Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

News IS ↓ Episoade: 82

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.viljinn.is

Autor

Björn Ingi Hrafnsson

Categorie

News

Site-ul podcastului

www.viljinn.is

Cel mai nou episod

14 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Allt að verða vitlaust: Obba og Gulli í spennuþrungnu Grjótkasti 22.11.2024

Spennan var rafmögnuð í hljóðveri Grjótkastsins þegar Guðlaugur Þór Þórðarson (Gulli) umhverfisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir (Obba) þingkona Viðreisnar mættust hjá Birni Inga, enda birtist rosaleg könnun Prósents um fylgi flokkanna fyrir Moggann meðan á upptöku stóð, en þar sýnist Viðreisn vera nánast tvöfalt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Gulli varar við vinstri slysum, en Obba bendir...

Grjótkast á sterum: Eyþór Arnalds og Vigdís Hauks um lokadaga kosningabaráttu sem skipt geta sköpum 19.11.2024

Grjótkastið er á sterum í dag, en Vigdís Hauksdóttir lögmaður og fv. alþingismaður og borgarfulltrúi og Eyþór Arnalds tónlistarmaður og fv. borgarfulltrúi mæta til Björns Inga og tala umbúðalaust um kosningaherferðir flokkanna, hvað er að virka og hvað alls ekki. Spáð er afsögn formanns stjórnmálaflokks á sjálfa kosninganótt, vill þjóðin ESB? Var afleikur hjá Þorgerði Katrínu að segja í Grjótkasti...

Grjótkast Kristrúnar og Þorgerðar: Hvor verður forsætisráðherra? Þjóðaratkvæði um ESB, skattar og vandræði frambjóðenda 15.11.2024

Hér koma 72 mínútur af pólitískri þungavigt: Er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn óstjórntækur? Hvernig finnst Kristrúnu Þórðarmál vera fyrir Samfylkinguna. Alma Möller og Jón Gnarr eru ráðherrakandídatar. Heilbrigðismál í ólestri, rifist um skattastefnu og bankasölu, af hverju er Viðreisn hætt að vera leiðinleg og orðin skemmtileg? Skiptir máli að kynna útfærða stefnu, eða er það hættulegt? Og margt f...

Grjótkastið: Tilfinningaþrungið uppgjör borgaralega þenkjandi fólks og ný könnun 11.11.2024

Í eftirminnilegu Grjótkasti mætast þau Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen og ræða erfiða stöðu ríkisstjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, ruglið með borgarlínuna, skattamál og vandræði Samfylkingarinnar, ris Viðreisnar, möguleikann á borgaralegri ríkisstjórn og útþenslu báknsins á öllum sviðum. Kynnt er ný könnun Maskínu fyrir Viljann um viðhorf til hægri/vinstri ríkisstjórn...

Grjótkastið: Svandís og Þórdís á trúnó um lok stjórnarsamstarfsins, furðulega kosningabaráttu og heiminn eftir risasigur Trumps 08.11.2024

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum. Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú,...

Grjótkastið: Örlagarík heimsókn til Kristrúnar, Gnarr-áhrifin, sigur Trumps og galdurinn að toppa á réttum tíma 06.11.2024

Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður í stórskemmtilegu spjalli um spennandi tíma! Örlagarík heimsókn til Kristrúnar Frostadóttur. Hverju breytir það í kosningabaráttunni hér að Donald Trump hafi sigrað í Bandaríkjunum? Er varnarsamningi okkar ógnað? Kemst ESB-aðild þá á dagskrá? Er Jón Gnarr hvalreki Viðreisnar? Hvernig toppar maður akkúrat á réttum tím...

Grjótkast Dags og Áslaugar: 113 mínútur af alvöru pólitík 03.11.2024

Engu skiptir hvort reynt er að stilla þeim Degi B. Eggertssyni og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur upp sem aðal- eða aukaleikurum, pólitíkin þeirra nær alltaf máli og þetta 112 mínútna langa Grjótkast hjá Birni Inga sætir miklum tíðindum. Hvaða ríkisstjórn fáum við Íslendingar fyrir jól? Verður kosið um Reykjavíkurmódelið? Á að hækka eða lækka skatta? Borgarlínan, Sundabraut, samgöngusáttmálinn, ver...

Grjótkastið: Víðir kvíðir ekki pólitík og Bergþór tæklar Kragann 30.10.2024

Björn Ingi með Grjótkast af dýrari gerðinni: Víðir Reynisson er hættur að halda upplýsingafundi og kominn í pólitík, hvernig kom það til og við hverja ræddi hann í aðdragandanum? Þarf að gera Covid-tímabilið upp? Hvernig sér hann deilur Kristrúnar og Dags? Miðflokkur mælist með hörkufylgi í Norðvestur, en samt flytur Bergþór Ólason sig um set. Hvers vegna? Skipta upprifjanir á Klaustursmálum máli...

Grjótkastið: Miskunnarlausir strigakjaftar 23.10.2024

Hérna eru 80 mínútur sem þú vilt alls ekki missa af. Ólöf Skaftadóttir og Stefán Einar Stefánsson fara á kostum í Grjótkastinu með Birni Inga þar sem rætt er um komandi kosningar, innanflokksmein í Valhöll þar sem forystan hefur gert ítrekuð mistök, þríeykið, vanda vinstri flokkanna, framboð lukkuriddara og mögulega ríkisstjórn. Hverjir fara á þing og hverjir verða fyrir vonbrigðum?

Nú þarf meirihlutinn að ráða 20.10.2024

Guðmundur Fertram Sigurjónsson frumkvöðull á Ísafirði, hefur tekið forystu um Vestfjarðalínuna, verkefni sem byggir á efnahagsundrinu sem orðið hefur til á Vestfjörðunum undanfarin ár, en kallar eftir stórauknum innviðum og meiri uppbyggingu. Hann gagnrýnir í spjalli við Björn Inga boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem boðaðar eru í fjárlögunum sem nú liggja fyrir þinginu,...

Kosningar draga úr óvissu 18.10.2024

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræða komandi kosningar, helstu verkefni næstu ríkisstjórnar og áskoranir atvinnulífsins eftir langvarandi pólitíska óvissu. Hefur þróun mála áhrif á vaxtalækkunarferlið? Hver eru stærstu verkefnin? Hvað er framundan?

Grjótkastið v. Össur og Þorsteinn ræða ótrúlega stöðu 11.10.2024

Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Össur Skarphéðinsson fv. utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar ræða við Björn Inga um hina ótrúlegu stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórnmálum og einnig nýútkomnar dagbókarfærslur Ólafs Ragnars Grímssonar fv. forseta.

Grjótkastið iv. þáttur: Þorbjörg ætlar sér stóra hluti 07.10.2024

Þorbjörg Gunnlaugsdóttir og Ólöf Skaftadóttir ræða við Björn Inga um stöðuna í stjórnmálunum eftir landsfund VG, kosningabaráttu sem er hafin, aukna stemningu í Viðreisn með innkomu Jóns Gnarr, vandræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sókn Samfylkingarinnar og Miðflokks og fl. Þorbjörg lýsir yfir framboði til oddvita Viðreisnar í Reykjavík í þættinum, svo þar er útlit fyrir spennandi prófkjör.

Grjótkastið iii. þáttur: Bjarni Benediktsson tekur mjög mikla áhættu 10.04.2024

Ólöf Skaftadóttir og Brynjar Níelsson ræða við Björn Inga um nýja ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Ben, áhættuna sem hann tekur með Sjálfstæðisflokkinn, hvers vegna Sigmundur Davíð og Kristrún eru núna kampakát, hvort erindi Viðreisnar er horfið og kannski Pírata líka, komandi forsetakosningar og æluna sem margir þurfa nú að kyngja (enn einn ganginn).

Grjótkastið ii. þáttur 21.03.2024

Hvað gerist eiginlega nú? Ólöf Skaftadóttir og Bergþór Ólason.

Grjótkastið i. þáttur 15.03.2024

Ólöf Skaftadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir spá í spilin með Birni Inga.

Guðni Th. Jóhannesson fagnar endurkjöri 28.06.2020

Guðni Th. Jóhannesson sest niður með Birni Inga Hrafnssyni og ræðir kosningasigurinn í gær, harðvítuga kosningabaráttu, skýrt umboð kjósenda og það sem framundan er.

Væntanleg bók um Ísland og Covid-19. 09.06.2020

Björn Ingi segir frá bók sem hann er með í smíðum og kemur út í lok næsta mánaðar. Einnig er sagt frá hausverk aldarinnar, sem er opnun landsins 15. júní nk.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir 08.05.2020

Fyrsta bylgjan af covid-19 er afstaðin hér á landi.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra 07.05.2020

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra er gestur Björns Inga í Hlaðvarpi Viljans: Hvernig náum við aftur fyrri styrk og komum tugþúsundum Íslendinga aftur í vinnu? Voru mistök að lýsa því yfir að segjast frekar ætla að gera meira en minna? Ætla kjörnir fulltrúar að endurskoða eigin launahækkanir? Stendur ríkissjóður undir þessu öllu? Á að opna landið aftur á næstunni...

Styrmir Þór Bragason forstjóri Arctic Adventures. 26.04.2020

Ferðamannasumarið 2022 gæti orðið mjög gott, segir forstjóri Artic Adventures. Hann ræðir þá ótrúlegu stöðu sem ferðaþjónustan hér á landi og heiminum er komin í vegna kórónuveirunnar og segir ljóst að fjölmörg fyrirtæki muni verða gjaldþrota. Kallað sé eftir almennum aðgerðum fyrir þessa mikilvægu atvinnugrein og vonandi fari eitthvað að sjást til lands með komu ferðamanna í vetur og á næsta ári....

Bjarnheiður Hallsdóttir og Jóhannes Þór Skúlason frá Samtökum ferðaþjónustunnar. 18.04.2020

„Þetta er móðir allra krísa“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. „Staðan er grafalvarleg og bregðast verður við strax af hálfu stjórnvalda, ef ekki á að fara mjög illa,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtakanna. Þau ræða við Björn Inga Hrafnsson í Hlaðvarpi Viljans um þá ótrúlegu stöðu sem upp er komin í kórónuveirufaraldrinum og með lokun landsins og h...

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. 16.04.2020

Stjórnvöld munu grípa til frekari aðgerða til að koma heimilunum og atvinnulífinu gegnum efnahagshrunið af völdum kórónuveirunnar.

Birna Íris Jónsdóttir um netverslun. 11.04.2020

Vörn snúið í sókn -- sóknarmöguleikar í netverslun á óvissutímum -- Birna Íris Jónsdóttir, rekstrarstjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar hjá Högum, ræðir við Björn Inga Hrafnsson í Hlaðvarpi Viljans um byltinguna sem hefur orðið í netverslun vegna Kórónuveirunnar og hvort við munum nokkru sinni hverfa alveg aftur til fyrri hátta.

Dr. Sigurður Hannesson frkvst. Samtaka iðnaðarins 08.04.2020

Dr. Sigurður Hannesson segir að á fyrstu árum þessarar aldar hafi ofuráhersla verið lögð hér á uppbyggingu fjármálakerfis. Hrunið 2008 hafi gjörbreytt þeirri stöðu. Við hafi tekið ofuráhersla á uppbyggingu ferðamannaþjónustu og algjört uppnám sé í þeim geira hér á landi og á alþjóðavísu. Á þriðja áratug aldarinnar þurfi að leggja áherslu a fjölbreytni, ekki eina atvinnugrein í einu heldur margar o...

Ascultă podcastul Grjótkastið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice