RÚV

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

2 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Robert Mugabe 31.03.2017

Í þættinum er fjallað um ævi Roberts Mugabe, forseta Simbabve.

Nikolai Vavilov 24.03.2017

Í þættinum er fjallað um rússneska grasafræðinginn Nikolai Vavilov, sem vann brautryðjendarannsóknir á korni og öðrum nytjajurtum á fyrstu áratugum tuttugustu aldar og byggði upp stærsta fræbanka heims, en lenti síðar á ferlinum í hatrammri glímu við andvísindaleg öfl í hinum nýstofnuðu Sovétríkjum.

Jemen II 17.03.2017

Síðari þáttur um sögu Jemens. Fjallað um nútímasögu landsins, breska nýlendutímann, skiptingu Jemens í tvö ríki, spillta konunga og langvinna borgarastyrjöld sem Sádi-Arabía og Egyptaland drógust inn í.

Jemen I 10.03.2017

Í þættinum er fjallað um sögu Jemens. Jemen er í dag stríðshrjáð og sárafátækt, en fyrr á öldum var það eitt mesta menningarsvæði Arabíuskagans, og miðstöð verslunar og viðskipta, sem ótal stórveldi gerðu tilraun til þess að leggja undir sig öldum saman, en yfirleitt með litlum árangri.

Andrée-leiðangurinn 03.03.2017

Í þættinum er fjallað um Andrée-leiðangurinn, tilraun þriggja Svía til að komast á Norðurpólinn í loftbelg árið 1897, tilraun sem endaði með ósköpum, þegar loftbelgurinn brotlendi og þremenningunum biðu margra mánaða hrakningar á heimskautaísnum.

Japanskir Bandaríkjamenn í fangabúðum 24.02.2017

Eftir árás japanska hersins á bandarísku flotastöðina Pearl Harbor árið 1941 voru nærri 120 þúsund Bandaríkjamenn af japönskum ættum gerðir brottrækir af heimilum sínum á vesturströnd Bandaríkjanna, og sendir í fangabúðir þar sem þeir dvöldu nær öll stríðsárin. Fæstir fanganna höfðu nokkuð til saka unnið annað en að eiga ættir að rekja til óvinaríkisins Japan, og stór hluti þeirra voru bandarískir...

Rúmenska byltingin 17.02.2017

Í þættinum er fjallað um rúmensku byltinguna í desember 1989 og síðustu daga einræðisherrans Nicolae Ceausescus.

Rohingja-þjóðin í Búrma 10.02.2017

Í þættinum er fjallað um sögu Rohingja-þjóðarinnar í Búrma. Rohingjar hafa lengi átt undir högg að sækja í heimalandi sínu, sætt ofsóknum og Rohingjar eru ríkisfangs- og réttindalausir. Búrmíski herinn hefur undanfarnar vikur og mánuði framið fjöldamorð á Rohingjum og fleiri voðaverk og stjórnvöld í Búrma sætt harðri gagnrýni frá alþjóðasamfélaginu.

Bashar al-Assad 03.02.2017

Í þættinum er fjallað um ævi og fjölskyldu Bashars al-Assad, sem tók við embætti forseta Sýrlands af föður sínum árið 2000.

Hafez al-Assad 27.01.2017

Í þættinum er fjallað um ævi Hafez al-Assad, forseta Sýrlands frá 1970 til 2000, og föður núverandi Sýrlandsforseta Bashars al-Assad, sem ólst upp í sárri fátækt í afskekktu fjallaþorpi í norðanverðu Sýrlandi, en endaði sem miskunnarlaus einræðisherra.

Scandinavian Star 20.01.2017

Í þættinum er fjallað um eldsvoðann í ferjunni Scandinavian Star í apríl 1990. Eldur kviknaði um borð í skipinu á siglingu frá Ósló til Frederikshavn með þeim afleiðingum að 159 manns létu lífið. Nýverið birtu fjölmiðlar í Noregi og Danmörku upplýsingar úr rannsókn norskrar þingnefndar á eldsvoðanum sem varpa nýju ljósi á málið.

Hakkarar 13.01.2017

Í þættinum er fjallað um nokkur tilvik þess að hakkar og tölvuþrjótar hafi látið til sín taka á alþjóðavettvangi, stundað njósnir og jafnvel valdið milliríkjadeilum. Meðal annars er fjallað um ötula leit bandarísks kerfisumsjónarmanns að dularfullum hakkara árið 1986, umfangsmikla tölvuárás á Eistland og háþróaðan tölvuorm sem herjaði á kjarnorkuver Írana.

Taívan 06.01.2017

Í þættinum er fjallað um stormasama sögu eyríkisins Taívans eða Lýðveldsins Kína eins og það heitir formlega, og samskipti þess við risavaxinn nágranna sinn, Alþýðulýðveldið Kína.

Rodrigo Duterte 16.12.2016

Í þættinum er fjallað um hinn umdeilda forseta Filippseyja, Rodrigo Duterte, sem styður dauðasveitir sem myrða eiturlyfjasala og aðra glæpamenn og hefur jafnvel sjálfur drepið menn. Þátturinn var áður á dagskrá í júní.

Suður-Kórea 09.12.2016

Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Kóreu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Meðal annars er fjallað um einræðisstjórn hershöfðingjans Park Chung-hee, sem er faðir núverandi forseta Park Geung-hye. Morðin á hershöfðingjanum og konu hans gerðu það að verkum að dóttir þeirra komst í kynni við spilltan leiðtoga sértrúarsöfnuðar, en uppljóstranir um tengsl forsetann við söfnuðinn hefur nú orðið kveikja...

Dauði Tasmaníutígursins 02.12.2016

Í þættinum er fjallað um sorgleg örlög Tasmaníutígursins, einstakrar rándýrategundar sem var einungis að finna á eyjunni Tasmaníu við Ástralíu. Varla leið öld frá því að Evrópumenn hófu landnám á Tasmaníu þar til tígurinn var útdauður, fórnarlamb ofveiða og rógburðar manna.

Flugslysið í Smólensk 25.11.2016

Í þættinum er fjallað um það þegar þota sem flutti Lech Kaczynski, forseta Póllands, og fleiri pólsk fyrirmenni fórst við lendingu í Smólensk í Rússlandi í apríl 2010. Allir um borð fórust og slysið varð pólsku þjóðinni mikið reiðarslag.

Daniel Ortega 18.11.2016

Í þættinum er fjallað um stormasama sögu Níkaragva í Mið-Ameríku og sér í lagi ævi og feril Daniels Ortega, sem nýverið var kjörinn forseti landsins í þriðja sinn, en hann var áður leiðtogi skæruliðahreyfingar Sandínista sem tók völdin í Níkaragva í byltingu árið 1979.

Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948 11.11.2016

Fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing sinn, Repúblikanann Thomas Dewey. Þátturinn var áður á dagskrá í febrúar.

Þjóðarmorðið í Namibíu 04.11.2016

Í þættinum er fjallað um fyrsta þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar, þegar þýskir nýlenduherrar í því sem nú er Namibía í Suðvestur-Afríku réðust af fullum þunga að hirðingjaþjóð Hereróa sem hafði lítið gert þeim annað en að reyna að krefjast réttar síns gegn yfirgangi Þjóðverja. Tugþúsundum var þá útrýmt á þaulskipulagðan hátt af þýskum hermönnum, fólk látið veslast upp í skraufþurri eyðimörkinni eð...

Nárú 28.10.2016

Í þættinum er fjallað um eyjuna Nárú í Kyrrahafi, eitt minnsta sjálfstæða ríkis í heimi. Nárú fór á örfáum áratugum frá því að vera eitt ríkasta lands heims til gjaldþrots, og hefur verið í fréttum síðustu misseri vegna umdeildra flóttamannabúða sem eyjaskeggjar reka fyrir áströlsk stjórnvöld. Meðal þess sem einnig kemur við sögu í lygilegru sögu Nárú er fugladrit, bresk popphljómsveit, Leonardo d...

Bhumibol Taílandskonungur 21.10.2016

Í þættinum er fjallað um ævi Bhumibols Adulyadej, sem ríkti sem konungur Taílands í sjö áratugi, frá 1946 og allt þar til hann lést. Konungurinn var elskaður og dáður af þjóð sinni en ekki yfir það hafinn að blanda sér í stjórnmál Taílands, og ævisaga hans er samofin sögu Taílands síðustu áratugina.

Aleppó II 14.10.2016

Síðari þáttur af tveimur um sögu hinnar stríðshrjáðu borgar Aleppó í Sýrlandi. Í þessum þætti er sjónum beint að þeim rúmlega fjögur hundruð árum sem borgin var á valdi Tyrkjasoldáns. Það tímabil í sögu borgarinnar einkenndist lengi vel af uppgangi og friðsæld, en þegar tuttugasta öldin nálgaðist var friðurinn úti.

Aleppó 07.10.2016

Í þættinum er fjallað um sögu borgarinnar Aleppó í norðanverðu Sýrlandi, sem orðið hefur hvað verst úti í sýrlensku borgarastyrjöldinni. Aleppó hefur lengi verið viðskiptamiðstöð Sýrlands og er jafnframt meðal þeirra borga heims sem á sér lengsta sögu óslitinnar búsetu. Í gegnum aldirnar og árþúsundin hafa ótal innrásarherir og konungsríki komið og farið, en borgin alltaf verið á sínum stað.

Norður-Kórea II 30.09.2016

I þættinum er fjallað nánar um sögu Norður-Kóreu, stjórnarhætti stofnanda ríkisins Kim Il Sung sem og valdatíð sonar hans Kim Jong-il, en fljótlega eftir að hann tók við stjórninni varð hryllileg hungursneyð í Norður-Kóreu sem talið er að hafi orðið allt að þremur milljón manns að bana.

Ascultă podcastul Í ljósi sögunnar în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice