Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Flugvarpið

News IS ↓ Episoade: 176

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: soundcloud.com

Autor

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Categorie

News

Site-ul podcastului

soundcloud.com

Cel mai nou episod

4 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#101 – Spá hagnaði í ár eftir tap á "24 – LIVE frá MidAtlantic í höllinni – Bogi Nils Bogason 31.01.2025

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjör félagsins fyrir árið 2024. Icelandair tapaði um 2,5 milljörðum króna á síðasta ári sem í takti við spá stjórnenda félagsins. Tekjur félagsins jukust um 10 af hundraði í fjórða ársfjórðungi og afkoman batnaði töluvert miðað við sama ársfjórðung 2023. Félagið spáir hagnaði á árinu 2025 uppá 5-8 milljarða króna, sem er þó töluver...

#100 – Hæðir og lægðir í fluginu - spjall við formann FÍA í tilefni dagsins – Jón Þór Þorvaldsson 26.01.2025

Rætt er við Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra og formann í Félagi íslenskara atvinnuflugmanna í tilefni af þætti númer 100. Farið er vítt og breitt yfir sviðið og meðal annnars spjallað um stéttarfélagið, kjarasamninga framundan, Reykjavíkurflugvöll, pólitík og almennt um hæðir og lægðir í flugiðnaðinum. Jón Þór var nýtekinn við embætti formanns þegar ósköpin dundu yfir flugheiminn vegna kóvid farald...

#99 – Ný mið á nýjum flugvélum og framtíðin björt – ótækt ástand í RKV – Guðmundur Tómas Sigurðsson 15.01.2025

Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson nýráðinn flugrekstrarstjóra Icelandair um ýmsar stórar áskoranir framundan í rekstrinum. Endurnýjun flugflota félagsins er hafin og nú þarf að ákveða hvort áfram eigi að reka breiðþotur eða eingöngu mjóþotur í framtíðarleiðarkerfi Icelandair. Guðmundur Tómas fer yfir óásættanlega stöðu á Reykjavíkurflugvelli og útskýrir hvers vegna hindranir í útreiknuðum flugf...

#98 – 2024 gert upp og spáð í 2025 – Örnólfur Jónsson og Matthías Sveinbjörnsson 03.01.2025

Í þessum áramótaþætti er farið yfir helstu fréttir úr fluginu á árinu 2024 og spáð í spilin fyrir 2025. Rætt er við tvo sérfræðinga í flugmálum; þá Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands sem jafnframt er verkfræðingur og fyrrum forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair og Örnólf Jónsson flugstjóra og stjórnarmann í FÍA sem er líka hagfræðimenntaður og löggiltur endurskoðandi. Far...

#97 – Ekki í baksýnisspeglinum – yfirflugstjóri PLAY - stéttarfélagið ÍFF – Jóhann Óskar Borgþórsson 23.12.2024

Rætt er við Jóhann Óskar Borgþórsson flugstjóra hjá Play og fyrrverandi yfirflugstjóra félagsins, um hans merkilegan feril, starfið og breytingar framundan hjá Play. Eftir meira en áratug sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair tók Jóhann Óskar stökkið árið 2017, sagði upp störfum og réð sig sem flugstjóra til Wow sem fór síðan í gjaldþrot tæpum tveimur árum síðar. Eftir það tók við ævintýri á...

#96 – Nýir tímar – Airbus í stað Boeing 757 hjá Icelandair – Kári Kárason 05.12.2024

Rætt er við Kára Kárason flugstjóra og „fleet chief“ á Airbus hjá Icelandair um nýju flugvélategundina. Fyrsta Airbus flugvélin í flota félagsins er nýkomin til landsins og von er á þremur til viðbótar fyrir vertíðina næsta sumar. Kári segir hér frá innleiðingarferlinu, þjálfunarmálum og ræðir um muninn á því að fljúga eldri Boeing flugvélum og hinni nýju Airbus.

#95 - Kosningafundur Flugmálafélags Íslands 2024 – samantekt 26.11.2024

Þáttur #95 er samantekt Flugvarpsins frá kosningafundi Flugmálafélags Íslands um flugmál sem haldinn var 19. nóvember 2024. Þar var fulltrúum frá framboðum til Alþingiskosninga boðið að mæta og skýra frá stefnu og áherslum sínum í flugmálum. Auk almennra stefnumiða í flugmálum voru framboðin spurð um menntamál flugsins, Reykjavíkurflugvöll og framtíð hans og rekstrarform ISAVIA svo eitthvað sé nef...

#94 – Sykursýkin og baráttan fyrir að fljúga – Þristavinir, Norlandair o.fl.– Tómas Dagur Helgason 18.11.2024

Tómas Dagur Helgason segir hér frá fjölbreyttum ferli í fluginu. Það varð honum mikið áfall að missa heilbrigðisvottorðið og þar með flugréttindin vegna sykursýki fyrir um áratug síðan, en hann hefur æ síðan barist ötullega fyrir því að fá reglum breytt í Evrópu í þá átt að heimila sykursjúkum að fljúga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hann hefur haldið ótrauður áfram í fluginu og flýgur í dag ei...

#93 – Lakari afkoma Iceair en bjartara framundan – Bogi Nils Bogason 23.10.2024

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um uppgjör félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2024. Tekjur félagsins dragast verulega saman og hagnaðurinn var tæpum tveimur milljörðum króna lakari miðað við sama tíma í fyrra eða 9,5 milljarðar. Bogi ræðir hér um síkvikar breytingar á samkeppnisumhverfinu í Keflavík, betri árangur í frakflutningum og góða afkomu af leiguflugi á vegum Loftlei...

#92 – Til taks - Þyrlusaga LHG – fyrstu 40 árin – Benóný, Júlíus og Páll. 16.10.2024

Rætt er við þá Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Pál Halldórsson en þeir eru höfundar nýrrar bókar sem heitir Til taks – þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands – fyrstu 40 árin. Í þættinum er farið yfir aðdraganda þess að þeir réðust saman í þessi skrif og stiklað á nokkrum þáttum úr efni bókarinnar.

#91 – Flugöryggismálin og RFSS – BIRK og Hvassahraunið - Jón Hörður Jónsson og Matthías Arngrímsson 06.10.2024

Flugöryggismál eru viðfangsefni þessa þáttar. Rætt er við þá Jón Hörð Jónsson formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Matthías Arngrímsson skólastjóra Geirfugls og nefndarmann í ÖFÍA um ýmislegt sem hæst ber í flugöryggismálum um þessar mundir. Tilefnið er árleg flugöryggisráðstefna – Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin verður 10. október n.k. og í þættinum er tæpt á h...

#90 – Enn þrengt að Reykjavíkurflugvelli – bara hnignun og engar lausnir – Sigrún Björk Jakobsdóttir 28.09.2024

Sigrún Björk Jakobsdóttir er framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá ISAVIA og ræðir í þessum þætti um þau fjölmörgu verkefni sem hún er að fást við. Um innanlandsflugvellina á Íslandi fara um 700 þúsund farþegar á ári og þrátt fyrir smæðina er kerfið afar mikilvægt fyrir alla landsmenn, en um leið brothætt að sögn Sigrúnar. Hún gagnrýnir hvernig stöðugt er þrengt að Reykjavíkurflugvelli og skilu...

#89 – Umsvif Air Atlanta aldrei meiri - 17 breiðþotur um allan heim – Baldvin Már Hermannsson 14.09.2024

Rætt er við Baldvin Má Hermannsson forstjóra Air Atlanta um starfsemi fyrirtækisins og hvernig það hefur vaxið og dafnað á allra síðustu árum. Flugfélagið var eitt fárra sem var á fullu í covid faraldrinum og á undraskömmum tíma tókst að auka vægi fraktflugs mjög hratt þegar botninn datt úr farþegafluginu. Atlanta er í dag með 11 Boeing 747 breiðþotur í fraktflutningum um allan heim og að auki 6 B...

#88 - Stórframkvæmdir ISAVIA í KEF og farþegum fjölgar – Sveinbjörn Indriðason 05.09.2024

Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA en fyrirtækið er í lykilhlutverki í flugmálum landsins með rekstri og uppbyggingu á innviðum fyrir flugið. Sveinbjörn fer yfir reksturinn á Keflavíkurflugvelli, áskoranir með auknum fjölda farþega, einkum tengifarþega, stórframkvæmdir og vöxtinn framundan þrátt fyrir að ferðamönnum til Íslands fjölgi minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sala á fríhö...

#87 – Íslenska flugævintýrið er enn í dag – Flugþjóðin – Kristján Már Unnarsson 28.08.2024

Rætt er við Kristján Má Unnarsson frétta- og dagskrárgerðarmann um nýja sjónvarpsþáttaröð sem hann hefur umsjón með og er að hefja göngu sína á Stöð 2 í september. Þættirnir heita Flugþjóðin og þar fá áhorfendur innsýn í þessa stóru atvinnugrein okkar Íslendinga í dag bæði hérlendis og ekki síður útrás íslenska fluggeirans á erlendri grundu. Kristján er sjálfur lærður einkaflugmaður og segir hér f...

#86 - Risaflugfélagið RiyadhAir í bígerð – flugmannslíf í miðausturlöndum – Hannes Ingi Guðmundsson 08.08.2024

Hannes Ingi Guðmundsson þjálfunarflugstjóri RiyadhAir segir hér frá atriðum á merkilegum ferli sínum og þáttöku í því stóra verkefni við að koma rekstri RiyadhAir af stað á næstu mánuðum. Áætlanir félagsins eru að stækka mjög hratt á allra næstu árum og hefur félagið nú þegar yfir 70 B787 Dreamliner flugvélar í pöntun frá Boeing verksmiðjunum. Hannes Ingi gefur hlustendum innsýn í líf flugmannsins...

#85 - TERN systems - þróa gervigreind við stjórn flugumferðar - Magnús Már Þórðarson 03.08.2024

Rætt er við Magnús Má Þórðarson framkvæmdastjóra hjá Tern systems sem sérhæfir sig í að hanna og framleiða hugbúnað fyrir stjórnun flugumferðar. Fyrirtækið hyggst nýta tækifæri í tæknibyltingu með gervigreind og hlaut nýverið 95 milljóna króna styrk úr rannsóknar- og nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins SESAR til að þróa gervigreindarlausn sem ætlað er að auka flugöryggi. Magnús Már segir hér frá þes...

#84 – Nýr Flugskóli Íslands – vilja efla flugnám og fá því sess í menntakerfinu – Sölvi Þórðarson 27.07.2024

Rætt er við Sölva Þórðarson skólastjóra og einn af eigendum Flugskóla Íslands sem auglýsir nú atvinnuflugnám í samstarfi við Sevenair flugskólann í Portúgal. Sölvi hefur ásamt fleirum rekið skóla undir nafninu Icelandic Aviation Training í nokkur ár þar sem fókusinn hefur aðallega verið að þjónusta flugrekendur bæði hér heima og erlendis með tegundaráritanir og síþjálfun flugáhafna. Nú hefur skóli...

#83 – Airbus innleiðing Icelandair – flughermir staðfestur – Guðmundur Tómas Sigurðsson 26.06.2024

Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson ábyrgðarmann þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair um innleiðingu á Airbus flota hjá félaginu. Fyrsta Airbus vélin er áætluð í nóvember og þjálfa þarf 70-80 flugmenn strax næsta vetur fyrir þær 4 flugvélar sem áætlað er að taka í rekstur fyrir sumarið 2025. Nú hefur verið skrifað undir kaup á nýjum Airbus flughermi sem tekinn verður í notkun á næsta ári, en það t...

#82 – „Eins og sjálf náttúran fyndi til“ – mannskæðu slysin á DC-3 – Þristurinn 80 ára – 3. hluti 05.06.2024

Hér fer þriðji hluti í samantekt Flugvarpsins um DC-3 flugvélar á Íslandi í tilefni af 80 ára afmæli fyrstu DC-3 flugvélar Íslendinga. Rifjuð eru upp þrjú mannskæð flugslys sem urðu á þessari tegund flugvélar hérlendis. Tvö þeirra þar sem sérstaklega djúpt skarð var höggvið í íbúafjölda landsins á sínum tíma því þar var um að ræða tvö af mannskæðustu flugslysum sem orðið hafa hér á landi. Hið fyrr...

# 81 – Spennið beltin! Heiðkvika og ókyrrð, flugveðrið og spárnar – Einar Sveinbjörnsson 29.05.2024

Rætt er við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um ókyrrð í flugi eins og heiðkviku (clear air turbulence), sem nýleg dæmi sýna að geta valdið stórslysum um borð í flugvélum. Hvar og hvernig myndast heiðkvikan og hvað veldur því hversu mikil hún verður? Eru varasamar aðstæður og öfgar í veðrinu að aukast með breyttu veðurfari og hitastigi? Einar reynir að svara þessum spurningum og fleirum, en hann...

#80 - Útskrifuð úr háskóla háloftanna – flugfreyja í 40 ár – Guðrún Gunnarsdóttir 22.05.2024

Rætt er við Guðrúnu Gunnarsdóttur flugfreyju til 40 ára um ferilinn og starfið. Guðrún ætlaði eins og margir aðrir rétt að prófa flugfreyjustarfið en ílentist í rúm 40 ár. Hún rifjar hér upp ýmis áhugaverð atvik á löngum ferli, allt frá stórkostlegum ferðum til Suðurskautslandsins og til óþægilegra og erfiðra flugferða í vondum veðrum. Guðrún myndi hiklaust velja sama framtíðarstarfið aftur enda h...

#79 – Stýrði varðskipum, flugvélum, þyrlum og breiðþotum – Bogi Agnarsson 09.05.2024

Bogi Agnarsson flugstjóri segir hér frá atriðum á stórmerkum ferli sínum fyrst hjá Landhelgisgæslu Íslands og síðar hjá Air Atlanta á B747 jumbó. Bogi rifjar hér m.a. upp fræknar björgunarferðir við erfiðar aðstæður á gömlu Dauphin þyrlu gæslunnar TF-SIF og hvernig flugreksturinn tók gríðarlegum stakkaskiptum á níunda áratugnum með tilkomu nýrra tækja, betri verkferla og aukinni þjálfun. Bogi söðl...

#78 – Vöxtur Norlandair – Grænlandsflug, sjúkraflug o.fl. - Friðrik Adolfsson 03.05.2024

Rætt er við Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóra og einn af eigendum Norlandair á Akureyri, en hann lætur senn af störfum eftir 50 ár í fluginu. Hann skilar öflugu búi því Norlandair hefur vaxið stöðugt og rekstur félagsins gengur vel. Meginstoðirnar í rekstrinum eru Grænlandsflug, áætlunarflug á smærri staði innanlands og nú síðast sjúkraflugið, sem félagið tók yfir um síðustu áramót. Friðrik segis...

# 77 – Landgræðsluflugið á DC-3 – Þristurinn 80 ára – 2. hluti – Sveinn Runólfsson 26.04.2024

Annar hluti í samantekt Flugvarpsins um DC-3 í tilefni af 80 ára afmæli Þristsins. Rætt er við Svein Runólfsson fyrrverandi Landgræðslustjóra um Landgræðsluflugið á DC-3 sem stóð yfir í rúm 30 ár og breytti ásýnd landsins mjög víða til hins betra, enda einn öflugasti áburðardreifari sem notaður hefur verið. Sveinn hefur yfirgripsmikla þekkingu á starfsemi Landgræðslunnar og þekkir einnig vel einst...

Ascultă podcastul Flugvarpið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice