Helgi Jean Claessen
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
Tveir mömmustrákar með mikil gestalæti segja sögur í leit að ást, samþykki og viðurkenningu.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.spreaker.com
Autor
Helgi Jean Claessen
Categoria
Site do podcast
Último episódio
9 de jul de 2026
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
"Þegar fullorðnir karlmenn gráta" - #106 31.08.2020 1:00:36
Í þætti dagsins var rætt um tilfinningar og tár - þó að sjálfsögðu væri hart skotið inn á milli. Eins var tekinn snúningur á 2 metra lögreglunni sem leynist víða! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: hjalmarorn110 & helgijean
Hrannar Már: "Að missa barn" - #105 27.08.2020 1:20:46
Það var róið á dýptina í þætti dagsins. Hrannar Már mætti til okkar sem lýsir sér sem tilfinningaríkum verkfræðingi. Hrannar deildi reynslu af því að missa barn. Hjartnæmur þáttur sem kemur inn á allt róf tilfinninga - jafnt hlátur sem grátur. Takk fyrir að hlusta og munið að subscribe-'a. IG: helgijean & hjalmarorn110
"Ég er athyglissjúkur" - #104 25.08.2020 1:11:02
Hjálmar hljóp 1 km. um helgina - og Helgi fór 85 kílómetra á hálendinu - en aðeins annar þeirra var með strengi. Svo kom uppljóstrun frá Ljósu sem sýnir sérstaka tækni Hjálmars með uppþvottavélar. IG helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta- Munið að subscribe-a!
Hilmir Hjálmarsson: "Ég hraunaði yfir sjálfan mig" - #103 20.08.2020 1:34:22
Bakaraboxarinn Hilmir Hjálmarsson mætti til okkar og fór bæði hátt upp - og á dýptina. Hann talaði um erfiða þunglyndið - uppsveifluna - föðurhlutverkið - og föstur. Þáttur sem fer víða um líkamlega og andlega heilsu! IG: primal_viking - hjalmarorn110 & helgijean
"Grautlinur að spúna á beinseyði" - #102 18.08.2020 1:06:10
Pub-quiz í Keiluhöllinni á fim. 20. ágúst. kl. 21:00 Helgi er kominn á föstu - og Hjálmar er orðinn dauðþreyttur á þeim án þess að hafa farið í svoleiðis. Svo var rætt um hvenær er réttlætanlegt að vera með standpínu. Í leikþættinum var meðvirkni í forgrunni. Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe-a! IG: hjalmarorn110 & helgijean
"Einhyrningur í Stuðlagili" - #101 14.08.2020 1:14:22
Helgi fór í saklausa ferð niður Stuðlagil á einhyrningi og setti á Instagram. Í þættinum ræddum við allt saman sem gerðist í kjölfarið. Þetta er viðhafnarþáttur þar sem engu er sleppt! IG: helgijean & hjalmar Takk fyrir að hlusta & Munið að subscribe-a.
Júlían J.K.: "Ég á 330 kg. í bekk" - #100 06.08.2020 1:21:31
Jú - það er 100. þáttur af Hæ hæ mættur! Í honum var viðeigandi að fá heimsmethafa og Íþróttamann ársins 2019 á Íslandi Júlían J.K. Jóhannsson. Það er sjaldgæft að hitta svona mjúkan mann sem er svona svakalega sterkur. Nýbakaður faðir og heljarmenni sem kann að refsa járninu og spila á mýkri strengi hjartans. IG: helgijean & hjalmarorn110
"Ég óttast að verða þeir sem ég dæmi harðast" - #99 03.08.2020 51:13
Í þætti dagsins var stiginn léttur dans við játningar. Sumt af því var hátíðlegt, eitt kjánalegt - og annað hjákátlegt. Hvernig datt okkur þetta allt í hug? Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Fanney-Stjörnuspeki: "Þú ert það næmur að þú lokaðir á það." - #98 30.07.2020 1:21:41
Til okkar mætti Fanney stjörnuspekingur. Hún er einn opnasti gestur sem hefur mætt í þáttinn og talaði um lífið sem stjörnuspekingur og miðill með geðhvarfasýki. Hún las Hjálmar alveg í döðlur - og hefði lesið kortið hans Helga ef Hjálmar hefði munað að senda það. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: fanney_stjornuspeki & helgijean & hjalmarorn110
"Ég var bjúga í Vesturbænum" - #97 27.07.2020 47:52
Í þætti dagsins byrjar Hjálmar á erfiðum valkostum - en hann nær sér aftur á strik - og setur út vafasamar fullyrðingar sem tengjast Vesturbænum. Og svo kemur í ljós í lok þáttar að það er í lagi að láta sér leiðast. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110
Alexandra Helga: "Ég ætla að koma með eina játningu fyrir Gylfa." - #96 23.07.2020 1:36:39
Í þátt dagsins mætti Alexandra Helga Ívarsdóttir fyrrum fegurðardrottning Íslands. Alexandra býr í Manchester með eiginmanni sínum - landsliðsmanninum Gylfa Sig. Við ræddum um upphafið á sambandinu þeirra - lífið á bakvið tjöldin - og giftinguna frægu við Lake Como! Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe-a! IG: alexandrahelga & helgijean & hjalmarorn110
"Ég er einn eftirsóttasti piparsveinn landsins" - #95 20.07.2020 1:27:54
Í þessum þætti var farið yfir stöðuna á Helga sem einum eftirsóttasta piparsvein landsins. Hjálmar hafði sína skoðun á málinu. Er í lagi að leyfa makanum að sofa hjá öðrum? Jú þetta er allt að frétta í þættinum. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Viktoría Hermanns: "Við vorum rosa sérstök" - #94 16.07.2020 1:28:04
Til okkar mætti Viktoría Hermanns - dagskrárgerðarkona á RÚV. Hún ræddi um blaðamannaferilinn frá DV til RÚV. Sambandið við Sóla Hólm - og fyrsta deitið. Vandræðalegu mómentin á ferlinum - og hvernig fréttirnar hafa breyst. Takk fyrir að hlusta! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Ég er rosalegur saknari" - #93 13.07.2020 49:16
Hverju sérðu eftir í lífinu? Ertu saknari? Það er tekinn snúningur á tilfinningum. Svo er farið yfir eina grein andlega heimsins - þar sem fólk greinir líðan út frá stjörnunum og bíður eftir geimverum. Takk fyrir að hlusta og munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Benedikt Erlings: "Kynlíf og dauði" - #92 09.07.2020 1:23:28
Benedikt Erlingsson leikari er mikið átrúnaðargoð okkar frá dögum sínum sem leikari í Fóstbræðrum - en hann hefur síðan gert bíómyndir eins og Hross í Oss og aðra sem byrjar á K. Benedikt kom með magnaða játningu þar sem hann stígur út úr skápnum með sína innri sköpunargyðju - ásamt því að deila minnistrixum og ýmsu öðru. Takk fyrir að hlusta! IG: hjalmarorn110 & helgijean
"Hvernig á að hrósa píku" - #91 06.07.2020 58:12
Pub-quiz í Keiluhöll 9. júlí - kl. 21:00. Hvernig á að hrósa píku? Hjálmar er einn mesti píkuhrósari landsins. Ásamt því að vera sjáandi á þessu sviði. Hann veit ekki hvernig hann á að orða þetta. Það er erfitt að setja það á blað - en hann getur giskað. Þetta hefur ekkert hjálpað honum. Samt gott að geta þetta. Þið verðið bara að hlusta. IG: helgijean & hjalmarorn110
Bjarni Ben: "Stundum er það pulsa og kók sem þarf" - #90 01.07.2020 57:51
Í þátt dagsins mætti sjálfur fjármálaráðherrann og sjéntilmaðurinn Bjarni Ben. Hann fór yfir mennskuna á bakvið manninn í pólitíkinni. Hann kom með játningar af sex ára Bjarna Ben - afa hlutverkinu - morgunrútínuna - og hvort hann væri til í að vera með Litla-Bjarna til að hjálpa sér í lífinu. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110
Marta María: "Maður lærir ekki af reynslu annarra" - #89 29.06.2020 1:53:13
Drottningin af Smartlandi Marta María mætti og við tóku umræðu um umræðuna. Upphafið í fjölmiðlabransanum - árin á Vefpressunni - Smartlandið - viðtalið/viðreynsluna við Pál Winkel og bollann hans Davíðs Oddssonar.
"Mér líður allskonar"- #88 25.06.2020 1:02:16
Í þætti dagsins fórum við yfir læti í nágrönnum og unglingafyllerí. Topp 5 frasar hjá andlega fólkinu. Hvaða aldur er best að líta út fyrir að vera á? Og símaat í Svavar Elliða snýst í höndunum á Helga! Takk fyrir að hlusta! Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Þetta er Helgi Jean. Mundu nafnið." - #87 22.06.2020 1:05:11
Ekki missa af Hæ hæ afmælis-sýningin er 25. júní í Gamla Bíó - miðar á tix.is! Þáttur dagsins: Hjálmar fór á gamalt gott fyllerí - og hitti edrú Helga í miðbænum og flæktist Jakob Frímann inn í málin. Svo varð uppákoma í gufubaði í Breiðholti með gömlu karli sem endaði í rifrildi. Og hver er munur á djamminu og kakóseremóníu? Í leikþættinum hringdi óvæntur aðili inn í Útvarp Sögu. IG: hjalmarorn11...
Atli Fannar: "Ég hleyp í kringum löggubíl - með mann á eftir mér" - #86 19.06.2020 1:39:47
Afmælissýning HÆ hæ er 25. júní! - Miðar á Tix.is! Atli Fannar fjölmiðlamógúll mætti í spjall til okkar um fjölmiðla, föðurhlutverkið og markmiðin í lífinu. Atli hefur verið á Airwaves með Haltri Hóru, rekið eigin vefmiðil, skrifað Skaupið, verið í sjónvarpi tekið 200 í deadlift og stefnir á að troða í körfu. Ljúfur drengur sem laumaði popptextum inn í fréttir - og gerir þær líka skiljanlegar. Tak...
Jói Ásbjörns: "Heilsan, fjölskyldan, ástvinir - það er það eina sem telur í þessu" - #85 15.06.2020 1:33:34
Ekki missa af afmælissýningu Hæ hæ 25. júní! Sjá hér: https://tix.is/is/event/10159/h-h-afm-li-live-show-og-skemmtikvold-/ Jóhannes Ásbjörnsson skemmtilegasti veitingamaður landsins mætti til okkar. Hann sagði okkur sögur frá fyrstu skrefunum í sjónvarpinu og 70 mínútum - sameiningunni við Foodco - uppeldinu á börnunum sínum - og erfiðri reynslu sem var að missa tengdamóður sína í miðjum Covid-far...
"Krakkinn er að kafna úr frekju" - #84 12.06.2020 55:35
Í þætti dagsins ræddum við um hvort Hjálmar sé að kafna úr frekju eða ekki - og tengingu hans við Jón Odd og Jón Bjarna. Þættinum bárust skilaboð frá Ljósbrá, konu Hjálmars, sem deildi mistökum Hjálmars sem ollu blautum bossa í vinnunni. Helgi tók svo litla frænda sinn upp á fjall - og mætti gömlum karl inni í sjálfum sér. Takk fyrir að hlusta! - Og munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn...
"Þetta er deit-þátturinn stóri" - #83 08.06.2020 1:13:48
Verður HÆ hæ enn þá í gangi eftir 20 ár? Hvernig segir maður stelpu að maður sé skotinn í henni? Við förum yfir hverjir eru einhleypir á Íslandi fyrir sumarið. Hjálmar útskýrir höfnun sem hann upplifði á tónlistarverðlaunum. Eru peningar á leið til fjandans? Og svo voru símahrekkir í leikþættinum. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta og munið að subscribe-a
Margrét Gnarr: "Ég var heimsmeistari í að líta vel út - og samt ekki ánægð" - #82 05.06.2020 1:56:05
Margrét Edda Gnarr mætti til okkar og talaði um hvernig er að breytast úr heimsmeistara í Fitness í að verða móðir. Hún talaði líka um glímuna við drykkjuna - fullkomnun á Instagram - vandræðalegu mómentin, þráhyggjuna - og allt hitt. Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe-a! IG: margretgnarr & hjalmarorn110 & helgijean
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos