Atli Hergeirsson
Leikfangavélin
Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á Facebook og smellið endilega í eins og eitt "like". Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: shows.acast.com
Autor
Atli Hergeirsson
Categoria
Site do podcast
Último episódio
12 de jun de 2024
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Eric Carr (Paul Caravello) - The Fox 24.11.2020 1:17:53
Eric Carr (fæddur Paul Charles Caravello) tók við af Peter Criss sem trommuleikari KISS árið 1980. The Fox 1950 - 1991. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Wayne Static X - Metal Saga 06.11.2020 1:17:02
Í miðri þriðju bylgju COVID faraldursins er lítið um gestagang í vélarúmi Leikfangavélarinnar. Þessi þáttur er því „sóló“ þar sem við kynnum okkur Bandarísku sveitina STATIC-X og þá sérstaklega söngvara þeirra, sjálfan Wayne Static. STATIC-X sem sendu frá sér frumburð sinn, hina stórgóðu plötu Wisconsin Death Trip árið 1999 gáfu út sína sjöundu breiðskífu sumarið 2020. Það er meira að segja von á...
Bitið fast í vitið með Jakobi Smára Magnússyni 16.10.2020 1:49:29
Bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon á að baki ótrúlegan feril. Eftir að hafa verið meðlimur í böndum eins og Tappa Tíkarrass, Das Kapital, MX-21, Stríð & Friður, Grafík, SSSól, Egó, Reiðmenn vindanna og mun fleirum fékk hann tækifærið sem hann, líkt og flestir aðrir tónlistarmenn, þráði alltaf. Það var þegar John Grant tók hann með á túr þar sem hann spilaði með honum á stórum tónleikum hér o...
Haraldur F. Gíslason og 25 ára gamalt Drullumall 08.10.2020 1:37:53
Hafnarfjarðarsveitin Botnleðja var stofnuð með það að markmiði að vinna Músíktilraunir árið 1995 sem gekk svo eftir. Að launum fengu þeir nokkra tíma í hljóðveri þar sem þeir tóku upp sína fyrstu skífu, Drullumall. Átján mánuðum síðar voru þeir komnir á tónleikaferð um Bretland ásamt Blur. Halli trommari Botnleðju kíkti í Leikfangavélina og rifjaði upp Drullumallið ásamt öðru frá Botnleðju árunum....
Rúnar Þór og Eyðimerkurhálsar 12.09.2020 2:50:40
Rúnar Þór Pétursson gaf út plötuna Eyðimerkurhálsa til styrktar SÁÁ árið 1988. Hér förum við yfir þessa 10 laga plötu saman lag fyrir lag ásamt því að gera upp líf og feril Rúnars en hann hefur starfað við tónlist allt sitt líf. Skemmtilegt spjall sem fer allt frá því þegar Rúnar sótti Bjarnastaða beljurnar syngjandi 1.12.87 í huganum þá 12 ára, gegnum unglingsárin á Ísafirði, tónlistina, drykkjun...
Cliff Burton 1962 - 1986 10.08.2020 1:21:41
Clifford Lee Burton fæddist árið 1962. Hann varð annar bassaleikari Metallica á eftir Ron McGovney, þegar hann gekk til liðs við bandið í desember 1982. Þá var hann búinn að leika með nokkrum hljómsveitum og fanga athygli þeirra Lars og James fyrir framúrskarandi bassaleik og framkomu á sviði. Mögnuð saga Cliff Burton sem lést aðeins 24 ára er hann var á tónleikaferðalagi um Evrópu árið 1986 með M...
Carol Kaye - The first lady of bass guitar 01.07.2020 1:52:05
Ef þú hefur einhvern tíma heyrt tónlist þá hefur þú hlustað á Carol Kaye. Hún er fædd árið 1935 og hefur verið einn af þeim fremstu bassaleikurum í sögu rokksins í meira en 50 ár. Þetta er bassaleikarinn sem menn hringdu í þegar fara átti í plötuupptökur, bassalínur hennar, grúvið og sándið er engu líkt. Session bassaleikari, "Hired gun". Þvílíkur ferill og ævistarf hjá Carol. The Beach Boys, Elvi...
Bruce Kulick - Kiss 09.04.2020 1:23:29
Bruce Kulick tók við gítarnum úr höndum Mark St. John í hljómsveitinni Kiss árið 1984. Því starfi hélt hann í 12 ár eða allt þar til upprunalegu meðlimir bandsins komu saman á ný og skelltu málningunni framan í sig aftur. Bruce og fyrrnefndur Mark eru þeir einu í sögu Kiss sem ekki hafa borið hina frægu andlitsmálningu. Ég hringdi í Bruce og við fórum yfir ýmis mál, allt frá upphafsdögum hans og í...
Sigrún Stella 01.04.2020 54:44
Sigrún Stella er höfundur og flytjandi vinsælasta lags landsins í dag (þegar þetta er tekið upp í lok mars árið 2020), Sideways. Hún býr í Kanada þar sem hún er reyndar fædd en ólst upp að mestu leyti á Akureyri. Í þessu skemmtilega spjalli við þessa hressu og hæfileikaríku tónlistarkonu förum við yfir líf hennar og feril ásamt því að skoða hvað er framundan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy...
Einar Hrafn Stefánsson 25.03.2020 1:04:07
Einar Hrafn Stefánsson er trommuleikari, gítarleikari og bassaleikari ásamt reyndar mörgu öðru. Þá var hann nýlega ráðinn sem markaðsstjóri Íslenska Dansflokksins en er auk þess í tveimur af vinsælustu hljómsveitum landsins, þeim VÖK og HATARA. Með þeim síðarnefndu vakti hann mikla athygli þegar þeir félagar kepptu fyrir Íslands hönd í lokakeppni Eurovision í Ísrael árið 2019. Hver man ekki eftir...
Markelsbræður 18.03.2020 1:40:42
Kvikmyndagerðamennirnir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson sem saman mynda tvíeykið Markelsbræður eru gestir þáttarins. Þeir eru mennirnir sem gerðu hina vinsælu og bráðfyndnu gamanmynd „Síðasta veiðiferðin“. Við skyggnumst á bakvið tjöldin við gerð hennar ásamt mun fleiru til en Markelsbræður hafa gert fjölmargar aðrar myndir. Þar má finna sumar afar áhugaverðar heimildamyndir eins og „Lónb...
George Leite 11.03.2020 1:09:34
Gestur þáttarins er fæddur í Salvador í Brasilíu þann 16.desember 1980. Hann kom hingað til lands sem skiptinemi árið 1998 og ætlaði sér að stoppa í 1 ár. Síðan þá eru ss liðin öll þessi ár en hann hefur verið hér á Íslandi meira og minna alla tíð síðan. George Leite er ljósmyndari, veitingamaður, sundknattleiksmaður, leikari o.fl. og hér segir hann sína sögu í góðu spjalli okkar þar sem hann fer...
Alda Karen Hjaltalín 04.03.2020 1:14:52
Gestur minn í Leikfangavélinni er meira en nóg í þetta skiptið. Akureyringurinn Alda Karen Hjaltalín fer hér yfir líf sitt og feril í stórskemmtilegum og áhugaverðum þætti. Allt frá knattspyrnuferli hennar í gegnum menntaskólaárin, Ghostlamp og Reykjavíkurdætur til fyrirlestranna vinsælu sem hún heldur í dag og við þekkjum flest sem Life Masterclass. Alda er búsett í New York en gaf sér tíma í hei...
Jón Birkir Lúðvíksson 26.02.2020 1:02:37
Nördar og sannar lygasögur, ó já. Og núna ætla ég að freista þess að skoða hvað er hinumegin við móðuna miklu og ná þannig fram ótrúlegri frásögn í bland við svolítinn nörd frá viðmælanda mínum honum Jóni Birki Lúðvíkssyni. Jón Lúðvíks er einn af vinsælustu miðlum landsins en hóf ekki að sinna þessari gáfu sinni fyrr en á fullorðinsaldri þrátt fyrir að vera gæddur henni síðan hann var barn. Við he...
Sóley Kristjánsdóttir 19.02.2020 1:27:50
Sóley Kristjánsdóttir eða DJ Sóley er algjör nagli sem kallar hreint alls ekki allt ömmu sína. Hún er í þotuliðinu má segja og er með þekktustu plötusnúðum landsins. Hún er fyrrverandi fyrirsæta, sjónvarpskona og útvarpskona svo eitthvað sé nefnt. Hún er nokkuð gömul sál og kann að fara með lengri ljóð en flestir og það á afar faglegan hátt. Hún elskar að vinna í garðinum sínum og hlustar á sinfón...
Heiðar "Aðaldal" Jónsson & KISS-fárið 12.02.2020 1:53:27
Heiðar Aðaldal Jónsson er smitaður af KISS veirunni líkt og reyndar sjálfur þáttastjórnandinn. Heiðar er sveitastrákur að norðan en býr í höfuðborginni þar sem hann lifir sannkölluðum KISS lífstíl. Hann er einn af stofnendum KISS ARMY ICELAND sem er aðdáendaklúbbur hljómsveitarinnar KISS hér á landi. Hann hefur farið á allnokkra tónleika með goðunum ásamt öðrum einstökum eventum þeim tengdum og ja...
Kristinn Sæmundsson 05.02.2020 2:31:41
"Nördar og sannar lygasögur" er það sem við skulum kalla þáttaröð númer 2 af Leikfangavélinni. Fyrstur á svið er Kristinn Sæmundsson, Kiddi Kanína, Kiddi í Hljómalind. Hér talar hann opinskátt um líf sitt og feril. Unglingsárin, Grammið, Hljómalind, Bubbleflies, Sigur Rós, UXI ´95 og mótlætið, endurkoma Utangarðsmanna, árin í Bæjarbíó, Þrastarskógur og svo margt fleira kemur við sögu. Verulega „Go...
Baldvin Z & uppgjörið 25.12.2019 1:54:25
Til þess að hjálpa mér við uppgjör þáttanna fékk ég góðan mann með mér sem er jafnframt minn helsti gagnrýnandi. En auðvitað þar sem hann var mættur í studio þá förum við hér einnig yfir feril hans í tónlist, enda tónlistarmaður að norðan, en eins og dyggir hlustendur vita þá fjallaði fyrsta þáttaröðin einmitt um það. Hann er reyndar í dag þekktastur fyrir leikstjóraferil sinn enda okkar fremsti m...
Kristján Ingimarsson 18.12.2019 1:19:10
Gestur þáttarins er sjálfur Kristján Ingimarsson látbragðsleikari, trúður, dansari, danshöfundur, leikari, leikskáld, leikstjóri og svo einnig bassaleikari í „Lúnu Skrospýjunni“ ásamt svo „Svörtu Köggunum“ sem var heinræktað töffaraband á sínum tíma frá Akureyri. Hann var stórhuga þegar hann stofnaði sína eigin útvarpsstöð á Akureyri árið 1988 þá aðeins tvítugur, Ólund FM 100,4 sem lifði þó aðeins...
Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson 11.12.2019 1:18:02
Gestur minn þetta sinnið hefur starfað með og svo í Sniglabandinu með einhverjum hléum þó í rúm 30 ár en hann var rekinn úr hljómsveitinni um árið. Diddi fer hér yfir stórkostlega sögu bandsins og hvernig það kom til að hann, þá starfandi sem hljóðmaður þeirra tók við bassanum og hvernig fyrsta giggið hans gekk. Við ræddum för Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 sem stóð yfir í mánuð, innhé...
Karl Örvarsson 04.12.2019 2:28:33
Við höfðum um það mikið að spjalla við Kalli að þessi tíundi þáttur er rúmlega tvöfaldur að lengd sökum þessa en stútfullur af skemmtun. Kalli hefur gert óskaplega mikið á sínum langa ferli sem hófst fyrir alvöru þegar þeir félagar í Stuðkompaníinu sigraðu Músiktilraunir árið 1987. Áður en Stuðkompaníið lagði landið undir sig framdi Kalli nokkur önnur verkefni eins og Helfró, Zýkkklana og Bandalag...
Ingi Þór Tryggvason 27.11.2019 1:14:26
Ingi Tryggva a.k.a Mosi er tónlistarmaður af lífi og sál og hefur hann verið virkur í tónlistinni í rúm 25 ár. Hér fer Ingi yfir sögu sína allt frá því hann var í Peanuts á Akureyri, þá Border sem síðar varð að Flow og í gegnum fyrsta sólóferilinn allt að Mosa Musik og loks einfaldlega Mosa, sem er listamannanafn hans í dag. Hann er menntaður grafískur hönnuður og hannaði m.a umslag plötunnar...
Trausti Heiðar Haraldsson 20.11.2019 1:04:41
Gestur minn að þessu sinni er hinn eini sanni Trausti Heiðar Haraldsson. Hann er eiginlega frumkvöðull norðlenskrar danstónlistar og hefur verið afkastamikill lagahöfundur í gegnum tíðina en hann hefur samið mörg lög sem við þekkjum öll. Trausti hóf ferilinn með því að senda lagið “Til botns” í lagakeppnina Landslagið árið 1992 áður en hann stofnaði danshljómsveitina Fantasíu. Fantasía starfaði sv...
Benedikt Brynleifsson 13.11.2019 58:35
Gestur Leikfangavélarinnar þessa vikuna er brjálæðislega góður trymbill og enn betri drengur sem hefur heldur betur komið víða við. Þetta er enginn annar en sjálfur Benni Brynleifs, og hér fer hann yfir ferilinn sinn allt frá því hann var ungur drengur í handboltanum hjá KA, í gegnum upphafið í Hann Kafnar, allan jazzinn í hans lífi, 200.000 Naglbíta, dýrmætan vinskapinn við Sjonna Brink og svo Vi...
Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson 06.11.2019 1:04:48
Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn annar en Rögnvaldur Gáfaði. Einstaklega skemmtilegt spjall við þennan frábæra listamann sem vill þó ekki endilega kalla sig listamann heldur frekar „brasara“.Unglingsárin og upphafið, Zýkkklarnir, Lúna Skrospýjan, Parror, Dægurlagapönksveitin Húfa, LOST, Hún Andar, Hvanndalsbræður, Eurovision þátttakan sem hann var plataður í og mörg önnur tónlistarverkefn...
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos