Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Comedy IS ↓ 681 episódios

Tveir mömmustrákar með mikil gestalæti segja sögur í leit að ást, samþykki og viðurkenningu.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.spreaker.com

Autor

Helgi Jean Claessen

Categoria

Comedy

Site do podcast

www.spreaker.com

Último episódio

9 de jul de 2026

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Ása Steinars: "Þarna er bara svona stundarbrjálæði hjá mér." - #131 26.11.2020

Ása Steinars mætti til okkar og sagði hvernig hún náði 267 þúsundum fylgjendum á Instagram - með því að fórna föstu vinnunni, byrja að mynda og lenda í ævintýralegum svaðilförum! Takk fyrir að hlusta - Munið að subcribe'a! IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is Bókið Pub-Quiz og Bingó á https://hihi.is/pages/bokanir

"Maður bætir sig með því að sætta sig við sjálfan sig" - #130 23.11.2020

Það var dúndra í þættinum. Hjálmar er með hugmynd með að setja typpi ofan í jógúrt. Og svo koma til okkar tveir gestir. Grjótharði Hæjarinn Árni Torfa kemur og talar um hvernig er að búa í Svíþjóð. Svo mætir til okkar Þóranna Friðgeirsdóttir og talar um myndirnar sem hún tók af sér á Instagram - og hvernig hún fann sjálfssátt í að sætta sig við örin sín. Takk fyrir að hlusta! Munið að subscribe-a!...

Eyþór Ingi: "Allt of stutt líf - til að taka sjálfan sig alvarlega" - #129 19.11.2020

Til okkar mætti Eyþór Ingi söngvari og eftirherma sem sló fullkomlega í gegn hjá okkur með sögum frá frægðinni, Eurovision og JaJa Dingdong! Í aukaefni á hihi.is er síðan geggjað símaat sem Eyþór gerir sem Páll Óskar - og leikþáttur með Pétri í Útvarpi Sögu - og Bubba Morthens. IG: eythoringimusic & helgijean & hjalmarorn110

"Feitir karlar eru ósýnilegir" - #128 16.11.2020

Er nóg fyrir Hjálmar að vera með einn bíl á fjölskylduna? Af hverju eru feitir karlar ósýnilegir? Þessum spurningum og fleiri verður svarað í þætti dagsins! IG: helgijean & hjalmarorn110 Bókaðu bingó/pub-quiz fyrir hópinn á Facebook-síðu Hæ hæ!

Júlíana Sara: "Þetta er stærsta játning sem ég hef komið með í viðtali" - #127 12.11.2020

Júlíana Sara Gunnarsdóttir er ein af fyndnustu leikkonum Íslands - sem hefur slegið í gegn í Venjulegu Fólki. Hún kom til okkar og játaði ýmiskonar ævintýri - og hélt engu undan. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a IG: helgijean & hjalmarorn110

"Við erum öll kúkar" - #126 09.11.2020

Símahrekkur í Útvarp Sögu - Beðið um óskalag í Ölgerðinni - og deitmarkaðurinn á Íslandi. Allt þetta og meira í nýjasta Hæ hæ! IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn í myndbandi í áskrift á hihi.is Bókið Bingó og Pub-quiz: https://hihi.is/pages/bokanir

Normið: "Andlega allsber í skítugum játningum" - #125 05.11.2020

Stelpurnar í Norminu mættu til okkar - og amen - hvað gerðist? Einhvern veginn enduðu allir fastir saman í lyftu - andlega allsberir í skítugum játningum. IG: evamattadottir & sylviafridjons & helgijean & hjalmarorn110 &

"Ég lifi í slúðri" - #124 02.11.2020

Hvernig er Hjálmar vaxinn niður? Jú - eitthvað sem fáir hafa velt fyrir sér - en kemur í ljós að Ágústa var með skoðanir. Helgi fann svo gamlan ráðningarsamning - sem skýrir hvernig hann kynntist Hjálmari. Í leikþættinum var svo farið í tvö grjóthörð símaöt meðal annars í Evu Ruzu. Takk fyrir að hlusta! - Þátturinn er allur í mynd í áskrift á hihi.is! IG: helgijean & hjalmarorn110

Donna Cruz: "It is what it is ..." - #123 29.10.2020

Donna Cruz sló í gegn í Agnes Joy - og sagði okkur frá hvernig hún bjóst alls ekki við að fá hlutverkið. Svo kom epísk kúkasaga - sem toppar margar - og svo var líka farið á dýptina og talað um "Imposter Syndrome" - eða svikaraheilkennið. Allur þátturinn er í myndbandi á hihi.is IG: donnacruz - hjalmarorn110 - helgijean Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a

"Þú verður alltaf eins og pabbi þinn" - #122 26.10.2020

Í þætti dagsins hraunaði Hjálmar yfir Helga - svo snerist umræðan yfir mikilvægustu málefni dagsins sem eru kvíði og Tinder. Og svo kom FO konan í lokin og lamdi Sölva og Helga. Bókið rafrænt pub-quiz og Bingó á: https://hihi.is/pages/bokanir IG: hjalmarorn110 & helgijean

Auðunn Blöndal: "Ég hefði verið rekinn" - #121 22.10.2020

Sjálfur Auðunn Blöndal mætti til okkar í Kakókastalann - og fór yfir fyndnar sögur frá Króknum yfir í gömlu myndböndin sem hann er að skoða í 70 mínútum - alveg yfir í að eignast son. Hann uppljóstraði svo hver honum þætti fyndnastur í FM95BLÖ. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! Bókanir fyrir Pub-quiz og Bingó sjáið hér: https://hihi.is/pages/bokanir IG: helgijean & hjalmarorn110

"Píkan þín er sæt" - Afmælisþáttur Hjálmars! - #120 19.10.2020

Hjálmar á afmæli í dag - og það var heldur betur stuð í kastalanum! Gítarleikarinn Dabbi Togga mætti og Helgi flutti frumsamið lag um Hjálmar og getu hans til að sjá rósabeð. Og svo allt hitt ævintýrið! Myndband af þættinum er á hihi.is Beiðnir um rafræn Bingó og Pub-quiz eru á FB síðu Hæ hæ. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a!

David the Guide: "Ég eignaðist minn fyrsta son í gegnum Whatsapp" - #119 15.10.2020

Davíð eignaðist son úti í Argentínu fyrir fjórum mánuðum - en vegna Covid hefur hann ekki getað hitt hann. Við ræddum um lífið á andlega ferðalaginu - kakó, ayahuasca - og allt hitt! Þetta var alvöru djúpur þáttur! Þátturinn er í myndbandi í áskrift á hihi.is IG: davidtheguide & helgijean & hjalmarorn110

"Ég vissi að talan væri orðin tæp" - #118 12.10.2020

Í þætti dagsins var farið yfir töluna á buxunum hjá Hjálmari sem var mjög tæp. Eins fórum við yfir höfnun. Helgi lenti í Tinder-deit höfnun - og er að jafna sig á því. Í leikþættinum hlustaði ungur drengur á móður sína - sem var að opna sambandið við föður hans. Allur þátturinn er í áskrift á myndbandi á hihi.is IG: helgijean&hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta & munið að subscribe-a!

Christopher Lund: "Ég hélt það yrði heimsendir að slíta þessari fjölskyldu" - #117 08.10.2020

Til okkar mætti Christopher Lund einn fremsti ljósmyndari Íslands. Hann fór á dýptina í því að tala starfið sitt - skilnaðinn - og allar tilfinningar sem fylgja því. Við ræðum að sjálfsögðu um andlega ferðalagið - og allt sem fylgir því! IG: helgijean & hjalmarorn110

"Og kóngurinn orðinn vel gulur" - #116 05.10.2020

Tilkynning: Aukaþátturinn í áskrift á hihi.is verður 13. október! Hvað gerist ef maður reykir sígarettur í gegnum typpið? Er fólk að bregðast rangt við kulnun? Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110

Ólafía Þórunn: "Kannski gæti ég æft meira en hinar" - #115 02.10.2020

Afrekskylfingurinn Ólafía Þórunn mætti til okkar og sagði frá ferlinum í golfinu, ráðinu frá mömmu sem gerði hana hrædda við stráka - og fólkið sem stendur með henni í hæðum og lægðum. IG: olafiakri - hjalmarorn110 - helgijean Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a!

"Besta sem maður getur gert til að hjálpa fólki er að þegja" - #114 29.09.2020

Nýja heimasíða Hæ hæ er dottin í loftið! Kíktu á hihi.is - og nældu þér í áskrift! Í þætti dagsins er talað um hlustun! Hvað er góð hlustun - og hvað er vond hlustun? Maggi Mix kíkir við og grillar í liðinu - og svo er Ágústa á svæðinu og deilir reynslu og styrk. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: hjalmarorn110 & helgijean

Tinna Bk: "Við vorum fyrsta kynslóðin af snöppurum" - #113 25.09.2020

Til okkar kom Tinna Bk! Það var heiður að fá þessa stórstjörnu úr podcastheiminum. Hún fór með okkur í djúpu og háu tónanna. Sagði okkur frá gríninu sem hún varð að koma frá sér - athyglisbrestinum - og hvernig líf hennar er kraftaverk á hverjum degi. IG: tinnabkr - helgijean - hjalmarorn110

"Sambönd eru ekkert nema sölumennska" - #112 21.09.2020

Í þætti dagsins var farið fyrir nýjan undra-elixír sem kemur í staðinn fyrir kaffi. Næst var umfræða um kynfæra-rakstur eldri borgara. Ásamt bráðmögnuðum skilaboðum frá Ljósu sem skaut nýju ljósi á Hjálmar. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a

Simmi Vill: "Ég á eftir að feisa einn grátvegg" - #111 17.09.2020

Simmi Vill mætti til okkar og fór yfir allt sem gerst hefur: skilnaður, dómsmál, fráfall föður hans, öll fyrirtækin - og nýi ferillinn sem áhrifavaldur með maska og kanínueyru á Instagram. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a IG: simmivill & helgijean & hjalmarorn110

"Nánd er ekki alltaf kynferðisleg" - #110 14.09.2020

*Pub-quiz í Keiluhöllinni 17. sep. kl. 21:00" Í þætti dagsins var farið yfir hvort það sé í lagi að vera með stelpum milli tvítugs og þrítugs. Sérfræðingurinn Ágústa Kolbrún Andersen mætti til að tjá sig um þetta mál - ásamt ýmsu öðru. Eins var farið yfir málin á gráa svæðinu - og hvað maður gerir til að komast þaðan. Takk fyrir að hlusta - Og munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn & meg...

Ólíver Þorsteinsson: "Ég hélt ég myndi aldrei missa sveindóminn" - #109 10.09.2020

Til okkar mætti Ólíver Þorsteinsson í eitt af einlægu viðtölunum í Hæ hæ. Ólíver gekk í gegnum dimma dali í kvíða og þunglyndi - en sneri blaðinu við, skrifaði bók - og segir okkur frá lífi sínu í dag. Við förum líka inn í umræðu um að missa sveindóminn - og pressuna við að vera ungur í dag. IG: oliverdorada & helgijean & hjalmarorn110

"Sambönd eru bara Norður-Kórea" - #108 07.09.2020

Í þætti dagsins förum við fyrir allskonar hluti - eins og hvort það sé nauðsynlegt að eignast börn - nauðsynlegt að eignast maka - eða hvort maður eigi að vera einn og yfirgefinn að eilífu. Svo verður líka rætt um kakó - í með og á móti. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110

Salka Sól: "Ef ég gef frá mér jákvæða orku - þá gerast jákvæðir hlutir" - #107 03.09.2020

Til okkar mætti Salka Sól og talaði um upphafið að ferlinum, taugaáfallið í leigubílnum, hasarferðina til Slóvakíu - og lífslexíuna um að gefa frá sér jákvæðu orkuna. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: salkaeyfeld - helgijean - hjalmarorn110

Ouça o podcast Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos