Snorri Björns
The Snorri Björns Podcast Show
Snorri Björns og áhugavert fólk.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: snorribjorns.libsyn.com
Autor
Snorri Björns
Categoria
Site do podcast
Último episódio
1 de dez de 2023
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#102 Ragnar Jónasson - Milljóna bóka rithöfundurinn í bankageiranum 22.09.2021 1:28:45
Ragnar Jónasson labbaði inn í bókaforlag 17 ára gamall bauðst til að þýða Agöthu Christie bækurnar vinsælu. Næstu 15 ár, í gegnum lögfræðinám, störf sem fréttamaður og lögræðingur Kaupþings þýddi hann bækur á hliðarlínunni en það var ekki fyrr en í fjármálahruninu 2008 sem Ragnar, bankastarfsmaðurinn, staldraði við og ákvað að reyna á bókakskrifin. Sú ákvörðun bar ávöxt: 1. sæti í Frakklandi, 1. s...
#101 - Bjarni Benediktsson 15.09.2021 1:40:31
Í þættinum ræðum við feril Bjarna fyrir pólitíkina, fótboltann, lögfræðina, námið í þýskalandi og Ameríku, að verða faðir 21 árs gamall, maraþonhlaup og hvernig stjórnarslit komu í veg fyrir Berlínarmaraþonið, hvernig annasamasti maður landsins - áreittur úr öllum áttum - finnur tíma fyrir fjölmörg áhugamálin sín (veiði, skíði, ljósmyndun, blómarækt, kökuskreytingar ofl.) og hleður batterýin í bað...
#100 Martha Ernstsdóttir - Hraðasti hlaupari Íslandssögunnar 08.09.2021 1:44:13
Martha Ernstsdóttir er fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa maraþon á Ólympíuleikunum og Íslandsmetin hennar í 5000m 10000m, hálfu maraþoni og heilu maraþoni standa ennþá - og það nokkuð örugglega. Hér förum við yfir hörkuna sem Martha og langhlauparar búa yfir, feril og yfirburði Mörthu, æfingarnar í snjónum, púlsþjálfun, mjólkursýrumælingar, ofþjálfun, egóið, að gera það sem maður vill og hvern...
#99 - Willum Þór Þórsson 01.09.2021 1:43:59
"Ég get tekið undir það ég er alveg grjótharður gamli skólinn." Willum Þór ræsti skólagönguna 5 ára gamall, lék með yngri landsliðum í körfubolta, fótbolta og handbolta ásamt því að leika fyrir meistaraflokk KR í öllum þremur greinunum á sama tíma. Kennari, þjálfari og alþingismaður af gamla skólanum sem hefur aldrei felt niður kennslu, tekið sér veikindadag frá vinnu og er með 99% mætingu á þin...
#98 - Anníe Mist 25.08.2021 1:48:16
Anníe Mist vann sér inn medalíu á CrossFit Games 2021, 10 mánuðum eftir barnsburð. Ótrúleg frammistaða eftir áratug í sportinu rakin, hugmyndin um að sleppa þessum heimsleikum bara, ákvörðunin að eignast barn, fjárhagur crossfittara, konur eru ekki litlir menn, hvernig konur eiga að nærast/æfa öðruvísi en karlar og margt fleira. Dave Castro, framkvæmdastjóri CrossFit Games: People are too casual...
#97 Birgir Jónsson - Úr prentnámi og þungarokki í forstjórastólinn 21.07.2021 1:44:14
Birgir Jónsson er forstjóri PLAY Air en það er þriðja flugfélagið sem hann starfar fyrir. Rétt orðinn þrítugur var hann kominn í forstjórastól Iceland Express og þar áður bjó hann í Hong Kong sem svæðisstjóri Össur. Atvinnuferill Birgis er áhugaverður í ljósi þess að hann er menntaður sem offset prentari, fór í listaháskóla í London og var þungarokkari. Munurinn á rekstri fyrirtækja og þungarokksh...
#96 - Þorsteinn Bachmann 14.07.2021 1:55:18
Þorsteinn Bachmann fer með stórleik í þessum þætti. Við útskýringar á aðferðarfræði Chekhov og Stanislavski var hann við það að bresta í grát þáttastjórnandi líka. Við förum yfir hlutverkið hans í Kötlu, hvernig Helgi Björns kickstartaði leikferli Þorsteins og feimnina sem hann þurfti að yfirstíga til að mæta á svið - sem var svo mikil að hann kastaði upp á milli sena.
#95 Hafsteinn Ægir - Ólympíufari og Íslandsmeistari í sitthvorri íþróttinni 07.07.2021 1:59:16
Hafsteinn Ægir Geirsson er einn albesti hjólari landsins. Hann hefur unnið Bláa Lóns þrautina í fjallahjólreiðum 11 sinnum og er sömuleiðis margfaldur Íslandsmeistari í götuhjólreiðum. Ekki nóg með að ná langt í hjólreiðum hefur hann farið á tvenna ólympíuleika í allt annarri íþrótt: siglingum. Hafsteinn segir okkur frá því hvernig hann fann sig í siglingunum sem ungur strákur, hætti í menntaskóla...
#94 Ásgeir Jónsson - Seðlabankastjóri Íslands 30.06.2021 1:29:15
Ásgeir Jónsson ólst upp í sveit og var illa tekið af samnemendum í grunnskólanum sínum. Hann átti erfitt með tal, var ólæs og lagður í einelti af jafnöldrum sínum. Þegar honum tókst loksins að lesa ákvað hann að fara alla leið í því námi sem hann tæki sér fyrir hendur. Eftir stutta viðkomu í líffræði, læknisfræði, á spítalanum og á sjónum endaði Ásgeir í hagfræði sem leiddi hann í starf aðalhagfræ...
#93 Ármann Þorvaldsson - Sagnfræðingurinn bakvið fjármálaveldið 23.06.2021 1:53:34
Kennarasonurinn úr Breiðholtinu sem æfði badminton, kláraði menntaskólann á 5 árum, mætti ekki á böll og lærði sagnfræði í háskólanum til þess að sinna þeirri köllun sem hann fann hjá sér til að kenna menntskælingum sögu. Allt kom fyrir ekki, Ármann Þorvaldsson rataði inn fyrir dyr Kaupþings sem breyttist úr smáfyrirtæki í langöflugasta og verðmætasta fyrirtæki landsins á skömmum tíma. Sagan endar...
#92 Guðmundur Kristján - Af hverju borgarskipulag skiptir þig máli 16.06.2021 2:24:12
Hvar viltu búa og hvað kostar þig að búa þar? Hvar er byggt og af hverju? Af hverju er freistandi að dúndra bara upp nýju úthverfi? Hvað geturu gert fyrir peninginn sem fer í bílinn þinn og hvers virði er tíminn þinn raunverulega? Borgarskipulag hefur víðtæk áhrif og skiptir sköpum þegar kemur að lýðheilsu þjóðar, loftgæðum og umhverfismálum. Lóðaframboð, blönduð byggð, samgöngumátar, deiliskipula...
#91 - Elísabet Ronaldsdóttir 09.06.2021 1:42:07
Deadpool, John Wick, Contraband, Ófærð, Mýrin og Djúpið - allt eru þetta myndir sem Elísabet Ronaldsdóttir hefur klippt og unnið að. Svo langt hefur hún náð í faginu að hún var valin í Óskarsverðlauna tilnefninganefnd og hlaut Fálkaorðuna fyrir störf sín. Hér ræðir hún upphaf ferilsins, að hlusta á sjálfa sig og standa með sér (hafna blockbuster verkefnum frá Marvel og skila Fálkaorðunni), 4. stig...
#90 - Sara Sigmundsdóttir 03.06.2021 1:34:06
Sara Sigmundsdóttir fékk þungt högg á hnéð og CrossFit keppnistímabilið þegar hún sleit krossband í mars síðastliðnum. Það dregur þó ekki úr andanum, hún hefur nóg á sinni könnu og snýr sér að grunninum í CrossFit, vinnu með hausinn á sér í samstarfi við sálfræðinga og svokallaðan 'mental performance coach', verkefnaskilum í sálfræði, hönnun á fatalínu og fleiri tækifærum sem rata á borð stjörnunn...
#89 Hjálmar Gíslason - stofnun fyrirtækja, framkvæmd hugmynda og tækniframþróunin 27.05.2021 1:35:21
Hjálmar er tæknifrumkvöðull og stofnandi 5 fyrirtækja. 3 þeirra voru seld með góðum hagnaði og það nýjasta, GRID, lauk nýverið 2 milljarða fjármögnun. Hjálmar talar um mýkri hliðar fyrirtækjareksturs og frumkvöðlamennskunar, að koma fram þrátt fyrir feimni (í hans tilfelli á fyrirlestri í Hvíta húsinu) og að finna persónulegar ástæður fyrir því sem maður tekur sér fyrir hendur. Einnig förum við yf...
#88 - Hannes Þór Halldórsson 21.05.2021 2:09:31
Maðurinn sem varði vítið frá Messi og leikstýrði tónlistarmyndbandinu við 5 ár Richter með Nylon. Hannes á ekki hefðbundna sögu atvinnuíþróttamanns sem byrjar ungur að æfa og vex svo í íþróttinni. Íþróttaferillinn vék um tíma fyrir leikstjóraferlinum þar sem Hannes leikstýrði meðal annars Atvinnumönnunum okkar. Í einum þættinum er fylgt eftir Eiði Smára Guðjohnsen og þó enginn viðstaddur hefði trú...
#87 Hafliði Ragnarsson - Ástríðan fyrir súkkulaði og annar séns eftir heilablóðfall 28.04.2021 1:32:12
Það kom líklega keppendum, dómurum og viðstöddum á óvart þegar það kom í ljós að 2. sætið á heimsmeistaramóti í súkkulaðigerð fór til ungs bakara frá litlu bakaríi í Mosfellsbæ á Íslandi og var 0,1% stiga frá sigursætinu - en ekki uppaldra belgískra súkkulaðigerðarmanna. Hafliði kemur af ættum bakara og ákvað að sérhæfa sig í desert- og súkkulaðigerð. Leiðin til að skara fram úr fólst í því að les...
#86 Hrefna Sætran - fine-dining og pizzur, kraftlyftingar og yoga, ballett og hip-hop 21.04.2021 1:33:03
Það sem þið vissuð líklega ekki um Hrefnu Sætran er að hún er margfaldur Íslandsmeistari í dansi, Kundalini yogakennari, æfir kraftlyftingar, stundar laxveiði, er mikill hiphop-haus og elskar taco og Japan. Hún er hins vegar betur þekkt fyrir að reka tvo flottustu veitingastaði í Reykjavík: Fiskmarkaðinn og Grillmarkaðinn ásamt Skúla Craft Bar.
#85 Veigar Margeirsson - Framúrskarandi í Hollywood 14.04.2021 2:05:19
Veigar flutti ungur til Bandaríkjanna til að stunda tónlistarnám. Fljótlega fann hann sig fremstan meðal jafningja í suðupotti kvikmyndaframleiðslu heimsins: Hollywood. Veigar semur tónlist fyrir stiklur (e. trailer) vinsælustu bíómynda heims, þar á meðal Star Wars, Batman Begins, Lord Of The Rings, The Joker og hefur gerst svo lánssamur að vinna með Steven Spielberg fyrir Ready Player One. Á meða...
#84 Hlynur Andrésson - Íslandsmet í maraþoni í fyrstu tilraun 07.04.2021 1:40:25
Hlynur Andrésson er margfaldur Íslandsmethafi í hlaupum, það kann að koma á óvart þar sem Hlynur fékk styrk til að stunda nám og æfa körfubolta í Bandaríkjunum en tók þátt í víðvangshlaupi sem hann vann óvænt og hefur síðan þá slegið hvert Íslandsmetið á fætur öðru - ásamt því að ljúka BS og Master í krefjandi líffræðinámi Bandaríkjanna.
#83 Kristrún Frostadóttir - Hvað er að gerast í hagkerfinu og af hverju? 24.03.2021 2:29:46
Fyrri hluta þáttar fáum við að heyra um vegferð Kristrúnar í gegnum Boston University, Yale og hvernig hún vann sig inn og upp stigann hjá Morgan Stanley, einum stærsta fjárfestingabanka heims. Síðari hluti þáttar er ótrúlegt samspil hagræðiþekkingar Kristrúnar og fáfræði minnar. Við förum yfir stöðu hagkerfisins í dag, hvað seðlabankinn gerir, hvernig ákvarðanir seðlabankans hafa áhrif á þig,...
#82 Tryggvi Þorgeirsson - Gestakennari hjá Harvard og MIT í behavioral economics og forstjóri Sidekick Health 17.03.2021 1:34:45
Tryggvi Þorgerisson er læknir með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum frá Harvard og gestakennari í Harvard og MIT í atferlishagfræði (e. behavioral economics), þar sem spurningunni um af hverju við gerum það sem við gerum er svarað. Hann er forstjóri Sidekick Health sem beitir sér fyrir fyrirbyggjandi nálgun á heilbrigðisþjónustu með notkun leikjavæðingar og atferlisfræðanna. Sidekick fékk nýveri...
#81 Yrsa Sigurðardóttir - Metsöluverkfræðingurinn á Kárahnjúkum 10.03.2021 1:39:03
Þegar engar góðar barnabækur voru í boði fyrir börn Yrsu tók hún sig til og skrifaði eina slíka sjálf. Nokkrum árum seinna, starfandi sem verkfræðingur, finnur hún tíma aflögu á þáverandi vinnustað sínum, Kárahnjúkum, og hristir fram handritið af Þriðja tákninu til þess að stimpla sig inn sem vinsælasta rithöfund landsins. Yrsa fer hér yfir þörf mannsins til að skapa eitthvað, efann sem læðist að...
#80 Una Emilsdóttir - Eiturefnin sem þú borðar og berð á þig 03.03.2021 2:42:40
Una Emilsdóttir, læknir og eiturefna-aðgerðasinni, vopnar hér hlustendur með upplýsingum um skaðsemi efna í umhverfi okkar sem við innbyrðum, bæði meðvitað og ómeðvitað. Útsetning þessara efna hefur varanleg áhrif á lífsgæði og líkama okkar en Una snýr umræðunni einnig í áttina að fóstrum í móðurkviði. Lausnin felst í því að losa sig við þessi eiturefni og hjálpa líkamanum eftir fremsta megni að s...
#79 Siggi Ragnarsson - hvað getur þú lært um heilsu af besta þríþrautarmanni landsins? 24.02.2021 2:10:50
Hvers vegna er það að hamla þér að taka of mikið á því? Hvernig veistu hvort líkaminn sé úthvíldur eða útkeyrður? Er grunn og ör öndun að halda aftur af þér? Hvernig eykuru hlutfall fitubrennslu á móti kolvetnabruna í líkamanum og af hverju skiptir það máli? Sigurður Ragnarsson er útpældur og ofurþjálfaður íþróttamaður með verkfræðilega nálgun á sína íþrótt. Þegar maður setur 25-30 klukkustundir á...
#78 - Tolli Morthens 17.02.2021 1:20:32
Tolli vann sem skógarhöggsmaður og á sjó þegar hann ákvað að láta reyna á myndlistina fyrir fullt og allt. Eftir að halda sýningu inn á kaffistofu dekkjaverkstæðis og selja myndir fyrir meira en árslaun sín lofaði hann sér að hafa í sig og á gegnum myndlistina það sem eftir er. Nú 30 árum síðar heldur Tolli enn í loforðið og ver bæði tíma sínum og orku í að hjálpa þeim sem minna mega sín að finna...
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos