Snorri Björns

The Snorri Björns Podcast Show

Snorri Björns og áhugavert fólk.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: snorribjorns.libsyn.com

Autor

Snorri Björns

Categoria

Society

Site do podcast

snorribjorns.libsyn.com

Último episódio

1 de dez de 2023

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

#31 - Arnar Péturs 06.02.2019

Arnar Pétursson lenti á Íslandi eftir mánaðardvöl og keyrði rakleiðis í stúdíóið til að svara stóru spurningum lífsins: Hvað hvetur mann áfram, hvernig hann horfir á markmið og markmiðasetningu, hvernig skal bregðast við mótlæti og lexíurnar sem hægt er að draga úr afreksíþróttum og heimfæra á daglegt líf.   Arnar á risastóran þátt í hlaupabakteríunni sem ég smitaðist af síðasta sumar en hann tók...

#30 - ClubDub 01.02.2019

Sagan af ClubDub og ádeila á síhækkandi hitastig kaldra potta í sundlaugum Reykjavíkur.

#29 - FLONI 30.01.2019

Eftir að gefa út Tala saman og Leika fylgdi Floni velgengni sinni eftir með 9 laga plötu sem tók efstu 9 sætin yfir vinsælustu lög landsins á Spotify. Vinsældum Flona og vina hans í senunni fylgdi mikið umtal og núna, rúmlega ári síðar, gefur hún út sína aðra plötu: Floni II.

#28 RAX - Norðurslóðir og að fylgja hjartanu 23.01.2019

Síberíuferð, bókaútgáfu og hálfu ári síðar er RAX loksins kominn í þáttinn. Þetta er ein af mínum allra stærstu fyrirmyndum, ekki bara vegna þess hversu góður ljósmyndari hann er heldur er þetta einstaklingur sem hefur masterað það sem hann gerir best og ég sætti mig við það að geta einungis giskað á hverskonar vinna liggur að baki verkana hans..   Ef þú ert að gera eitthvað sem þú hefur ástríðu f...

#27 Sölvi Tryggva - Álag og endurheimt 16.01.2019

Sölvi Tryggvason þurfti að þola alvarlegan heilsubrest fyrir áratugi og hefur unnið sig í átt að bættri heilsu síðan þá. Hann gaf á dögunum út bókina "Á eigin skinni" þar sem hann fer yfir mjög víðtækar tilraunir á eigin hug og líkama til þess eins að líða betur. Mataræði, hreyfing, svefn, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðsla, öndunaræfingar, tenging við náttúru, og snjallsíma- og skjánotkun eru...

#26 Árni Björn - CrossFit, vegan og langveikt barn 09.01.2019

Árni Björn fann sig á botninum, líkamlega og andlega þegar hann var orðinn 130 kíló og ákvað að gera eitthvað í sínum málum. Það liðu ekki nema 2 ár þegar hann fann sig standandi inn á íþróttaleikvangi í Los Angeles, þá sem keppandi í CrossFit. Árni segir okkur frá þessari umbreytingu í sínu lífi, af hverju hann gerðist vegan og hvernig það er að lifa með veikindum langveikrar dóttur sinnar sem gr...

#25 Einar Hansberg - 500 kílómetra róður 03.01.2019

Einar Hansberg reri 500 kílómetra til styrktar Kristínar Sifjar og fjölskyldu, sem missti manninn sinn fyrir eigin hendi undir lok árs 2018. Einar hefur áður fundið sér áskoranir sem þessa en það magnaða við þetta afrek er samhugurinn í þeim 550 manns sem lögðu Einar lið og reru með honum samtals 8 milljón kílómetra yfir eina helgi.

#24 Leifur Örn - Norðurhlið Everest 26.12.2018

Í Nepal stendur hæsti tindur veraldar, 8.848 metrum yfir sjávarmáli. Allir hafa heyrt af heyrt af þessum tindi,   7 Íslendingar hafa klifið hann en aðeins 1 hefur farið norðurhlið fjallsins til að komast að honum. Leifur Örn Svavarsson er fjallgöngumaður að guðs náð. Í gegnum tíðina hefur hann gengið á tindana 7 margoft, yfir Grænlandsjökul, stigið fæti á Norðurpólinn og Suðurpólinn, Peak Lenin í...

#23 Runi - Aðalvarðstjóri sérsveitarinnar 19.12.2018

Það er mikil leynd yfir störfum sveitarinnar og þeim sem í henni starfa en þessir tæplega 50 karlmenn sem mynda sérsveit ríkislögreglustjóra eru síðasti hópur manna sem hægt er að reiða sig á í hættulegum aðstæðum. Það er engin önnur sveit sem fékk betri eða sérhæfðari þjálfun, það er enginn her sem styður við bakið á þeim og það er ekki í boði af flýja aðstæðurnar eða fara veikur heim ef þér líst...

#22 Heiðar Logi - Brimbretti og andleg heilsa 12.12.2018

Heiðar Logi var vægast sagt til vandræða í æsku. Hann var orkumikill og með mikinn athyglisbrest sem leiddi til daglegrar mætingar til skólastjórans og á endanum brottrekstrar úr skóla.  6 ára gamall fór hann á Rítalín og eftir því sem tíminn leið var skammturinn stærri og stærri þar til Heiðar fékk nóg og ákvað að hætta á öllum lyfjum, þá orðinn 16 ára gamall, þunglyndur, kvíðasjúklingur og að ei...

#21 Solla Eiríksdóttir - "Það sem gerist þegar þú ert öðruvísi" 05.12.2018

Stjörnukokkurinn sem prýðir matvörur í búðarhillum landsins, gefur út vinsælustu matarbækur landsins og rekur vinsælustu veitingastaði landsins. Solla hefur svo sannarlega sögu að segja. Við förum yfir hvernig Yoga, hugleiðsla og bætt mataræði var úrslitakostur hjá henni þegar hún var að glíma við slæmt ofnæmi sem leiðir síðan að atvinnu hennar í dag, við ræðum tattooin hennar, hvernig hún fann sí...

#20 Gauti Grétars - Heilsubyltingin, kyrrseta og hreyfigeta 28.11.2018

Við sitjum við tölvur meirihluta dagsins, stöndum upp til þess að setjast svo í bílsætið okkar, keyrum heim og sitjum þar þangað til það er kominn tími til að sofna. Vissulega fara margir hverjir á æfingu í millitíðinni en stífar æfingar í bland við 10 klukkutíma kyrrsetu á dag er líklega ein af ástæðunum fyrir því að sjúkraþjálfarar hafa aldrei haft jafn mikið að gera og í dag.   Gauti Grétarsson...

#19 - Páll Óskar 21.11.2018

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa í The Snorri Björns Podcast Show sendu mail á podcast@snorribjorns.is   Morgunrútínan hans, æfingaprógrammið, upphitun fyrir gigg, jarðarförin, hvernig það kom til að Jóhann Jóhannsson heitinn, Golden Globe verðlaunahafi, pródúsaði fyrstu lögin hans, á barmi gjaldþrots, að flytja aftur í foreldrahús 30 ára gamall, loforðið um að vinna aldrei leiðinlega vinnu og Allt...

#18 - Anníe Mist Þórisdóttir 14.11.2018

Anníe Mist ákvað að yfirgefa drauminn um Ólympíuleikana árið 2012 fyrir nýja íþrótt sem var nýkomin á sjónarsviðið. Íþrótt sem Anníe varð á endanum best í og helmingur þjóðarinnar hefur prófað. Það er mikinn innblástur að finna í sögu Anníear, hvernig hún sigraði heimsmeistaramótið tvö ár í röð, hvernig hún hefur breyst á þessari 10 ára vegferð og hvernig hún höndlar mótlætið sem hún mætti á leiði...

#17 - Benjamin Hardman 07.11.2018

Benjamin Hardman left his job as an accountant in Australia to move to Iceland and figure out a way to support his stay here as a photographer. Hopefully you've stumbled upon his work on social media (@benjaminhardman), he's got a huge Instagram account where he posts breathtaking and unique pictures of his travels in the arctic, mainly from Iceland. Ben talks to me about these decisions of change...

#16 Hermundur Sigmundsson - Prófessor í lífeðlislegri sálfræði 31.10.2018

Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við háskólann í Þrándheimi. Hann vakti athygli mína fyrir rannsóknir á samfélagsmiðla- og skjánotkun barna, streituverkjum út af slíkri notkun, kynjahlutfallið í þessum verkjum og svo hefur hann tvisvar á síðustu mánuðum haldið fyrirlestra í HR þar sem hann fer yfir einkenni þeirra einstaklinga sem skara fram úr á sínum sviðum, hvort sem...

#15 - Emil Hallfreðs 24.10.2018

Eins og Emil segir sjálfur frá þá var hann örugglega ekki félagslyndasti strákurinn í bekknum á sínum unglingsárum. Hann drakk ekki, borðaði hollt, mætti sjálfur á aukaæfingar, lét ekki sjá sig á böllum og pældi ekkert í stelpum. Það virðist vera þema í gegnum feril Emils að þegar eitthvað gengur ekki upp, eitthvað fór ekki eins og það átti að fara eða honum langaði að færi þá var lausnin bara að...

#14 Elísabet Margeirs - 400km í Gobi og aðrar áskoranir 17.10.2018

Leiðin frá Tjarnarhringnum í MR, yfir í hálfmaraþon, maraþon og svo svefnlaus náttúruhlaup, í fallegasta umhverfi jarðarinnar, hundruði kílómetra áfram og tugi kílómetra upp og niður. Elísabet Margeirsdóttir er langhlaupadrottning Íslendinga og meðal þeirra bestu í heiminum en nýverið lauk hún 409km hlaupi í gegnum Gobi eyðimörkina á 97 klukkutímum - fyrst kvenna.

#13 - Emmsjé Gauti 10.10.2018

Gauti hefur gengið í gegnum hæðir og lægðir rappsenunnar á Íslandi. Hann tók þátt í Rímnaflæði 12 ára gamall, gaf út sitt fyrsta lag árið 2002 og er núna, 16 árum síðar, að gefa út sína fimmtu plötu: Fimm.

#12 Katrín Tanja - Fittest Woman on Earth 03.10.2018

Hvert var Katrín að stefna áður en CrossFit varð að hennar atvinnu? Hvernig aftraði það henni að sjá strax góðan árangur í sportinu og hverju þurfti að breyta þegar henni var ljóst, árið 2014, að hún hafi ekki komist á Heimsleikana í fyrsta skipti síðan hún lagði CrossFit fyrir sig. Ferlið sem Katrín fór í gegnum lýsti sér ekki einungis í fleiri og lengri æfingum og bættri líkamlegri heilsu, Katrí...

#11 - Tommi á Búllunni 26.09.2018

Tómas A. Tómasson rak hér á árum áður félagsheimili, skemmtistaði, kaffihús, hótel, veitingastaði, hamborgarastaði og var fyrir vikið þekktur sem Tommi á Festi, Tommi á Tommaborgurum og Tommi á Hard Rock - en með fjárhagsvandræði, drykkjuvandamál og baráttu við gjaldþrot að baki sér, labbar hann um götur bæjarins, 69 ára gamall, borðar hamborgara á dag, tekur 105kg í bekk og er skítsama hvað þér f...

#10 - Auðunn Blöndal 20.09.2018

Eftir að fá loksins tækifæri til að sýna sig á skjám landsmanna í 70 mínútum kringum aldamótin hefur mikið farið fyrir Auðunni Blöndal sem skilur eftir sig þætti á borð við Svínasúpuna, Steypustöðina, Atvinnumennirnir Okkar, Tekinn, Ríkið, Strákarnir, Stelpurnar og vinnur nú að gerð fjórða draumsins: Suður-Ameríski Draumurinn. Auðunn tók stökkið yfir í útvarp fyrir 7 árum og heldur úti einum vinsæ...

#9 Sóli Hólm - LED perur, ketosis og krabbamein 12.09.2018

Sóla Hólm er að finna víða, hvort sem það er í sjónvarpinu, útvarpinu, upp á sviði eða bara í story. Brandarar, eftirhermur og almennt grín hafa mótað starfsferil Sóla síðustu ár en hægt og bítandi fór ferillinn að staðna og vinnan orðin of einsleit og þægileg. Það var ekki fyrr en Sóli greinist með krabbamein í lok ársins 2017 þar sem hann ákveður að elta markmiðin sín og skilja meira eftir sig í...

#8 - Evert Víglunds 29.08.2018

Evert Víglundsson, meðeigandi og stofnandi CrossFit Reykjavík, fer yfir ferilinn frá því að þjóna á Hótel Sögu í 12 ár yfir í að reka eina stærstu CrossFit stöð í heiminum, IronMan þríþraut, Navy SEAL Hell Week, að fatta lífið um fertugt og að vera besta útgáfan af sjálfum sér.   Bækur og podcöst nefnd í þættinum: Joe Rogan og Matthew Walker: https://www.youtube.com/watch?v=pwaWilO_Pig&t=5332s   W...

#7 - Sindri Jensson 24.07.2018

Sindri Jensson hefur starfað í fatabúð drjúgan part af sínu lífi og hafði alltaf í huga að opna sína eigin. Á síðustu þremur árum hefur hann gert gott betur og opnað tvær fatabúðir undir formerkjum Húrra Reykjavík ásamt því að vera meðeigandi á Flatey Pizza og spila fótbolta með KR.

Ouça o podcast The Snorri Björns Podcast Show no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos