Einar Bárðarson
Einmitt / Menn eins og við
Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: einmitt.libsyn.com
Autor
Einar Bárðarson
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
25 sept. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
71. Una Torfa "Þetta er sagan mín til dagsins í dag" 04.05.2024 1:01:49
Una Torfadóttir tónlistarkona er gestur minn í þessum þætti. Ég er vandræðalega mikill aðdáandi hennar og platan hennar nýja er alveg yndisleg á að hlusta. Ég fékk Unu í heimsókn og við ræddum tónlistina, sköpunina og lífið sem hefur hún búið til í kringum listina.
70. Bergur Vilhjálmsson "Baráttan við hausinn" 01.05.2024 1:01:24
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og kafari gekk á dögunum 100 km frá Akranesi til Reykjavíkur með rúmlega tvö hundruð kílóa byrði á eftir sér. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum og til að vekja athygli á starfsemi þeirra. Gangan reyndi gríðarlega á Berg en hann kláraði verkefnið. Í þættinum fer hann yfir aðdragandann og hvað gekk á í hausnum á honum...
69 Hver er Halla Hrund? 25.04.2024 1:12:48
Halla Hrund Logadóttir er hástökkvarinn viku eftir viku í kapphlaupi frambjóðenda til forseta Íslands. Fyrir nokkrum vikum vissi afar fáir hver Halla er en nú keppist þjóðin við að kynna sér hana og ekki seinna vænna því það styttist í kosningar. Hver er þessi kona og hvaðan kemur hún og hvað ætlar hún sér að gera ef hún nær kjöri til embættis Forseta Íslands?
68. Tommi Knúts "29 ár í rusli" 08.04.2024 1:38:19
Tómas J. Knútsson, maðurinn á bak við Bláa herinn, hefur starfað við hreinsun umhverfisins síðustu 29 ár. Hann hefur lengi verið mér og öðrum innblástur í umhverfissmálum. Hann fékk fálkaorðu forseta Íslands fyrir þau störf en er ennþá á fullu. Núna þegar styttist í Stóra plokkdaginn fannst mér tilvalið að fá hann til mín til að ræða þetta magnaða áhugamál okkar félaganna, rusl.
67 Siggi Arnars "Tik Tok ætlar að taka yfir tónlistarheiminn" 08.04.2024 1:28:23
Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri OverTune sem setti allt á hliðina í byrjun árs eftir að hafa endurlífgað Hemma Gunn við í Áramótaskaupinu. Hann fullyrðir að Tik Tok ætli sér að taka yfir tónlistarheiminn en Tik Tok stendur núna í deilum við Universal, stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum. Við Siggi ræðum tæknina og framtíðina í þessum magnaða þætti.
66.Hera Björk "Hjartað stækkar og heimurinn minnkar" 26.03.2024 1:20:42
Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands
65.Júlí Heiðar "Eineltið eflir mann" 26.03.2024 1:08:00
Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður og lagahöfundur var að gefa út nýja plötu. Eitt af lögunum á henni, Farfuglar, vakti athygli mína núna í vetur þegar það kom út. Þar er Júlí Heiðar að syngja um tilfinningarnar og flækjurnar sem fylgja sameiginlegu forræði og umgengnisrétt samið og sungið þannig að það lætur fá sem hlusta ósnerta. Við ræðum plötuna, ferlið að verða að manni og það sem skiptir...
64. Siggi Jóhannes "Lífið er leit að lækningu" 11.03.2024 1:30:34
Gestur minn í þessum þætti er Sigurður Hólmar Jóhannesson eða pabbi hennar Sunnu Valdísar. Sunna greindist með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm aðeins 14 mánaða gömul og þá gáfu læknar henni ekki mikið meira en sex ár til viðbótar. Siggi, Ragnheiður Hjaltadóttir kona hans, læknar Sunnu og velunnarar fjölskyldunnar hafa sýnt mikla þrautseigju og eljusemi í því að leita að lækningu og bættum l...
63. Herbert Guðmundsson "Can't walk away" 04.03.2024 1:07:26
Herbert Guðmundsson er gesturinn minn í þessum þætti. Ég hef alla tíð verið aðdáandi Hebba, allt frá því ég heyrði Can't Walk Away í fyrsta sinn árið 1985. Stórkostlegt lag í alla staði sem hefur fylgt honum sem sól í gegnum allt sem að á hann hefur dunið. Seinna eftir að ég kynntist honum sjálfum þá held ég áfram að vera aðdáandi hans fyrir þrautseigjuna. Hann stendur upp og heldur áfram, sama hv...
62 Magga Jónasar: Kommentakerfið fór á hliðina 22.02.2024 1:13:22
Gestur minn í þessum þætti er Magga Jónasar förðunarfræðingur og heilsumarkþjálfi. Við ræðum um heilsuna, orkuna og hvernig við höldum réttum kúrs í ólgusjó samfélagsmiðla, auglýsinga, rétttrúnaðar, öfga og hvernig við nálgumst fáum í sinni einföldustu mynd. Hvernig skríður kona upp úr margföldu burn-outi og stendur á haus á hverjum morgni af því að það er gott fyrir hvatberana. Já minna má það nú...
61 Logi Pedro: Eru Íslendingar rasistar? 22.02.2024 1:02:47
Logi Pedro er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Hann er frábær tónlistarmaður og sýndi það með hljómsveitinni sinni Retro Stefson, svo undir eigin nafni og á bak við tjöldin sem upptökustjóri margra flottustu listamanna sinnar kynslóðar. Við Logi tölum um tónlistina í öllu því samhengi sem okkur dettur í hug en við ræðum líka hvernig er að vera svartur strákur, erum við Íslendingar rasist...
60 Friðrik Dór "Aldrei of flottur til að hafa ekki gaman af þessu" 14.02.2024 1:12:36
Friðrik Dór Jónsson einn afkastamesti tónlistarmaður landsins er gestur minn í þessum þætti. Hann var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur sem kom út fyrir tveimur árum. Við ræðum hvernig hann semur tónlistina og hvaðan hann sælir innblástur í textana. Heiðarlegt og skemmtilegt samtal við Friðrik Dór um tónlistina.
59. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir "Sá hvítan mann í fyrsta sinn þegar ég var 4 ára" 05.02.2024 59:42
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk...
58 Bryndís Gunnlaugs "Fimm gríðarleg áföll á nokkrum vikum" 20.01.2024 58:39
Gestur minn í þessum þætti er Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og Grindvíkingur. Hún er fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík og starfaði lengi sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í dag starfar hún sem lögfræðingur hjá KPMG með áherslu á opinbera stjórnsýslu. Hún tók til máls á íbúafundi með ráðamönnum á þriðjudag eftir gos og vakti þar mikla athygli.
57. Gaupi "Hann var einstakur handboltamaður" 15.01.2024 1:10:41
Guðjón "Gaupi" Guðmundsson er einn reyndasti íþróttafréttamaðurinn þjóðarinnar. Áður var hann einnig þekktur sem liðsstjóri og aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk hjá Víkingi og landsliði Íslands í handknattleik. Núna er sonur Gaupa, Snorri Steinn þjálfari karlalandsliðs okkar í handbolta og kominn til Þýskalands á EM í handbolta. Þar situr Snorri með væntingar þjóðarinnar í fanginu og spennan er í h...
56. Sveppi "Kúka með opna hurð svo ég missi ekki af neinu" 11.01.2024 1:08:26
Sverrir Þór Sverrisson hefur á síðustu árum breyst úr hreinræktuðum sprelligosa sem þjóðin elskaði að horfa á blanda ógeðsdrykki og hlaupa allsber niður niður Laugaveginn í einn ástsælasta leikarann okkar. Hann er jafnvígur á útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og leiksviðið og í þessum þætti ræðum við Sveppi um þetta ferðalag og nýjustu verkefnin hans Veisluna, Kennarastofuna, Áramótaskaupi og And Björk...
55. Manúela Ósk "Mikilvægt að fólk þekki einkennin" 11.01.2024 1:34:58
Manúela Ósk Harðardóttir athafnakona er gestur minn í þessum þætti. Í desember 2023 hné hún niður í heimsókn frá frænku sinni og var keyrð með hraði á Bráðamóttökuna með heilablóðfall. Manúela hefur ekki talað mikið um þetta áfall en í þessum þætti lýsir hún hvernig endurhæfingin hefur gengið bæði andlega og líkamlega og hvað það er mikilvægt að þekka einkenni fyrirboða heilablóðsfalls.
53 Villi Árna "Samfélag í fullkomri óvissu" 27.12.2023 1:19:33
Vilhjálmur Árnason er gestur minn í þessum þætti. Hann er þingmaður en fyrst og síðast er hann Grindvíkingur og er í sömu sporum og þeir allir um þessar mundir en Grindvíkingar lifa við mikla óvissu vegna jarðhræringana á Reykjanesskaga. Ég ræði við Villa um hvernig þetta kemur við hann sem íbúa, pabba, eiginmann og þingmann. Þá ræðum við einnig orku- og öryggismál út frá þessari stöðu en Villi er...
54. Hrefna Bachmann "Grét bara fyrstu ferðina" 27.12.2023 1:40:26
Hrefna er ævintýrakona í víðasta samhengi. Hún og maðurinn hennar Ólafur Vilhjálmsson hafa búið og starfað í fleiri löndum en flestir landsmenn hafa heimsótt og ekki bara það heldur eru heimsálfurnar sem þau hafa unnið í að minnsta kosti fimm; Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka, Asía og Afríka. Þau sóttu nám til Bandaríkjanna bæði í Florída og seinna í Arizona. Magnaðasta verkefni þeirra er þó...
52. Króli „Dalirnir breytast ekki þó maður þekki þá betur" 28.11.2023 1:17:51
Kristinn Óli Haraldsson, Króli, er gestur minn í þætti 52. Fjölhæfur ungur listamaður sem hefur notið mikillar velgengni og lýðhylli allt frá árinu 2017 þegar hann og Jói P stukku fram á sjónarsviðið með laginu "BOBA" en hann hefur ekki fundið vellíðan í velgengninni. Hann glímir við kvíða og þunglyndi sem hann hefur náð að lifa með en ekki kannski alveg náð að hemja. Hann talar af miklu hispursle...
51. Bjarni Karlsson: "Hvers vegna erum við grimm?" 19.11.2023 1:19:19
Bjarni Karlsson er gestur minn í þessum þætti en hann er nýbúinn að senda frá sér bókina " Bati frá tilgangsleysi". Þar eins og í samtalinu okkar leitast hann við að svara spurningunni: Hvers vegna erum við grimm og heimsk? Samtalið okkar fer um víðan völl siðfræðinnar og guðfræðinnar og þar fléttast saman veraldleg og trúarleg hugsun um það sem skiptir máli í dag, að taka ábyrgð gagnvart umhverfi...
50. Magni: "Tommy Lee að reyna við Ragnhildi Steinunni" 12.11.2023 1:17:04
Magni „okkar" Ásgeirsson er gestur minn í þessum þætti. Við höfum verið vinir til áratuga núna og mig langaði að ræða við hann um Rockstar Supernova tímabilið og samvistirnar við Tommy Lee og félaga í Los Angeles. Síðan ræðum við auðvitað bransann frá öllum hliðum og álagið sem því fylgir að vera í 10 starfandi hljómsveitum og rauða flaggið sem hann fékk í ágúst þegar hann var keyrður með bláu ljó...
49. Sigríður Hrund „Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar" 12.11.2023 1:13:26
Sigríður Hrund Pétursdóttir, eigandi Vinnupalla ehf. og fyrrverandi formaður Félags kvenna í atvinnulífinu er gestur minn í þessum þætti. Hún talar ljós, eins og hún kallar það, dreifir mildi og náð sem hún hefur tamið sér eftir margra ára sjálfsvinnu því lífið er ekki alltaf dans á rósum. Hún fékk fæðingarþunglyndi í þrígang og segir það heppni. Hvernig má það vera og hvernig vinnur maður sig inn...
48. Baldur Rafn "Metró maðurinn er orðinn miðaldra" 29.10.2023 1:32:52
Baldur Rafn Gylfason hárgeiðslumeistari og eigandi Bpro heildsölunnar. Baldur var einn þeirra sem lagði grunn af innreið "Metró mannsins" til Íslands upp úr aldamótum. Metró maðurinn leyfði sér meira en bara ljósabekki og strípur til að hressa upp á útlitið. Metró maðurinn notaði líka snyrtivörur, krem og hárvörur sem ekki var algengt á þeim tíma. Nú er Metró maðurinn orðinn miðaldra og nú er hann...
47 Gabríel Ólafs "frægasti tónlistarmaður á Íslandi sem enginn veit hver er" 22.10.2023 1:06:32
Gestur minn í þessum þætti er Gabríel Ólafsson, tuttugu og fjögurra ára gamall tónlistarmaður og tónskáld. Hann hefur á örstuttum tíma náð fádæma árangri í útgáfu og ekki bara það því hann rekur hljóðver á Íslandi þar sem Apple TV+, BBC og Netflix sækja þjónustu hans. Ofan á það er hann á samningi við Decca Records, sem er í eigu útgáfurisans Universal Music Group og verkin hans eru spilu...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice