RÚV

Frjálsar hendur

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

27 sept. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Matthías Johannessen 3 11.08.2024

Þriðji þátturinn þar sem lesið er úr viðtölum sem skáldið og ritstjórinn átti við allskonar fólk. Hér lýkur viðtali Matthíasar við Eitilríði Pálsdóttur og síðan lesið úr viðtali við Maríu Andrésdóttur og loks við Hlín Johnson um kynni hennar við Einar Benediktsson.

Matthías Johannessen 2 04.08.2024

Annar þáttur þar sem umsjónarmaður tekur saman og les úr viðtölum Matthías Johannessen við margvíslegt fólk. Hér er lesið úr viðtölum hans við Helgu á Engi og Etilríði Pálsdóttur móður Steins Steinarrs.

Konungskoman 1874 2 28.07.2024

Framhald af fyrra þætti. Enn segir af konungskomunni 1874 og er nú lýst veisluhöldum og þjóðhátíð sem Kristján 9. var viðstaddur. Síðan er, líkt og í fyrra þætti, athyglinni beint að forfeðrum Kristjáns á konungsstóli Dana og nú ekki síst fjallað um Kristján 1 og Hans son hans.

Konungskoman 1874 1 21.07.2024

Lesið er um komu Kristjáns 9. Danakonungs til Íslands 1874 en þá kom hann hingað fyrstur konunga. Meðal annars úr frásögn Matthíasar Jochumssonar í Þjóðólfi. Í síðari hluta þáttarins er athyglinni hins vegar beint að eldri Danakonungum, til dæmis Valdimari afturdegi og Margréti dóttur hans.

Sigríður frá Miklabæ 2 14.07.2024

Lesið meira úr æskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965), Í ljósi minninganna. Áfram segir á ljúfan og einlægan hátt frá uppeldi í Skagafirði í blábyrjun 20. aldar og því fólki sem umhverfis Sigríði og fjölskyldu hennar var.

Livius upphaf Rómar 2 07.07.2024

Þessi þáttur er framhald af næsti þætti undan og hér les Illugi meira úr Rómarsögu sagnaritarans Livíusar. Nú segir frá átökunum milli Rómverja og nágranna þeirra á fyrstu árum borgarinnar um konur, og sömuleiðis er greint frá dularfullu hvarfi stofnanda borgarinnar Rómulusar.

Livius upphaf Rómar 1 30.06.2024

Rómaborg var sögð hafa verið stofnuð árið 753 FT (eða fyrir upphaf tímatals okkar). Sagnaritarinn Livius skrifaði um Trójukappann Anesear sem hraktist til Ítalíu eftir ósigur í Trójustríðinu og varð þar konungur í smáborg, og löngu síðar voru afkomendur hans, tvíburarnir Romulus og Remus bornir út nýfæddir af afbrýðisömum frænda sínum. En þá kom úlfynja til sögunnar.

Sigríður frá Miklabæ 1 23.06.2024

Hér er tekið saman efni og lesið úr Í ljósi minninganna, bernskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965) frá Miklabæ. Hún lýsir á fallegan og næman en um leið hispurslausan hátt uppvexti í Skagafirði, þar sem lífið var svo rólegt og fábreytt að koma vegavinnumanna var sannkallað ævintýri og molasykur var ígildi hins stóra heims.

Riddaraliðsstúlkan - seinni hluti 16.06.2024

Framhald af fyrri þætti. Nadezhda Durova fæddist í Rússland laust fyrir 1800. Hún þráði ekkert meira en stunda útreiðar og hernað en móðir hennar var ákveðin í að þvinga hana í hefðbundið mynstur ungra stúlkna með tilheyrandi ófrelsi og kúgun. En þótt það væri freistandi að láta undan urðu kröfur móður hennar að lokum til þess að Nadezhda greip til örþrifaráða eins og hún segir frá í sjálfsævisögu...

Riddaraliðsstúlkan - fyrri hluti 09.06.2024

Nadezhda Durova var rússnesk stúlka, fædd á ofanverðri 18. öld. Hún átti sér mjög litríka ævi, enda gekk hún í rússneska herinn um tvítugt og þjónaði þar við góðan orðstír í riddaraliði. Hún gekk í karlmannsfötum þótt allir, og þar á meðal keisarinn sjálfur, vissu að hún væri kvenmaður. Hér verður lesið úr sjálfsævisögu hennar þar sem hún segir á bráðskemmtilegan hátt frá uppeldi sínu og vonum hen...

Sjóslys á Mýrum 02.06.2024

Hér segir frá skerjagarðinum á Mýrum í Borgarfirði, fyrst frá staðháttum og höfn, sem þar virðist hafa verið allt frá þjóðveldistíma, og langt fram á tíma einokunarkaupmanna, og m.a. greint frá skipakomum frá Grænlandi þar skömmu áður en byggð þar lagðist af. Einnig segir rá systur Sæmundar fróða, sem þar er sögð hafa búið, og loks hörmulegum sjóslysum sem orðið haa í serkjagarðinum. Umsjón: Jónat...

Skammdegisgestir 1 26.05.2024

Í þessum þætti les umsjónarmaður úr bókinni Sammdegisgestum þar sem Magnús F. Jónsson rekur æviminningar sínar, einkum frá æskudögum þegar fátækt íslenskt heimili þurfti að glima við harðindi, óveður og heyþurrð. Sannkallaðar rammíslenskar örlagasögur.

Everest 3 19.05.2024

Loksins eru þeir Hillary og Tenzing komnir í grennd við efsta tind jarðar. En þá segja óvæntir erfiðleikar til sín. Verða þeir að snúa til baka eða komast þeir loksins á tind Everest? Já - það vita nú reyndar allir að þeir náðu vissulega markmiði sínu? En er hægt að segja til hvor þeirra var á undan? Og skiptir það máli?

Everest 2 12.05.2024

Áfram segir frá leiðangrinum á Everest-fjall árið 1953. Þeir Hillary, Tenzing og fleiri ætla sér að verða fyrstir manna til að ná á efsta tind jarðar, en hættur leynast við hvert fótmál. En hverjir voru þessir kappar?

Everest 1 05.05.2024

Í óbeinu framhaldi af þáttum fyrr á árinu um tilraun Englendingsins Mallorys til að komast á tind Everest-fjalls, þá verður fjallað í þessum þætti og þeim næstu um tilraun Ný-Sjálendingsins Hillarys og Sjerpans Tenzing Norgay til að komas á tindinn. Í þessum þætti verður sagt frá misheppnuðum leiðöngrum á fjallið og síðan þeim þátttakendum í nýjum leiðangri sem voru staðreráðnir í að komast á tind...

Kravténko og Jelena 2 28.04.2024

Áfram heldur Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko að segja frá ævi sinni í Sovétríkjunum á 4. ára síðustu aldar. Járngreipar Stalíns herðast æ meira um samfélagið og ást Kravténkos á stúlkunni Jelenu verður meðal fórnarlambanna. En hver var Jelena, hvað vakti henni og hver urðu örlög hennar?

Kravténko og Jelena 1 21.04.2024

Hér víkur sögu eins og stundum áður til Úkraínumannsins Viktors Kravténkos og sjálfsævisögu hans, Ég kaus frelsið. Þegar þarna er komið sögu á 4. áratug 20. aldar er Kravténko óðum að komast í röð hinnar kommúnísku yfirstéttar í Sovétríkjunum, en honum er þó ekki að öllu leyti rótt. Þegar hann kynnist konu að nafni Jelana renna enn á hann nokkrar grímur.

Undir fönn 14.04.2024

Fyrir nokkrum mánuðum var í Frjálsum höndum fjallað um hinn svonefnda Jósef Axfirðing sem bjó um tíma í Ameríku en endaði austur á fjörðum, nánar tiltekið í Norðfirði. Þar hafði hann ráðskonu til áratuga sem Ragnhildur Jónsdóttir hét og fyrir 60 árum skrifaði Jónas Árnason rithöfundur bók með samtölum við hana, þar sem hún segir ekki síst frá sambúð sinni við dýr og náttúru. Bókin nefnist Undir fö...

Fréttir 1874, 2 07.04.2024

Hvað var í erlendum fréttum þá daga þegar Íslendingar voru að undirbúa þjóðhátíð sína fyrir 150 árum, eða 1874? Jú - meðal annars var sagt frá afar viðhafnarmikilli heimsókn þessa skeggprúða karls til Frakklands, en þetta er enginn annar en Mozaffar ad-Din, sjálfur konungur konunganna í Persíu. Ég les um heimsókn hans í þættinum í kvöld og einnig fleiri erlendar fréttir, þar á meðal um uppreisn fr...

Ascultă podcastul Frjálsar hendur în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice