Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categoria

Society

Site do podcast

www.thjodmal.is

Último episódio

13 de nov de 2026

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,7+ iOS em breve

Episódios

#51 - Viðskiptaverðlaun Innherja 15.12.2021

Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir fjalla um viðskiptaverðlaun Innherja. Alls voru veitt verðlaun í sjö flokkum en auk þess að fjalla um þau fyrirtæki og einstaklinga sem hlutu verðlaun er jafnframt fjallað um þau sem voru tilnefnd. Í lok þáttarins er einnig fjallað um aukastörf ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins sem virðist vanta fleiri verkefni.

#50 – Það verða allir að hafa einn skratta – Máni Pétursson fjallar um nýja bók sína um að vera ekki aumingi 10.12.2021

Þorkell Máni Pétursson fjallar um bók sína, Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi. Í spjalli við Hlaðvarp Þjóðmála ræðir hann um tilefni þess að hann skrifaði bókina og aðdragandann að henni, hina svokölluðu fórnarlambavæðingu, hvort það sé rétt að tala um aumingjavæðingu, reiðina á samfélagsmiðlum, pólitískar skoðanir, brostna drauma, raunverulegan árangur og margt fleira.

#49 – Er Jón Gunnars að stela jólunum? – Ríkisstjórnin fann lægsta samnefnarann og komst í jólaskap 06.12.2021

Andrés Magnússon blaðamaður ræðir um fyrstu daga stjórnarsamstarfsins, hvort að hægri menn eigi að vera ánægðir eða ósáttir við stjórnarsáttmálann, það hvort að stjórnmálin þurfi að finna lægsta samnefnarann til að geta starfað, hvort að Jóni Gunnarssyni sé statt að sitja sem ráðherra og hvort að hin „vökula“ umræða (e. woke) hafi fæst rætur hér á landi. Þá er rætt um hina þunnu línu sem skilur að...

#48 – Ríkið stækkar og ráðherrastólarnir með – Allt sem þú þarft að vita um nýja ríkisstjórn 28.11.2021

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir allt það helsta sem snýr að nýrri ríkisstjórn, ráðherraskipan, stjórnarsáttmálanum, stöðu stjórnarandstöðunnar, samstarfinu á milli þessara ólíku flokka, það hvort að ný ríkisstjórn sé ríkisstjórn höfuðborgarinnar á kostnað landsbyggðarinnar, hvort að það sé eitthvað raunverulegt innihald í löngum stjórnarsáttmála eða hvort hann sé froðukenndur, þ...

#47 – Peningar vaxa ekki á trjánum, eða hvað? – Björn Berg fjallar um Peninga 19.11.2021

Björn Berg Gunnarsson , deildarstjóri Greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka ræðir um nýútkomna bók sína, Peningar . Fjallað er um skemmtilegar sögur í bókinni, sögulega – og jafnvel óvænta - atburði sem tengist peningum, hvort nóg sé til af peningum í heiminum, hvernig nýjar kynslóðir skapa nýjar tekjur og fleira áhugavert sem fram kemur í þessari skemmtilegu og áhugaverðu bók. Þá er einnig rætt...

#46 – Það vantar leiðtoga á ríkisspítalann - Hver ætlar að leiða okkur út úr Covid? 16.11.2021

Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og Örn Arnarson, pistlahöfundur og fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðsins, ræða um stöðuna og þær takmarkanir sem eru í gildi vegna kórónuveiru-faraldursins, vanmátt ríkisspítalans til að takast á við þau vandamál sem við blasa, lélega stjórn spítalans, ómarkvissar aðgerðir sóttvarnaryfirvalda og annað sem tengist þessum óboðna gest sem dregið hefur...

#45 – Kertið logar í hlýjum ráðherrabústað en á skrifstofu Eflingar er allt brunnið til grunna – Björn Bjarnason fer yfir málin 09.11.2021

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fjallar um myndun nýrrar ríkisstjórnar, stöðu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu, helstu ágreiningsefnin sem þarf að leysa og veika stöðu stjórnarandstöðuflokkanna. Þá er fjallað um málefni Eflingar þar sem sósíalistar hafa skilið eftir sig sviðna jörð. Loks er fjallað um það hvaða áhrif, ef einhver, loftlagsráðstefnan í Glasgow mun hafa.

#44 – Allir og amma þeirra í Glasgow – Þarf að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum? 03.11.2021

Sigurður Már Jónsson blaðamaður fjallar um loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP26) sem nú fer fram í Glasgow í Skotlandi. Fjallað er um þær lausnir sem þar eru boðaðar, hvort og þá hvaða áhrif svona ráðstefna hefur og hvaða hlutverki Ísland gegnir þegar horft er til loftslagsmála.

#43 – SKE í ruglinu – Dagur í bullinu – Hversu sterkur er Ásgeir Jónsson? 30.10.2021

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um þjösnaskap Samkeppniseftirlitsins, vel heppnaða sölu á Mílu til erlendra fjárfesta sem mun styrkja samkeppnisstöðu Íslands, baráttuna við verðbólguna og þær kjaraviðræður sem framundan eru. Þá er einnig rætt um húsnæðisvandann í Reykjavík og ósannindi borgarstjóra um ástæður hans. Loks er rætt um stöðu Ásgeirs Jónssonar í st...

#42 – Hugverkaiðnaðurinn í hnotskurn – Mikilvægt að laða að erlenda fjárfestingu og þekkingu 26.10.2021

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, ræðir um mikilvægi hugverkaiðnaðarins í íslensku hagkerfi og þau forgangsmál sem bíða nýrrar ríkisstjórnar til að efla hann enn frekar, um það hversu miklu hlutverki endurgreiðslur til rannsóknar og þróunar gegna, nauðsyn þess að laða að erlenda fjárfestingu og ekki síður erlenda þekkingu inn í íslensk fyrirtæki, orkusæki...

#41 – Pólitískur ómöguleiki við myndun ríkisstjórnar – Of snemmt að mæta í jarðaför Miðflokksins nema SDG gangi í Sjálfstæðisflokkinn 22.10.2021

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir þau mál sem tefja myndun nýrrar ríkisstjórnar, undarlega afstöðu Vinstri grænna í loftslagsmálum, það hvort að Sigmundur Davíð ætti að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og hvað áhrif hann hefði mögulega þar, talningaklúðrið í Norðvestur og hvaða áhrif það kann að hafa. Þá er rætt um einstaka atriði sem höfðu áhrif á ákvörðun kjósenda í nýafstöðnum kosni...

#40 – Tafir við myndun nýrrar ríkisstjórnar – Ólík staða allra flokka eftir haustið – ASÍ og BSRB tóku upp veskið fyrir kosningar 18.10.2021

Karen Kjartansdóttir ráðgjafi og Sigmar Guðmundsson, nýkjörinn þingmaður Viðreisnar, ræða um stöðuna í stjórnmálunum og myndun ríkisstjórnar, hvað tefur ríkisstjórnarmyndun, hvaða möguleikar aðrir kunn að vera í boði, stöðu núverandi stjórnarandstöðuflokka og annað sem er að gerast í stjórnmálunum þessa dagana. Þá er einnig fjallað um það hvort að eðlilegt sé að launþegahreyfingar á borð við ASÍ o...

#39 – Seðlabankinn dregur fram vopnabúrið – Það er bjart framundan ef vinnumarkaðurinn og pólitíkin hagar sér vel 11.10.2021

Ásdís Kristjánsdóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Hörður Ægisson viðskiptaritstjóri ræða stöðu efnahagsmála, nýjustu aðgerðir Seðlabankans og hvað kann að vera framundan í þeim málum, komandi kjaraviðræður og stöðu atvinnulífsins sem býr sig undir miklar launahækkanir á næstu misserum, helstu áskoranir nýrrar ríkisstjórnar og Ísland í alþjóðasamanburði.

#38 – Sjálfstæðisflokkurinn á foreldravaktinni – Sýndarveruleiki stjórnmálanna 05.10.2021

Brynjar Níelsson, fv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins, fara yfir stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum, pólitíska landslagið, hvaða erindi Sjálfstæðisflokkurinn á í áframhaldandi samstarf við VG, hvort það sé sjálfsagt mál að halda núverandi ríkisstjórnarsamstarfi áfram og hver eigi að leiða ríkisstjórn.

#37 – Byltingin át börnin sín – Erfið helgi að baki hjá twittersamfélaginu – Viðreisn í vandræðum 27.09.2021

Fjölmiðlamennirnir Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir niðurstöðu kosninganna, hverjir unnu og hverjir töpuðu, hvað hafði áhrif á niðurstöðuna, hvernig ber að túlka hana og svo framvegis.

#36 – Líf í bómull er tilgangslaust líf – Heiðar Guðjóns fjallar um hagsæld og mikilvægi þess að takast á við áskoranir 24.09.2021

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar og fjárfestir, kemur víða við í ítarlegu viðtali í hlaðvarpi Þjóðmála. Hér fjallar hann um gjaldmiðlamál, tækifæri á Norðurslóðum og miklar breytingar sem hafa átt sér stað á fjölmiðlaumhverfinu og þær breytingar sem eru framundan. Þá ræðir hann um mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi og takast á við áskoranir og dyggðina sem fylgir dugnaði.

#35 – Það skiptir máli (að kunna að reikna) – Kristrún slekkur á símanum - Delluhugmyndir Viðreisnar 23.09.2021

Hörður Ægisson viðskiptablaðamaður og Örn Arnarson hagfræðingur ræða um það sem hefur – og hefur ekki – komið fram um efnahagsmál og viðskipti í þeirri kosningabaráttu sem nú er brátt á enda. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki þora að tala um efnahagsmál, Viðreisn boðar delluhugmyndir um tengingu krónunnar við evru, Píratar kunna ekki að reikna og á meðan siglir Framsókn lygnan sjó með því að tala...

#34 – Aldrei tekist að gera hinu fátækari ríkari með því að gera hina ríku fátækari 16.09.2021

Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fer yfir orðræðuna í kosningabaráttunni, þá undarlegu hugmynd að ætla að skattleggja ákveðna hópa og fyrirtæki sérstaklega umfram önnur, þær miklu framfarir sem hafa orðið hjá mannkyninu á sl. 200 árum og hvaða afleiðingar það hefur haft á lífsgæði okkar, hvernig minnka þarf valda stjórn stjórnmálamanna ef við þráum raunverulegt frelsi og margt fleira...

#33 – Stjórnmáladýrin fara yfir stöðuna - Píratar kunna ekki kosningabaráttu og Logi í felum 10.09.2021

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir stöðuna fyrir kosningarnar sem fram fara eftir tvær vikur. Það er af nægu að taka, það er tekist á um stóreignaskatta, lítið hægt að gagnrýna ríkisstjórnina, það er búið að fela Loga Einarsson, Píratar kunna ekki kosningabaráttu, Gunnar Smári fer mikinn og Lilja Alfreðs sést varla.

#32 – Bjarni Benediktsson: Stjórnmálamenn þurfa að kunna að leiða 07.09.2021

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðiflokksins, ræðir um áherslurnar í stjórnmálunum í aðdraganda kosninga og hættuna á vinstri stjórn að kosningum loknum. Í þættinum er rætt um stöðu ríkisfjármála, fyrirtækja og heimila, um það hvernig framtíðin horfir við Bjarna og áherslur Sjálfstæðisflokksins í umhverfismálum. Hann svarar jafnframt gagnrýnum spurningum um það hvort að þa...

#31 – Skattgreiðandinn á fáa vini – Vinstri menn vilja enn og aftur hækka skatta 04.09.2021

Hvaða framfarir, ef einhverjar, hafa átt sér stað í skattamálum á undanförnum árum? Er réttlætanlegt að skattleggja hina ríku meira? Má nota skattkerfið til að refsa fólki eða fyrirtækjum eða til að breyta hegðun einstaklinga? Er of mikil skattheimta vanvirðing gagnvart vinnandi fólki? Þurfum við að endurhugsa skattkerfið í heild? Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnah...

#30 – Viðreisn í vanda – Verður Sósíalistaflokkurinn stærri en Samfylkingin? – Hægrið stelur glæpnum í umhverfismálum – Hrós á RÚV 01.09.2021

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, blaðamenn á Morgunblaðinu, fara yfir stöðuna í stjórnmálunum eftir fyrstu sjónvarpskappræður stjórnmálaleiðtoganna.

#29 – Hvað er að gerast í Afganistan og af hverju? Hvar varst þú 11. september 2001? 20.08.2021

Börkur Gunnarsson, blaðamaður og fv. starfsmaður NATO, og Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður fara yfir stöðuna í Afganistan eftir að Talibanar náðu þar völdum á ný, hverjum er um að kenna, hvernig framhaldið lítur út í landinu og það hvernig alþjóðasamfélagið bregst við. Þá er einnig rætt um áhrifin af hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001 sem vissulega tengist stöðunni í dag.

#28 – Feigð í faðmlagi stjórnarflokkanna – Sjálfstæðisflokkurinn á að gera kröfu um umhverfisráðuneytið – Viðreisn hefur áður selt sig ódýrt 17.08.2021

Friðjón R. Friðjónsson, framkvæmdastjóri og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fjallar um ákvörðunarfælni í stjórnkerfinu þegar kemur að atvinnusköpun og fjárfestingum, um mikilvægi þess að Sjálfstæðisflokkurinn geri kröfu um umhverfisráðuneytið og mikilvægar aðgerðir í loftslagsmálum, um ímyndaðan ríg á milli höfuðborgar og landsbyggðar og loks um gagnrýni sína á Sjálfstæðisflokkinn s...

#27 – Pirringur Bjarna beinist að Svandísi - Víðir heldur áfram að skamma okkur og Þórólfur talar í hringi 10.08.2021

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, og Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins, ræða um nýjustu ákvörðun ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveiru-faraldursins, gagnrýni Bjarna Benediktssonar á Svandísi Svavarsdóttur, stöðu og vandamál Landsspítalans, það hvernig sóttvarnaryfirvöld og almannavarnir vilja ritstýra fjölmiðlum, stöðu ríkisstjórnarinnar í núverandi stöðu sem og ráða...

Ouça o podcast Þjóðmál no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos