Búbblur & Bjór
Búbblur & Bjór
Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: bubblurogbjor.podbean.com
Autor
Búbblur & Bjór
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
1 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Gervivísindi 10.05.2026 1:01:33
Ripp, Rapp og Rupp eru mættir til leiks í þessum þætti til þess að ræða Pseudoscience, eða öðru nafni gervivísindi, það er nóg til af þeirri vitleysu, eins og blessuðu ímyndunarveiku miðlarnir sem lesa í spil og bolla, og auðvitað höfuðbeinaspjaldhryggjajöfnunin, hvur andskotinn er það???
Tuðbræður 03.05.2026 43:21
Tuðbræður, tuðmenn, Birkir og Davíð eru mættir í þennan þátt þar sem Birkir fer yfir nýliðna ferð til London á Prodigy tónleika, svo fara þeir yfir það sem hefur verið að gerast í heiminum undanfarið, eins og morðtilræði enn eina ferðina á Donald Trump, hvaða tíska/samsæriskenning er það?
The 27 Club 26.04.2026 42:18
Birkir, Daði og Þröstur eru mættir til þess að ræða einn alræmdasta klúbb heims, þessi klúbbur er með langdýrasta aðgöngumiðann, The 27 Club! Þeir ræða pælingar og samsæriskenningar varðandi þennan klúbb, hverjir eru í honum og hvernig þau dóu, einn er alveg á því að Kurt Cobain hafi verið myrtur, hinir eru ekki eins vissir, en þátturinn byrjar á því að Daði gerir Birki bálreiðan með einhverju tón...
The Simpsons 19.04.2026 1:00:24
Í tilefni þess að í dag er hinn alþjóðlegi Simpsons dagur (19 apríl), þá ætla Birkir og Davíð að fara saman yfir þessa þætti sem hafa verið í miklu uppáhaldi hjá þeim í gegnum áratugina. Þeir renna yfir bestu þættina að þeirra mati, hvaða karakter þeim finnst bestur, hvaða karakterar hafa dáið í þáttunum, skoða Íslandstengingar og skoða svo hvort þátturinn sem Michael Jackson kom fram í hafi verið...
Ketchup! 12.04.2026 31:27
Birkir, Daði og Þröstur er mættir saman til þess að tala um tómatsósur.....neeeeiiii, þessi þáttur fer út um allt þar sem þeir spjalla saman um daginn og veginn, hvað þeir gerðu yfir páskana, og eru svo auðvitað með almenn leiðindi hver við annan...
Topp 10 skemmtilegast 05.04.2026 1:04:41
Allur haugurinn er mættur í þennan þátt til þess að fara yfir Topp 10 skemmtilegustu hluti sem þeir hafa gert, þar er margt að finna, fallhlífarstökk, tónleikar, jöklaganga, birtast á bíótjaldi og margt fleira!
Páskafjör 29.03.2026 44:47
Sálufélagarnir Birkir og Þröstur taka snemma í gikkinn og er mættir í páskagír í páskaspjall. Þeir fara líka yfir nýliðna hluti eins og dauða Chuck Norris, Þröstur stenst ekki mátið og kastar fram nokkrum klassískum Chuck Norris bröndurum, Þeir fara svo auðvitað yfir páskana og komast svo að því að það veit enginn hvenær páskarnir eru á næsta ári.
Gamanmyndir 22.03.2026 43:58
Ripp,Rapp og Rupp eru mættir í þetta skiptið þar sem þeir fara yfir gamanmyndir, hver er uppáhaldsgamanmyndin, hvaða gamanmynd lætur þá hlægja sem mest og allt annað mögulegt um gamanmyndir!
Er Óskarinn dauður? 15.03.2026 49:47
Stutt er lýsingin í dag en snillingarnir þrír eru mættir í tilefni þess að Óskarsverðlaunin fara fram í nótt og fara yfir hvort að Óskarinn sé liðin tíð. Það eru engar kvikmyndastjörnur lengur eins voru í gamla daga.
Fréttir og spjall 08.03.2026 32:23
Fullt hús í dag með fjórum mismiklum snillingum. Það er farið yfir það helsta í fréttum, við ræðum aðeins stríðin sem eru í gangi, ótrúlega pólitískir. Förum yfir það hvort Jim Carrey sé orðinn klón, eftirherma eða hvort hann sé hreinlega bara til! Svo er rætt aðeins um gullnu árin þegar þáttastjórnendur voru ungir og mögulega aðeins meira sexý útgáfur af sjálfum sér!
Tíminn er skrítinn 01.03.2026 45:40
The Three Amigos, þeir Aragorn, Legolas og Gimli eru mættir í dag til þess að ræða tímann, fáránlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Covid tímabilið setti allt tímavit úr skorðum, það eru komin 10 ár síðan Fidget Spinners voru málið, það eru meira en 40 ár síðan þáttastjórnendur fæddust og Pacman er orðinn 46 ára.....alveg eins og Davíð!
Skrítnustu netkaupin 22.02.2026 52:08
The Three Amigos, Ripp, Rapp og Rupp, Harry, Ron og Hermione eru mættir til að tala um skrítnustu hlutina sem hafa verið keyptir og seldir á netinu, eins og til dæmis mannatennur og margt annað sem þú vilt ekki vita af. Þeir fara líka yfir hvað þeir hafa pantað á netinu, sem er áhugavert þar sem einn af þeim kann það ekki og hinir tveir hafa pottþétt pantað eitthvað mjög vafasamt eða dónalegt. Þei...
Valentínusardagur 15.02.2026 43:06
Ástin og væntumþykjan svífur yfir vötnum og mönnum í þessum þætti, brómansinn og rómantíkin tengd Valentínusardegi ræður ríkjum. Strákarnir mannast smá upp og fara aðeins yfir fyrirbærið sem Super Bowl er, svo þeir fara yfir margt annað nýskeð, ræða rómantíkina og enda svo þáttinn á því að játa ást sína hver á öðrum, the bromance is strong! ❤️ ❤️ ❤️
Árið er 2006 08.02.2026 53:21
Birkir, Davíð og Þröstur kryfja árið 2006 í þessum þætti, sumir muna hvað þeir voru að gera, einhverjir sem eru að hlusta voru ekki fæddir, hvaða myndir komu út, hvað gerðist, hvernig var tónlistin, og allt hitt á þessu ári, sem var alveg geggjað, korter í hrun og svona....
Hvort myndirðu frekar? 01.02.2026 1:16:04
Það er fullur bátur í dag og það eru allir í þvílíku stuði! Hópurinn fer í leikinn fræga "Hvort myndirðu frekar" og sumt af þessu er temmilega eðlilegt, annað barnalegt, sumt fyndið og annað gjörsamlega viðbjóðslegt....ekki hlusta á þennan þátt með börnin í bílnum. Svo í lokin kemur Dagbók Daða og önnur óvænt dagbók sem lítur dagsins ljós í fyrsta sinn, þú vilt EKKI missa af henni!
Dumb Ways To Die 25.01.2026 52:09
Jæja, Dumb Ways To Die, eða heimskulegir dauðdagar á íslenskunni. Bakkabræður eru mættir aftur, Birkir,Davíð og Þröstur koma saman á dásamlegum degi og fara yfir bóndadaginn, svo fara þeir yfir heimskulega dauðdaga sem er til ógrynni af. Til dæmis lést konungur við það að ganga á dyrakarm...einn fór niður foss í tunnu, og svo voru það öll hin heimsku fíflin, ekki missa af þessu, þetta er fáránlega...
Heimskulegar ákvarðanir 18.01.2026 47:22
Hvað færðu ef þú blandar saman Herpes bræðrum og einum Birki. Jú, þú færð Bakkabræður! Bakkabræður eru mættir í þessum þætti, Birkir, Davíð og Þröstur og þeir ætla að renna yfir heimskulegustu ákvarðanir sem mannveran hefur tekið í gegnum tíðina, margar ansi heimskulegar. Svo fara þessir snillingar yfir heimskulegar ákvarðanir sem þeir hafa sjálfir tekið, þær eru margar heimskulegri en flest sem h...
Læknamistök 11.01.2026 40:00
Birkir, Davíð og Þröstur eru komnir saman á fallegum og köldum vetrardegi á höfuðborgarsvæðinu með heitt kakó við hönd, allir undir sama teppi, einn eða tveir berir að neðan, en það er aukaatriði, í þættinum í dag ræða þeir um rosaleg læknamistök, við þekkjum öll læknaskrift, það getur enginn lesið hana, engin furða að eitthvað fer úrskeiðis. Davíð heldur því fram að hann sé mistök, það verður gra...
Kvikmynda kenningar 04.01.2026 40:05
Strákarnir byrja jákvæðir á nýju ári og stefna á það að halda árinu öllu þannig. Jói kemur aftur sem gestastjórnandi af því að Davíð er búinn að vera týndur síðan í fyrra! Finnum hann vonandi fljótlega. Í þessum þætti er farið yfir allsskonar kvikmynda kenningar, sumar eru stórfurðulegar, aðrar mjög áhugaverðar og hinar afskaplega fyndnar. Ef þú fílar að pæla í bíómyndum, þá gæti þessi þáttur veri...
Áramótin 25/26 28.12.2025 47:30
Það eru smá mannabreytingar, einhverjir á bekknum og aðrir koma inn í staðinn, Birkir og Þröstur fá splunkunýjan gestastjórnanda í þáttinn, den danske Joe, og svo mætir Daði eftir að hafa sofið yfir sig. Davíð situr hjá þetta skiptið vegna þess að hann er dáinn, já aftur! Strákarnir fara yfir jólahátíðina og stikla svo yfir það helsta á árinu sem er að líða, sumt skemmtilegt, annað ekki. Inn um ei...
Jólin 2025 & þáttur #100! 21.12.2025 1:08:19
Allir lúðarnir eru komnir saman í tilefni jóla og þáttar númer HUNDRAÐ! Birkir, Daði, Davíð og Þröstur fóru í Secret Santa leik og það fá allir pakka, misdýra, misgóða og mismikið notagildi. Þeir fara svo yfir sína uppáhaldsþætti úr Búbblum & Bjór seríunni ásamt því að ræða allt þetta skemmtilegasta í gegnum tíðina.
Ofmetið 14.12.2025 1:07:41
Hvað er betra en 4 miðaldra karlar að kvarta yfir einhverju sem skiptir ekki máli? Nákvæmlega ekkert! Hér eru allir 4 lúðarnir mættir til þess að fara yfir hvað þeim finnst ofmetið, iPhone, pizza, hljómsveitir og margt annað, það verður meira að segja hálfgert rifrildi á einu málefni!
Fjársjóðir 07.12.2025 50:12
Birkir og Davíð renna yfir sögur af fólki sem hefur fundið allsskonar fjársjóði fyrir algjöra tilviljun, í bakgarði, á ströndinni og annarsstaðar. Hver væri ekki til í að ramba óvart á eitthvað gull!
Siðir sem við gerum 30.11.2025 54:41
Birkir og Davíð fara saman yfir hefðbundna og hversdagslega siði, við tökum ekkert endilega eftir því að við erum að gera suma, en af hverju skálum við, af hverju eru konur alltaf í hvítum kjólum við giftingu, þetta og margt fleira algengt og hversdagslegt er grandskoðað í þessum þætti!
Neikvæður Nóvember 23.11.2025 53:21
Birkir og Davíð koma saman og fara yfir viðburði og helstu mál síðustu daga. Sumu er hægt að gera grín að en öðru ekki, margt er alvarlegt en þeir reyna að finna léttar hliðar á því.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice