Hlaðvarpið 4 vaktin

4. vaktin

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

Autor

Hlaðvarpið 4 vaktin

Categorie

Education

Site-ul podcastului

podcasters.spotify.com

Cel mai nou episod

10 iul. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

12. Spjall við móður 2 drengja með Duchenne 12.07.2024

Í þessum þætti kemur Sif til okkar í spjall. Hún er móðir 2 drengja með Duchenne. Duchenne  er meðfæddur vöðvasjúkdómur og kemur nær einungis fram hjá drengjum.

11. Duchenne muscular dystrophy eða Duchenne vöðvarýrnun 30.06.2024

Duchenne muscular dystrophy eða Duchenne vöðvarýrnun á íslensku og er algengasti vöðvarýrnunarsjúkdómurinn en það skal tekið fram að Duchenne er samt sem áður sjaldgæfur sjúkdómur.

10. Spjallið 20.06.2024

Hér er einn spjallþáttur á léttu nótunum...

9. Saga einhverfunnar 09.06.2024

Í þessum þætti stiklum við á stóru í sögu einhverfunnar. Þetta er því miður ofboðslega sorgleg saga að mörgu leyti en okkur finnst mikilvægt að tala um hana til að við getum fagnað því að við séum komin lengra og einnig til að við getum átt samtalið um hvernig við getum gert enn betra.

8. Masking 22.05.2024

Hvað er að maska? Í þessum þætti förum við yfir hvað það er að maska og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir einhverfa.

7. Að stimma 21.05.2024

Hvað er stimm og að stimma? Þessi þáttur er stuttur þáttur þar sem við útskýrum hugtakið stimm.

6. Skólaforðun eða Skólahöfnun? 15.05.2024

Hvað er skólahöfnun? Við viljum taka út orðið skólaforðun vegna þess að okkur finnst það vera að segja að barnið sé vandinn en ekki að það sé ekki verið að mæta þörfum barnsins. Hvernig getum við unnið með þessum hóp barna?

5. Kjörþögli 07.05.2024

Hefur þú heyrt um kjörþögli? Í þessum þætti tölum við um kvíðaröskunina kjörþögli. Hver eru einkenni, hvert er hægt að leita og hvernig er hægt að vinna með kjörþögli.

4. Liðveisla og stuðningsfjölskylda 30.04.2024

Í þessum þætti förum við yfir hvað liðveisla og stuðningsfjölskylda er og hver markmiðin með því úrræði er.

3. Skóli án aðgreiningar 24.04.2024

Í þessum þætti tölum við um hugtakið skóli án aðgreiningar. Hvaðan er hugmyndafræðin og hvernig gengur að innleiða hana í Íslensku skólakerfi?

2. Foreldrakulnun 10.04.2024

Í þessum þætti ræðum við um hugtakið foreldrakulnun. Hvað gerist þegar einstaklingur fer í kulnun og hvað geta verið áhættuþættir fyrir því að lenda í foreldrakulnun ásamt fleiru sem tengist kulnun.

4. vaktin (Trailer) 09.04.2024
1. Hvað er 4 vaktin 02.04.2024

Í þessum þætti ætlum við að fara yfir það hvað okkur finnst tilheyra 4 vaktinni og afhverju við viljum skilgreina hana sem auka 4 vakt og þar af leiðandi bæta henni við þær þrjár vaktir sem hafa nú þegar verið skilgreindar.

Kynningarþáttur 31.03.2024

Þessi þáttur er örstuttur kynningarþáttur um okkur. Við heitum Sara og Lóa og erum með hlaðvarpið 4 vaktin. Þar sem við munum spjalla um ýmislegt tengt því að vera á 4 vaktinni sem foreldrar langveikra eða fatlaðra barna.

Ascultă podcastul 4. vaktin în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice