RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Eþíópía IV: Stríðið við Ítali 19.03.2021 40:00
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Afríkuríkisins Eþíópíu. Í þessum þætti er fjallað um valdatíð keisarans Jóhannesar 4. og eftirmanns hans, Menelik 2., og stríð Eþíópíumanna við Ítali í nýlendukapphlaupi Evrópuþjóða.
Pocahontas 12.03.2021 40:00
Í þættinum er fjallað um raunverulega ævi Pocahontas, ungrar frumbyggjastúlku sem varð á vegi enskra landnema í Norður-Ameríku í byrjun 17. aldar. Lesari: Leifur Hauksson.
Pocahontas 12.03.2021 40:00
Í þættinum er fjallað um raunverulega ævi Pocahontas, ungrar frumbyggjastúlku sem varð á vegi enskra landnema í Norður-Ameríku í byrjun 17. aldar. Lesari: Leifur Hauksson.
Finnska borgarastyrjöldin 05.03.2021 40:12
Í þættinum er fjallað um finnsku borgarastyrjöldina í ársbyrjun 1918.
Ferdinand og Imelda Marcos 26.02.2021 41:03
Í þættinum er fjallað um Ferdinand Marcos, forseta og einráð á Filippseyjum, konu hans Imeldu, og mótmælin sem urðu til þess að þau hrökkluðust í útlegð í febrúar 1986.
Osama bin Laden III 19.02.2021 41:00
Þriðji og síðasti þáttur um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
Osama bin Laden III 19.02.2021 41:00
Þriðji og síðasti þáttur um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
Osama bin Laden II 05.02.2021 38:30
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
Osama bin Laden II 05.02.2021 38:30
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
Osama bin Laden I 29.01.2021 40:03
Í þættinum er fjallað um ævi hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden.
Stríðið 1812 og bruninn í Washington 15.01.2021 45:34
Í þættinum er fjallað um stríð Breta og Bandaríkjamanna sem kennt er við upphafsárið 1812, og brunann í Washington, þegar breskir hermenn kveiktu í bæði Hvíta húsinu og þinghúsinu í bandarísku höfuðborginni.
Byltingin í Túnis 08.01.2021 40:00
Í þættinum er fjallað um upphaf byltingarinnar í Túnis 2011, fyrstu daga arabíska vorsins, og manninn sem sagður er hafa hrundið byltingunni af stað með því að kveikja í sér.
Skrílslæti á jólum 18.12.2020 40:15
Í þættinum er stiklað á stóru í sögu jólahátíðarinnar, meðal annars um ofsafengin skrílslæti og fyllerí sem áður einkenndu jólin víða, og tilraunir til að banna jólahald í gegnum árin.
Eþíópía III: Tewodros 2. keisari 11.12.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um ævi Tewodrosar 2., keisara Eþíópíu um miðbik nítjándu aldar, sem sameinaði landið eftir langa borgarastyrjöld en lenti svo í deilum við breska heimsveldið.
Eþíópía II 04.12.2020 40:00
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu Eþíópíu.
Eþíópía I 27.11.2020 38:19
Í þættinum er fjallað um sögu Eþíópíu frá því að þar litu fyrst konungsríki dagsins ljós og fram á sextándu öld.
Chagos-eyjar 20.11.2020 37:32
Í þættinum er fjallað um Chagos-eyjar, eyjaklasa í miðju Indlandshafi. Íbúar á eyjunum voru fluttir þaðan nauðugir á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar svo hægt væri að byggja þar bandaríska herstöð, og hafa þeir og afkomendur þeirra barist fyrir því að fá að snúa aftur æ síðan. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Edward Jenner 13.11.2020 38:22
Í þættinum er fjallað um sögu bólusetninga og sér í lagi störf breska læknisins Edwards Jenner, sem framkvæmdi fyrstu eiginlegu bólusetninguna við bólusótt árið 1796.
Þjófnaðurinn á Monu Lisu 06.11.2020 39:02
Í þættinum er fjallað um þjófnað á Louvre-safni í París 1911, þegar sjálfri Monu Lisu var stolið.
Mary Anning 30.10.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um Mary Anning, breska almúgakonu sem var uppi í byrjun nítjándu aldar og er stundum kölluð móðir steingervingafræðinnar, en hún leitaði og fann steingervinga af mörgum áður óþekktum forsögulegum dýrategundum í fjörunni við heimili sitt í Suður-Englandi.
Rafherbergið 16.10.2020 42:31
Í þættinum er fjallað um Rafherbergið, glæsilegan sal klæddan rafi sem Friðrik 1. Prússakonungur gaf Pétri mikla Rússakeisara í byrjun 18. aldar. Klæðningarnar og aðrir munir úr herberginu hurfu í seinni heimsstyrjöld og hafa aldrei fundist, þrátt fyrir mikla leit.

Voulet-Chanoine-leiðangurinn 09.10.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra franskra herforingja frá Senegal að Tsjad-vatni í vestanverðri Afríku, með mörg hundruð manna lið, í lok 19. aldar. Ferð þeirra einkenndist af grimmd og ofbeldi í garð innfæddra sem urðu á vegi þeirra, sem og annarra Frakka.
Nagorno-Karabakh 02.10.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasusfjöllum sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna allt frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára stríði um Nagorno-Karabakh, sem lauk með vopnahléi árið 1994. Friðarviðræður hafa ekki skilað árangri og nú er enn barist um héraðið.
Nagorno-Karabakh 02.10.2020 39:59
Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasusfjöllum sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna allt frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára stríði um Nagorno-Karabakh, sem lauk með vopnahléi árið 1994. Friðarviðræður hafa ekki skilað árangri og nú er enn barist um héraðið.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice