Þorsteinn Mar Gunnlaugsson

Spilastund

Leisure IS ↓ 24 episódios

Hlaðvarp um spunaspil. Fjallað verður um spunaspil í sinni víðustu mynd og þau skoðuð frá mismunandi sjónarhornum, kerfi rædd, heimar gaumgæddir og aðferðir við spilun og stjórnun rýndar. Stjórnandi: Þorsteinn Mar

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: yawningportal.org

Autor

Þorsteinn Mar Gunnlaugsson

Categoria

Leisure

Site do podcast

yawningportal.org

Último episódio

24 de mai de 2025

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Víkingaöldin 24.05.2025

Í tilefni af útgáfu spunaspilsins Age of Vikings eftir Pedri Ziviani fjalla ég um hvernig nýta má íslenskar miðaldabókmenntir sem efnivið í spunaspil og ævintýri. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Hrafnalönd 09.05.2025

Hrafnalönd eða Ravenloft er sögusvið í D&D þar sem gotneskur hryllingur er allt umlykjandi. Í þessu þætti fjalla ég um sögu heimsins og helstu einkenni. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Spilamót 15.09.2024

Í þessum þætti fjalla ég um sögu spilamóta hérlendis, allt frá fyrstu Fáfnismótunum til Spunaspilavina. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Hetjur, andhetjur og illmenni 30.07.2024

Í þessum 21. þætti spilastundar er fjallað um hetjur, andhetjur og illmenni, sem og hvernig þessi hugtök hafa áhrif á persónusköpun og val á spunaspili. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Frábærir stjórnendur 26.03.2024

Hver er munurinn á góðum og frábærum stjórnanda? Í þessum þætti ræði ég stuttlega hvað ég tel einkenna frábæran stjórnanda í spunaspilum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Um Haf Fallinna Stjarna 17.12.2023

Í þessum þætti fjalla ég stuttlega um langhleypu sem ég hef verið að stýra undanfarin ár og hvað ég hef lært af því að stýra henni. Sagan segir frá áhöfn skipsins Sædísar og ævintýrum hennar á Hafi Fallinna Stjarna í Feyrúnu í Gleymdu Ríkjunum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Íslenskun spunaspila 26.11.2023

Það er mikilvægt að bjóða upp á spunaspil þannig að sem flestir geti notið þeirra hérlendis. Því er tekin til umræðu væntanleg þýðing á regluverki D&D sem verður gerð aðgengileg innan skamms.

Spunaspil og kennsla 11.11.2023

Í þessum þætti fjalla ég aðeins um hvernig hægt er að nota spunaspil í kennslu og hvað ég hef lært af því að kenna spunaspil í grunnskóla í nokkur ár. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Viðtal við Hjalta Nönnuson 06.10.2023

Hjalti Nönnuson er meðal okkar reyndustu stjórnenda og hefur löngum stýrt skemmtilegum langhleypum. Við ræddum saman um hvernig sé best að standa því að segja slíkar sögur með leikmönnum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber

Viðtal við Alexöndru Briem 22.09.2023

Alexandra Briem kíkti í spjall um upplifun hennar af spunaspilum, hvernig þau hafa nýst henni í stjórnmálum sem og hvernig spunaspil hjálpuðu henni að skoða sjálfa sig sem transmanneskju. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Viðtal við Snæbjörn í Svörtu Tungunum 02.09.2023

Snæbjörn Ragnarsson, meðlimur Svörtu Tungnanna og þungarokkari með meiru, kíkti í heimsókn og ræddum við um spunaspil og þá sérstaklega spunaspilabækur. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Viðtal við Gunnlaug, hönnuð spilanna Junkpunk og Faith & Fury 25.08.2023

Í þessum þætti ræði ég við Gunnlaug Arnarson en hann hefur hannað og gefið út tvö spunaspil, annars vegar Junkpunk og hins vegar Faith & Fury. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Viðtal við Tinnu Halls 16.08.2023

Tinna Halls, spunaspilari og stjórnarmeðlimur í Hlutkesti, kom í spjall. Ræddum við um stjórnun spunaspila, Hlutkesti og GenCon. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Viðtal við Helga Má 09.08.2023

Helgi Már er flestum íslenskum spunaspilurum af góðu kunnur, enda verið viðloðinn spunaspilasenuna í meira en þrjá áratugi. Helgi kíkti í heimsókn og ræddum við um stjórnun spunaspila. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Kall Cthulhu 20.06.2023

Í þessum þætti er fjallað um spunaspilið Kall Cthulhu, rýnt í heimsmynd spilsins og nýjasta útgáfa kerfisins skoðuð lítillega. Bakgrunnstónlist gerði ⁠⁠Cryo Chamber.⁠⁠

Dark Sun - Sortasól 15.05.2023

Í þessum þætti er fjallað um D&D heiminn Dark Sun, eða Sortasól, sem hefur um árabil verið með vinsælli heimum þessa fræga spunaspils. Bakgrunnstónlist gerði ⁠Cryo Chamber.⁠

Að verða betri stjórnandi - 2. hluti 16.04.2023

Þessi þáttur er framhald síðasta þáttar, hvar fjallað var um að verða betri stjórnandi. Í þessum þætti er m.a. fjallað um hvernig er hægt að eiga við erfiða leikmenn sem og muninn á sandkössum og lestarteina frásögnum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.

Að verða betri stjórnandi 07.04.2023

Hvað þurfa nýir stjórnendur að hafa í huga? Hvernig verður maður betri stjórnandi? Í þessum þætti er fjallað um hlutverk stjórnanda og rætt um hvaða atriði skipta máli þegar kemur að stjórnun hvers kyns spunaspila. Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber.

Að vera byrjandi 18.03.2023

Í þessum þætti er fjallað hvernig er að vera byrjandi í spunaspilum, byrjendakassa og hlutverk eldri leikmanna gagnvart nýjum. Bakgrunnstónlist var unnin af https://cryochamber.bandcamp.com/ https://cryochamber.bandcamp.com/

Hliðvarsla í spunaspilum 08.06.2022

Allt frá árdögum spunaspila hafa leikjahönnuðir, útgáfur og spunaspilarar ástundað hliðvörslu og reynt að gæta þess hverjir fái að taka þátt í þessu skemmtilega áhugamáli. VIð erum hins vegar orðin meðvitaðari í dag um hvað er fólgið í slíkri hliðvörslu og útgáfur hafa einnig lagt sitt af mörkum til að fá fleiri að spilaborðinu.  Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber. 

Star Wars spunaspil 05.06.2022

Í þessum þætti er fjallað um sögu Star Wars spunaspila og rýnt stuttlega í hin ólíku kerfi sem notuð hafa verið í gegnum tíðina til að endurspegla þann heim, allt frá því að fyrsta Star Wars spunaspilið kom fram til prufuútgáfa sem finna má á netinu í dag.  Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber. 

Ævintýragerð og frásagnartækni 30.04.2022

Það getur verið gott fyrir stjórnendur að þekkja helstu formgerðir ævintýra sem og kunna skil á nokkrum þáttum góðrar frásagnartækni. Hvað einkennir frásagnir spunaspila og hvernig er frásagnartækni þeirra ólík hefðbundinni frásagnartækni bókmennta?  Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber. 

Askur Yggdrasils 11.04.2022

Askur Yggdrasils er eina spunaspilið sem hefur komið út á íslensku. Spilið var gefið úr árið 1994 af bókaforlaginu Iðunni og gert af þeim Rúnari Þór og Jóni Helga Þórarinssonum. Hér er fjallað um spunaspilið, kosti þess og galla, sögu og áhrif.  Bakgrunnstónlistin gerð af Cryo Chamber.

Saga spunaspila 24.03.2022

Árið 1974 kom út fyrsta útgáfa af Dungeons & Dragons spunaspilinu út, en það var gefið út af fyrirtækinu TSR. Í kjölfarið fylgdu fleiri spunaspil, á borð við Runequest og Call of Cthulhu, og hafa vinsældir spunaspila aukist jafnt og þétt. Hins vegar hefur aðeins eitt íslenskt spunaspil verið gefið út, en það heitir Askur Yggdrasils. Bakgrunnstónlist unnin af Cryo Chamber .

Ouça o podcast Spilastund no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos