Atli Hergeirsson
Leikfangavélin
Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á Facebook og smellið endilega í eins og eitt "like". Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: shows.acast.com
Autor
Atli Hergeirsson
Categoria
Site do podcast
Último episódio
12 de jun de 2024
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Jónsmessa #13 - Instrumental 12.06.2024 2:03:08
Ósungin lög eða instrumental er málefni Jónsmessu hinnar þrettándu. Í þættinum komum við afar víða við, allt frá tölvupoppi í gegnum kvikmyndatónlist og klassískt rokk en þó með dassi af heiðarlegum metal og jafnvel trommusólóum, ásamt mun fleiru til. Þátturinn er hið minnsta svo sannarlega út um hvippinn og hvappinn að þessu sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Jónsmessa #12 - Boards Of Canada 29.04.2024 2:05:54
Í þessari tólftu Jónsmessu í Leikfangavélinni kemur Jón Agnar með rafdúettinn Boards of Canada að borðinu. Í raun er voða lítið vitað um þennan skoska dúet svona heilt yfir, en það sem þó er vitað veit sennilegast einmitt Jón Agnar einna best. Ljóst er að hér er um að ræða afar furðulegt band en því er þó alls ekki að neita að það er verulega áhugavert engu að síður, já og svo ekki sé talað um aðd...
Jónsmessa #11 - Draumapoppið 22.11.2023 2:12:08
Jónsmessa númer 11. Það var í Jónsmessu þeirri sjöttu sem kom Jón Agnar með Skóglápið og nú er nokkurs konar framhald af þeim þætti. Við kíkjum saman á tónlistarstefnu sem hlaut heitið Draumapopp, eða „Dream pop“. Stefnan á ættir sínar að rekja til Bretlandseyja eins og svo margar aðrar, og eru þau furðumörg böndin sem hafa framið þessa tegund af tónlist. Við heyrum nokkur vel valin tóndæmi í þætt...
Jónsmessa #10 - Kvenraddir 15.11.2023 3:20:38
Söngkonur eða kvenraddir er það sem Jón Agnar mætti með í Jónsmessu númer 10. Þær eru margar söngkonurnar sem við tökum fyrir í þættinum og allar eiga þær það sameiginlegt að hafa frábæra söngrödd og allar hafa þær hrifið okkur á einhverjum tímapunkti í lífinu. Við erum ekki að tala hér um eiginlega upptalningu á bestu söngkonum veraldar, heldur meira svona það sem þáttastjórnendur "fíla". Í þætti...
Jónsmessa #9 - Bassinn 24.10.2023 3:03:33
Í Jónsmessu hinni níundu nördum við svolítið. Svolítið mikið, og kominn tími til. Við fórum nefnilega núna í einkasafnið og fundum til vel valin dæmi af framúrskarandi bassaleik, bassahljóðum, bassadrunum, bassaleikurum og svo framvegis. Jón Agnar kom skemmtilega á óvart þegar hann tilkynnti þema þáttarins sem er að þessu sinni einfaldlega bassi. Ó það sem bassinn getur gert fyrir eitt stykki...
Jónsmessa #8 - Carole King 06.10.2023 2:46:49
Það er komið að áttundu Jónsmessu. Í þetta skiptið tökum við "óskaþátt" fyrir hlustanda sem hafði samband og hreinlega bað um þennan þátt. Við ætlum að taka fyrir frábæran lagahöfund og hreint út sagt æðislega söngkonu. Það hafa flestir heyrt lögin hennar hvort sem viðkomandi veit af því eða ekki. Afköstin hennar hafa verið ótrúleg í gegnum tíðina, eða síðustu 60 ár eða svo. Við erum að tala um hi...
Jónsmessa #7 - Smáskífur 05.09.2023 2:22:40
Frábær lög sem ekki völdust til að vera smáskífur. Oft blasir það hreinlega við hvaða lög eru líkleg til vinsælda af væntanlegum breiðskífum og valið þar af leiðandi borðleggjandi. En margoft fá stórkostlega góð lög ekki útgáfu á smáskífu eða hið minnsta ekki fyrr en um seint og síðar meir. Í þessum fyrsta þætti af annarri þáttaröð Jónsmessu förum við yfir vel valin dæmi og veltum því fyrir okkur...
Jónsmessa #6 - Skóglápið 29.05.2023 2:06:25
Í þessum þætti ætlum við að kíkja á nokkuð sérstaka tónlistarstefnu sem kallast Shoegaze eða Skógláp. Það hafa ekki allir verið sammála um það í gegnum tíðina hvort það sé niðrandi nafn eða ekki á þessa stefnu, en eitt er víst að um er að ræða réttnefni. Ekki urðu öll böndin sem stunduðu skógláp þó neitt gríðarlega stór eða fræg en það eru alltaf einhverjar undantekningar. Í Jónsmessu númer 6 kynn...
Jónsmessa #5 - Undir radarinn 08.05.2023 2:35:14
Í Jónsmessu #5 kemur Jón Agnar að borðinu með ansi skemmtilegt málefni sem gaman er að velta sér upp úr, enda er víða komið við í þættinum. Við erum að tala um hljómsveitir sem náðu ekki almennilegu flugi þrátt fyrir að hafa samt í rauninni nóg fram að færa. Einhver gæði sem urðu til þess að margir héldu að flugið yrði hærra en úr varð. Bönd sem kannski sigldu undir radarinn að mestu? Fyrir því ge...
Jónsmessa #4 - Ábreiður 14.04.2023 2:44:06
Coverlög, tökulög eða ábreiður. Lög eftir aðra. Er eitthvað sem jafnast á við orginalinn? Eða taka honum jafnvel fram? Eða er frummyndin ávallt best? Hér görfum við í beðinu fram og aftur í þessari fjórðu Jónsmessu og sláum jafnvel fram umdeildum skoðunum. Mörg góð lög hafa verið flutt enn betur með öðrum en þeim sem flutti þau fyrst. Þá hafa mörg verri lög einmitt orðið mun betri í annarra höndum...
Jónsmessa #3 - Frank Sinatra 14.03.2023 2:39:29
Frank Sinatra - Röddin, Bláskjár gamli. Stjórnarformaðurinn. Í ár eru 25 ár síðan hann lést og sífellt minna heyrist frá þessum líkast til mesta skemmtikrafti 20. aldarinnar, þegar mið er tekið af langvinnum tónlistarferli hans og vel heppnuðum frama í kvikmyndum meðfram tónlistinni, en m.a hlaut hann tvenn óskarsverðlaun! Það má segja að herra Sinatra hafi stýrt þessu öllu með sínum hætti um tíma...
Jónsmessa #2 - Hliðarspor 27.02.2023 2:27:13
Hliðarspor út frá þekktum hljómsveitum er þekkt fyrirbæri. Fullt af frægum böndum hafa getið af sér hliðarverkefni sem hafa verið afskaplega forvitnileg í gegnum tíðina. Mörg hafa þessi „spin-offs“ náð allt frá litlum árangri og upp í framúrskarandi árangur. Í þessari annarri Jónsmessu kíkjum við á nokkur slík dæmi og komum ansi víða við líkt og áður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for mor...
Jónsmessa #1 - Næntísið 03.02.2023 2:22:41
Það er gott að breyta til. Við hefjum því þennan fimmta árgang Leikfangavélarinnar á nýjum lið sem við skulum kalla "Jónsmessu". Ég fékk til liðs við mig Jón Agnar Ólason tónlistarspekúlant með meiru og saman förum við í þessari fyrstu Jónsmessu í gegnum næntís áratuginn og hvað hann hafði að geyma. Jón lagði áhersluna á gleymd 90's bönd á meðan ég tók fyrir nokkra valda einsmellunga úr ýmsum áttu...
Alexander Örn Númason - The Vintage Caravan 18.04.2022 2:06:42
Eftir kærkomið og gott frí störtum við nú Leikfangavélinni að nýju. Það er komið heilt ár síðan ég fékk til mín viðmælanda hingað í þáttinn og því fannst mér svo sannarlega tími til kominn að bjóða velkominn aldeilis hreint frábæran gest. Alexander Örn Númason er fæddur þann 20. Nóvember árið 1993 og er uppalinn í Hafnarfirði. Hann er með betri bassaleikurum landsins og spilar með einni stærstu ro...
The Manics 1986-1995 28.01.2022 1:15:44
Í þættinum heyrum við afar áhugaverða sögu Manic Street Preachers. Pönkband sem stofnað var í Wales árið 1986 en þróaðist síðar meir í allt aðra átt. Samt er og hefur ávallt verið afar stutt í pönkið í þeim. James Dean Bradfield, Sean Morris og Nicky Wire skipa sveitina í dag en allir eru þeir stofnmeðlimir bandsins. Þeir tóku þó inn fjórða manninn um árið og er þeirri sögu gerð sérstök skil í þæt...
Dolores O´Riordan - The Cranberries 26.11.2021 1:13:25
Þegar Írska hljómsveitin The Cranberries var stofnuð árið 1989 hét hún reyndar The Cranberry saw us. Hlutirnir fóru þó ekki að gerast fyrir alvöru fyrr en söngvari þeirra hætti og sveitin fann söngkonuna Dolores O´Riordan til að koma í hans stað. Hæfileikar hennar við lagasmíðar og hvað þá söng urðu til þess að bandið sló í gegn snemma á tíunda áratug síðustu aldar og voru The Cranberries á tímabi...
Brian Molko & Placebo 05.11.2021 1:15:49
Ef Nirvana og U2 eignuðust barn? Hljómsveitina Placebo þarf vart að kynna fyrir mörgum enda eru þeir fyrir löngu búnir að sanna sig sem ein fremsta rokkhljómsveit okkar tíma. Forsprakki þessarar sveitar er afar hæfileikaríkur tónlistarmaður og með einstaka rödd. Svo er hann framúrskarandi lagahöfundur líka. Hann heitir Brian Molko og hér förum við yfir sögu hans og hljómsveitarinnar Placebo sem ha...
KENT från Sverige 05.09.2021 1:02:25
Hljómsveitin KENT var ein skærasta vonarstjarna Svíþjóðar seint á síðustu öld. Í þessum þætti af Leikfangavélinni kíkjum við á upprisu, fall og loks dauða einnar vinsælustu rokkhljómsveitar Svíþjóðar. KENT var stofnuð árið 1990 og náðu þeir hápunkti frægðar sinnar á alþjóðlegum markaði á árunum 1998-1999. En hvað gerðist svo fyrir þetta frábæra band sem virtist svo sannarlega eiga framtíðina fyrir...
Dimebag Darrell & Pantera 01.08.2021 1:18:01
Dimebag Darrell (fæddur Darrell Lance Abbott) var gítarleikari hinnar goðsagnakenndu trash metal hljómsveitar PANTERA allt frá stofnun þeirra og þar til yfir lauk. Dimebag sem hefði orðið 55 ára í ágúst 2021, hlaut skelfilegan dauðdaga í desember árið 2004 og kenna margir endalokum Pantera þarna ári fyrr, um það hvernig fór fyrir honum, m.a bróðir hans, hann Vinnie Paul Abbott, trommari Pantera. V...
Roland Gift & The Fine Young Cannibals 28.05.2021 1:05:39
Roland Gift er án vafa einn af bestu og vinsælustu söngvurum níunda áratugarins enda söngrödd hans einstök sem hrífur flesta með sér. Sem söngvari hljómsveitarinnar Fine Young Cannibals náði hann toppi sínum eftir útgáfu plötu þeirra The Raw And The Cooked árið 1989. Roland Gift er 60 ára í dag (28.maí 2021) og hér förum við yfir feril hans sem og hinnar mögnuðu sveitar Fine Young Cannibals, feril...
Mark Knopfler & Dire Straits 02.04.2021 1:09:44
Mark Knopfler er einn af betri gítarleikurum heims ásamt því að vera frábær laga og textahöfundur. Hann var frontmaður hinnar mögnuðu hljómsveitar Dire Straits sem hann stofnaði ásamt bróður sínum og fleirum árið 1977, og allt þar til bandið pakkaði saman árið 1995. Saga Mark Knopfler og Dire Straits í þessum þætti Leikfangavélarinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Baldur Ragnarsson 19.03.2021 1:58:36
Hann er atvinnumaður í hlaðvarpsgerð og er sem slíkur m.a helmingurinn af hinum vinsælu Draugum fortíðar. En hann er líka afburða tónlistarmaður og hefur þar komið víða við. T.d Skálmöld, Ljótu hálfvitarnir, Dætrasynir, Innvortis, Morðingjarnir o.fl. Þá er hann einn af stofnendum Leikhópsins Lottu. Baldur Ragnarsson er fæddur á Húsavík og hér förum við yfir hans líf og feril í frábærum og líflegum...
Rottur, Kettir & Langi Seli 01.03.2021 1:34:23
Gestur þessa þáttar af Leikfangavélinni gefur í raun ekki oft færi á sér í viðtal sem þetta, en hann gaf sig loks eftir rúmlega árs viðreynslu. Hann er vatnsgreiddur með sólgleraugu, í leðurjakka og kragann uppi, enda er hann forsprakki einnar svölustu hljómsveitar sem Ísland hefur alið af sér. Þar erum við að tala um „pönka-billy“ sveitina Langa Sela & Skugganna. Þeir félagar slógu í gegn ári...
Bein Leið með KK 08.02.2021 1:34:23
KK kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf þegar platan Lucky One kom úr árið 1991. Þessi fyrsta plata hans lagði svo sannarlega grunninn að glæsilegum tónlistarferli hans sem ekki sér fyrir endan á enn þann dag í dag, sem betur fer. Ári síðar, eða 1992 kom svo út platan Bein Leið sem er plata þessa þáttar. KK mætti í stúdíó Leikfangavélarinnar einn morgun í febrúar 2021 og við hlustu...
Ray Manzarek, The Doors & Jim 31.12.2020 1:31:17
Ray Manzarek var arkitektinn að hljómi The Doors. Framúrstefnuleg og dáleiðandi spilamennska hans á hljómborðið þar sem hann blandaði saman rokki, djass, blús, klassík og fjölda annarra stíla var einstök. Þannig varð til einhver ævintýralegur hljómur sem ekki hafði heyrst áður, eitthvað alveg nýtt og töfrandi. Ray kynntist Jim Morrison í kvikmyndanámi í UCLA skólanum og í sameiningu stofnuðu þeir...
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos