Búbblur & Bjór
Búbblur & Bjór
Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: bubblurogbjor.podbean.com
Autor
Búbblur & Bjór
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
1 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Tækni 12.05.2024 52:55
Við leysum stóru málin í þessum þætti! Birkir segir okkur frá vankunnáttu sinni á email, hversu erfitt það er að finna forritið í tölvunni, er stríð á milli IOS og Android, veistu hvenær fyrsti rafmagnsbíllinn kom, hver varð óheppin/n varðandi deepfake, og hvað er deepfake? Daði er handviss um það að A.I. verða endalok mannkynsins, við förum yfir sturlaðar staðreyndir um tækniframþróun og lentum v...
Viðtal: Friðrik "Frigore" Thorlacius 05.05.2024 58:46
Friðrik Thorlacius eða Frigore eins og margir þekkja hann skaust á sjónarsviðið aðeins 18 ára gamall árið 2004 með hljómsveitinni sinni Igore, með stórsmellinn Kókómalt sem allir ættu að þekkja. Síðan þá hefur hann komið víða við á tónlistarferlinum með Plugg´d, KSF og Manic State sem dæmi, hann er einnig mjög virkur DJ í ýmsum verkefnum hér og þar um bæinn og landið, kemur meðal annars sterkur in...
Leikjaþættir 28.04.2024 57:56
Við þekkjum öll leikjaþætti eða „Game Shows“. En hvað með alla þessa rugluðu sem hafa verið teknir af dagskrá? Og af hverju voru þeir teknir af dagskrá? Við ætlum að fara yfir einhverja rugluðustu leikjaþætti sem hafa ratað á sjónvarpsskjáinn og komast til dæmis að því hvaða þáttur fékk bara 3 þætti sýnda í sjónvarpi áður en hann var tekinn af dagskrá! Svo fá Japanir sér hluta í þættinum en þeir e...
The 90´s 21.04.2024 1:02:33
Í þessum þætti dettum við í smá fortíðarþrá og tölum um níunda áratuginn, eða The 90´s. Geggjaður tími sem færði okkur allsskonar, eins og gosleikina þar sem við söfnuðum töppum af gosflöskum og unnum Coke, Sprite eða Fanta jójó fyrir vikið, gamli góði Mjólkurbikarinn, Stüssy fötin, smellubuxurnar, Buffalo skór, fílófax, tíkallasímar, ferðageislaspilari, Kraft kuldagallarnir, Trek fjallahjólin og...
eBay! 14.04.2024 48:09
Birkir talar um nýyfirstaðna ferð til New York og við ræðum hvar við vorum staddir þegar 9/11 gerðist. Hann segir okkur frá Ground Zero og minnisvörðunum. Við förum svo yfir furðulega hluti sem hafa selst á eBay og oftar en ekki á svakalegar upphæðir. Til dæmis gamlar tyggjóklessur frá frægum einstaklingum sem seldist á tugi milljóna króna, Paul sem setti fyrrverandi konuna sína á sölu á eBay og v...
Guinness World Records 07.04.2024 53:35
Í þessum þætti förum við yfir furðuleg og fáránleg heimsmet sem hafa ratað í heimsmetabók/skrá Guinness. Einnig fræðir Birkir okkur um af hverju þetta heitir Guinness og einhverra hluta vegna líka um meðalstærð typpa á Íslandi.... Við tölum t.d um heimsmetið í pöbbarölti, heimsmet í sniglum á andliti (maður gæti spurt af hverju en einhverjir eru athyglissjúkir), lengsta uppistand heims, lengsti ro...
Páskablaður 31.03.2024 48:13
Við tökum aðeins öðruvísi þátt núna þar sem við spjöllum um nýyfirstaðna rosalega Amsterdam ferð, við smökkum nokkra páskabjóra og páskaegg, Birkir les upp úr „Dagbók Daða“, við tölum um málefni líðandi stundar, Eurovision, Óskarsverðlaunin, peningarán, 10 ára gutta sem stal leigubíl og Birkir fær eina bestu hugmynd tengda íslensku páskaeggjunum, GAMECHANGER fyrir framtíðina! Gleðilega páska!
Dýr mistök 24.03.2024 49:57
Í þessum þætti förum við yfir allsskonar dýr mistök í heiminum, allt frá heimskulegum ákvörðunum til hreinnar óheppni! Dýr mistök í kvikmyndum? Hvað gerðist þegar kók ákvað að hressa upp á kókuppskriftina 1985? Hvað kostaði það umboðsmann að taka ekki að sér Bítlana? Hversu mikið töpuðu bókaútgefendur á því að trúa ekki á J.K Rowling? Þetta og mörg önnur mistök í þessum þætti!
Viðtal: Sverrir Bergmann 17.03.2024 1:06:46
Við fengum gamlan og góðan vin í spjall og förum við yfir ansi margt áhugavert! Við byrjum á því að hneysklast á og greina búbblufíkn Birkis. Við tölum um fyrstu þjóðhátíð Sverris og Birkis, þar sem Birkir var handjárnaður við stelpu í 24 klukkutíma og sú stelpa var ekki í lögreglunni. Sverrir talar um það þegar hann lenti á sama pókerborði í Vegas og stærsta idol-ið sitt og svo metur hann karaoke...
Verstu störfin í heiminum 10.03.2024 49:55
Í þessum þætti er nettur galsi í gangi þar sem við byrjuðum á búbblum og bjór töluvert áður en við mættum í upptökur. Við förum við yfir verstu störf í heiminum í gegnum tíðina, eða þorrann af þeim. Allt frá því að smakka mögulega eitraðan mat fyrir konungsfólk í það að senda börn niður í strompa, og allt þar í kring. Ruglum og bullum og förum í skemmtilegan leik sem er um leið barnalegur og fárán...
Darwin verðlaunin 03.03.2024 43:42
Charles Darwin var einhver klárasti gaur allra tíma....er okkur sagt allavega... Það er því tilvalið að skíra verðlaun sem tengjast því að deyja í ótrúlegri heimsku eftir þessum gáfaða manni. Í þessum þætti förum við yfir nokkur dauðsföll sem hlutu Darwin verðlaunin, eða The Darwin Awards eins og þau heita á ensku. Allt frá því að fara fram af risafossi sem þótti frábær óreynd hugmynd og að því að...
Viðtal: Þórhallur Þórhallsson 25.02.2024 1:17:28
Í þessum þætti fáum við hinn stórskemmtilega Þórhall Þórhallsson til okkar í viðtal. Við ræðum við hann um það þegar hann vann keppnina Fyndnasti maður Íslands árið 2007, þegar hann hitaði upp fyrir montrassinn Pablo Fransisco og hinn viðkunnanlega Jon Lajoie, hvernig hann dílar við “hecklers”, gamall karakter úr morgunþættinum Magasín á FM 957 er endurvakinn, Óskiljanlegi Bretinn og hann tekur hr...
Uppfinningar 18.02.2024 42:14
Í þessum þætti förum við yfir frábærar uppfinningar mannsins, ömurlegar uppfinningar mannsins og fáránlega fyndnar og jafnvel tilgangslausar uppfinningar mannsins. Til dæmis: Hjólastóll með pedölum, skautabarnaróla, barnabúr í glugga, dildo ruggustóllinn og hver var það sem fann upp helvítis pop up auglýsingar í tölvunni þinni! Við nafngreinum þann andskota!
Trúmál 11.02.2024 51:05
Í þessum þætti fáum við 2 gesti, Davíð sem kemur sem trúarsérfræðingur og Þröstur sem er ekta Íslendingur og trúir á álfa. Það er kominn safi í hópinn þar sem við erum að halda upp á afmælið hans Birkis þennan dag og vafasamar skoðanir koma í ljós. Birkir segir okkur frá draug sem ofsækir vinnustaðinn hans, Daði kallar Jodie Foster bölvaðan lygara, Þröstur trúir ekki á glimmer fullnægingu álfa, og...
Youtube 04.02.2024 49:19
Birkir sýnir okkur nýja hárgreiðslu (vídeó á instagram/facebook/youtube). Hann útskýrir einnig fyrir okkur hvað Panus er, við förum yfir um 3.000 persónuleg hate comments sem áttu eitt sameiginlegt, og í guðanna bænum, getur einhver útskýrt fyrir Birki muninn á BTS og BDSM! Já, fyrirbærið youtube fær líka einhverja umfjöllun í þættinum!
Tónlistarsmekkur 28.01.2024 50:33
Í þessum þætti förum við yfir tónlistarsmekk hvors annars, og dæmum, sumir meira en aðrir, það er óhætt að segja að Birkir er stórhneykslaður á því sem stendur upp úr hjá Daða í tónlistinni. Við hringjum í mesta Metallica aðdáanda Íslands og gerum hann þokkalega pirraðan. Birkir kastar svakalegum upplýsingum út í kosmósinn sem þarf að skoða og ræða frekar í náinni framtíð og hver er kallaður Bono...
Viðtal: Garðar "Kilo" Eyfjörð 21.01.2024 1:20:13
Við fengum hinn ótrúlega skemmtilega Garðar eða Kilo til okkar í viðtal. Hann er ekki bara skemmtilegur, fyndinn og frábær rappari, heldur líka með skemmtilegri sögumönnum sem finnast. Hann fer yfir æskuna, neysluna, hjartaáfallið, vandræðalegasta atvikið og margt fleira í þessum stórskemmtilega þætti.
Samsæriskenningar 14.01.2024 35:14
Er jörðin flöt? Er Lee Harvey Oswald saklaus? Hvað gerðist 9/11? Settu á þig álhattinn með Birki og Daða og kafaðu aðeins með þeim niður í nokkrar samsæriskenningar.
Lýtaaðgerðir 07.01.2024 47:24
Í þessum þætti fjalla Birkir og Daði um lýtaaðgerðir, einhverjir þurfa ekki endilega á þeim að halda, aðrir þurfa kannski smá á þeim að halda, og sumir fara hreinlega overboard í þeim. Hér er ekki verið að dæma neinn, einkunnarorð þessar þáttar eru "You do you if it makes you happy". Skál!
Fóbíur 01.01.2024 1:00:10
Í þessum fyrsta Búbblur & Bjór þætti fjöllum við um allsskonar fóbíur sem sálir heimsins þurfa að díla við, sumar skiljanlegar, aðrar stórfurðulegar! Ert þú með fóbíu? Skál!
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice