Kvíðakastið

Kvíðakastið

Health IS ↓ 88 episódios

Sálfræðingar spjalla saman um málefni tengd geðheilsu. Þáttastjórnendur eru Katrín Mjöll, Nína Björg og Sturla Brynjólfsson sálfræðingar á Kvíðameðferðarstöðinni og Litlu Kvíðameðferðarstöðinni.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: podcasters.spotify.com

Autor

Kvíðakastið

Categoria

Health

Site do podcast

podcasters.spotify.com

Último episódio

5 de fev de 2025

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

62. Engilbert Sigurðsson - Meðferð þunglyndis 18.11.2023

Þátturinn er í boði World Class, Eimskips og Reykjavík Foto. Engilbert Sigurðsson, geðlæknir og prófessor í geðlæknisfræðum mætti til okkar og fór yfir skilgreininguna á þunglyndi, orsök og algengi þess. Engilbert fræðir okkur einnig um helstu meðferðir við þunglyndi, ásamt því að fara yfir nýjar meðferðir á borð við segulörvun, psilocybin og ketamín nefúða.

Klippa: Af hverju förum við í hugrof? 03.11.2023

Klippan er úr þætti 9. Kristjana Þórarinsdóttir - Hvaða áhrif hafa áföll á okkur? Í klippunni fer Kristjana yfir hvernig hugrof lýsir sér, af hverju heilinn okkar bregst við aðstæðum með því að fara yfir hugrof og hvernig hugrof skýrir ákveðin viðbrögð í hættulegum aðstæðum.

61. Hvað er taugaáfall? 13.10.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum förum við yfir sögu hugtaksins taugaáfalls, hvaða einkenni fólk lýsir sem taugaáfalli og sálfræðilegar skýringar þeirra.

60. Ásgerður Arna Sófusdóttir og Daðey Albertsdóttir - Streita tengd foreldrahlutverkinu 29.09.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskip. Daðey Albertsdóttir, sálfræðingur og Ásgerður Arna Sófusdóttir, hjúkrunarfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna komu til okkar í spjall. Í þættinum fjöllum við um hvernig streita birtist í foreldrahlutverkinu og af hverju, spennustig foreldra, áreitastjórnun og önnur gagnleg verkfæri.

59. Andrés Proppé Ragnarsson - Ofbeldi í nánum samböndum 22.09.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Andrés er sálfræðingur og einn af eigendum Sálfræðistofunnar á Höfðabakka. Hann rekur einnig úrræðið Heimilisfriður sem er meðferðarúrræði gerenda heimilisofbeldis. Í þættinum ræðum við um mismunandi tegundir ofbeldis, hvernig "ofbeldishringur" verður til, rauð flögg og það sem einkennir oft gerendur heimilisofbeldis og hvað er gert í úrræðinu...

58. Kristín Kristjánsdóttir - Sorg 03.09.2023

Þátturinn er í boði Eimskips og World Class! Kristín er er djákni í Grafarvogskirkju, með diplómanám í sálgæslu og handleiðslu og starfar hjá Sorgarmiðstöðinni. Í þættinum ræðum við um sorg, hvernig hún birtist, góð bjargráð við sorg, hvernig aðstandendur geta brugðist hjálplega við, að útskýra dauðann fyrir börnum og fleira.

57. Bjarki Grönfeldt Gunnarsson - Sameiginlegur narsissismi (e. Collective Narcissism) 30.07.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bjarki er doktor í stjórnmálasálfræði og starfar sem lektor við Háskólann á Bifröst. Í þættinum fræðumst við um sameiginlegan narsissisma og m.a. hvað aðgreinir það hugtak frá narsissisma, þjóðernishyggju og að tilheyra hópi sem maður er stoltur af.

56. Baldvin Logi Einarsson - Þráhyggju-árátturöskun (OCD) meðal barna 21.07.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Baldvin er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og í þættinum fræðir hann okkur um þráhyggju-árátturöskun hjá börnum og meðferðir við henni.

55. Heiðdís Snorradóttir - Næring og andleg heilsa 09.07.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp heilbrigt sambandi við mat. Í þessum þætti fræðir Heiðdís okkur m.a. um svengdarvitund, emotional eating, matarkvíða hjá börnum og hvernig greiningar eins og ADHD og einhverfa geta haft áhrif á matarinnt...

54. Að setja mörk 02.07.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum ræðum við um af hverju er mikilvægt að setja mörk, hvernig við setjum mörk, hvaða erfiðleika geta komið í kjölfarið af því að setja mörk eða ekki að setja mörk og förum yfir og hvað við eigum að gera þegar aðrir virða ekki mörkin sem við setjum.

53. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson - Hvað er incel? 25.06.2023

TW: Þátturinn inniheldur lýsingar um kynferðisofbeldi. Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bjarki er doktor í stjórnmálasálfræði og starfar sem lektor við Háskólann á Bifröst. Í þættinum fræðumst við um hugtakið incel, hvernig það varð til og hvernig það hefur þróast í gegnum tíðina. Bjarki segir okkur frá afleiðingum þess að tilheyra incel og hvernig megi bera kennsl á þá sem tilheyra þe...

52. Draumar og martraðir 21.05.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum förum við yfir kenningar um hvað draumar og martraðir eru og nýjustu rannsóknir á þeim, hvaða tilgangi draumar þjóna, útskýrum svefnrofalömun (e. sleep paralysis) og næturtrylling (e. night terrors) og förum yfir hvaða meðferðir eru í boði til að takast á við martraðir.

51. Gunnlaugur Pétursson - Heilsukvíði 15.05.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Gunnlaugur er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og sérhæfir sig í ýmsum kvíðaröskunum eins og þráhyggju- og árátturöskun, heilsukvíða, ofsakvíða og félagskvíða. Í þættinum ræðum við um einkenni heilsukvíða, hvernig við aðgreinum heilsukvíða frá öðrum röskunum, hvernig heilsukvíði þróast og verður að vanda og hvaða fyrstu skref er hægt að taka til að...

50. Viktor Örn Margeirsson - Geðheilsa íþróttafólks 15.04.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Viktor er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og Heil heilsumiðstöð. Í þættinum ræðum við um mótlæti sem íþróttafólk verður oft fyrir, að takast á við gagnrýni og mistök, kulnun íþróttafólks og förum yfir verkfæri til að stuðla að góðri geðheilsu. Hægt er að hafa samband við Viktor í gegnum netfangið viktor@viktormargeirs.com

49. Gleðiskruddurnar - Jákvæð sálfræði og gleðiverkfæri 04.04.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskip! Yrja og Marit eru á bakvið Gleðiskrudduna sem var lokaverkefnið þeirra í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði vorið 2020. Í þættinum ræðum við um jákvæða sálfræði og hvernig nýta má hana í vinnu með börnum. Þá ræðum við gleðiverkfærin sem m.a. snúa að styrkleikum, núvitund og að sýna sjálfum sér sjálfsvinsemd.

48. Guðbrandur Árni Ísberg - Skömm 26.03.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskip! Guðbrandur er sálfræðingur á stofunni Sálfræðiráðgjöfin og höfundur bókarinnar Skömm: úr vanmætti í sjálfsöryggi. Í þættinum ræðum við um skammarkerfið, hvenær skömm er orðin að vandamáli, tengsl skammar við geðraskanir, fullkomnunaráráttu og narsisisma og hvernig við getum brugðist við skömm á hjálplegan hátt.

47. Haukur Örvar Pálmason - ADHD 16.03.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskip! Haukur er sálfræðingur á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Í þættinum ræðum við um einkenni ADHD, stýrifærni, mismunagreiningar, algengi, kynjamun, greiningarferlið, inngrip og ýmsar pælingar frá ykkur hlustendum. 

46. Freyja Ágústsdóttir - Samfélagsmiðlar og geðheilsa 12.03.2023

Þátturinn er boði World Class og Eimskip! Freyja er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni.  Í þættinum ræðum við um áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu þ.á.m FOMO, samanburð og einmannaleika. Við ræðum líka um aukna umræðu um geðraskanir og geðgreiningar á samfélagsmiðlum. 

45. Bryndís Jóna Jónsdóttir - Núvitund og samkennd í skólastarfi 12.02.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bryndís Jóna er aðjúnkt á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands og einn að stofnendum Núvitundarsetursins. Hennar sérþekking snýr að núvitund og jákvæðri sálfræði, sérstaklega í skólastarfi. Í þættinum förum við m.a. yfir formlegar og óformlegar núvitundaræfingar, jákvæðar afleiðingar núvitundar og hvernig núvitund tengist samkennd.

44. Hanna Bizouerne - Uppeldisráðgjöf seinni hluti 05.02.2023

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Hanna Bizouerne er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Þar sinnir hún m.a. greiningarvinnu og uppeldisráðgjöf. Í seinni þættinum um uppeldi fer hún yfir hversu mikilvægt sé að horfa til framtíðar í uppeldinu, áhrif góðra tengsla milli foreldra og barns og mikilvægi þess að hlúa að sjálfum sér sem foreldri. Hún fer einnig yfir skjátímanotkun bar...

43. Hanna Bizouerne - Uppeldisráðgjöf 29.01.2023

Þátturinn er í boði World Class! Hanna Bizouerne er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Þar sinnir hún m.a. greiningarvinnu og uppeldisráðgjöf. Í þættinum förum við yfir hvað einkennir gott uppeldi, foreldrahlutverkið og mikilvæga eiginleika þess, samviskubitsvæðinguna og helstu uppeldisnámskeiðin sem eru í boði.

42. Hvað eru góð samskipti? 24.01.2023

Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir hvað einkennir góð og slæm samskipti. Við förum yfir hvernig við biðjum um það sem við viljum á árangursríkan hátt, að viðhalda tengslum og byggja ný tengsl, að taka gagnrýni og biðjast afsökunar. 

41. Dauðakvíði 15.01.2023

Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum útskýrum við hvað dauðakvíði er, hvenær hann er orðinn að vandamáli, hvernig hann viðhelst og hvernig við getum unnið með hann. 

40. Anna Sigga - Kulnun (burn out) 26.12.2022

Þátturinn er í boði World Class! Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Hún sérhæfir sig í kulnun, streitu, sjálfsmati og ýmsum kvíðavanda. Í þættinum förum við yfir einkenni kulnunar, hvað orsakar kulnun og hvernig við getum komið í veg fyrir hana. 

39. Hvað höfum við lært? 19.12.2022

Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir uppáhalds þætti hlustenda, punkta sem standa mest upp úr hjá okkur eftir árið, ferlið að byrja með podcastið og endum á hvað við hefðum viljað vita þegar við vorum yngri um geðheilsu. 

Ouça o podcast Kvíðakastið no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos