Austurbrú
Austurland hlaðvarp
Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: austurland.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
07 – Heimamenn heimsækja Austurland 09.06.2020 28:35
Hjá Austurbrú hafa nokkrir starfsmenn það hlutverk að kynna Austurland fyrir ferðamönnum. Í kjölfar heimsfaraldurs er ljóst að íslenskir ferðamenn verða áberandi í sumar og það kallar á annars konar markaðssetningu. Í þessum þætti segja þau Jónína Brynjólfsdóttir, Páll Guðmundur Ásgeirsson og María Hjálmarsdóttir frá því hvernig Austurland er kynnt landsmönnum og ekki síst fyrir... Read more »...
06 – Fjölmenning I 08.06.2020 23:21
Í þessum þætti er talað við Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri. Hann hefur stundað rannsóknir á stöðu innflytjenda á landsbyggðinni og verður einn fyrirlesara á málþingi um stöðu fólks af erlendum uppruna á Austurlandi sem Austurbrú mun standa fyrir þann 23. júní næstkomandi í Egilsbúð í Neskaupstað. Samtalið fer fram á ensku. Umsjón:... Read more »
05 – Líf og heilsa 27.05.2020 36:12
Í þessum þætti er fjallað um Evrópuverkefnið og námskeiðið Líf og heilsa. Hrönn Grímsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson hjá Austurbrú ræða við Bylgju Borgþórsdóttur hjá sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði og Ragnhildi Tryggvadóttur frá Neskaupstað. Þátturinn var tekinn upp 27. maí 2020.
04 – Menning og Covid 13.05.2020 38:48
Í þessum þætti er fjallað um áhrif kórónaheimsfaraldurs á menningarstarf á Austurlandi. Starfsmenn Austurbrúar, þau Signý Ormarsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson, ræða við Ragnheiði Ásvaldsdóttur hjá Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Unu Sigurðardóttur hjá Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði. Þátturinn var tekinn upp 13. maí 2020.
03 – Vorverkin 05.05.2020 29:52
Í þessum þætti verður fjallað um vorverkin því nú er lag að breyta og bæta! Þau María Hjálmarsdóttir, Páll Guðmundur Ásgeirsson og Jón Knútur Ásmundsson, starfsmenn Austurbrúar, ræða áfangastaðaáætlun, göngustígagerð, úrbótagöngur og ýmislegt fleira. Sævar Guðjónsson, ferðaþjónustubóndi á Eskifirði, er sérstakur gestur.
02 – Brothættar byggðir 24.04.2020 30:24
Borgarfjörður eystri er eitt þeirra byggðalaga sem tekur þátt í verkefninu Brothættar byggðir. Austurbrú hefur umsjón með því á Austurlandi og verkefnastjóri þess er Alda Marín Kristinsdóttir. Starfsmenn Austurbrúar, þau Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, Jónína Brynjólfsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson, ræddu við Öldu um framgang verkefnisins.
01 – Austurbrú á tímum Covid 03.04.2020 25:53
Starfsmenn Austurbrúar, þau Jóna Árný Þórðardóttir, María Hjálmarsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson fjalla m.a. um áhrif kórónaveirufaraldursins á starfsemi Austurbrúar síðustu vikurnar. Díana Mjöll Sveinsdóttir hjá Tanna Travel er sérstakur gestur.
00 – Kynning 02.04.2020 10:18
Starfsmenn Austurbrúar, þau Esther Ösp, María, Kristjana og Jón Knútur segja frá Austurlandi hlaðvarpi, markmiðum þess og tilgangi.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice