslu úr mismunandi atvinnugreinum. Áður en hún tók við núverandi starfi vann hún hjá fyrirtækjum eins og QuizUp, Nova, Icelandair og Advania. Hún er með BS gráðu í verkfræði og MBA frá Háskólanum í...
Hvað er framundan hjá Vertonet? 23.06.2024 23:43
Elísabet Ósk Stefánsdóttir er nýr formaður stjórnar Vertonet sem kosin var á aðalfundi félagsins sem haldinn var í maí. Í þættinum segir hún okkur bæði frá nýrri stjórn og sjálfri sér, ásamt því að við lítum um öxl yfir þá viðburði sem félagið hefur staðið fyrir í vetur. Við ræðum að auki spennuna fyrir haustinu og viðburða sem nýja stjórnin er byrjuð að huga að. Um leið og við þökkum ykkur fyrir...
28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant 31.05.2024 59:33
Our guest in this episode is Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant. Joice was born in Japan but grew up in different countries including France, Brazil, and the United States. She has been working in tech for over 20 years, starting her career as a Web Designer, and eventually finding a deep love for UX and Product Management. Joice has a BFA from Virginia Commonwealth University and an MFA...
27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri 29.04.2024 1:18:16
Gestur okkar að þessu sinni er Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Oktavía er frumkvöðull, framkvæmdastjóri og reyndur ráðgjafi á sviði heildræns nets- og upplýsingaöryggis. Hán hefur þróað og skapað verkefni og fyrirtæki sem tengjast öryggi, menningu og tækni um allan heim. Oktavía var meðstofnandi þankatanksins future404 ehf. og situr í ráðgjafahóp Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega stjórnsýslu internets...
26. Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet 26.03.2024 55:15
Gestur okkar að þessu sinni er Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet sem gengur út á að auka hlut kvenna í upplýsingatækni. Lena Dögg mun leiða loka fasa átaksverkefnisins, sem felur í sér að koma skilgreindum aðgerðum í framkvæmd í samstarfi við styrktar- og stuðningsaðila. Lena Dögg hefur margra ára reynslu af verkefnastjórnun og...
25. Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania 29.02.2024 45:22
Gestur okkar að þessu sinni er Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania en Helga Björk tók þátt í átakinu „Konur í kerfisstjórnun“ og hefur verið áberandi í umræðunni um starfið og frábær fyrirmynd. Hún hóf starfsferilinn hjá Símanum árið 2007 þar sem hún starfaði við að veita tæknilega aðstoð til viðskiptavina og varð síðar tæknimaður í vettvangsþjónustu fyrirtækjasvi...
24. Anna Helga Jónsdóttir, dósent við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands 27.01.2024 57:39
Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Helgu Jónsdóttur dósent við Háskóla Íslands. Anna Helga lauk BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2003, meistaraprófi í hagnýtri stærðfræði frá Danska tækniháskólanum (DTU) í Kaupmannahöfn 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Anna Helga var ráðin dósent í tölfræði við Háskóla Íslands 2018. Í þæ...
23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar 01.12.2023 1:19:31
Gestur okkar að þessu sinni er Linda Heimisdóttir. Linda er með MA og doktorsgráðu í málvísindum frá Cornell háskóla. Linda hefur áralanga reynslu úr máltæknigeiranum en áður en hún tók við núverandi starfi, starfaði hún hjá alþjóðlega fyrirtækinu Appen, sem sérhæfir sig í söfnun og merkingu gagna fyrir máltækni og gervigreind. Linda gekk til liðs við Miðeind, sem er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á...
22. Nanna Pétursdóttir, framkvæmdarstjóri Crayon á Íslandi 31.10.2023 58:26
Gestur okkar að þessu sinni er Nanna Pétursdóttir framkvæmdarstjóri Crayon á Íslandi. Nanna hefur starfað í upplýsingatæknigeiranum í um 20 ár, bæði í tækni- og stjórnunarstörfum. Undanfarin 9 ár hefur hún starfað hjá Crayon, fyrst sem SAM (Software Asset Management) ráðgjafi og leiddi síðar þjónustusvið fyrirtækisins. Áður starfaði Nanna hjá Íslandsbanka, Landspítala háskólasjúkrahúsi og Glitni b...
21. Kathryn Gunnarsson, founder of Geko 27.09.2023 1:04:07
We welcome Kathryn Gunnarsson. Kathryn is a founder of Geko, an agency that specializes in talent - working in the Tech and innovation sector in Iceland. In 2016, Kathryn moved to Iceland from London, where she worked as a group head of HR. Kathryn has over 20 years of HR, people strategy, and recruitment experience. In February 2020, after spotting a niche in the market for a People Strategy agen...
20. Súsanna Þorvaldsdóttir, verkfræðingur og bakendaforritari hjá Icelandair 01.09.2023 45:34
Í þessum fyrsta þætti haustsins bjóðum við velkomna Súsönnu Þorvaldsdóttur. Súsanna lauk meistaragráðu í verkfræði frá háskólanum í Álaborg árið 2000 og var þar ein af 5 konum af 100 nemendum í sínum árgangi. Hún starfaði í Danmörku í kjölfarið m.a. hjá Lego og hjá fjarskiptafyrirtækjunum Maxon Telecom og FL-telecom. Eftir að hafa flutt aftur til Íslands árið 2005 starfaði Súsanna hjá TM Software,...
19. Helena S. Jónsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla 03.07.2023 1:00:10
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Helenu Sveinborgu Jónsdóttur sem er meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla í New York. Helena er með tvær BS gráður frá Háskólanum Reykjavík, í vélaverkfræði og tölvunarfræði. Undanfarna mánuði hefur Helena starfrækt ada_konur aðganginn á Instagram þar sem konur í hugbúnaðargeiranum segja frá degi í lífi sínu sem hefur vakið verðskuldaða athygli og var...
18. Lea Kuliczkowski, marketing manager at Tern Systems 06.06.2023 1:14:48
We welcome Lea Kuliczkowski. Lea is a digital marketer, content creator, and social media specialist currently a marketing manager at Tern Systems. Before joining Tern Systems last year, Lea worked as a Digital Marketing Specialist for the Blue Lagoon and was a Content Creator for Marel and Nordic Luxury. For three years before that, she worked for Icelandair as a marketing specialist for North Am...
17. Björgheiður Margrét Helgadóttir, sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi 05.05.2023 1:09:20
Við bjóðum velkomna Björgheiði Margréti Helgadóttur. Björgheiður lauk BS gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og meistaragráðu í sömu grein frá HR árið 2016. Eftir útskrift starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu, sem forritari hjá Annata og sérfræðingur í upplýsingatækni hjá Innnes. Árið 2019 réði hún sig sem verkefnastjóra í verkfræðideild hjá Alvotec...
16. Berenice Barrios Quiñones, director of Microsoft Alliance at Advania 06.04.2023 1:03:14
We welcome Berenice Barrios Quiñones. Berenice is a director of Microsoft Alliance at Advania where she leads collaboration for Microsoft solutions within the company and across its sister companies abroad. Before joining Advania in 2020, Berenice worked for Origo in various positions from Sales consultant, Software solution Architect and finally as a Product Owner of Microsoft products. Before mo...
15. Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi, stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar 15.03.2023 55:41
Við bjóðum velkomna Margréti Dóru Ragnarsdóttur sem alltaf er kölluð Magga Dóra. Hún lauk grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands og meistaranámi í tölvunarfræði frá sama skóla árið 2003. Hún á að baki fjölbreyttan starfsferil bæði hér á landi og í Bandaríkjunum og starfaði meðal annars hjá hönnunarstofunni Mad*Pow í Boston í 6 ár við notendarannsóknir og stafræna vegferð stórra fyrirtækja....
14. Sigyn Jónsdóttir, CTO hjá Empower 10.02.2023 55:21
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Sigyn Jónsdóttur. Sigyn útskrifaðist með BS gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Samhliða og eftir námið í HÍ starfaði hún hjá Meniga þar til hún fór í meistaranám í Management Science & Engineering í Columbia-háskóla í New York, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2016.Eftir námið réði Sigyn sig til Seðlabankans en söðlaði um ári síðar þega...
13. Anna Signý Guðbjörnsdóttir, sérfræðingur í notendarannsóknum og þjónustuhönnun hjá Kolibri. 19.01.2023 58:31
Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Signýju Guðbjörnsdóttur. Anna Signý starfar sem sérfræðingur í notendarannsóknum og þjónustuhönnun (Senior UX Researcher & Service Designer) hjá hönnunar- og hugbúnaðarfyrirtækinu Kolibri. Hún menntaði sig í Danmörku og er með BS próf í vefþróun frá Copenhagen Business Academy og master í Digital design & Communication frá IT-Universite...
12. Adeline Tracz, verkefnastjóri nýþróunar á heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala 25.11.2022 1:04:01
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Adeline Tracz. Adeline er rafmagnsverkfræðingur að mennt og hefur búið og starfað á Íslandi frá árinu 1996 þegar hún réði sig sem verkfræðingur til bandaríska fyrirtækisins Conexant sem hafði útibú á Íslandi. Þar starfaði hún í áratug en réði sig næst til Kögunar eftir stutt stopp hjá Amadeus í Frakklandi. Hjá Kögun, sem seinna varð að Advania, vann hún sem forri...
11. Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, tækni- og þróunarstjóri hjá Stafrænt Ísland 06.11.2022 47:07
Gestur þáttarins er Hrefna Lind Ásgeirsdóttir. Hrefna útskrifaðist úr hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 en hefur síðan bætt við sig M.Sc í Design and Digital Media frá University of Edinburgh og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hrefna hefur gengt ýmsum störfum innan upplýsingatækni m.a. sem prófari og forritari hjá Landsbankanum og Advania, var vörustjóri og framkvæmdarstjóri hjá Me...
10. Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri mannauðs hjá Origo og handhafi Hvatningarverðlauna Vertonet 13.10.2022 45:15
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Dröfn Guðmundsdóttur. Dröfn hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun Vertonet en með skýrri sýn í starfi sínu sem framkvæmdarstjóri mannauðs hjá einu stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins hefur Dröfn lagt sitt af mörkum við að gera tæknigeirann eftirsóknarverðari fyrir konur, fjölgað konum í tæknistörfum og stuðlað að fjölbreytileika innan geirans. Dröfn er sálfræð...
9. Paula Gould, stofnandi Float and gather og WomenTechIceland 21.09.2022 1:22:40
In this first episode of the fall we welcome Paula Gould. Paula is the founder of Float and gather ehf. where she helps internationally-minded companies, entrepreneurs and artists to strategize and execute on their go-to-market and growth initiatives between North America and Europe. She is also a speaker and MarComm executive and a founder at WomenTechIceland. Paula previously served as Head of B...
Hvað er framundan hjá Vertonet? 22.07.2022 9:36
Við tökum okkur nú í sumarfrí en snúum aftur með þáttinn í haust. Í byrjun júní var haldinn aðalfundur Vertonet og ný stjórn tók til starfa. Ein af stofnendum Vertonet og formaður, Linda Stefánsdóttir, ákvað að stíga til hliðar og nýr formaður stjórnar er Guðrún Helga Steinsdóttir sem hefur verið í stjórn samtakanna síðastliðin 2 ár. Guðrún Helga segir okkur frá því sem hefur verið að gerast...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice