Kvíðakastið
Kvíðakastið
Sálfræðingar spjalla saman um málefni tengd geðheilsu. Þáttastjórnendur eru Katrín Mjöll, Nína Björg og Sturla Brynjólfsson sálfræðingar á Kvíðameðferðarstöðinni og Litlu Kvíðameðferðarstöðinni.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: podcasters.spotify.com
Autor
Kvíðakastið
Categoria
Site do podcast
Último episódio
5 de fev de 2025
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
38. Ofsakvíði (panic disorder) - Eru kvíðaköst hættuleg? 27.11.2022 48:10
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir einkenni ofsakvíðakasta, hvað fólk hræðist í kvíðaköstum, hvernig brugðist er óhjálplega við kvíðaköstum og hvernig er hægt að komast út úr ofsakvíðavítahringnum.
37. Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir - Ælufælni 13.11.2022 48:29
Þátturinn er í boði World Class! Sigurbjörg er yfirsálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar og sérhæfir sig í þráhyggju- og áráttu, ælufælni, ofsakvíða og fleiri kvíðaröskunum. Í þættinum förum við yfir birtingarmynd ælufælni, hvernig hún truflar líf fólks, hvaða meðferðir eru í boði og fyrstu skref þeirra.
36. Seigla í gegnum lífið 30.10.2022 52:37
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum ræðum við um hvað seigla er, af hverju hún er mikilvæg, hvernig hún þróast, hvernig við getum byggt upp seiglu barna og viðhaldið henni út lífið.
35. Workshop - Hvernig tæklum við óhóflegar áhyggjur? 21.10.2022 50:32
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir áhyggjur, hvað ýtir undir þær, hvað við gerum til að bregðast við þeim og förum í gegnum skref til að takast betur á við þær. Við minnum á að þættirnir okkar eru einungis í fræðslutilgangi en ekki sálfræðimeðferð.
34. Aldís Eva Friðriksdóttir - Líðan í tengslum við frjósemisvanda 16.10.2022 57:21
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum tölum við um skilgreininguna á frjósemisvanda, mögulegar ástæður fyrir honum, streituna sem fylgir honum úrræði sem eru í boði og hvernig á að vera til staðar.
33. Heimir Snorrason - Nútímasamfélag og sjálfsmynd karla 08.10.2022 1:17:33
Þátturinn er í boði World Class! Heimir er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni, áhugasvið hans í meðferð eru meðal annars sjálfsmatsvinna og áföll. Fyrstu mínútur þáttarins fjalla um nútímasamfélag og þróun sálfræðimeðferðar. Frá 29. mínútu er rætt um sjálfsmynd karla og birtingarmynd hennar.
32. Hvað á ég að gera í krísu? 02.10.2022 1:06:31
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum tölum við um verkfæri sem við getum notað til að takast á við sterkar tilfinningar án þess að bregðast við á óhjálplegan og/eða skaðlegan hátt.
31. Sjálfsskaði 24.09.2022 42:30
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum útskýrum við hvað sjálfskaði er, hver tilgangurinn er á bak við hann og hvernig geta brugðist við og sýnt stuðning. Í næsta þætti verður farið yfir verkfæri til að takast við erfiðar tilfinningar á hjálplegri hátt.
30. Tinna Þorsteinsdóttir - Almenn kvíðaröskun (áhyggjuvandi) 18.09.2022 1:07:06
Þátturinn er í boði World Class! Tinna er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Í þættinum útskýrir hún almenna kvíðaröskun, persónueinkenni og næmisþætti þeirra sem þróa með sér röskunina, hvað sé eðlilegt magn af áhyggjum, öryggishegðun og ákvarðanartöku hjá þeim sem eru með röskunina og gefur verkfæri til að byrja á að takast á við vandann.
29. Loddaralíðan (impostor syndrome) 15.09.2022 33:58
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum útskýrum við hugtakið loddaralíðan, förum yfir hvernig það birtist og gefum verkfæri hvernig er hægt að vinna gegn því.
28. Ástin - Er hún alltaf hjálpleg? 29.08.2022 38:17
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum fjöllum við um ást, hvernig við tjáum ást, hvenær hún er hjálpleg og hvenær óhjálpleg og ástarsorg.
27. Hvað óttastu mest? - sértæk fælni 23.08.2022 54:42
Þátturinn er í boði World Class! Köngulær, geitungar, sjórinn, háar hæðir... allt eru þetta algeng dæmi um það sem fólk hræðist mest. Í þættinum ræðum við um orsakir og meðferð við sértækri fælni.
26. Hvernig tæklum við prófkvíða? 12.08.2022 1:03:57
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir orsakir og einkenni prófkvíða/námskvíða og förum yfir verkfæri til að tækla hann. Í lokin endum við á ráðum til kennara og foreldra einstaklinga með prófkvíða.
25. Hvernig vekjum við upp áhuga? 28.07.2022 54:12
Þátturinn er í boði World Class! Við tengjum flest öll við að hafa oft ekki áhugahvöt (motivation) til að fara í líkamsrækt, læra, taka til, að sinna áhugamálum og hitta vini. Hvaðan kemur áhugi? Hvernig getum við ýtt undir hann?
24. Styrkár Hallsson - Geðrof 20.06.2022 1:20:28
Þátturinn er í boði World Class! Styrkár er sálfræðingur á Landspítalanum og á stofunni Sálfræðingarnir. Í þættinum förum við yfir einkenni geðrofs, orsakir og algengi geðrofssjúkdóma, meðferð við geðrofi og ráð til aðstandanda.
23. Thelma Rún van Erven - Einhverfa 05.06.2022 1:23:15
Þátturinn er í boði World Class! Thelma er sálfræðingur á Ráðgjafa og greiningarstöð, er sjálfstætt starfandi og vinnur einnig í félagsmiðstöð fyrir einhverfa unglinga á vegum Einhverfusamtakanna. Í þættinum ræðum við um einkenni einhverfu, svörum spurningum ykkar um einhverfu og förum yfir verkfæri fyrir fólk á einhverfurófinu.
22. Hvernig líður mér á sumrin? 29.05.2022 44:52
Þátturinn er í boði World Class! Spjallþáttur um sumarið - FOMO, skipulag, mismunandi tilfinningar, samanburð og margt fleira.
21. Ásmundur Gunnarsson - Líkamsskynjunarröskun (Body dysmorphic disorder) 14.05.2022 1:02:06
Þátturinn er í boði World Class! Ási er sérfræðingur í klínískri sálfræði og starfar á Kvíðameðferðarstöðinni.
20. Áhugaverðar sálfræðirannsóknir vol II 07.05.2022 38:12
Þátturinn er í boði World Class! Mögulega smá galsi í fólki enda gleður fátt okkur meira en sálfræðirannsóknir
19. Dr. Ólafía Sigurjónsdóttir - Þráhyggju-árátturöskun (OCD) 30.04.2022 1:10:04
Þátturinn er í boði World Class! Dr. Ólafía Sigurjónsdóttir er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og er þar yfir OCD teymi stofunnar. Í þættinum förum við yfir hvað þráhyggju-árátturöskun er og meðferðir við henni.
18. Hvað eru lífsgildi og hvernig tengjast þau markmiðum okkar? 23.04.2022 54:09
Þátturinn er í boði World Class! Hvernig berum við kennsl á lífsgildin okkar? Við segjum frá okkar lífsgildum til að gefa ykkur hugmyndir.
17. Elfur ráðgjöf - Tengslamyndun barna 16.04.2022 1:18:59
Þátturinn er í boði World Class! í þættinum er rætt um hvað einkennir góð tengsl og óörugg tengsl, hverjar vísbendingarnar eru um óörugg tengsl hjá barni, hvernig er hægt að styrkja tengsl milli umönnunaraðila og barna, hvernig er hægt að styrkja tengsl barna við dagforeldra og kennara í skólum og fleira.
16. Vinalegur vinaþáttur um vináttu 09.04.2022 1:08:36
Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum: Heilbrigð og óheilbrigð samskipti í vinasamböndum, hvernig er hægt að eignast vini á fullorðinsárum? hvernig viðhöldum við vinasamböndum?
15. Hugrún Vignisdóttir - Málefni trans barna á Íslandi 02.04.2022 1:46:19
Þátturinn er í boði World Class! Hugrún Vignisdóttir er sálfræðingur sem sérhæfir sig í málefnum trans barna. Í þættinum fjöllum við um kynvitund, mismunandi fornöfn, hormónameðferðir, öráreitni gegn trans fólki, ráðleggingar til foreldra trans barna og fleira.
14. Hver er munurinn á fullkomnunaráráttu og metnaði? 21.03.2022 1:20:08
Þátturinn er í boði World Class! Hefur fullkomnunarárátta einhver neikvæð áhrif?
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos