RÚV

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

2 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Æska og uppvöxtur Donalds Trumps 14.03.2016

Í þættinum verður fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf viðskiptaferils forsetaframbjóðendans og fasteignajöfursins Donalds Trumps.

Náttúruhamfarir og kjarnorkuslys í Japan 11.03.2016

Fimm ár liðin frá náttúruhamförunum miklu og kjarnorkuslysinu í Japan 11. mars 2011, þegar sterkur jarðskjálfti, níu að stærð, reið yfir Japan, flóðbylgja skall á norðausturströnd landsins og alvarlegt bræðsluslys varð í kjarnorkuveri í Fukushima.

Donald Trump 04.03.2016

Í þættinum er fjallað um ættir bandaríska forsetaframbjóðandans og auðjöfursins Donalds Trump, og hvernig afi hans og faðir auðguðust á sínum tíma. Afinn, þýskur innflytjandi, rak meðal annars hótel og vændishús fyrir gullgrafara í gullæðinu í Klondike, og sonur hans, faðir Donalds Trump, byggði svo upp mikið fasteignaveldi í New York með stuðningi úr opinberum sjóðum, en var umdeildur bæði fyrir...

Morðið á Olof Palme II 26.02.2016

Síðari þáttur um morðið á sænska forsætisráðherranum Olof Palme, en um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin síðan hann var skotinn til bana í miðborg Stokkhólms. Í þessum þætti er fjallað nánar um árangurslitla leit sænsku lögreglunnar að banamanni forsætisráðherrans og farið yfir ýmsar kenningar um það hver gæti hafa staðið að baki morðinu. Voru það kúrdískir hryðjuverkamenn, suðurafríska leyniþjón...

Morðið á Olof Palme 19.02.2016

Í þættinum er fjallað um morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og árangurslitla leit sænsku lögreglunanr að banamani hans, en þrjátíu ár eru um þessar mundir frá því að Palme var skotinn til bana á götu í miðborg Stokkhólms.

Vladimír Pútín 12.02.2016

Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, feril hans í sovésku leyniþjónustunni KGB, afdrifarík augnablik í Dresden í Austur-Þýskalandi, og hvernig svo ólíklega vildi til að hann komst að lokum til æðstu metorða í Rússlandi.

Forsetakosningar í BNA 1948 05.02.2016

Í þættinum er fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing sinn, Repúblikanann Thomas Dewey.

Mubarak og egypska byltinginn 29.01.2016

Fimm ár eru um þessar mundir síðan Hosni Mubarak Egyptalandsforseti hrökklaðist frá völdum eftir þriggja vikna fjöldamótmæli á götum egypskra borga. Í þættinum er rifjuð upp saga egypsku byltingarinnar og frásagnir Íslendinga sem voru í Kaíró þessa afdrifaríku daga í janúar og febrúar 2011.

Íranska kjarnorkuáætlunin 22.01.2016

Fjallað um sögu írönsku kjarnorkuáætlunarinnar. Upphaf hennar má rekja allt til upphafs sjötta áratugarins, en fyrstu skrefin á kjarnorkubrautinni tóku Íranar með dyggri aðstoð og stuðningi Bandaríkjanna.

Eiturlyfjasmyglarar í Mexíkó 15.01.2016

Aldarlöng saga eiturlyfjasmyglara í Mexíkó og rætur þeirrar vargaldar sem þar geisar á milli glæpagengja.

Saga Sádi-Arabíu 08.01.2016

Fjallað um sögu Sádi-Arabíu, hvernig þetta ríki í eyðimörk Arabíuskagans varð og til og hvernig það komst til áhrifa á alþjóðavettvangi.

Ascultă podcastul Í ljósi sögunnar în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice