RÚV
Sjö mínútur með fréttastofu RÚV
Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.ruv.is
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Þegar heilt bæjarfélag var rýmt á nokkrum klukkustundum 13.11.2023 6:35
Hvernig var heilt bæjarfélag rýmt á nokkrum klukkustundum? Sjö mínútur með fréttastofu RÚV eru helgaðar stöðunni í Grindavík og aðdraganda þess að íbúum var gert að yfirgefa bæinn sinn. Viðmælandi er Valur Grettisson. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Vandræði hjá fyrrverandi forstjóra Marel og hvað gerist hjá KSÍ? 10.11.2023 7:48
Af hverju hætti forstjórinn hjá Marel? Hver verður næsti formaður KSÍ? Magnús Geir Eyjólfsson, Einar Örn Jónsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Er borgin í plús? Og er silla sýnatökupinni jarðhræringanna? 08.11.2023 7:37
Hvort verður borgin rekin í plús eða mínus á næsta ári? Af hverju hafa vísindamenn svona miklar áhyggjur nú af jarðhræringunum á Reykjanesskaga? Magnús Geir Eyjólfsson og Ragnhildur Thorlacius segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Svona var Íslendingunum forðað frá Ísrael eftir árás Hamas 06.11.2023 7:38
Hvernig var yfir hundrað Íslendingum forðað frá Ísrael eftir hryðjuverk Hamas í byrjun október? Og hvað kostar slíkar björgunaraðgerð? Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Árás á flóttamannabúðir og skotárás í Úlfarsárdal 03.11.2023 7:32
Getur árás á flóttamannabúðir verið eitthvað annað en árás? Hvað gerðist í Úlfarsárdal í gær? Dagný Hulda Erlendsdóttir og Sólveig Klara Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Ríkisstjórn sem virðist ekki springa og Matthew Perry 01.11.2023 7:30
Af hverju virðist ríkisstjórnin ekki geta sprungið? Hvers vegna syrgir heimsbyggðin Matthew Perry. Magnús Geir Eyjólfsson, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Nýtt mat í hoppukastalamáli og verst geymda leyndarmál Íslandssögunnar 27.10.2023 6:55
Hversu mikilvægir eru vindmælar eða öllu heldur skortur á þeim í Hoppukastalamálinu? Af hverju eru Bandaríkjamenn ekki löngu búnir að herða byssulöggjöfina sína? Hvert er eitt versta geymda leyndarmál Íslandssögunnar? Ólöf Erlendsdóttir og Ólöf Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Ruglingslegt hryðjuverkamál og sundraðir Repúblikanar 25.10.2023 6:45
Af hverju er hryðjuverkamálið svona ruglingslegt og hvers vegna geta Repúblikanar ekki komið sér saman um þingforseta. Stígur Helgason og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson.
Samherjaskjölin og munúðarfull fasteignaauglýsing 23.10.2023 6:47
Hvers vegna hefur rannsókn Samherjamálsins tekið svona langan tíma? Má auglýsa unaðstæki í fasteignaauglýsingu? Stígur Helgason, fréttamaður, og Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Ástandið í Mið-Austurlöndum og fjórða gosið væntanlegt 20.10.2023 6:47
Getur ekkert komið í veg fyrir innrás Ísraels á Gaza? Þarf alltaf að vera gos? Bjarni Pétur Jónsson og Kristín Jónsdóttir segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson.
Skelfileg loftárás á spítala á Gaza og heimsókn Joe Bidens til Ísraels 18.10.2023 7:00
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, er væntanlegur til Ísraels í dag í skugga skelfilegrar árásar á sjúkrahús á Gaza. Stjórnarandstaðan er nokkuð sátt með vandræðagang ríkisstjórnarinnar. Bjarni Pétur Jónsson og Magnús Geir Eyjólfsson segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson
Ráðherrar skiptast á embættum og Taylor Swift 16.10.2023 6:45
Hverjir voru sáttir við stólaleikinn á laugardag? Er Taylor Swift búin að sigra heiminn. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Ingunn Lára Kristjánsdóttir segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson.
Ráðherrakapall, Gaza og Gylfi Þór 13.10.2023 7:22
Er einhver sem veit hver næsti fjármálaráðherra verður? Er von um frið í stríði Ísraels og Hamaz? Leikur Gylfi Þór Sigurðsson með landsliðinu í kvöld? Magnús Geir Eyjólfsson, Bjarni Pétur Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segja frá.
Frásögn af afsögn 10.10.2023 7:00
Afhverju sagði fjármálaráðherra af sér og hvaða áhrif hefur afsögnin á ríkisstjórnarsamstarfið? Magnús Geir Eyjólfsson segir frá atburðarrás gærdagsins.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos