Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.spreaker.com

Cel mai nou episod

8 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#375 Þórður Gunnarsson - Vinstristjórn myndi auka hægrisveifluna 09.12.2024

Þórður Gunnarsson er hlustendum kunnugur, hagfræðingur sem hefur marga hatta. Að þessu sinni er rætt um niðurstöður kosninga, orkumál, vinstrið, borgarlínu og margt fleira. - Er loftslagsiðnaðurinn innihaldslaus kjaftaklúbbur? - Mun Dagur B. taka við Samfylkingunni? - Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus...

#374 Björgvin Ingi Ólafsson - Ráðleggingar til næstu ríkisstjórnar 07.12.2024

Björgvin Ingi Ólafsson er meðeigandi hjá Deloitte á Íslandi og sinnir hinum ýmsum verkefnum sem ráðgjafi hjá hinu opinbera og víðar. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við hann um úrslit kosninganna, ráð til næstu ríkisstjórnar, Willum Þór og árangur í heilbrigðiskerfinu, ESB, gervigreind, nýsköpun og skólakerfið.

#373 Þorsteinn V. Einarsson - Kosningahlaðvarp 29.11.2024

Þórarinn ræðir við Þorstein V. Einarsson, frumkvöðul á sviði kynjamála og hlaðvarpsstjórnandi. Fjallað er um hina ýmsu hluti er varðar kosningarnar en stór hliðarskref einnig tekin. Rætt er um Miðflokkinn, Vinstri Græna, hvaða flokkar geti talist femíniskir, og: Er kynjafræði vísindagrein? #MeToo Vísindaleg vinnubrögð Hvernig horfir búrkan við Þorsteini Rasismi Rétttrúnaður Woke Margt fleira. Njót...

#372 Víðir Reynisson (S) - Alþingiskosningar 2024 28.11.2024

Þórarinn ræðir við Víði Reynisson, oddvita Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi um: - Útlendingamál og landamærin - Ferðaþjónustuna  - Stjórnmálin og jafnaðarmennsku - ESB - Flugvöllinn í Reykjavík - Margt fleira. Njótið!

#371 Diljá Mist Einarsdóttir (D) - Alþingiskosningar 2024 27.11.2024

Diljá Mist Einarsdóttir mætir í settið til þess að ræða áherslur Sjálfstæðisflokksins. Fjallað er um jafnlaunavottun, sem að Diljá kallar "láglaunavottun", Viðreisn, Samfylkinguna, vinstrið, fjölmenningu, útlendingamál, efnahagsmál og margt fleira.

#370 Alma Möller - (S) Alþingiskosningar 2024 26.11.2024

- Hver er stefna Samfylkingarinnar í einkarekstri heilbrigðiskerfisins? - Er kerfið að fara að laga kerfið? - Hversu mikið fjármagn þarf heilbrigðiskerfið? Þessum spurningum og fjölmörgum fleirum er svarað í þessum þætti!

#369 Arnar Þór Jónsson (L) - Alþingiskosningar 2024 25.11.2024

- Eru allir flokkar á þingi spilltir? - Afhverju eru fjármunir sem varið er í loftslagsaðgerðir sóun? - Eru fjölmiðlar á móti Arnari Þór? Þessum spurningum er svarað í þessum þætti.

#368 Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (B) - Alþingiskosningar 2024 24.11.2024

- Gekk #MeToo of langt? - Skjátlast héraðsdómi um búvörulögin? - Er fiskeldi nauðsynleg forsenda fyrir blómlegt líf á Vestfjörðum? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum er svarað í þessu viðtali við frambjóðanda Framsóknar í Reykjavík Norður, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.

#367 Gunnar Smári Egilsson (J) - Alþingiskosningar 2024 23.11.2024

Þórarinn ræðir við Gunnar Smára, frambjóðanda Sósíalista í Reykjavík, um stjórnmálin á Íslandi, sósíalískt hagkerfi, innflytjendur, ESB, stríð og margt fleira.

#366 Finnur Ricart Andrason (V) - Alþingiskosningar 2024 22.11.2024

Þórarinn ræðir við Finn Ricart Andrason, oddvita Vinstri grænna í Reykjavík Norður. Finnur er ungur maður sem hefur verið áberandi í umræðum um loftslagsbreytingar og umhverfisvernd og telur hann að rödd náttúrunnar þurfi að heyrast á þingi. Í þættinum er fjallað um kvenfrelsismál, náttúrumál, orkumál, borgarlínu og margt fleira.

#365 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) - Alþingiskosningar 2024 19.11.2024

Þórarinn ræðir við formann Miðflokksins um áherslur flokksins í kosningunum. Fjallað er um Evrópusambandið, réttindi og skyldur, Íslan, rétttrúnaðinn, Þórð Snæs málið, innihald, umbúðir og slagorð.

#364 Guðlaugur Þór Þórðarson (D) - Alþingiskosningar 2024 18.11.2024

Hér er reynt að fá svör við eftirfarandi spurningum frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni: - Hvort eigum við að halla okkur nær Bandaríkjunum undir stjórn Trump eða Evrópusambandinu? - Hvað gerist ef vinstristjórn tekur við orkumálunum - Mun Gulli bjóða sig aftur fram í formann?

#363 Inga Sæland (F) - Alþingiskosningar 2024 16.11.2024

Hér er Inga Sæland, formaður flokks fólksins eftirfarandi spurninga: - Verður Inga sami einræðisherra í ríkisstjórn eins og hún er í flokknum? - Munu stefnumálin snúa að því að niðurgreiða allskonar fyrir aumingja? - Afhverju vill Inga að Vinstri grænir falli af þingi? Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling

#362 Gunnar Páll Tryggvason - Peningar, pólitík og skólarnir okkar 15.11.2024

Gunnar Páll Tryggvason er stofnandi og framkvæmdarstjóri Alfa framtak. Í þessum þætti er rætt um áhrif fjármagns á mismunandi svið samfélagsins. Fjallað er um dugnað, drifkraft, stjórnmálin, menningu, fjölmiðla og margt fleira.

#361 Lilja Alfreðsdóttir (B) - Alþingiskosningar 2024 14.11.2024

Hér er Lilja spurð eftirfarinna spurninga: - Afhverju hatar Lilja Alfreðsdóttir borgarlínuna? - Er Framsókn sá flokkur sem mun taka til í ríkisrekstrinum? - Yrði Framsókn ekki sama hækjan og í borginni ef þau færu í samstarf með Samfylkingunni? Njótið!

#360 Sanna Magdalena Mörtudóttir (J) - Alþingiskosningar 2024 13.11.2024

Sanna Magdalena er oddviti Sósíalista fyrir komandi kosningar. Er byltingin hafin? Hvar hefur sósíalismi virkað? Hvernig verða heilbrigðis- og húsnæðiskerfin undir sósíalistum? Þessum spurningum er svarað hér.

#359 Kristrún Frostadóttir (S) - Alþingiskosningar 2024 12.11.2024

Hverjar verða áherslur nýju Samfylkingarinar undir leiðsögn Kristrúnar? Þurfa ekki allir flokkar að vera með plan? Hvernig viðheldur Samfylkingin fluginu? Þessar spurningar og fleiri koma fram í nýjum þætti hlaðvarpsins Ein Pæling.

#358 Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir (D) - Alþingiskosningar 2024 10.11.2024

Voru vopnakaup Íslands til Úkraínu réttlætanleg? Fordæmir Þórdís þjóðarmorð á Gaza? Er hægt að halda úti velferðarkerfi samhliða opnum landamærum? Þessum spurningum svarar Þórdís Kolbrún, utanríkisráðherra, í þessum þætti.

#357 Svandís Svavarsdóttir (V) - Alþingiskosningar 2024 08.11.2024

Þórarinn ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri grænna, um stöðu flokksins, femínisma, útlendingamál og fleira.

#356 Brynjar Níelsson (D) - Alþingiskosningar 2024 06.11.2024

Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um stjórnmálin í dag, verkefni ríkisins, popúlisma, heimspeki og margt fleira.

#355 Hermann Nökkvi og Júlíus Viggó - Kosningar í USA 05.11.2024

Þórarinn ræðir við Hermann Nökkva, blaðamann á Morgunblaðinu, og Júlíus Viggó, formann Heimdallar, um kosningar í Bandaríkjunum.

#354 Jóhann Páll Jóhannsson (S) - Alþingiskosningar 2024 04.11.2024

Mun stefna Mette Fredriksen í Danmörku vera innleidd á Íslandi komist Samfylkingin í stjórn? Hver verður stefna Samfylkingarinnar í heilbrigðis- og efnahagsmálum? Þessu er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

#353 Lenya Rún Taha Karim (P) - Alþingiskosningar 2024 02.11.2024

Var #MeToo árangursrík herferð? Er stefna Pírata að banna bensín- og díselbíla árið 2025 raunhæft markmið? Hver verður stefna Pírata í málefnum þeirra sem að sækja um alþjóðlega vernd? Oddviti Pírata í Reykjavík svarar þessum spurningum og fjölmörgum öðrum er svarað í þessu hlaðvarpi. Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling

#352 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (C) - Alþingiskosningar 2024 31.10.2024

Þórarinn ræðir við Þorgerði Katrínu, formann Viðreisnar um stefnumál flokksins í útlendingamálum, efnahagsmálum, Evrópumálum og fleira. Til að styðja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling

#351 Sigurður Ingi Jóhannsson (B) - Alþingiskosningar 2024 28.10.2024

Sigurður Ingi mætir í settið til þess að fara yfir áherslur Framsóknar fyrir næstu kosningar. Rætt er um ríkisstjórnina, húsnæðismálin, útlendingamálin og margt fleira

Ascultă podcastul Ein Pæling în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice