Délítan

Kjaftæði

Kjaftæði! með Délítunni er spjall- og leikjaþáttur þar sem Délítan (Dagur, Viktor Ingi, og Palli) fær fólk til að ljúga upp í opið geðið á sér. Í hverjum þætti mætir gestur og segir áhugaverðar og skemmtilegar sögur úr sínu lífi en laumar einni lygasögu með. Drengirnir í Délítunni setjast í yfirheyrslusætin og spyrja gestina spjörunum úr til að komast að því hvað er sannleikur og hvað er kjaftæði.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.facebook.com

Autor

Délítan

Categorie

Comedy

Site-ul podcastului

www.facebook.com

Cel mai nou episod

12 dec. 2023

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Kjaftæði #042 - Þú ferð ekki að rukka kónginn? [Sigurður Jóhann Andrésson] 12.12.2023

Góðvinur pörupiltanna, hann Jóhann nokkur, kom til þeirra á dögunum með fræknar sögur af myntuslegnum sundklefa, geitungum í Japan og háskalegu eftirpartíi. Strákarnir reyna sitt besta við að komast að sannleikanum í fertugastaogöðrum þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #041 - Sjaldan höfum við pissinu neitað [Anya Shaddock] 28.11.2023

Hún Anya (ekki með joði) kom til okkar á dögunum og stærði sig af óþekktarbarninu sem hún var, sprautuháska á kaffihúsi og standandi þvagmenningu. Komist að sannleikanum með strákunum í fertugastaogfyrsta þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #040 - Fagurfræði haturs er áhugamál mitt [Árni Reynir Hassell Guðmundsson] 16.11.2023

Hann Árni kom til okkar á dögunum og sagði okkur sögur af samfélagsmiðlabönnum, skyldleikum og dramatískum afmælisdegi. Strákarnir taka á honum stóra sínum og reyna eftir bestsu getu að komast að sannleikanum í fertugasta þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #039 - Já, þú ert búinn að stinga mig? [Þórhallur Þórhallsson] 31.10.2023

Uppistandarinn Þórhallur Þórhallsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur hinar ótrúlegustu sögur af partístungum, vírusum í Kína og Rokklingunum. Komist að sannleikunum með pörupiltunum í þrítugastaogníunda þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #038 - Wake me up before you GóGó [GóGó Bergmann] 19.10.2023

GóGó Bergmann kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá sífellt banvænni sögum um Netflix, útskriftir og Hafnfirsk költ. Pörupiltarnir okkar reyna eftir fremsta megni að greina úr hvað er satt og hvað er lygi í þrítugastaogáttunda þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #037 - High on life, beint úr buxunum! [Ylfa Marín] 03.10.2023

Ylfa Marín kom til okkar á dögunum og sagði okkur furðusögur af manna(kvenna)villtum, búðarflassi og rothöggum! Grallararnir grúska sem mest þeir geta og reyna að komast að sannleikanum í þrítugastaogsjöunda þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #036 - Ómerkilegar Sögur [Délítan] 19.09.2023

Palli, Dagur og Viktor ljúga hvor annan fullan í þetta sinn. Sögur af köngulóamanninum, dracco köllum og háskalegum glæfraakstri. Komist að Sannleikanum í þrítugastaogsjötta þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #035 - Baradaskú, rússneska kirkjugarðsnornin [Magnús Gauti] 05.09.2023

Þriðji og síðasti þátturinn í bræðraþríleiknum svokallaða, þar sem pörupiltarnir í Kjaftæði fá bræður sína til sín til að ljúga þá kjaftfulla. Komist að sannleikanum í þrítugastaogfimmta þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #034 - Gastu ekki bara asnast til að pissa fyrr!? [Felix Viðar] 22.08.2023

Annar þátturinn í bræðraþríleiknum svokallaða, þar sem pörupiltarnir í Kjaftæði fá bræður sína til sín til að ljúga þá kjaftfulla. Komist að sannleikanum í þrítugastaogfjórða þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #033 - Sjaldan látið lim kjurrt liggja [Róbert Þórir] 08.08.2023

Fyrsti þátturinn í bræðraþríleiknum svokallaða, þar sem pörupiltarnir í Kjaftæði fá bræður sína til sín til að ljúga þá kjaftfulla. Komist að sannleikanum í þrítugastaogþriðja þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #032 - Gigg, nudd og sóló [Veigar Margeirsson] 25.07.2023

Tónskáldið Veigar Margeirsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá þremur "misskilningum" sem hann hafði lent í, hvor öðrum lygilegri. Strákarnir köfuðu í þá og leituðu að sannleikanaum í þrítugasta-og-öðrum þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #031 - Din-Jandy, the mother of all waterfalls [Ragnhildur Veigarsdóttir] 27.06.2023

Ragnhildur "Rocky" Veigarsdóttir kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá krýningum, hipphoppdönsum og N'Sync tónleikum. Lygin liggur þarna einhversstaðar og strákarnir reyna að komast að sannleikanum í þrítugastaogfyrsta þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #030 - Sigga Ósk er: The Thunder Tiger [Sigga Ósk] 13.06.2023

Hún Sigga Ósk kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá háskaferðum í landi strúta, köldum sturtum og forsetaóhöppum. Komist að sannleikanum í þrítugasta! þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #029 - Húðflett án deyfingar [Guðrún Rósa Róbertsdóttir] 30.05.2023

Guðrún kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá mennskum dýragörðum, daufri deyfingu og dragkeppni. Hlustir á pörupiltana í Délítunni spyrja Guðrún spjörunum úr og komist að sannleikanum í tuttugastaogníunda þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #028 - Gode venner på Roskilde [Villi Neto] 16.05.2023

Eftir ílangt páskafrí snúa fræknu lygabanarnir aftur! Sestur í stólinn er enginn annar en Villi Netó og sagði hann okkur sögur af tölfræðilegum ólíkindum á Hróarskeldu, þreyttum fótboltaköppum á Spáni og róðrarafrekum sínum. Komist að sannleikanum í tuttugastaogáttunda þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #027 - Sexkantur með sænsku mafíunni [Délítan] 05.04.2022

Viktor tekur sér tíma við að smíða ikea húsgögn, Dagur gengur inn á kúkandi menn og Palli er með afar mikilvæga tilkynningu. Komist að sannleikanum í tuttugastaogsjöunda þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #XXX - Alveg Dagsatt [Palli og félagar] - FYRSTI APRÍLÞÁTTURINN 01.04.2022

Í þessum sérstaka þætti af Kjaftæði segir Viktor frá hundakeppni sem hann tók þátt í, Dagur segir frá lyklatöku mikilvægs manns og Palli segir kunnuglega sögu, í nýjum búning. Komist að sannleikanum í þessum sérstaka þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #026 - Hvar hef ég EKKI pissað?! [Askur Nielsen] 29.03.2022

Palli er týndur! Þannig að Askur kom til okkar og sagði okkur fræknar sögur af líkamsvessum af öllum toga; pissi, svita og pöddum. Pöddum?? Pöddum. Okkur til halds og traust stökk Brimrún inn í staðinn fyrir Palla og hjálpaði okkur að komast að sannleikanum í tuttugastaogsjötta þætti af Kjaftæði! 

Kjaftæði #025 - Barnapíubófinn [Viktor, Dagur og Palli] 22.03.2022

Öðlingarnir í Délítunni setjast að borðum og segja fræknar sögur af göldrum, sænskum ránum og örum (ekki örvum). Komist að sannleikanum í tuttugastaogfimmta þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #024 - Varúð! Táneglur [Ólafur Jóhann Steinsson] 15.03.2022

Uppkastari, Tik Tokkari, Olif! Óli kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá Svíþjóð, Spáni og tánöglum. allt lönd í Evrópu. Eitt þessara landa er uppspuni frá rótum. Komist að sannleikanum í tuttugastaogfjórða þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #023 - Katla rassar forsetann [Katla Njálsdóttir] 08.03.2022

Leikkona, söngkona og verðandi háskólanemi! Katla kom til okkar og sagði okkur frá sænsku ofurstjörnunni Jake Gyllenhal, kúkaferð á Esju og forsetarössun. Komist að lyginni í tuttugastaogþriðja þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #022 - Leikskólaglæpir [Ólöf Tara] 01.03.2022

Einkaþjálfari, femínisti og grjótharður Öfgi. Ólöf Tara kom til okkar og sagði okkur frá því þegar hún reyndi að brenna niður hús móður sinnar, láta sig hverfa á Spáni og verða fjögurra ára mafíósi. Ein þessara sagna er lygi, en hver? Komist að sannleikanum í tuttugastaogöðrum þætti af Kjaftæði!

Kjaftæði #021 - Næstum því í Nylon [Margrét Erla Maack] 22.02.2022

Fjöllistadís, Fjölmiðlakona, Danskennari, Karókíáhugamanneskja, Plötusnúður, Pistlahöfundur, Verkefnastjóri, Sirkuslistakona, Kabarett, Skemmtikraftur, Heimskona, Mataráhugamanneskja, Móðir, Kærasta, Íbúðareigandi, Miðbæjarrotta, Fegurðardís, Dóttir, Systir, Barnabarn, Letidýr ofl. Margrét Erla Maack kom og sagði frá ofurhetjuuppruna sínum, slæmum ömmum og öfum og Nylonkeppninni frægu. En hún, sem...

Kjaftæði #020 - Trúðurinn á Titanic [Jón Haukdal] 15.02.2022

Söngvari, bangsi, trúður. Jón Haukdal kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá byssuævintýri á Spáni, örlögum Títanikks og bestu afmælisveislunni. Ein þessara sagna er lygi, en hver? Komist að sannleikanum í tuttugasta(!) þættinum af Kjaftæði!

Kjaftæði #019 - Hvernig ég kynntist mömmu þinni [Sigurboði Grétarsson] 08.02.2022

Tónlistarmaður, tattúartisti, víkingur. Sigurboði bað okkur um að setjast niður á meðan hann sagði okkur fræknar sögur af ruslfæði, dýrum bónorðum og öskuillum prinsessum. Einhver sagna hans var að sjálfsögðu hrein og tær lygi, en hver þeirra? Komist að því í nítjánda þættinum af Kjaftæði!

Ascultă podcastul Kjaftæði în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice