Snorri Björns
The Snorri Björns Podcast Show
Snorri Björns og áhugavert fólk.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: snorribjorns.libsyn.com
Autor
Snorri Björns
Categoria
Site do podcast
Último episódio
1 de dez de 2023
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#77 Ólafur Jóhann Ólafsson - Rithöfundurinn sem lærði eðlisfræði og bjó til PlayStation 09.12.2020 1:48:48
Ólafur Jóhann dúxaði bæði Menntaskólann í Reykjavík og Brandeis Univeristy í Boston. Útskrifaður sem eðlisfræðingur fékk hann vinnu hjá Sony og var fljótlega kominn í aðstoðarforstjórastöðu innan fyrirtækisins, þá 28 ára gamall. Vinnandi samhliða Bill Gates og Steve Jobs í tæknihasarnum í Kísildal kom Ólafur saman teymi sem kynnti á markað byltingu á tölvuleikjamarkaði: PlayStation. Sjálfur lætur...
#76 Haraldur Þorleifsson - Úr heimspeki og hagfræði í hönnun fyrir Apple, Google og tæknirisana í Kísildal 02.12.2020 1:36:40
Haraldur Þorleifsson menntaði sig í viðskiptafræði, hagfræði, heimspeki og þróunarfræði en fór svo út til New York til að starfa sem hönnuður. Drykkjuvandamál leiddi til þess að hann var rekinn úr starfi svo hann kom heim til þess eins að drekka meira. Þrátt fyrir drykkjuna tókst Halla að fá vinnu hjá DeCode og CCP og landa erlendum kúnnum á borð við Google. Hann ákvað að sjá hversu miklu hann kæm...
#75 - Jón Arnór Stefánsson 25.11.2020 2:12:16
Jón Arnór ruddi brautina í íslenskum körfubolta. Var valinn inn í landsliðið 17 ára gamall, komst inn í NBA deildina rétt rúmlega tvítugur og hefur spilað í þremur sterkustu deildum í heimi. Jón hefur spilað fyrir lið um allan heim og gefur okkur meðal annars innsýn í lífið í Rússlandi þar sem mis-löglegir atburðir áttu sér stað og stjörnulífið í Róm þar sem hann og Totti prýddu Nike auglýsingar á...
#74 Héðinn Unnsteinsson - Stefnumótunarsérfræðingur og formaður Geðhjálpar 18.11.2020 2:10:06
Héðinn er stefnumótunarsérfræðingur hjá Forsætisráðuneytinu, formaður Geðhjálpar, hann starfaði fyrir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina WHO, átti frumkvæði að Geðorðunum 10 sem prýddu ísskápa landsins hér á árum áður og hefur undanfarin 25 ára starfað að geðheilbrigðismálum almennt. Hann hefur sína reynslu af þessum málum og skrifaði bókina Vertu Úlfur um eigin reynslu af geðheilbrigðiskerfinu.
#73 Jóhann Ingi Gunnarsson - Viðtalið sem þú þurftir að heyra 11.11.2020 2:00:48
Jóhann Ingi Gunnarsson er sálfræðingur að mennt en breytingastjóri að eigin sögn. Hann er maður margra hatta: þjálfar stjórnendur og fólk í ábyrgðarstöðum (afreksfólk í íþróttum, forstjóra, pólitíkusa…), heildsali á daginn, handboltaþjálfari, kennari, fyrirlesari og faðir. Sjálfur á Jóhann framúrskarandi feril sem handboltaþjálfari en hann tók m.a. við handboltalandsliðinu aðeins 23 ára gamall og...
#72 Bogi Nils - Forstjóri Icelandair 04.11.2020 1:27:09
Bogi Nils, forstjóri Icelandair hóf störf hjá Icelandair rétt eftir fjármálahrunið 2008. Hrunið var ekki eina brekkan sem Icelandair átti eftir að klífa: eldgosið í Eyjafjallajökli, kyrrsetning MAX vélanna, samkeppnin við WOW air og nú síðast heimsfaraldurinn Covid. Það hefur nýst Boga vel að vera vinnusamur síðustu mánuði, enda með reynslu af næturvinnu í síldinni á Eskifirði í æsku. Nýlega lauk...
#71 - Sirrý Arnardóttir 28.10.2020 1:56:10
Fjölmiðlakona til 30 ára, stjórnendaþjálfari, háskólakennari og rithöfundur. Sirrý hefur komið víða við og kennir fólki örugga tjáningu, samskipti og fjölmiðlafærni frá eigin reynslu og framhaldsnámi sem hún sótti hjá bandarískri samsteypu. Hún sagði upp föstu starfi í fjölmiðlum, bjó sér til tækifæri og starfar sjálfstætt í dag.
#70 Gísli Matthías - Á heimsklassa í Vestmannaeyjum 21.10.2020 2:05:14
"Gísli, hvað ertu að gera í Eyjum þegar þú getur komið til Reykjavíkur og orðið ríkur." - "Ég er í Vestmannaeyjum, þetta er einn af fallugustu stöðum í heimi. Ég er með veitingastað þar sem get gert hvað sem ég vil. Ég á 4 börn og konu sem ég elska út af lífinu... ég held ég gæti bara ekki verið ríkari. Þó svo að Slippurinn sé ekki að skila einhverjum peningum þá bara skiptir það ekki máli - hvað...
#69 - Sólrún Diego 14.10.2020 1:43:54
Sólrún Diego nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum þar sem hún fjallar um þrif, hagnýt húsráð, skipulag og lífsstíl almennt.
#68 Lukka Pálsdóttir - fita, kolvetni, offita og sykursýki 07.10.2020 1:38:58
Lukka Pálsdóttir útskýrir hvernig okkur mistekst að ná tökum á offitu og heilbrigði með því að berjast við hungrið: borða minna og hreyfa okkur meira. Af hverju hormónar vega meira en kaloríur. Hvernig fitusöfnun á sér stað og hvernig við getum snúið baki í bólgur, sykursýki, offitu og aðra langvinna sjúkdóma (vísbending: hættu að borða sykur).
#67 - Evert Víglundsson 30.09.2020 2:09:26
Evert Víglundsson, meðeigandi og stofnandi CrossFit Reykjavík, mættur aftur með lífskraftinn og Chihuahua hundinn Ronju með sér.
#66 - Friðrik Dór 23.09.2020 1:54:32
"Miðað við hvað fólk hataði þetta þá seldist fyrsta platan bara fínt" sagði Friðrik Dór um móttökurnar sem hann fékk við skrefi sínu inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2009. Rúmlega áratug síðar er hann einn vinsælasti tónlistarmaður, skemmtikraftur, dagskrágerðarmaður og skyndibitaunandi landsins. Ef þig langar að styrkja þáttinn um örfáa hundraðkalla á mánuði er vel tekið á móti þér á www.patreo...
#65 - Bogi Ágústsson 16.09.2020 1:12:03
Þjóðin hefur boðið Boga Ágústssyni, starfsmanni RÚV til 43. ára, inn í stofu til sín síðustu áratugina. Hér ræðum við þróun fjölmiðla, íþróttayfirburða Finna, hlaðvörp, eftirminnilega vinnudaga, akademísk vinnubrögð og heppnina að lenda í starfi sem maður hefur áhuga á. Smelltu hér til að fá aðgengi að þáttunum á undan öðrum/aðgang að aukaefni/styrkja þáttinn.
#64 Helgi Rúnar Óskarsson - Forstjóri 66° Norður 09.09.2020 2:33:15
Helgi Rúnar Óskarsson fór víða áður en hann tók við einu elsta og verðmætasta vörumerki Íslands og gjörbreytti rekstri þess. Eftir menntaskóla fékk hann draumastarfið á Bylgjunni sem útvarpsmaður og sá meðal annars um fyrsta vinsældarlista Bylgjunnar. Hann vissi samt að hann vildi fara út í sinn eigin rekstur og eftir nám í Bandaríkjunum opnar hann Subway í Danmörku, aðeins 28 ára gamall. Reksturi...
#63 Þorsteinn Friðriksson - Plain Vanilla, TeaTime Games og mistökin í átt að árangri 02.09.2020 1:46:28
Þorsteinn Friðriksson rekur söguna á bakvið það að stofna fyrirtæki án hugmyndar, ris Plain Vanilla og spurningaleiksins sem sigraði heiminn; Quiz up, fallið og gjaldþrotið sem fylgdi, að gefast ekki upp þegar maður er staddur á botninum, söluræðurnar sem söfnuðu milljöðrum frá fjárfestum, tímann í Oxford, TeaTime Games, að ná á toppinn aftur og hlutverk BT-músarinnar í sínu lífi.
#62 Vera Illugadóttir - Í ljósi sögunnar 16.07.2020 1:17:19
Vera Illugadóttir er flestum hlaðvarpshlustendum kunnug, allavega röddin hennar. Í þáttunum sínum skoðar Vera hryðjuverkaárásir, heimsfaraldra, fjársvikamál, raðmorðingja og fleiri viðfangsefni sem hörðustu aðdáendum þykir gott að sofna við - í ljósi sögunnar. Í þáttunum er farið víða en það hefur Vera sömuleiðis gert: Sýrland, Jemen, Líbía, Egyptaland og fleiri mið-austurlönd á ferðalagi með ömmu...
#61 - Guðjón Valur #9 01.07.2020 2:26:47
Handboltageitin Guðjón Valur Sigurðsson. Maðurinn sem skoraði sitt fyrsta landsliðsmark 20 ára gamall og leggur skóna á hilluna 20 árum seinna sem leikmaður PSG, eins besta handboltaliðs heims, markahæsti landsliðsmaður í heimi og fyrirliði íslenska landsliðsins.
#60 - Guðni Th. 24.06.2020 1:10:03
Guðni Th. í stórskemmtilegu spjalli um hlaupaferilinn, hraunið í Vestmannaeyjum, Oxford, ævisögu (í óþökk) Kára Stefánssonar, sáttarfundi þeirra í London, lýðheilsu, geðheilsu, líkamlega heilsu og hvernig við getum og eigum að hafa áhrif á eigin örlög.
#59 - Jói Fel 27.05.2020 1:28:51
Bekkpressa og kökuskreytingar. Skotveiði og listmálun. Skrifblinda og metsölubækur. Harður og mjúkur í einum manni: Jói Fel.
#58 Hreggviður Jónsson - Úr frystihúsinu á Djúpavogi yfir í 20 milljarða veltu 20.05.2020 1:42:08
Hreggviður Jónsson fæddist á Þórshöfn, 350 manna bæ á Langanesi. Hann tók virkan þátt í raunhagkerfinu: vann í fiski, fór á sjó og var verkstjóri í frystihúsinu á Djúpavogi aðeins 19 ára gamall. Úr Samvinnuskólanum á Bifröst fer hann í Harvard Business School og er fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast þaðan. Eftir nám gegnir Hreggviður ýmsum störfum fyrir meðal annars McKinsey í Stokkhólmi og ö...
#57 - Einar Carl & Helgi Freyr 13.05.2020 2:09:56
Helgi Freyr gafst upp á hreyfingu eftir að slíta á sér báða nárana tvisvar sinnum. Hann ákvað í staðinn að taka doktorsgráðu í eðlisfræði sem fylgdi 8 tímar á dag af skóla og 8 tímar af tölvuleikjum. Mikilli kyrrsetu fylgdu heilsukvillar en á sama tíma fylgdu allri hreyfingu miklir verkir. Í leit að lausnum kynntist Helgi Einari Carli sem sjálfur hafði leitað leiðarinnar að almennri heilsu og eðli...
Hringt og svarað 04 - Bergur Ebbi, Tryggvi Hjaltason 01.05.2020 1:53:09
00:00 - Inngangur og hringt í vin 13:58 - Bergur Ebbi/Dimitri Martin Kournikov (???), tennis, fótbolti, misþröngir búningar, Woody Harrelson vs. David Beckham og vídjóið sem eyðileggur mannorð Bergs en skýtur syni hans upp á stjörnuhimininn. 1:16:35 - Tryggvi Hjaltason, nýsköpun og sóknartækifæri, ofurheilsa og jákvæð áhrif öldrunar.
#56 - Sveppi Krull 15.04.2020 1:30:04
Sveppi fokking Krull og ekki orð um það meir.
Hringt og svarað 03 - Arnar Péturs, Anníe Mist, Halla Tómasdóttir 10.04.2020 1:30:58
0:00 - Inngangur og hringt í vin 10:40 - Arnar Pétursson: Rotterdam maraþonið, hérað með selfie-stöng og fyrstu skref í hlaupunum. 50:51 - Anníe Mist: Áhrif óléttunnar á vinnutækið, hvað verður um six-packið og meðgönguleikfimin. 1:11:16 - Halla Tómasdóttir: Í auga stormsins, tækifæri í krýsunni, góðar og slæmar ákvarðanir stjórnenda.
#55 Laddi - feimni, minnimáttarkennd og martröðin við að koma fram 08.04.2020 1:16:39
Laddi segir söguna af því hvernig húsgagnasmíði og málarahæfileikar komu honum í sjónvarp og hvernig hann gerði sína verstu martröð, að koma fram fyrir framan hóp af fólki, að atvinnu sinni.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos